Morgunblaðið - 14.07.1993, Page 37

Morgunblaðið - 14.07.1993, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 37 ÞRIÐJUDAGS- TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR NEMA HEFNDARHUG HEFNDARHUGUR Frábær hasarmynd þar sem bardagaatriði og tæknibrellur ráða ríkjum. Ef þér líkaði „Total Recall" og „Terminator", þá er þessi fyrir þig! Sýnd kl. 5,7,9 og 11 í A-sal. Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára Erótísk og ögrandi mynd um taumlausa ást og hvernig hún snýst upp í stjórn- laust hatur og ótryggð. Mynd sem lætur engan ósnortinn. Djörf og ógnvekjandi. Sýnd í B-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára ONE FALSE MOVE **** EMPIRE ***MBL. *** DV Einstök sakamálamynd, sem hvarvetna hefur fengið dúnduraðsókn. Sýnd í C-sal kl. 5, 7, 9 og 11 Bönnuð innan 16 ára. Umdeildasta mynd ársins 1993 ÞRÍHYRIU- IIVIGURIINIIXI SÍÐAN „AMERICAN GIGAL0“ HEFURSVONAMYND EKKISÉST! Aðalhlutv.: William Baldwin, kyntákn Bandaríkjanna í dag, („Sliver", „Flatliners" og „Back- draft"), Kelly Lynch („Drugstore Cowboy") og Sherilyn Fenn („Twin Peaks“). * * * * „Stórkostleg mynd.“ KFMB-TVSan Diego Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. Bönnuðinnan 12 ára. TVEIR ÝKTIR1 „LOADED WEAPON 1 “ fór beint á toppinn í Bandaríkjun- um! Mynd, þar sem „Lethal Weapon“, „Basic lnstinct“, „Silence of the Lambs“ og „Wayne's World“ eru teknar og hakkaðar í spað í ýktu gríni. Sýnd kl.5,7,9og11. GOÐSOGNIN Spennandi hrollvekja af bestu gerð. Mynd sem fór beint á toppinn í Englandi. Sýnd kl. 5,7,9og11. Stranglega bönnuð innan 16 ára. LOFTSKEYTAMAÐURINN Meiriháttar gamanmynd eftir sögu Knuts Hamsun. Kosin vinsæfasta myndin á Norrænu kvikmyndahátíðinni '93 í Reykjavík. * * *GE-DV ***Mbl. Sýndkl.5,7, 9og11. SIÐLEYSI * * * MBL. ★ ★ ★ Pressan ★ ★ ★ Tíminn Aðalhlutverk: Jeremy Irons og Juliette Binoche. Sýnd kl. 5,.7,9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. . Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Gengið undir fánum Skrúðgangan á leið frá Keflavíkurkirkju. Fánaberar eru Einar Örn Einarsson organisti og sfjórnandi kirkjukórsins og Elsa Kjartansdótt- ir sem hefur haft veg og vanda af útivistardeginum. Útivistardagiir eldri borgara í Keflavík Keflavík. ELDRI borgarar í Keflavík létu sig ekki vanta á útivistardaginn í síðustu viku, en þetta er þriðja árið sem staðið er að degi sem þessum í Keflavík. Upphafsmað- ur að útivistardeginum er Elsa Kjartansdóttir og hefur hún jafnframt annast skipulagningu. Dagskrá útivistardags- ins var hin fjölbreyttasta og stóð yfir allan daginn og langt fram á kvöld. Meðal þess sem var á dag- skránni var sameiginleg bæna og gleðistund í Keflavíkurkirkju en þaðan gegnið í skrúðgöngu í skrúðgarð- inn þar sem ýmislegt var til skemmtunar. Einnig má nefna púttvöllinn á Mánaflöt sem jafnan er vinsæll afþreyingarstaður með- Púttað Púttað á púttvellinum á Mánaflöt en hann nýtur mikilla vinsælda meðal eldri borg- ara. var al eldri borgara í bænum. Vel heppnuðum degi lauk svo í veit- ingahúsinu Þotunni um kvöldið með sameiginlegu borðhaldi og skemmtidagskrá. -BB Eyjaferðir oft á dag Stykkishólmur. SÓL OG SUMAR við Breiða- fjörð. Vonandi er sumarið kom- ið, og þessir sólskinsdagar sem undanfarið hafa verið hér hafa óspart verið notaðir. Sókn ferðamanna á Snæfellsnes er hafin í ár að fullu og fjöldinn nýtur þess. Stykkishólmur fer svo sannarlega ekki varhluta af sumargleðinni og að taka á móti gestum. Eitt af því ævintýralegasta sem fólki er boðið hér upp á eru „Eyja- ferðir“, en það fyrirtæki reka þau hjónin Svanborg og Pétur Ágústs- son og einnig hafa þau hús þar sem fólk getur fengið gistingu. Þau hafa opna skrifstofu og veita leiðbeiningar og þar er hægt að fá ýmislegt sem tilheyrir ferða- þjónustu. Hraðbáturinn Hafrún fer með fólkið um eyjasund á litríkustu staðina hér við Breiðafjörð. Þessi bátur er byggður sérstaklega til þessara skemmtiferða. Hann tekur um 60 farþega og fer í ferðir oft á dag þegar veður leyfir og hópar geta einnig fengið bátinn sérstak- lega, en um þetta er allt hægt að fræðast á skrifstofu Eyjaferða. Með í ferðinni er svo auðvitað ágætur og kunnur leiðsögumaður ■ Lipstick Lovers eru eina ís- lenska rythm’n blues-sveitin um þessar mundir. Þeir félagar voru eitt aðalnúmerið á tónlistarhátíð- inni íslensk tónlist ’93 í Þjórsárd- al, og nú ætla þeir að halda tón- leika á Hressó fimmtudaginn 15. júlí. Morgunblaðið/Árni Helgason. Eyjaferðir HAFRUN býst til eyjaferða með fjölmarga ferðamenn. sem skýrir leiðirnar, segir frá eyja- lífinu o.s.frv. og svo er komið við á skeljaslóðum og plógurinn tekinn og dregið fyrir skel „hörpudisk" og farþegum boðið upp á skelja- rétt og er það hjá mörgum há- mark gleðinnar. Og það sem allra best er hversu þeir sem fara þess- ar ferðir eru sammála um ágæti þeirra og gagn. Sem sagt ferðin til Stykkishólms kórónast með að fara um eyjasund, sagði einn ferðalangur sem víða hefir farið og af þessu hefði ég ekki viljað missa. Þetta er ævintýri. - Árni. Gönguferð í Gróttu Hafnargönguhópurinn býður í kvöld, miðvikudagskvöld, i gönguferð út í Gróttu. Farið verður kl. 20.30 og 21 frá Hafn- arhúsinu að vestanverðu. Kl. 20.30 verður farið í stutta skoðunarferð um nýja Miðbakk- ann og kl. 21 verður gengið frá Hafnarhúsinu með gömlu strandl- ínunni út í Ánanaust og áfram með ströndinni út í Gróttu og far- ið upp í Gróttuvita en hann er með elstu vitum landsins, tekinn í notkun 1. september 1897. Val verður um að ganga til baka eða taka SVR. Allir eru velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.