Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1994
49
Stundum og stundum
ekkí hjá biskupi
Frá Magnúsi H. Skarphéðinssyni:
HINN hógværi og lítilláti fulltrúi
biblíuhreintrúarstefnunnar (og Sig-
urbjörns biskups) hér í Bréfi til
blaðsins frú Anna Benkovic sendir
okkur Pétri Péturssyni tóninn í
Morgunblaðinu 5. janúar sl. Það
kemur eitthvað ónotalega við sam-
visku frúarinnar þegar bent er á
hið tvöfalda siðferði þjóðkirkjunnar
og hjá leiðtogum hennar í sumum
þeim samviskumálum sem þjóðin
hefur þurft að taka afstöðu til.
Auðvitað fagna allir sannkristnir
og aðrir kærleiksríkir menn því inni-
lega að máli hins stríðshijáða Júgó-
slava sem hingað hefur leitað skuli
sýnd athygli hér á landi. Honum
hlotnast í ofanálag sá fágæti heiður
að hafa geta vakið íslensku þjóð-
kirkjuna af hinum djúpa þymirósar-
svefni sínum gagnvart nánast öllum
flóttamönnum sem hingað til lands
hafa leitað undanfarin ár og ára-
tugi.
Engu að síður er það verulega
ámælisvert hversu afskiptalaus
þessi sama þjóðkirkja og allir henn-
ar biskupar og annað ríkisrekið
starfslið er og hefur verið allar
götur frá því er elstu menn muna
í málefnum flóttamanna hér á landi.
Sú ömurlega staðreynd blasir við
að hér hefur nánast engum flótta-
mönnum verð veitt hæli af pólitísk-
um ástæðum frá fátækustu löndum
heims, eða frá löndum þar sem
mismunandi dónar sitja á valdastól-
um í ríkjum sem Bandaríkin eða
Vestur-Evrópa hafa undir éfna-
hagslegum járnhæl sínum. Lang-
flestu þessu fólki er þegjandi og
hljóðalaust vísað af landi brott sam-
dægurs á Keflavíkurflugvelli án
nokkurrar skoðunar á högum þess
og persónulegum harmleik.
Þessum smánarbletti þjóðarinnar
stjómar prestssonurinn Ámi Sig-
urðsson, forstöðumaður þessarar
ömurlegu stofnunar sem nefnist
Útlendingaeftirlitið. Þessu svokall-
aða eftirliti var komið á fót á sínum
tíma gagngert til að sortera úr fólk
sem hingað leitar skjóls eftir fjár-
hag, litarhætti og stjómmálaskoð-
unum. Það skal tekið fram að gefnu
tilefni að Árni þessi hefur í margan
gang látið hafa það eftir sér „að
ráðuneytið [þ.e. utanríkisráðuneyt-
ið sem stjómar þessum ömurleik]
hafí gefíð út óformleg tilmæli um
að lituðu fólki sé ekki veitt hér
hæli“.
Núna leitar hingað maður sem
logið hefur til nafns og uppmna og
sagður er vera fremur efnahagsleg-
ur flóttamaður en pólitískur. Ef svo
er er mál hans sem annarra slíkra
allt annars eðlis en pólitískra flótta-
manna. Mál hans á þó alveg eftir
að upplýsa svo alþjóð viti hið sanna.
En viti menn. Fyrst hér vaknar
þjóðkirkjan loksins upp af sam-
viskusvefni sínum og rekur upp
ramakvein og heimtar að manni
þessum verði veitt hæli undan-
bragða- og skoðunarlaust. Það er
greinilega ekki sama hver maðurinn
er. Og heldur alls ekki sama fýrir
hvaða sakir menn eru pólitískir
flóttamenn. Það er þessi tvískinn-
ungur sem er ámælisverður.
Kæra Benkovic. Hinn franski
Gervasoni fékk ekki náð fyrir aug-
um séra Sigurbjarnar Einarssonar
biskups né annarra kirkjunnar
manna hér um árið. Það er ámælis-
vert eins og Pétur Pétursson þulur
benti réttilega á. Og það er líka
ámælisvert hvemig flóttamönnum
sem hingað til lands leita hefur
verið mismunað eftir kynþáttaupp-
mna sínum, litarhætti eða stjóm-
málakerfum þeirra landa sem þeir
koma frá. En slíkt hefur verið regla
í þessu guðsvolaða landi. Það er
alvarlega ámælisvert.
En það sem ámælisverðast er er
að allar kirkjur og aðrar kristilegar
trúarstofnanir landsins og leiðtogar
þeirra sem ættu að hafa forgöngu
um það fram yfír flesta aðra í sam-
félaginu að svona smán viðgangist
ekki hafa alltaf setið hjá í svona
málum og lítið aðhafst.
Sigurbjöm biskup ritaði fyrr í
þessari deilu að um Gervasoni hafí
allt annað gilt þar sem hann hafi
neitað lögbundinni herskyldu í
heimalandi sínu, þ.e. neitað að bera
vopn á kynbræður sína og aðra.
Því hafí hans mál allt annan stand
og verri en Júgóslavans sem hér
hefur knúið dyra nú og virðist hafa
sér allt aðrar ástæður.
Það em svona þversagnir, sem
þessi yfírlýsing biskupsins óneitan-
lega er, sem og aðrar gamlar þagn-
ir þjóðkirkjunnar á ögurstundum í
örlagamálum einstaklinga og hópa,
sem allt hugsandi og kærleiksríkt
fólk á alls ekki að líða. Því um leið
og svo er verður stutt í að farið
verður að réttlæta annan og enn
meiri harmleik en við höfum gert
okkur nú þegar sek um. Við skulum
huga að þessu líka áður en lengra
er haldið á þessari ógæfubraut.
MAGNÚS H. SKARPHÉÐINSSON,
Grettisgötu 40b,
Reykjavík.
Pennavinir
NÍU ára tékknesk stúlka með
áhuga á tennis, dýmm og íþróttum:
Katerina Hmcirova,
Zamecka 512,
507 81 Lazne Belohrad,
Czech Republic.
TÓLF ára bandarískur piltur með
mikinn áhuga fyrir íslandi:
Michael Armstrong,
21412 52nd Avenue West, D-7,
Mountlake Terrace,
Washington,
U.S.A. 98043.
ÞÝSK kennslukona sem getur ekki
um aldur en vill skrifast á við 35-50
ára konur. Hefur áhuga á útivist,
bókmenntum, listum, kvikmyndum
o.fl.:
Annegret May,
Rehheide 36,
4504 SMHutte,
Germany.
SAUTJÁN ára fínnsk stúlka með
áhuga á söng, frímerkjum og tón-
list:
Riitta Virkkunen,
Koski-Jaakonkatu 75c 25,
81700 Lieksa,
Finland.
ÁTTA ára tékknesk stúlka með
áhuga á bókalestri og hestum:
Katerina Krausova,
507 81 Lazne Belohrad 65,
Czech Republic.
GHANASTÚLKA 25 ára að aldri
með áhuga á ferðalögum, kvik-
myndum, dansi og samræðum við
opinskátt fólk:
Nancy Asmah,
Box 390,
Oguaa,
Centra Region,
Ghana.
LEIÐRÉTTINGAR
Nafnavíxl
í viðtali í Menningarblaði Morgun-
blaðsins á laugardag við Robin
Stapleton hljómsveitarstjóra slædd-
ist á einum stað nafn annars við-
mælanda í hans stað. Sagt var að
Copley hefði oft komið hingað til
lands að stjórna í íslensku óper-
unni, fyrst á stofntónleikum 1983.
Þama átti að standa Stapleton,
enda viðtalið við hann. Á næstu
síðu var hins vegar viðtal við John
Copley leikstjóra, sem kom í fyrsta
sinn til íslands í vetur að setja
Évgení Ónegín á svið.
Vinning laugard (li
1 8. ian. 1993
ÍX23;
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆO Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 0 5.728.623
O au5. £.. 43151 sífT3“ 46.836
3. 4af5 189 5.557
; 4. 3al5 5.733 427
■ Heildarvinningsupphæðþessaviku: 9.835.755 kr.
j£ M 1 1
upplysingar simsvari 91 -681511 lukkulIna991002
VELVAKANDI
GÓÐ JÓLATRÉS-
' SKEMMTUN
ÉG VIL þakka fyrir ókeypis jóla-
trésskemmtun sem útvarpsstöð-
in Bylgjan og mörg fleiri fyrir-
tæki héldu a Hótel íslandi
sunnudaginn 26. desember.
Börnunum var gefið öl, sælgæti
og endurskinsmerki, og enginn
reyndi að selja okkur neitt eins
og sagt er að hafí gerst á öðru
jólaballi. Börnin mín skemmtu
sér mjög vel á þessu balli og
hafíð bestu þökk fyrir.
Ebba Valvesdóttir
TAPAÐ/FUNDH)
Frakki tekinn í misgipum
á Bessastöðum
DÖKKBLÁR frakki var tekinn
í misgripum á Bessastöðum á
nýársdag. I frakkanum var
nafnspjald eigandans og er sá
sem er með frakkann vinsam-
lega beðinn að hafa samband.
Upplýsingar í síma 623808.
Myndavél tapaðist
CANON-myndavél í svörtu
hulstri með átekinni fílmu
tapaðist við brennu í Seljahverfí
á þrettándanum. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 652582.
Jakki tekinn í misgripum
á Hressó
DÖKKBLÁR sjóliðajakki með
silfurlitum tölum var tekinn í
misgripum á Hressó á gamlárs-
kvöld. Sá sem er með jakkann
er vinsamlega beðinn að hafa
samband í síma 617407 eða á
Hressó. Fundarlaun.
GÆLUDÝR
Kettlingar fást gefins
FIMM gullfallegir kettlingar,
velþjálfaðir í kattasiðum, óska
eftir góðum heimilum. Upplýs-
ingar í síma 73990.
Kettlingar fást gefins
TVEIR tveggja mánaða kassa-
vanir kettlingar óska eftir góðu
heimili. Upplýsingar í síma
814719.
Kettlingar
ÞRÍR fallegir kassavanir kettl-
ingar fást gefins. Upplýsingar í
síma 46538.
Sjálfsrækt
Námskeið, sem fjallar um uppeldi, sjálísviiðingu, ást og
samskipti, líkamsrœkt, matarœði, jákvœða hugsun,
markmiðasetningu, öndunarœfingar, slökun, hugleiðslu
og lögmál velgengni. Kennslubók, œfingar og einkatími.
15. janúar til 12. febrúar.
Leiðbeinandi er Gunnlaugur Guðmundsson.
Stjörnuspekistöðin, Laugavegi 59, ami 10377.
ÚTSALAN
HEFST í DAG
Gerið góð kaup
á vönduðum fatnaði
v/Austurvöll
Pósthússtræti 13 - sími 23050
FAGOR
Þ VOTTÁVeLÁto BB54 & FB83
§
Magn af þvotti 5 kg
Þvottakerfi 17
Hitar sídasta skolvatn
Sér hitastillir 0-9CPC
Ryöfrí tromla og belgur
Hraöþvottakerfí
Áfangaþeytivinda
Sjálfvirkt vatnsmagn
Hæg vatnskæling
Sparneytin
Hljóölát
FAGOR FE-54 (550 SN/MIN.)
39.900-
AFBORGUNARVERÐ KR. 42.000
VINSANILEGAST ATHUGIÐ NYTT HE1MIL1SFANG
J
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
Okkar vantar alltafmeira afþessu sívinsæla
kompudóti og nú bjóðum við alveg einstakt
verð á sölubásum undir kompudót næstu
helgi - aðeins kr. 1800.-, damrinn.
Hér er alveg borðliggjandi dæmi fyrir
„jjáröflunarátakið “!
minnum einnig á JANÚARTILBOÐIÐ:
25% afsláttur á öllum sölubásum
fyrir þá sem eru báða dagana.
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Sími 62 50 30