Morgunblaðið - 22.09.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
33
Jóhann Eyfells hefur gegnt prófessorsembætti í Bandaríkjunum um
áratuga skeið.
faðir hans sendi tvo syni sína til
náms í Bandaríkjunum til að nema
eitthvað það sem veitt gæti þeim
gott lífsviðurværi. Fram að þeim
tíma var venjulegast að íslenskir
námsmenn færu til náms í Evrópu.
Jóhann lagði fyrst stund á við-
skiptafræði en endaði með því að
verða arkitekt.
Það starf vék síðan fyrir áhugan-
um á þeirri sérstöku afstraktlist
sem hann hefur verið frumkvöðull
í og er afar sérstæð. Jafnframt lauk
hann mastersgráðu í fögrum listum
við háskólann í Flórída og hefur
verið prófessor um áratuga skeið
við góðan orðstír. Listaverk hans,
sem flest eru afar stór, hafa einnig
vakið mikla athygli á mörgum sýn-
ingúm í Orlando og víðar.
Greinin öll er hlý og vinsamleg
og sýnir glöggt það álit sem þessi
sérstæði íslenski listamaður nýtur
bæði sem slíkur og sem kennari.
LIST
Maðurinn sem gerir afstrakt
myndir úr bræddum málmi
aði sig á þessu allt til dauðadags.
- Honum gramdist á vissan hátt
þessi afstrakthneigð mín og hann
var aldrei viss um að ég hefði ratað
inn á réttar brautir sem listamaður.
Þannig hefst ítarlegt forsíðuvið-
tal stórblaðsins Orlando Sentinel
við Jóhann Eyfells Iistamann og
prófessor í listum við Háskólann í
Mið-Flórída í Orlando. Jóhann hefur
meistarapróf í fögrum listum (fine
arts) auk BA-prófs í. „arkitektúr".
Hann er sonur Eyjólfs J. Eyfells
listmálara. Fyrirsögn greinarinnar
er „Heimurinn veitir afstraktlista-
manni athygli".
Fulltrúi íslands
í viðtalinu er fyrst og fremst íjall-
að um þátt Jóhanns í Biennale-lista-
hátíðinni, sem nú stendur yfir á
Ítalíu og er eins konar ólympíuleik-
ar höggmyndalistamanna. Þangað
fór Jóhann sem fulltrúi íslands, til-
nefndur af íslenskum stjórnvöldum,
með sýnishorn af list sinni.
í blaðinu segir að þessi viður-
kenning sé e.t.v. hápunktur á ferli
listamannsins, sem nú stendur á
sjötugu. Þá er greint frá því í viðtal-
inu, að Jóhann njóti mikils álits
meðal samkennara sinna bæði sem
kennari og listamaður. Þar er og
rakinn ferill hans sem listamanns,
allt frá því Tfann var hnefaleika-
kappi 18 ára gamall. Jóhann segist
hafa sameinað afstraktlist og hraða
í hringnum og árangurinn hafi ver-
ið fjögur rothögg á mótheija.
Hnefaleikaferlinum lauk er hann
kvæntist Kristínu Halldórsdóttur
árið 1949, en hún taldi hnefaleika
ósiðlega.
Lagði stund á viðskiptafræði
og síðan arkitektúr
Fjallað er um námsferil Jóhanns
sem varð sérstæður að því leyti að
Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Flórída.
Fyrir langa löngu gerðist það í
fjarlægu landi með snævi
þakta tinda og hraunbreiður, að lít-
ill drengur velti því fyrir sér af
hveiju faðir hans gerði sig ánægðan
með að mála landslagsmyndir og
selja list sína fyrir hóflegt verð.
- Er rangt að vilja fegra heim-
inn? spurði listamaðurinn son sinn.
Mörgum árum síðar yfirgaf son-
urinn starf sitt sem arkitekt til að
fullnægja þeirri löngun sinni að
móta afstraktmyndir úr bræddum
málmi. Málarinn, faðir hans, furð-
Knattspyrnuáhugamaður
JAN Klovstad, forstöðumaður Norðurlandahússins í Þórshöfn, var
kampakátur þegar hann safnaði saman fánunum eftir að norska
drengjalandsliðið sigraði það íslenska 2:0.
KLAPPLIÐ
Gamla fólkið studdi
unglingana
Islenska drengjalandsliðið keppti
á Norðurlandamóti í Færeyjum
í sumar. íslensku drengirnir stóðu
sig vel og kepptu til úrslita gegn
Norðmönnum. Ljóst var að barátta
liðanna yrði tvísýn og hart barist
innan vallar og utan. Jan Klov-
stad, forstöðumanni Norðurlanda-
hússins í Þórshöfn, rann blóðið til
skyldunnar og studdi hann lands-
menn sína með ráðum og dáð.
Fyrir leikinn komst hann að því
að hópur norskra ellilífeyrisþega
var staddur á hóteli í Þórshöfn.
Klovstad skoraði á ellilífeyrisþeg-
ana að mæta á leikinn og styðja
sína menn. Það var auðsótt mál
og ekki dró úr föðurlandsást Norð-
mannanna þegar Klevstad dró upp
bunka af norskum fánum. Gamla
fólkið mætti á völlinn með flöggin
og hrópaði hástöfum „heia Norge“!
Því miður áttu íslendingar ekkert
svar við þessari óvæntu innrás og
töpuðu 2:0. Það er þó samdóma
álit manna að íslensku strákarnir
hafi staðið sig með mestu prýði á
mótinu, en enginn má við margn-
MARKAÐURINN
Frábært verð - síöustu dagar.
Markaðurinn hættir, Síðasta vika.
Opið laugardag og sunnudag
frá kl. 13-17.
MARKAÐURINN
SKIPHOLTI 50C
£k benetton
Qt benetlon
um. Var haft á orði að eðlilegt
framhald af framtaki Klovstads
væri að nefna Norðurlandahúsið
Norska húsið!
20% AFSLÁTTUR
af permanenti
og strípum
Leirubakka 36 S 72053
GETRAUNADEILDARINNAR 0G
l.DEILDAR KVENNA í KNATTSPYRNU
Á HÓTEL ÍSLANDI LAUGARDAGINN iS.SEPTEMBER.
ÚTNEFNING BESTU 0G EFNILEGUSTU LEIKMANNA.
HÚSIÐ OPNAR KL 10.00 FYRIR AÐRA EN MATARGESTI.
Ltwm VERÐKR. 1.200.-
F0RSALA AÐGÖNGUMIÐA ER HAFIN
FRÁ KL. 13.00 - 17.00 ALLAVIRKA DAGA
hótel ypm
S. 687 111