Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 1993 39 111 umgengni við Hítarvatn Frá Jóni Meyvantssyni: Þann 26. júní síðastliðinn fórum við feðgar inn að Hítarvatni til veiða, en þangað höfum við farið á hverju sumri síðastliðinn áratug og haft mikla ánægju af að dvelj- ast í þessari náttúruperlu afrétt- anna. Er við komum á okkar hefð- bundnu veiðistaði, sem við höfum ávallt komið til, blasti við okkur dapurleg sjón, tómar plastumbúðir VELVAKANDI SIÐLAUSIR STARFSHÆTTIR TÍVOLÍSINS VALGERÐUR hringdi og sagði frá því að dóttir hennar hefði farið í tívolíið á hafnarbakkanum fyrir nokkru. Þegar hún mætti, um kl. 20.30, keypti hún nokkra miða i tækin og kostaði hver miði 100 krónur. I eitt tækið sem hún fór í þurfti hún að borga þijá miða, eða þijú hundruð krónur. U.þ.b. klukkustundu síð- ar fer systir hennar í sama tæk- ið, en þá brá svo við að hún þurfti að láta fjóra miða af hendi. Fyrri systirin ætlaði svo aftur í þetta ákveðna tæki en var þá rukkuð um fimm miða. Þar með kostuðu þessar tvær til þijár mínútur sem tækið gengur fimm hundruð krónur. Það jafngildir einum bíóníiða á fullu verði. Ekki þýddi neitt að spyija hvernig á þessum verðbreytingum stæði því það eru eingöngu útlendingar, sem tala ekki neina íslensku, sem inn- heimta miðana við tækin. Er virkilega enginn sem hefur eftirlit með þessari starfsemi? INNBROTí SUMARBÚSTAÐI ÆVAREIÐ kona hringdi til Vel- vakanda og sagði frá því að fjöl- skylda he'nnar ætti sumarbústað í Reynisvatnslandi sem virtist vera mjög girnilegur til innbrota. Á stuttum tíma hefur tvisvar verið brotist inn í bústaðinn og hirt allt sem hönd á festi og virt- ust það aðallega vera munir sem auðvelt er að selja, svo sem gas- ísskápur, sjónvarp, vatnsdæla og fleira. Ijónið úr fyrra innbrotinu eru þau búin að fá greitt frá tryggingum en ekki hið síðara. Þetta hefur valdið því að þau hafa ekkert getað notað sumar- bústaðinn þetta árið. Hún vildi vara aðra sumarbústaðaeigendur við þessum ófögnuði. ÞAKKIRTIL STARFSFÓLKS RÁÐHÚSSINS ÁSDÍS Gunnarsdóttir hringdi og bað Velvakanda að koma á fram- færi þökkum til starfsfólks í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hún er búin að vera með myndlistarsýn- ingu í Tjarnarsalnum í rúma viku og hefur að mestu haldið til í ráðhúsinu þann tíma. Hún segir að allt starfsfólkið hafi sýnt henni sérstakan velvilja og það bæri að þakka. ÞAKKIR ESTER Snæbjörnsdóttir og Sús- anna Kristjánsdóttir vilja koma á framfæri bestu þökkum til Gísla Sigurbjörnssonar, forstjóra Grundar, og til Mæðrastyrks- nefndar fyrir gott boð sem þær þáðu í júní. Þær dvöldu í húsinu Áshóli, Hveragerði, á vegum þessara aðila í tíu daga. Þetta var ánægjuleg dvöl og viður- gjörningur allur hinn besti. Stað- urinn friðsæll og fallegur. Þama leið þeim eins og blóma í eggi. Kærar þakkir. TAPAÐ/FUNDIÐ Úr, gleraugu og veski KARLMANNSÚR með stálkeðju, sólgleraugu og kvenveski fund- ust á Mánagötu sl. mánudags- morgun. Upplýsingar í síma 27214. Myndavél MYNDAVÉL tapaðist sl. sunnu- dag, sennilega við Kaplaskjóls- veg gegnt Hagamel, eða í nám- unda við Þjóðminjasafnið, Suður- götu. Finnandi vinsamlega hringi í síma 677536 eða 36057. Fund- arlaun. Sundtaska hvarf úr bíl SVÖRT íþróttataska (Champion Sport) með sunddóti o.fl. var tek- in úr bíl við Skólatröð í Kópavogi aðfararnótt sl. föstudags. Hafí einhver orðið hennar var er hann vinsamlega beðinn að hafa sam- band í síma 642483. Hjólbörudekk HJÓL af hjólbörum tapaðist á Stíflisdalsvegi (leiðin frá Þing- vallavegi í átt að Hvalfirði) um hádegisleytið sl. sunnudag. Hafi einhver orðið hjólsins var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 14486. Magnús. undan kóladrykkjum og bjórdósir og annað rusl bæði við vatnið og eins í hrauninu við það. Það fyrsta sem við gerðum var að tína plastumbúðir og dósir sam- an í plastpoka, sem við höfðum meðferðis og síðan að urða annað rusl. Þarna virðist ekki vera neitt eftirlit né veiðivarsla, sem væri nauðsynleg vegna aukinnar um- ferðar þarna inn eftir. Menn eru alltof kærulausir í umgengni við íslensku fjallavötnin og aðrar náttúruperlur í okkar fagra landi. Ég vil skora á þá aðila sem málið varðar að koma eftirlitsmál- um í lag. Hraunhreppingar, stand- ið vörð um ykkar náttúruperlu sem er Hítarvatn og umhverfi þess. JÓN MEYVÁNTSSON, Álftamýri 28, Reykjavík. Pennavinir Bandarískur 39 ára karlmaður hyggur á íslandsferð. Getur ekki áhugamála en vill eignast penna- vini, konur sem ekki reykja: Richard Waldon, Rt. 10, Box 331-E, Sarasota, Florida 34240, U.S.A. Sautján ára finnsk stúlka með margvísleg áhugamál: Henriikka Leppaniemi, Tikka-Mikonmutka 7, 40500 Jyvaskyla, Finland. Sautján ára íri með áhuga á hest- um, tónlist, o.fl.: Cormac Byrne, 39 Copeland Grove, Clontarf, Dublin 3, Ireland. Fimmtán ára japönsk stúlka með áhuga á bókalestri og tónlist: Kaori Muramoto, 674-1 Ushimizu Arao-shi, Kumamoto, 864 Japan. Frá Ghana skrifar stúlka á þrítugs- aldri með áhuga á landi og þjóð: LEIÐRÉTTING Snjósleðabrekka ekki vélsleða- brekka í frétt í gær um hóp unglinga í Vinnuskólanum, sem í sumar hafa hannað opið leiksvæði í Sunda- hverfi, sagði að í bígerð væri að hanna vélsleðabrekku á leiksvæð- inu. Þetta er rangt en hið rétta er að einn grashóllinn á svæðinu hefur verið hannaður þannig að börn geti rennt sér niður hólinn á snjóþotum að vetrarlagi. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. HEILRÆÐI GETUR LÍTH) BARN KANNAÐ HEIMILIÐ ÞTTT SLYSALAUST? SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS RAUÐI KROSS ÍSLANDS Innilegt þakklœti fyrir kveðjur, gjafir og heim- sóknir til mín ogfjölskyldu minnar afmœlisdag- inn 5. júlí sl., sem gerðu mér daginn ógleyman- legan. Sverrír Sveinsson. aíimqitak. s. ÍF OF NORWAY/ . V Uh NUHWAy W SUMARTILBOÐ IJULI Sæng Hollofil 4 140x200 cm jSí4ÖÖ 5.120 Sæng Hollofil 4 100x140 cm &6Ó0 2.880 Sæng Hollofil 4 80x100 cm 2í5Ö0 2.000 Sæng Hollofil 4 65x 80 cm ASÚ0 1.520 Koddi Hollofil 4 Koddi Fiberfill Koddi Fiberfill 50x 70 cm J2^SÓO 1.840 40x 60 cm 1.250 1.000 35x 40 cm ^-900 720 Síðumúla 22, sími 812244. FÁLKINN Suðurlandsbr. 8, s. 814670 Mjóddinni, sími 670100. Skólavörðust. 21a, sími 14050. I I I AMC Wagoneer, árg. ’86, sjálfsk., brún- sans. Gullfallegur bíll. Verð 1.180.000,- NÝJA BÍLAHÖLLIN RUNAHÖFÐA 1 S:6722Y7 VANTAR ALLAR GERDIR NYLEGRA BILA A SKRA OG A STADINN BÍLATOFtG RUNAH Toyota Corolla 1.6 Sl, árg. '93, rauöur, ek. 1.800 km. Verð 1.250.000,- Toyota Corolla 1.3 GL, árg. ’92, hvítur, ek. 15 þ. km. Verð 1.050.000,- MMC Galant 4x4, árg. ’90, grár, ek. 63 þ. km. Verð 1.280.000,- Honda Accord EX, árg. '91, hvítur, ek. 18 þ. km., sjálfsk. Verð 1.520.000,- Subaru station 4x4, árg. '89, blár, ekinn 82 þ. km. Verð 920.000,- Subaru 1800 Coupé, árg. ’88, Ijósblár, ek. 39 þ. km. Verð 690.000,- MMC Lancer 1500 EXE, árg. ’91, blá- sans, sjálfsk., ek. 24 þ. km. Verð 1.040.000,- Honda Civic DX, árg. ’89, hvitur, álfelgur, ek. 74 þ. km. Verð 690.000,- Suzuki Fox langur, árg. '85, silfurgrár, 2000 Fiat-vól, sjálfsk., 33" dekk, upphækkaður. Verð 690.000,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.