Morgunblaðið - 11.01.1994, Síða 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
7. tbl. 82. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sex skipveijar björguðust en einn fórst þegar Goðinn strandaði í Vöðlavík
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Bj örgunarmennirnir
ÁHAFNIR þyrlna varnarliðsins voru að jafna sig eftir erfiðan dag á Hótel Egilsbúð í gærkvöldi, sælir og ánægðir að lokinni vel heppnaðri björgunaraðgerð.
Frækilefft björgunarafrek
þyrlusveitar varnarliðsins
AHAFNIR tveggja þyrlna björgunarsveitar varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli björguðu í gær sex skipveijum af þaki björgunarskipsins
Goðans sem var strandað og hálfsokkið í Vöðlavík. Mönnunum var bjarg-
að upp í þyrlurnar af þaki brúar skipsins og teiur foringi leiðangursins
að þyrlunar hefðu ekki mátt koma andartaki síðar, svo bágar hafi að-
stæður skipveija verið. Karl Eiriksson, formaður flugsiysanefndar, seg-
ir að þyrlusveitin hafi unnið frækilegt björgunarafrek. Goðinn var að
undirbúa björgun Bergvíkur af strandstað í Vöðlavík þegar brotsjór
gekk yfir skipið með þeim afleiðingum að það di-apst á vélinni og öðrum
ta'kjum og það rak stjórniaust upp á grynningar. Einn úr sjö manna
áhöfn skipsins drukknaði eftir að brotsjór hreif hann með sér.
Vegna veðurs og annarra að-
stæðna var ekki hægt að bjarga
mönnunum af sjó eða landi.
Aðstæður ógnvekjandi
Þyrla Landhelgisgæslunnar varð
að snúa við á leiðinni austur vegna
ísingar. Varnarliðsþyrlurnar flugu
með suðurströndinni og þurftu að
berjast gegn mótvindi og þungu
slydduregni alla leiðina.
„Aðstæður voru ógnvekjandi.
Goðinn lá í briminu um 150 frá
ströndinni og 8-9 metra háar öldur
braut á honum ofanverðum þegar
við komum að strandinu. Aðstæður
mannanna um borð voru hinar
verstu. Þeir ríghéldu sér í reykháf
skipsins, handrið og annað það sem
var fast á brúarþakinu," sagði Sills
undirofursti, yfirmaður flugsveitar-
innar. Tveir menn voru látnir síga
niður í Goðann til að aðstoða skip-
veija og síðan voru skipbrotsmenn-
irnir selfluttir upp í fjöruna.
Þyrlurnar flugu með tvo menn
úr áhöfn Goðans til Neskaupstaðar
þar sem þeir voru lagðir inn á
sjúkrahúsið til aðhlynningar. Hinir
fjórir fóru landleiðina með björgun-
arsveitarmönnum. Komu þeir seint
í gærkvöldi til Eskifjarðar.
Sjá fréttir á bls. 18-20.
Leiðtogar heilsast
Keuter
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra heiisar Biil Clinton Bandaríkja-
forseta á Ieiðtogafundi NATO í gær. Á milli þeirra eru Albert
Jónsson og Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra hjá NATO.
NATO fyllir öryggis-
tóm í Austur-Evrópu
Brussel. Reuter.
LEIÐTOGAR aðildarríkja AtJantshafsbandalagsins (NATO) buðu
ríkjum Mið- og Austur-Evrópu í gær til samstarfs á sviði varnar-
mála undir formerkjum svonefndrar Friðarsamvinnu. Er litið á
það sem fyrsta skrefið til hugsanlegrar aðildar einhverra gömlu
varsjárbandalagsríkjanna að NATO. Ákvörðun leiðtoganna á
fundinum, sem hófst í Brussel i gær, kemur ekki til móts við
kröfur nýfijálsra ríkja í Austur-Evrópu sem vildu öðlast NATO-
aðild strax en leiðtogar þeirra hafa fallist á hugmyndirnar um
náið varnarsamstarf sem besta kostinn í stöðunni.
Nokkur ríki, þar á meðal Ung- bandalagsins telji þau öryggi sínu
veijaland, Slóvakía og Rúmenía, ógnað. Segir ekki hver viðbrögð
hafa gefið otvirætt til kynna að
þau muni ganga til Friðarsam-
vinnunnar, sem m.a. felur í sér
sameiginlega þjálfun og æfingar
varnarsveita.
NATO ábyrgist ekki öryggi
ríkja sem þátt taka í Friðarsam-
vinnunni en þau geta sótt ráð til
NATO yrðu en Manfred Wörner
framkvæmdastjóri bandalagsins
hefur ítrekað sagt að árás á ná-
grannaríkin í austri yrði ekki lát-
in afskiptalaus.
Frumkvæði NATO-ríkjanna er
ætlað að fylla tómarúm í öryggis-
málum sem hrun kommúnismans
og lyktir kalda stríðsins skildu
eftir í austanverðri Evrópu, und-
irbúa ríki næst austuijaðri banda-
lagsins undir hugsanlega aðild
síðar og fullvissa Rússa um að
ekki sé ætlunin að einangra þá.
Friðarsamvinnan stendur ekki
eingöngu gömlu kommúnistaríkj-
unum til boða og sögðust Finnar
í gær myndu íhuga að ganga til
samstarfsins.
Leiðtogar NATO-ríkjanna ít-
rekuðu á fundinum í gær að
bandalagið væri reiðubúið að
grípa til loftárása á Bosníu til
þess að veija Sarajevo og gæslu-
sveitir Sameinuðu þjóðanna.
Sjá fréttir af leiðtogafundin-
um í Brussel á bls. 24 og 25.