Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994 23 Dræm aðsókn að vélum Háskólahappdrættisins ÁSÓKN í happdrættisvélar HHÍ hefur verið dræm frá opnun spila- stofa í desember. Ragnar Ingimarsson framkvæmdastjóri Happdrætt- is Háskólans segir of snemmt að draga ályktanir af aðsókninni því aðeins séu rúmar fijár vikur síðan vélarnar komust í gagnið. Segir Ragnar að von sé á 50 vélum til landsins til viðbótar. „Ég tel ekki að hægt sé að draga ályktanir af aðsókninni eftir svo skamman tíma. Vélarnar voru sett- ar upp um miðjan desember og lík- legt að jólaundirbúningur hafi eitt- hvað dregið úr áhuga fólks.“ Ragn- ar vildi ekki gefa upp tekjur af happdrættisvélunum til þessa en kvaðst vita töluna upp á hár. „Ég vil ekki nefna upphæðina'en við vitum upp á krónu hvernig hefur gengið. Sumum hefur gengið betur en öðrum og ástæðulaust að vera básúna það hveijum gengur vel og hvetjum illa. Vitað er að staðsetning vélanna og uppröðun ræður ein- hveiju um árangurinn," segirRagn- ar. Hann segir aðspurður að upplýs- ingar um hvenær og hvar sé mest spilað liggi ekki fyrir en verið sé að athuga málið. Aðsókn misjöfn Blaðamaður Morgunblaðsins og ljósmyndari drápu niður fæti á nokkrum spilastofum einn eftirmið- ÁHRIFARÍKUR HÁRKÚR Fyrir hár, húó og negiur. Vitamín, k X T H ' Hugsaöu Niiring fiír h‘|f vel um l'iul ocli "“Mhárið. £ 12» -i Fæst í heilsubúðum, mörgum ■ apótekum og mörkuðum. BIO-SELEN UMB. SIMI: 76610 dag. í spilastofu Hótel Sögu opnar klukkan 16 á daginn og voru tveir að spila þegar að var komið. Sögðu starfsmenn í móttöku að aðsókn hefði verið með minnsta móti frá opnun. Líklega væru fastagestirnir þrír til ijórir sem komið væri. í Lukkupottinum við Lækjargötu sem opnar á hádegi var enginn að spila en starfsmaður þar taldi aðsókn þolanlega. Hugsanlega spiluðu 20-30 manns frá því opnað væri og þar til lokaði. Í spilastofunni Háspennu við Hafnarstræti voru íjórir að spila. Starfsmaður sem varð fyrir svörum sagði að opnað væri klukkan tíu á morgnana og væri aðsókn misjöfn. í Háspennu við Hlemm er opnað klukkan níu á morgnana og sagði starfsmaður nokkur að líklega sæktu staðinn á þriðja hundrað yfir daginn en 15 voru að spila á þeirri stundu. Á Kringlukránni var einn að spila þegar Morgunblaðið leit inn en þar er opnað á hádegi. Morgunblaðið/Þorkell Einn að spila ÞETTA er algeng sjón í spilasölum borgarinnar, einn maður að spila. Harður árekstur í Grindavík Ók öfugu megin við umferðar- eyjuna Grindavík. HARÐUR árekstur varð á Víkur- braut gegnt versluninni Braut á sunnudagskvöld. Tveir voru fluttir á sjúkrahús en fengu að fara heim að lokinni skoðun. Áreksturinn varð með þeim hætti að tveimur bifreiðum var ekið norð- ur Víkurbraut og hugðist ökumaður þeirra aftari fara framúr þeirri fremri og notaði til þéss vinstri akrein eins og vera ber en auk þess ók hann einnig öfugu megin við umferðareyju sem er á götunni. Þar ók hann beint framan á bifreið sem var ekið til suðurs á Víkurbraut með þeim afleiðingum að hún kast- aðist eina 6 metra afturábak. Fimm voru í fyrrgreindu bifreið- inni en tveir í þeirri síðarnefndu og voru eins og fyrr segir tveir fluttir á sjúkrahús með óveruleg meiðsla. Bifreiðarnar voru báðar mikið skemmdar og óökufærar eftir áreksturinn. FÓ ^^^Vaskhugi íslenskt bókahaldsforrit! Fjárhags-, sölu-, launa-, birgða-, viðskiptamannakerfi og margt fleira er í Vaskhuga. Einfalt og öruggt í notkun. Vaskhugi hf. Sími682 680 Ný lög um VSK í gildi um áramótin Fullkomið afgreiðslu kerfi með strika- merkjum þarf ekki að kosta mikið. Nýherji hf. kynnir ódýra lausn: Omron RS3510. Omron RS3510 er eitt mest selda afgreiðslukerfið í Evrópu. /■ Otvíræðir la# Engar áhyggjur af tvískiptum vi rði sa u ka skatti. Hraðari og öruggari afgreiðsla. Fljótari uppröðun í hillur. Nákvæm sölugreining eftir flokkum og VSK þrepum. Auðveldar uppgjör og aðhald í rekstri. Ódýr lausn. Til afgreiðslu Omron strikamerkjakerfið er til afgreiðslu nú þegar. Nýherji hf. hefur nú þegar sett upp á annan tug Omron RS3510 afgreiðslukerfa á þessu ári. Búnaður fyrir ifvÆaáici kassa verslun Omron RS3510 2 stk. Borðscannar 2 stk. PC-tengikort 1 stk. Ambra 486, Local Bus 1 stk. Star Laser 5, laser prentari 1 stk. Birgðar- og sölukerfi 1 stk. Verð samtals: kr. 618.000 án/VSK eða aðeins Lkr. 28i9.65 á mánuði í 24 mánuði miðað við stadgreiðslusamning Glitnis. Verðið er ekki með virðisaukaskatti. Kostnaður og vextir eru reiknaðir með í mánaðargjaldinu (kr. 28.965). NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 - SlMI 69 77 00 Alltaf skrefi á undatt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.