Morgunblaðið - 29.08.1993, Side 10

Morgunblaðið - 29.08.1993, Side 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1993 eftir Arnald 'lndriðason ENGINN spennusagnahöf- undur er umtalaðri um þessar mundir en banda- ríski rithöfundurinn Mich- ael Crichton. Ástæðurnar eru tvær: Júragarðurinn, eða „Jurassic Park“, og Sólris eða„Rising Sun“. Báðar hafa þær orðið að milljarða króna bíómynd- um sem frumsýndar hafa verið með stuttu millibili og vakið aðdáun í fyrra tilvikinu en verið mótmælt í því síðara. Warner Bros. kvikmyndaverið hefur keypt réttinn að næstu bók Crichtons fyrir 245 milljón- ir króna, eldri bækur hafa verið endurútgefnar og sögur hans virðast ómiss- andi í sumarfriið um allan heim. ^Sjórar bækur Crichtons ■ eru á metsölulista dag- blaðsins The New York Tim- es(Kongó, „Sphere", „Jur- assic Park“, „Rising Sun“). Annar tískuhöfundur nú um stundir, John Grisham, á „að- eins“ þijár sögur á listanum. Hér heima hafa bækur Cric- htons „rokselst" eins og einn bóksalinn komst að orði og hafa bókabúðir orðið uppi- skroppa með þær. Að ein- hverju leyti má þakka það allri umíjölluninni sem bíó- myndirnar, sérstaklega tækniundrið Júragarðurinn, hafa fengið í fjölmiðlum en ekki má gleyma í öllu því fári að sól Crichtons hefur risið mjög hin sfðustu ár sem afbragðs spennusagnahöf- undar er skrifar iðulega um heillandi viðfangsefni á sviði vísindaskáldskapar og mótar úr því hraða og spennandi frásögn sem gerist á mörkum hins mögulega. Nokkur dæmi: í bók hans Kongó (1980) gegnir górilla sem skilur mennsk táknmál stóru hlutverki; í „The Andromeda Strain" (1969) kemur dular- fullt veiruský til jarðar úr geimnum og leggst á íbúa smábæjar; bókina „The Terminal Man“ (1972) byggði hann á skáldsögunni Frankenstein eftir Mary Wollstonecraft Shelley; í Júragarðinum (1990) skapa vísindamenn risaeðlur úr kjamsýrum fundnum í skor- dýrum er geymst hafa í rafi í 65 milijón ár. Og svo er það nýjasta bók- in hans sem mest fjaðrafokið er útaf og einhverjir vilja kalla mesta vísindaskáld- skapinn af öllu, „Rising Sun“ (1992), er lýsir yfirgangi Jap- ana á fjármála- og viðskipta- sviðinu ogtregðu Bandaríkj- anna við að snúast gegn henni. Bókin hefur verið mjög umdeild og bíómyndinni hefur verið mótmælt harka- lega. Skoðun Crichtons á 123 milljónum Japana og þjóðfé- lagi þeirra kemur kannski skýrast fram í orðum aðal- söguhetjunnar í „Rising Sun“, Johns Connors, rann- sóknarlögreglumanns í Los Angeles, sem búið hefur í Japan og talar japönsku og telur sig skilja menningu Jap- ana (Crichton byggir persón- una á leikaranum Sean Conn- ery — nafnið er nánast það sama — sem leikur hana í bíómyndinni): „En vinir mínir biðja mig að gleyma því ekki að þeir [Japanir] eru í fyrsta lagi mennskir og í öðru lagi japanskir," segir Connor. „T>ví miður er það ekki alltaf rétt samkvæmt minni reynslu." Bókin segir frá rannsókn lögreglumannsins og félaga hans á morði sem framið hefur verið í japönsku stór- fyrirtæki staðsettu í Los Ángeles en um leið og flett BANDARÍSKI RITHÖFUNDURINN MICH- AEL CRICHTON HEFUR SLEGID i GEGN MEÐ SPENNUSÖGUM ÚR VÍSINDA- OG FJÁRMÁLAHEIMINUM SEM GERAST Á MÖRKUM HINS MÖGULEGA er ofan af morðinu er rakin sterkstaðaJapana í Banda- ríkjunum og hvernig þeir hafa náð undirtökunum í við- skiptalífinu og þjóðlífínu al- mennt. Þar er að margra mati ófögur lýsing dregin upp af Japönunum. Þeir eru sagðir „mestu kynþáttahat- arar“ á jörðinni og þeim sem tala máli þeirra er jafnvel líkt við samverkamenn nasista. Kvikmyndaleikstjórinn Philip Kaufman vildi draga úr þess- ari hlið sögunnar við gerð samnefndrar bíómyndar en við það vildi Crichton ekki una og hvarf frá gerð mynd- arinnar þótt hann sé skrifað- ur handritshöfundur ásamt Kaufman og Michael Backes (David Mamet vann einnig við það). Margar staðhæfingar í bók Crichtons um Veldi sólarinn- ar vestra hafa verið hraktar eða mætt vantrú en hann byggir á skoðunum manna sem telja að tími sé kominn til að endurmeta afstöðu Bandaríkjanna til Japana. Hörðustu gagnrýnendur í þeim hópi segja að Japanir hafi sloppið við gagnrýni árum saman en séu í raun harðskeytt þjóð sem starfi eftir óprúttnum og fjandsam- legum reglum í félagslegu og efnahagslegu tilliti. Cric- hton telur að „háttvísi" jap- anska samfélagsins sem stýr- ir hjá beinum árekstrum ásamt sterkri fjárhagsstöðu Japana hafi orðið til að tak- marka gagnrýni á gerðir þeirra. Hann telur Banda- ríkjastjórn hafa leyft jap- önskum fjárfestum að vaða óhindrað um bandarískt efnahagslíf og hann vill setja strangari reglur um viðskipt- in við Japan. „Við flytjum inn tölvuhluti og flytjum út hrís- gijón,“ segir Crichton. „Við erum að verða bændasamfé- lag. Ef það þýðir að við verð- um að bregðast gegn þeim [Japönum] af hörku, hei, lífið heldur áfram." John Michael Crichton er rúmlega fimmtugur, fæddur árið 1942. Hann er með próf í mannfræði frá Harvard og hann fjármagnaði læknanám við sama skóla með því að skrifa harðsoðna reyfara undir dulnefninu John Lange. Alls skrifaði hann átta sögur undir því nafni á árunum frá 1966 til 1972. Einnig skrifaði hann söguna„A Case of Need“ árið 1968 undir nafn- inu Jeffrey Hudson (nafn á dvergi við hirð Karls IIEng- landskonungs). Fyrsta sagan sem hann skrifaði undir sínu rétta nafni var „The And- romeda Strain", sem út kom árið 1969 og hann byggði að einhveiju leyti á sögum H.G. Wells. Þar kom fram áhugi hans á vísindaskáld- skap og víðtækri heimildar- könnun ásamt því sem kalla má vísindalega frásagnarað- ferð en sagan byggðist upp eins og dagbók með tölvuút- skriftum, tilvísunum í heim- ildir og uppdiktuðum stjórn- arskjölum. Hann hélt áfram með vís- indaskáldskapinn í „The Terminal Man“. Hann sagð- ist alltaf hafa viljað endur- skrifa Frankenstein en sagan segir af manni sem lætur setja í sig tölvustýrð rafskaut sem draga eiga úr ofbeldis- fullri skaphöfn en eitthvað fer úrskeiðis og maðurinn verður að tölvustýrðri drápsmaskínu. Sagan var kvikmynduð með George Segai í aðalhlutverki. Næsta Crichton-saga byggðist á þekktu lestarráni í Bretlandi á nítjándu öld og hét einfald- lega Lestarránið mikla. Síðan skrifaði hann „Eaters of the Dead“ sem rakti ferðalag siðfágaðs araba um Norður- lönd á miðöldum og hvernig hann aðstoðar Norðmenn í baráttu við mannætur frá nýsteinöld. Næsta skáldsaga Cric- htons var Kongó, útgefin árið 1980 og skrifuð í sagnahefð H. Riders Haggards (Námur Salómons konungs). Hún sagði frá landkönnuðum sem leituðu að hinni týndu borg Zinj í svörtustu Afríku og komust í tæri við meira en meðalgreindar górillur. Sjö árum seinna kom „Sphere" sem sagði frá því hvernig vísindamenn reyna að kom- ast að geimskipi sem hrapaði ofan í Kyrrahafið fyrir 300 árum. Eftir það komu þær tvær bækur sem hann hefur orðið heimsfrægur fyrir í seinni tíð, „Jurassic Park“ og „Rising Sun“. ^^eðfram bókaskrifunum reyndi Crichton fyrir sér í Hollywood sem kvikmynda- leikstjóri og handritshöfundur o g kom þá áhuginn á vísinda- skáldskap berlega í ljós. Fyrsta verkefnið í Hollywood var framtíðarspennumyndin,, Westworld" (1973) með Yul Brynner þar sem túristar lentu í skotbardögum við biluð kú- rekavélmenni. Þá kom„Coma“ (1978) með Michael Douglas sem byggðist á sögu Robins Cooks um sjúkiinga sem myrt- ir voru fyrir líffæramarkaðinn. Hann kvikmyndaði Lestarrán- ið mikla með Sean Connery á sama ári og árið 1984 gerði hann „Runaway" með Tom Selleck, spennumynd í slappari kantinum. Honum tókst aldrei að hasla sér völl sem kvik- myndaleikstjóri enda ekki víst að áhuginn hafi verið fyrir hendi. En hann þekkir vel innviðina í Hollywood og þeir sem lesið hafa t.d. „Ris- ing Sun“ sjá að ekki þarf mikið að eiga við hana svo úr henni verði kvikmynda- handrit. Crichton hefur sagt að hann skrifi þegar hann „kemst í stuð“ og skrifi þá 10.000 orð á 16 stunda vinnudegi. Hann kynnir sér afar vel viðfangsefnið sem hann skrifar um hveiju sinni og birtirt.d. langan bókalista í lok „Rising Sun“ sem sýnir hvað hann hefur lesið sér til um Japan sem gert hefur honum kleift að skrifa um land og þjóð af þekkingu án þess nokkurn tíma að hafa dvalið þar lengur en í tvo sólarhringa í senn. Hann vill líka að bókin hans, þótt hún sé reyfari, sé tekin alvarlega. Þetta á við um aðrar bækur hans. í „Jurassic Park“ skrif- ar hann inngang, e.k. varn- aðarorð um einræktun, og brýtur frásögnina upp m.a. með línuritum ogtölvumynd- um til að leggja áherslu á vísindalega þáttinn og raun- veruleikann sem býr að baki. Vísindi einræktunar eins og þau koma fram í „Jurassic Park“ er einmitt sá efniviður sem Crichton leitar eftir til þess að sýna hvað getur gerst þegar maðurinn tekur uppá því að leika guð. Hann sökkti sér í steingervinga- og risa- eðlufræði og kynnti sér til hins ýtrasta þróunina sem átt hefur sér stað í einrækt- un. Úr því mótaði hann spennusögu sem varar við afleiðingum þess að grufla í þróunarsögunni og varar við því sem getur gerst þegar ekkert er til sem heldur utan um hin nýju vísindi. Um hvað Crichton hefur á prjónunum í framtíðinni er ekki gott að segja en líklega nægir að líta í kringum sig í heimi nýjustu tækni og vís- inda. Ef einhver framtíðar- sýnin skelfír ykkur má búast við að Crichton sé þar að ala á óttanum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.