Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNVLÍF ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994 31 Sjónarhorn Atvinnulífíð og stjómsýslulög eftir Jónas Fr. Jónsson Um áramót gengu í gildi stjórn- sýslulög hér á landi, en sett lög hefur skort um framkvæmd stjórn- sýslunnar, þó óskráðar meginregl- ur hafi verið í gildi. I kynningu á lögunum hefur athyglin beinst að samskiptum einstaklinganna við „kerfið“, en minna gert úr því að lögin ná bæði yfir samskipti fólks og fyrirtækja við hið opinbera. Gildissvið Lögin ná til eiginlegrar stjórn- sýslu ríkis og sveitarfélaga, en með því er átt við starfsemi sem telst í eðli sínu vera framkvæmd opin- bers valds. Lögin ná hins vegar ekki til athafna stjórnvalda sem eru einkaréttarlegs eðlis s.s. kaup, sala eða önnur samningsgerð, nema ákvæði um sérstakt hæfi stjórnvalds. Ekki skiptir öllu hver framkvæmir hið opinbera vald, þannig að einkafyrirtæki sem hefði verið falið opinbert vald á ein- hveiju sviði myndi falla undir ákvæði laganna við framkvæmd þess. Lögin ná til svokallaðra stjórnvaldsákvarðana, þ.e. ákvarð- ana sem snúa að borgurunum og kveða á um rétt eða skyldu ein- staklinga eða lögaðila. Ná þau bæði til ákvarðana einstakra manna innan „kerfisins" og stjórn- sýslunefnda. Lögin taka hins vegar ekki til samningu almennra stjórn- valdsfyrirmæla s.s. reglugerða eða verklagsreglna innan stjórnsýsl- unnar. Hæfisreglur í lögunum er að finna reglur um hæfi þeirra sem taka stjórn- valdsákvarðanir. Meginsjónarmið- ið er að enginn taki ákvörðun í máli sem varðar hann sjálfan, nána venslamenn, æðstu yfirmenn eða einkafyrirtæki sem viðkomandi er í fyrirsvari fyrir. Einnig getur það valdið vanhæfi ef aðrar aðstæður eru til þess fallnar að draga hlut- leysi viðkomandi starfsmanns í efa. Undir þetta gæti fallið t.a.m. tölu- verð hlutafjáreign hans, eða ann- arra honum tengdum, í fyrirtæki sem ákvörðun snerti, eða þá ef i 12, sími 44433. ákvörðunin snerti keppinaut þess fyrirtækis. Einnig gæti þetta átt við um nána vináttu eða fjandskap við aðila máls. Þetta á hins vegar ekki við um smávægilega hags- muni eða ef þáttur hins vanhæfa starfsmanns er svo lítilfjörlegur að ekki er hætta á að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á ákvörðun. Sá sem er vanhæfur má ekki taka þátt í undirbúningi, meðferð eða úrlausn máls; hann má t.a.m. ekki undirbúa útboðsskilmála ef fyrir- tæki hans eða náinna venslamanna er hugsanlegur tilboðsgjafi. Það hvílir á yfirmanni viðkomandi stofnunar að meta hvort starfs- maður teljist vanhæfur, sé svo skal málið falið öðrum. Meginreglur Á stjórnvöldum hvílir sú skylda að veita nauðsynlega aðstoð og leiðbeina þeim sem til þeirra leita með mál á starfssviði þess, t.a.m. um hvaða réttarreglur gilda eða hvaða gögn þarf að leggja fram. Skylt er að taka ákvarðanir svo fljótt sem unnt er og ef fyrirsjáan- legt er að mál tefjist ber að upp- lýsa aðila um það, ástæður tafanna og hvenær megi vænta ákvörðun- ar. Ef mál tefst óhæfílega má kæra slíkt til æðra stjórnvalds. Stjórnvöld skulu sjá til þess að mál séu nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Með því eru þau skylduð til að tryggja öflun nægj- anlegra gagna til að byggja rétta úrlausn á. I lögunum er að finna ákvæði um að stjórnvöld skuli gæta jafnræðis við úrlausn mála, en í því felst að sambærileg mál skulu fá sams konar úrlausn. Mis- munandi úrlausnir þurfa að byggja á málefnalegum og lögmætum sjónarmiðum. Lögfest er sú megin- regla að stjórnvöld skuli gæta meðalhófs við íþyngjandi ákvörð- unartöku. Þannig er stjórnvöldum skylt að beita vægasta tiltæka úr- ræði til að ná sérhveiju markmiði og ber sérstaklega að gæta þess að ákvörðun sé ekki þungbærari en nauðsynlegt er. Hér er um mjög mikilvægt ákvæði að ræða fyrir atvinnulífið, því það hefur viljað brenna við að ákvarðanir stjórn- valda íþyngi fyrirtækjum meira en þörf er á. Aðilar máls eiga rétt á að skýra frá sjónarmiðum sínum áður en ákvörðun er tekin og eiga yfirleitt einnig rétt á að kynna sér þau gögn er máiið varðar. Þessi regla er sett til að málsaðilar geti gætt hagsmuna sinna, þannig að ákvörðun verði ekki tekin án þess að þeir geti komið að eigin skoðun- um um málsatvik og fyrirliggjandi gögn og jafnvel bætt við nýjum upplý§ingum. Rökstuðningur og ákvörðunartaka Stjórnvaldsákvörðun skal til- kynnt málsaðila og er bindandi þegar hún er komin til aðila. Ekki er gert ráð fyrir því að ákvarðanir séu almennt rökstuddar en aðilar geta krafist rökstuðnings. Er meg- inreglan sú að rökstyðja ber ákvörðun ef slík krafa kemur fram innan lögmælts frests. í rökstuðn- ingi skal vísað til réttarreglna sem ákvörðun er byggð á og þeim meg- insjónarmiðum við mat stjórnvalds sem ráðandi voru við úrlausnina. Allt þar til ákvörðun hefur verið tilkynnt málsaðilum getur stjórn- vald breytt henni. Eftir tilkynningu er stjórnvaldi einungis heimilt að leiðrétta bersýnilegar villur s.s. reikningsskekkjur eða misritun. Stjórnvald getur einnig afturkallað ákvörðun ef hún er ógildanleg eða þegar það er ekki til tjóns fyrir aðila t.d. ef ákvörðun var íþyngj- andi. Heimilt er að endurupptaka mál innan ákveðins tíma ef ákvörð- un er byggð á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsat- vik. Það sama á við ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann byggir á atvikum sem hafa breyst veru- lega. Stj órnsýslukæra Þeir sem eiga við „kerfið“ geta kært ákvörðun sem snertir hags- muni þeirra til æðra stjórnvalds. Er bæði hægt að krefjast þess að ákvörðun verði felld úr gildi eða henni breytt. Kæra skal borin fram innan 3 mánaða frá því að tilkynnt var um ákvörðun, hún birt opinber- lega eða rökstuðningur tilkynntur AÐALFUNDUR ÍSFIRÐINGA- FÉLAGSINS verður haldinn þriðjudagskvöldið 18. janúar nk. kl. 20.30 að Háteigi, á Hótel Holiday Inn. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar. SOKN Tl L NYRRA TÆKIFÆRA ■ iwr á a ■ 1 i \r‘W M ■1 j l Æ AU ■ B mv uu ■ 1 lr MU W J III W Ái /■■■ illl Stjórnendur iðnfyrirtækja Umsóknarfrestur um þátttöku í verkefninu Vöruþróun '94 rennur út 17. janúar nk. Umsóknareyðublöð fást hjá Iðntæknistofnun og atvinnuráðgjöfum á landsbyggðinni og skal skila til Iðntæknistofnunar. Frekari upplýsingar gefa Karl Friðriksson í síma 91-687000 og iðnráðgjafar víðs vegar um landið. VORUÞROUN (0) IÐNLANASJOÐUR löntæknistofnun n aðila. Berist kæra að liðnum kæru- fresti verður henni vísað frá nema í undantekningartilfellum. Þó ákvörðun sé kærð frestar það ekki réttaráhrifum hennar nema hið æðra stjórnvald, sem kært er til, heimili sérstaklega frestun. Við meðferð kærumáls skal fylgt þeim meginreglum og ákvæðum um ákvarðanatöku sem áður var lýst. Úrskurður í kærumáli skal ávallt vera skriflegur og rökstuddur. Vandaðri stjórnsýsla Hér að framan hefur verið reynt að tæpa á helstu ákvæðum nýrra stjórnsýslulaga sem einkum má ætla að snerti atvinnulífið. Umfjöll- un sem þessi verður þó aldrei tæm- andi. Full ástæða er til þess að hvetja forsvarsmenn fyrirtækja til að kynna sér' lögin og vera þess meðvitaðir í samskiptum við „kerf- ið“ að um ákvarðanir stjórnvalda og málsmeðferð gilda nú mun fast- mótaðri reglur en áður fyrr. Reglur þessar munu væntanlega auka réttaröiyggi og vanda til ákvörðun- artöku hins opinbera gagnvart at- vinnufyrirtækjum. Höfundur er héraðsdómslögmað- ur og starfar hjá Verslunarráði Islands. • • Okuskóli Islands hf. Námskeið til undirbúnings að auknum ökuréttindum hefjast 20. janúar. Innritun stendur yfir. Ökuskóli islands hf., sími 683841. Geymið auglýsinguna. TILBOÐ RV REKSTRARVORUR fyrir skrifstofuna Sparaðu og nýttu þér tilboð RV Stgr. m. VSK.: Bréfabindi A4, 7cm________ 227,- L-Plastmöppur A4, 100stk__798,- Candid Ijósritunarpappír A4, hvítur, 5 x500 blöð — .-...—- 1.295,- 1) Ef keyptir eru 2 kassar þá tylgja ókeypis 12 pennar. Auk þess bjóðum við upp á disklinga, tölvupappír, faxpappír o.m.fl. á mjög hagstæðu verði. Hreinlega allt tii hreinlætis og margt, margt tleira fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili. Opið frá kl. 8.00 -17.00 Þekking - Úrval - Þjónusta REKSTRARVÖRUR Réttarhálsi 2 - Sími: 91 -685554 - Fax: 91 -68711 6 <^p R <^p V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.