Morgunblaðið - 14.07.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993
43
KNATTSPYRNA
Reuter
Jean-Jacques Eydelie viðurkenndi um helgina að hafa haft milligöngu um
mútugréiðslur til mótheija Marseille, en honum var sleppt úr varðhaldi í gær.
Frá Bob
Hennessy í
Englandi
FOLK
■ DAVID Speedie hefur gengið
til liðs við Leicester City eftir eitt
ár hjá Southampton. Kaupverðið er
47 miiljónir. Speedie kom til Sout-
hampton frá Black-
bum, en hann var
einskonar skiptimynt
þegar Alan Shearer
fór frá Southamp-
ton til Blackburn.
H SPEEDIE kunni aldrei við sig
hjá Southampton og lék aðeins tólf
leiki með félaginu sl. haust, og skor-
aði ekki mark. Hann var lánaður til
þriggja félaga í vetur, síðast til
West Ham, og skoraði nokkur mikil-
væg mörk fyrir liðið er það tryggði
sér úrvalsdeildarsæti.
H JOHN Bames hefur skrifað und-
ir nýjan tveggja ára samning við lið
sitt Liverpool. Nokkur vafí lék á
því hvað Barnes, sem er 29 ára
gamall, myndi gera, en þeim vafa
hefur nú verið eitt.
H ASTON Villa flýgur til Japan á
morgun og mun liðið leika einn leik
gegn japanska liðinu Yomiuri Nipo
á mánudaginn.
H TVÖ lið eru nú á höttunum eftir
írska landsliðsmanninum Andy
Townsend og hefur lið hans
Chelsea fengið tilboð upp á 2 millj-
ónir punda í kappann, um 214 millj-
ónir króna. Liðin sem hafa áhuga
eru Man. City og Aston Villa.
H JIM Smith framkvæmdastjóri
hjá Portsmouth, hefur keypt John
Durnin frá Oxford fyrir rúmlega
21 milljón. Durnan, sem er 27 ára
gamall, var í fjögur ár hjá Liverpo-
ol og lék þá aðallega með varaliðinu,
fór síðan til WBA í eitt ár og hefur
undanfarið plumað sig ágætlega hjá
Oxford.
H CHELSEA hefur verið dæmt að
greiða Swindon um áttá milljónir
króna í bætur vegna skipta Glenn
Hoddles, fyrrum leikmanns og fram-
kvæmdastjóra félagsins, frá Swin-
don til Chelsea. Swindon fór í mál
er Hoddle gekk til liðs við Chelsea
sem framkvæmdastjóri, og sagði að
félagið þyrfti líka að fá bætur fyrir
að hafa tapað leikmanni, en Hoddle
lék með liðinu í 1. deild, og myndi
án vafa leika með Chelsea.
H SWINDON fór fram á 107 millj-
ónir í bætur, en fær auk átta milljón-
anna rúmlega 200 þúsund krónur frá
Chelsea í hvert sinn sem Hoddle
leikur.
1 Pólverjar J
VÍijí afé
fráVi íkingi
Leiðrétting
Serbinn Zoran Micovic, sem hefur leikið
með Fylki, hefur ckki gengið frá félaga-
skiptum í Tindastól, eins og kom fram í
blaðinu í gær. Það gæti farið svo að hann
haldi heim á leið.
EKKI er víst hvort Pólverjinn
Tomasz Jaworek leiki sinn
fyrsta leik með Víkingum gegn
ÍBV annað kvöld, þar sem
pólska knattspyrnusambandið
hefur krafið Víking um greiðslu
fyrir leikmanninn, þrátt fyrir að
félagið sem hann lék með áður
hafi látið hann lausan án slíkrar
kröfu. KSI hefur sent útfyrir-
spurn til FIFA, Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins, vegna
þessa máls og er svara að
vænta í dag.
Snorri Finnlaugsson fram-
kvæmdastjóri KSÍ sagði í gær
að samkvæmt þeim upplýsingum
sem þeir hefðu fengið frá FIFA
væri pólska sambandinu ekki heim-
ilt að krefja félagið um þessa
greiðslu, það hefði komið fram í
óformlegum samtölum við menn hjá
FIFA, en endanlegt svar bærist í
dag, þegar FIFA hefði fengið þær
skýringar frá pólska sambandinu
sem sambandið bað um f gær.
Snorri sagði að ekki væri um mikl-
ar fjárhæðir að ræða, en nauðsyn-
legt væri að fá úr því skorið hvort
þetta væri heimilt.
Pólvetjinn átti að leika sinn
fyrsta leik gegn ÍBV í Eyjum annað
kvöld, en gefí pólska knattspymu-
sambandið ekki grænt ljós á félaga-
skiptin fyrir leikinn má hann ekki
leika.
Óvissa um þátttöku
meistara Marseille
Franska meistaraliðið Marseille,
sem sigraði í Evrópukeppni
meistaraliða í vor, verður með í
næstu Eívrópukeppni að öllu
óbreyttu, en sannist að félagið hafí
staðið fyrir mútugreiðslum missir
það réttinn og hefur franska knatt-
spymusambandið frest til 31. ágúst
til að tilkynna annað lið, ef á þarf
að halda.
’Að sögn Ellerts B. Schram,
stjórnarmanns UEFA, fór fram
mikil umræða um mál Marseille á
stjómarfundi í gær, en niðurstaðan
hefði verið að gera ráð fyrir liðinu
í Evrópukeppni meistaraliða uns
sekt yrði sönnuð.
Pólsku liðunum Legia Warsaw
og LKS Lodz var meinuð þátttaka
í Evrópukeppni félagsliða vegna
mútumála í lokaumferð pólsku
deildarinnar. Legia varð í efsta
ÍA og Valur
í forkeppni
Knattspymusamband Evrópu
ákvað í gær að breyta ákvörð-
un undirbúningsnefndar varðandi
fjölda liða í forkeppni Evrópumóta
meistaraliða og bikarhafa, en dreg-
ið verður í Sviss í dag. íslandsmeist-
arar ÍA og bikarmeistarar Vals
leika í forkeppni, en slík keppni er
ekki í Evrópukeppni félagsliða og
byijar KR í 1. umferð. Fulltrúar
(slensku liðanna eru í Sviss og verða
viðstaddir dráttinn.
42 lið taka þátt í Evrópukeppni
meistaraliða og var ákveðið að þau
20 lið, sem væra lægst að stigum,
færa í forkeppni. í Evrópukeppni
bikarhafa era 43 lið og fara 22
neðstu í forkeppni. Eftir að dregið
hefur verið í forkeppni verður dreg-
ið í 1. umferð. Liðin, sem komast
áfram úr forkeppninni, vita því í
dag hveijir mótheijamir verða í 1.
umferð.
í Evrópukeppni félagsliða era 64
lið og var þeim skipt í átta riðla.
KR getur því aðeins dregist á móti
einu af sjö liðum, en fyrir liggur
að Mecheíen og Valencia dragast
ekki saman.
Lokamínútur í lagi
Stefán
Slefánsson
skrifar
áltækið sá hlær best sem síð-
ast hlær átti vel við í Kópa-
voginum í gærkvöldi þegar Breiða-
blik vann Stjömuna
3:2 eftir æsilegar
lokamínútur.
Stjaman sótti ákaft
í byijun og uppskar
mark á 18. mínútu þegar rang-
stöðugildra Blika brást. Eftir hlé
snerist dæmið við. Blikar sóttu lát-
laust, gerðu mark, en algerlega
gegn gangi leiksins komust
Garðbæingar aftur yfir tveimur
mínútum fyrir leikslok. Það var nóg
fyrir Blika sem tókst að gera tvö
mörk á þeim tíma.
Sanngjam sigur Vals
Valur vann ÍA 4:1 á Akranesi.
Sigurinn var sanngjam en of
stór. Vaiur fékk óskabyijun, en
stórgóð markvarsla Guðbjargar
Sigþór
Einksson
skrifar
Ragnarsdóttur kom
í veg fyrir að ÍA
jafnaði skömmu eft-
ir hlé. Vel var að
öllum mörkunum staðið. Kristbjörg
Ingadóttir, Ragnheiður Víkings-
dóttir og Soffía Ámundadóttir áttu
mjög góðan leik með Val, en Hall-
dóra Gylfadóttir, Jónína Víglunds-
dóttir og Margrét Ákadóttir voru
bestar hjá ÍA.
ÍBA nýtti færin
Akureyrarstúlkur kræktu sér í
dýrmæt stig í Neskaupstað,
unnu Þrótt 2:0. Þróttur átti meira
í leiknum, en ÍBA
■HHHHH nýtti færin. Gerður
Ágúst Guðmundsdóttir var
Blöndal best hjá Þrótti, sem
fékk 14 homspymur
í leiknum gegn fjóram, en Eydís
Marinósdóttir og Valgerður Jó-
hannsdóttir vora bestar hjá ÍBA.
KORFUKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
Haukar til Frakklands
DREGIÐ var í Evrópukeppninni
í körfuknattleik ígær. íslands-
meistarar ÍBK drógust á móti
liöifrá Litháen, Snæfell lenti á
móti írsku bikarmeisturunum
og Haukar leika gegn liði frá
Frakklandi.
MT
Islandsmeistaramir frá Keflavík
drógust á móti Zalgiris frá Lit-
háen, en liðin era líka saman í riðli
í Norður-Evrópu keppninni. Sá rið-
ill verður leikinn í Kárus rétt utan
við Vilnius í lok ágúst, en leikirnir
í Evrópukeppninni era settir á 9.
og 16. september. Keflvíkingar
ætla að reyna að fá sig færða yfir
í hinn riðilinn í N-Evrópu keppninni
því annars yrði þetta full dýrt fyrir
þá. Flugið fyrir liðið til Litháen
kosþar um 800 þúsund og tvær ferð-
ir þangað á tæpum mánuði er ansi
mikið.
Snæfell tekur þátt í Evrópu-
keppni bikarhafa og mætir Jameson
St. Vincent frá Dublin á írlandi.
Forráðamenn Snæfells segjast
ánægðir með dráttinn, þetta sé til-
tölulega ódýr ferð og Hólmarar
gætu fjölmennt á leikinn úti og
notað tækifærið og verslað í leið-
inni. írska félagið er lítið félag,
svipað og Snæfell og tekur heima-
völlur þess aðeins um 600 áhorfend-
ur. Það hyggst þó leika gegn Snæ-
fellingum í stærra húsi sem tekur
um 2.500 áhorfendur og segist fylla
það.
sæti, en titillinn var tekinn af félag-
inu, og LKS, sem var í öðra sæti,
missti einnig tvö stig, sem varð til
þess að Lech Poznan fékk meistara-
titilinn. Pólska knattspyrnusam-
bandið tilkynnti fyrmefnd tvö li4J-
UEFA-keppnina, en ákveðið var að
leyfa þeim ekki að vera með. Þar
með vora 63 lið eftir í keppninni
og til að fá æskilega tölu var Heart
í Skotlandi bætt við.
Haukar munu leika við Dijon í
Frakklandi og eiga þeir fy'rri leikinn
heima 29. september en þann síð-
ari úti 6. október. Ingvar Jónsson
þjálfari Hauka sagði fullan hug á
að leika fyrri leikinn heima. „Við
erum spenntir, svona við fyrstu at-
hugun og það er ljóst að við ætlum
ekki að fara í þetta bara til að vera
með. Mér vitanlega era þeir ekki
með landsliðsmann en franskur
körfuknattleikur er hátt skrifaður
og þetta verður erfitt. John Rhodes
þekkir vel til körfuknattleiksins í
Frakklandi og það hjálpar. Við er-
um búnir að ganga frá samningum
um að hann leiki áfram með okk-
ur,“ sagði Ingar.
Liðin í hatti með
ÍA, Valog KR
Evrópukeppni meistaraliða
Forkeppni 18/8 og 1/9
Riga..............Lettlandi
Rosenborg............Noregi
Aarau............... Sviss
HJK...............Finnlandi
Linfield......Norður-írlandi
Zagreb..............Króatíu
ÍA..................íslandi
Partizani...........Albaníu
Avenir Beggen....Lúxemborg
Omonia..............Kýpur
Cwmbran...............Wales
Floriana............ Möltu
Beitar.................ísrael
Cork................írlandi
Ikranes.............Litháen
Tallin............Eistlandi
Olympia............Slóveníu
Dynamo Tiblisi......Georgíu
Tóftir.............Færeyjum
Zimbra.............Moldavíu • $
Evrópukeppni bikarhafa
Forkeppni 18/8 og 1/9
Degerfors...........Svíþjóð
Lugano.................Sviss
Valur...............íslandi
OB.................Danmörku
Apœl..................Kýpur
Lilleström..........Noregi
Sliema................Möltu
MYPA..............Finnlandi
Karpati.............Úkraínu
Maccabi..............ísrael
RAF...............Lettlandi
Vilnius.............Litháen
Altpetrol............;.....
Bangor.......Norður-írlandi
Shelboume...........írlandi
Diddeleng.........Lúxemborg
Badsez.........Lichtenstein
Hafnaboltafélagið ..Færeyjum
Kosice.............Slóvakíu
Nemangrodno................
Tallin............Eistlandi
Publicun...........Slóveníu
Evrópukeppni félagsliða
1. umferð
Leikdagar 15/9 og 29/9
Mechelen.............Belgíu
Valencia..............Spáni
PSV................Hollandi
KR..................íslandi
Norrköping..........Svíþjóð
Karlsruhe........Þýskalandi
Nantes...........Frakklandi
MTK...........Ungveijalandi
URSLIT
1. DEILDKVENNA
UBK - Stjarnan.....................3:2
Vanda Sigurgeirsdóttir (63., 90. vsp.), Ásta
B. Gunnlaugsdóttir (89.) - Guðný Guðna-
dóttir (18., 88.)
ÍA - Valur....___________________ 1:4
Margrét Ákadóttir (45.) - Kristín Briem
(4.), Anna Sigurðardóttir (8.), Kristbjörg
Ingadóttir (65., 68.)
Þróttur - ÍBA_________.............0:2
- Ellen Óskarsdóttir (17.), Amdís Ólafsdótt-
ir (29.)
Fj. leikja U J T Mörk Stig
KR 6 5 1 0 17:6 16
UBK 7 4 1 2 16: 11 13
VALUR 7 3 1 3 13: 10 10
þRóttur 7 2 2 3 9: 16 8
ÍBA 7 2 1 4 10: 14
STJARNAN 7 1 3 3 16: 17 6
ÍA 7 1 3 3 9: 16 6