Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994 36 Minning María Gísladóttír Fædd 1. desember 1930 Dáin 2. janúar 1994 Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stn'ð. (V. Briem.) Elskuleg mágkona mín og vin- kona, María Gísladóttir, eða Malla eins og hún var alltaf kölluð, er lát- in. Ég kynntist Möllu árið 1950 þeg- ar ég giftist bróður hennar, Bjarna. Tókst strax með okkur góð vinátta sem haldist hefur til síðasta dags. Malla var ekki bara mágkona mín, heldur einnig góð vinkona. Hún ólst upp í austurbænum í Reykjavík en foreldrar hennar voru Gísli Ingimyndarson, f. 21. október 1897, d. 5. maí 1976, og Helga Bjarnadóttir, f. 17. apríl 1905, d. 12. júní 1980. Hún var næstelst fjög- urra systkina. Elstur er Bjarni, mál- arameistari, kvæntur undirritaðri. Þá kemur Trausti, kennari á Sel- fossi, kvæntur Sigríði Svövu Gests- dóttur, og yngstur er Emil húsa- smíðameistari, kvæntur Ásdísi v Gunnarsdóttur. Malla giftist eftirlifandi eigin- manni sínum, Ólafi A. Ólafssyni málarameistara, 13. október 1953, á 25 ára brúðkaupsafmæli foreldra hennar. Malla og Alli eignuðust fímm börn. Þau eru: 1) Gísli Örvar bifreiðasmiður, kvæntur Margréti Ámadóttur, 2) Valgerður Björk hús- móðir, en hennar maður er Reynir Jóhannsson atvinnurekandi, 3) Helga Hrönn sjúkraliði er búsett í Svíþjóð, en hún er gift Roger Gust- afson tæknifræðingi, 4) Hulda Sjöfn húsmóðir, gift Ólafi S. Kristjánssyni sjómanni, og 5) Ólafur Örn nemi sem býr í foreldrahúsum. Barnabörnin eru orðin tólf talsins. Margs er að minnast og margt ber að þakka. Við hjónin eigum með þeim Möllu og Alla margar skemmti- legar minningar í gegnum árin. Við fórum í mörg ferðalög saman, bæði innanlands þegar börnin voru lítil og eins ferðuðumst við oft saman erlendis með Málarameistarafélagi Reykjavíkur að ógleymdum stór- kostlegum ferðalögum eins og þegar við fórum til Miðjarðarhafsins og Karíbahafsins með Eddufélögum. Þar áttum við stórskemmtilegar stundir saman. Oftar en ekki enduðu .ferðirnar hjá sameiginlegum vinum okkar í Svíþjóð, þeim Hlíf og Svan. Ég vil nota tækifærið og færa fjöl- skyldu hennar kveðju frá þeim. Möllu var mjög umhugað um heimili sitt og fjölskyldu. Barnabörn- in voru augnayndi hennar og var hún mjög stolt af þeim. Þau voru oft hjá henni og sjá nú á eftir ömmu sinni langt um aldur fram. Það var alltaf gott að koma á heimili Möllu og Alla í Sæviðarsundinu enda höfð- ingjar heim að sækja. Malla átti líka alltaf frumkvæðið þegar kom að stórviðburðum innan fjölskyldunnar. Þá var gott að eiga hana að. Hún var alltaf boðin og búin til að hjálpa við allan undirbúning og naut sín ^-r'/el í því, enda var henni mikils virði að fjölskyldan treysti fjölskyldu- böndin. Malla var sérstaklega dugleg í veikindum sínum og naut dyggrar aðstoðar og umhyggju eiginmanns og barna, umvafin ást og hlýju. Far þú i friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú raeð Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Alli minn, Gísli, Valgerður, Helga, Hulda og Óli, tengdabörn og barnabörn, guð gefi ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð. Megi vinkona mín hvíla í friði. Erla Þorvaldsdóttir. % I dag verður mágkona mín María Gísladóttir til moldar borin en hún lést að morgni 2. janúar eftir erfið veikindi. Ég man ekki öðru vísi eftir mér en að nafn Möllu tengdist nafni Alla bróður míns. Margar eru perlur minninganna eftir rúm 40 ára kynni. Ein af þeim eldri er sú hvað ég var óskaplega feimin við þau daginn sem þau trú- lofuðust, ég þorði ekki að fara inn í herbergi til þeirra, hélt víst að það að trúlofast breytti fólki, enda bara fimm ára. Malla var mér ákaflega góð allt frá fyrstu tíð og þótti mér mjög vænt um hana, ég minnist þess að hún kom stundum eftir vinnu inn á Karfavog og tók mig með sér niður á Sjafnargötu og þar fékk ég nagla- lakk og eitt og annað sem litlum stúlkum þykir eftirsóknarvert. Það er gott að eiga góðar minn- ingar að ylja sér við. Malla var fín- gerð og nett kona, ákaflega snyrtileg og smekkleg og bar heimili þeirra Alla þess glöggt vitni. Sambúð þeirra var farsæl og missir Alla mikiil, en hann er ekki einn því þau Malla eign- uðust fimm mannvænleg börn er standa honum við hlið og barnabörn- in eru orðin 12. Það er erfitt að sjá af fólki á besta aidri en ég veit að Malla hefur átt góða heimkomu þar sem hún er nú og vel hefur verið tekið á móti henni. Ég vil að lokum þakka fyrir allt og ekki síst umhyggjusemina við mömmu eftir að hún varð ein. Guð blessi þig. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég bið góðan Guð að styrkja fjöl- skyldu Maríu Gísladóttur. Sorg ykk- ar og söknuður er mikill, en þið eig- ið sjóð góðra minninga að leita huggunar í. Góð kona er gengin. Sólveig. Móðir mín María Gísladóttir er látin. Það er og verður alltaf sárt að horfa á eftir ástvini, en eitt er öruggt: öll munum við hittast aftur. Aldrei aftur mun ég sjá bros hennar og hlýjuna sem var yfir henni. Móðir mín var alltaf tilbúin til að hjálpa öðrum, enda var sagt að hún hugsaði meira um aðra en um sjálfa sig. Móðir mín hafði ánægju af tón- list, var mjög félagslynd og ég þakka henni að hún gaf mér þá hæfileika að hafa ánægju af tónlist. María Gísladóttir var stórglæsileg kona og var góð fyrirmynd barna sinna og barnabarna og sterk í erfið- leikum. Alltaf munum við systkinin vera stolt af móður okkar og koma fram við aðra eins og vildi. Nú mun Guð varðveita hana og hjálpa henni að styrkja okkur og vernda því lífið heldur áfram. ÖIl söknum við hennar sárt en það huggar okkur að vita að hún er í öruggum höndum. Fjölskyldan þakkar öllum þann stuðning og hlýju sem okkur er veitt. Ólafur Örn. í dag kveð ég elskulega frænku mína sem var mér alltaf einstaklega kær, Maríu Gísladóttur eða Möllu eins og hún var alltaf kölluð. Með söknuði og trega kemur margt upp í huga mér þegar ég minnist Möllu frænku sem dó Iangt fyrir aldur fram. En minningarnar ylja mér um hjartarætur því hún var stórkostleg koila enda bar heimili þeirra hjóna vott um smekkvísi og myndarskap. Það var alltaf gaman að heim- sækja Möllu og Alla. Það var alveg sama hvort var komið óvænt í heim- sókn í Sæviðarsundið eða í stór- veislu, það var alltaf tekið á móti öllum með hlýhug. Núna síðast kom ég í heimsókn ásamt móður minni í nóvember og var þá Malla ásamt dætrum sínum að taka allt í gegn fyrir jólahátíðina eins og endranær. Þetta var yndisleg stund sem við áttum saman í Sæviðarsundi og mín síðasta með Möllu frænku. Ég minnist þess líka ef einhver stórveisla var framundan þá var Malla alltaf mætt óbeðin að bjóða fram hjálp sína. Það lék allt í höndunum á henni og var gott að njóta aðstoðar hennar. Malla var alltaf hrókur alls fagn- aðar á mannamótum, enda voru þau hjónin mjög vinamörg og hafði hún yndi af söng og skemmtilegum uppákomum. Nú síðast á Hótel Örk í október þar sem haldið var ættar- mót. Þá lét hún ekki veikindin aftra sér frá að mæta ásamt manni sín- um, börnum, tengdabörnum og barnabörnum til að hitta ættmenni sín Ég vil að lokum gera orð Kahlil Gibran að mínum þar sem hann segir: „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Elsku Alli minn og fjölskylda, ég votta ykkur innilega samúð mína. Megi elsku Malla frænka hvíla í friði. Helga Bjarnadóttir. Látin er góð vinkona okkar hjóna, María Gísladóttir, langt um aldur fram og harmdauði öllum sem hana þekktu. Það er sárt að sjá á bak konu, sem hefði átt að eiga svo mörg góð ár ólifuð, svo vel var hún á sig kom- in, hreystin uppmáluð. Henni varð líka vart misdægurt þar til óvæginn sjúkdómur heijaði fyrst á fyrir tæpu ári. í fyrstu leit út fyrir að Malla hefði betur í þeirri viðureign, hún var staðráðin í að beijast til þrautar og hún stóð eins lengi og stætt var. Hún var afar bjartsýn og lífs- glöð að eðlisfari og hún hafði svo margt að lifa fyrir, henni fannst gaman að vera til. María fæddist í Reykjavfk 1. des- ember 1930, eitt fjögurra barna foreldra sinna og einkadóttir. For- eldrar hennar voru Helga Bjarna- dóttir og Gísli Ingimundarson, bæði ættuð úr Árnessýslu, en heimili þeirra var í austurbænum í Reykja- vík þar sem systkinin ólust upp við gott atlæti. Eftir gagnfræðapróf hóf María störf á skrifstofu Fiskifélags ís- lands. Hún kynntist ung verðandi eiginmanni sínum, Ólafi A. Ólafs- syni málarameistara frá Akranesi. Þau gengu í hjónaband árið 1953 og áttu því 40 ára brúðkaupsaf- mæli í haust er leið. Börn þeirra eru fimm, tveir synir og þijár dætur, öll uppkomin, eiga maka og börn, nema yngri sonurinn sem enn býr í foreldrahúsum. Það er margs að minnast á kveðjustund. Við urðum bekkjar- systur sjö ára gamlar við upphaf skólagöngu í Austurbæjarskólan- um. Síðar á ævinni hagaði svo til að við eignuðumst húsnæði við sömu götu, beint á móti hvor annarri. Auk bernskuvináttu okkar Möllu áttu eiginmenn okkar það sameiginlegt að vera Skagamenn og þekktust frá fyrri tíð. Samgangur á milli heimila okkar hefur verið mikill í marga áratugi, við höfum glaðst saman á góðum stundum og við hátíðleg tækifæri, auk þess að hafa daglegt samband þess á milli. Hennar verður sárt saknað hér á heimilinu. Malla var góður og traustur vin- ur, hún flutti með sér birtu og yl og öllum leið vel í návist hennar. Hún bar mikla umhyggju fyrir fjölskyldu sinni og venslafólki, sú umhyggja náði einnig til vina henn- ar. Það er með sárum söknuði sem ég, eiginmaður minn, synir og fjöl- skyldur þeirra, kveðjum Möllu og þökkum samverustundir liðinna ára. Alla, börnum og fjölskyldum þeirra, svo og bræðrum Möllu og fjölskyld- um þeirra, vottum við samúð. Þó orð megi sín lítils á sorgar- stund viljum við segja við ástvini Möllu. Sorg ykkar er einnig okkar sorg. Blessuð sé minning mætrar konu. Ása Jónsdóttir og fjölskylda. Góður granni hefur kvatt þennan heim alltof fljótt. Það er aðeins rúmt ár síðan María og Ólafur buðu okk- ur hjón velkomin í næsta hús við sig. Hún með sínu blíða, glaðlega brosi, hann með sinni traustu fram- komu. Veturinn leið, það var komið vor, allir drifu sig út í garð til að und- irbúa komu sumars. Ský dró fyrir sólu, María greindist með þann sjúk- dóm sem nú hefur sigrað í harðri baráttu. Hún gat ekki stundað með mann- inum sínum þá útiveru og hreyfingu sem bæði höfðu mikla ánægju af, þ.e. golfíþróttina. Hún brá sér því stundum yfir í garðinn til okkar í spjall yfir kaffi- bolla á laugardags- eða sunnudags- morgnum. Við eigum eftir að sakna þessara samverustunda á ókomnum sumrum. Um leið og við biðjum góðan Guð að gefa ástvinum hennar öllum styrk í þeirra miklu sorg, viljum við þakka þær alltof fáu stundir sem við áttum saman. Blessuð sé minning hennar. Bergþóra og Einar. Þegar ég lít til baka finnst mér þau 50 ár, sem ég hef þekkt Maríu eða Möllu eins og hún var alltaf kölluð milli vina, stuttur tími. Okkar kynni hófust í Norðurmýrinni þar sem við bjuggum í nágrenni hvor við aðra og lékum okkur saman ásamt fleiri krökkum úr hverfinu. Þegar við fórum í Ingimarsskólann kynntumst við betur og höfum við verið vinkonur æ síðan, ásamt Möggu, Margréti Guðmundsdóttur, en við þijár höfðum haldið vinátt- unni alla tíð síðan. Malla var sérstaklega myndarleg og heiðarleg kona, skapmikil en rétt- sýn. Við áttum margar góðar stund- ir í Ingimarsskóla og kynntumst góðu fólki, sem við höfum haft sam- band við á fimm ára fresti, frá því við útskrifuðumst gagnfræðingar árið 1947. Það hefur verið skemmtilegt að hittast á þessum tímamótum, en nú fara skörð að myndast í hópinn, ein skólasystirin féll frá í fyrra og nú Malla. Þegar ég skrifa þessi orð kemur margt í hugann. Við fórum þijár stöllumar oft saman í frí, í útilegur um landið okkar og um 18 ára aldur sigldum við til Skotlands. Þó við yrðum allar sjóveikar var þetta ferðalag ævintýri líkast því þetta var okkar fyrsta ferð út fyrir landstein- ana. Malla giftist Ólafi A. Ólafssyni eða Alla eins og við kölluðum hann, fyrir 40 árum og eignuðust þau fimm mannvænleg börn og tólf voru barnabörnin orðin. Öll höfðu börnin stofnað sitt eigið heimili nema yngsti sonurinn, sem er ennþá heima. Það var oft mikið að gera með þennan stóra barnahóp, en alltaf var jafn hreint og myndarlegt hjá Möllu, kaffí og meðlæti hvenær sem litið var inn. Þau hjónin voru mjög sam- rýnd og ferðuðust mikið og stunduðu saman golf. Síðustu mánuði var Malla mikið veik en aldrei kvartaði hún. Við höfðum það fyrir vana að tala saman í síma þrisvar í viku alltaf á sama tíma og hlógum að sérviskunni, en höfðum gaman af. Þessar síðustu vikur voru lærdómsríkar fyrir okkur báðar. Við rifjuðum upp ýmislegt frá unglingsárunum og þreyttumst aldr- ei á að tala um þau. Nú er þessi kafli búin og mun ég sakna hans. Fyrir hönd Möggu vinkonu og hinna vinkvennanna í saumaklúbbn- um, sem enst hefur í 45 ár, sendi ég innilegar samúðarkveðjur til Alla og barna þeirra. Guð blessi minningu Möllu vinkonu minnar. Hjördis Böðvarsdóttir. Vegir guðs eru órannsakanlegir og þegar kona á besta aldri er burt- kölluð af þessum heimi, eiga menn oft bágt með að skilja tilgang lífs- ins. Hvers vegna er kona, full lífs- löngunar og glaðværðar, burtnumin? Þannig er spurt, er sorgin kveður dyra. Og svarið er jafnan fátæklegt. í raun eigum við ekkert svar, sem við getum sætt okkur við og því er þrautalendingin, að enginn skilur tilganginn, lífið, tilurð þess og endi. Hví erum við hér, hver er ástæðan og hvers vegna fær kona í blóma lífsins eigi notið þess, sem guð gaf? Menn geta endalaust velt þessum gátum lífs og dauða fyrir sér án þess að komast að niðurstöðu. Trúin er þó huggun í þessum efnum, því að samkvæmt henni, öðlast maður- inn eilíft líf. Dauðinn á því ekki að vera eitthvað sem maður hræðist, hann er jú óumflýjanlegur, en lífið er dásamlegt og það eina sem við þekkjum gjörla er eigið líf. Því er ekki skrítið, að við reynum að halda í það eins lengi og við getum. Lífs- viljinn er það, sem rekur hvem mann áfram og gefur lífinu tilgang. María Gísldóttir var rétt nýlega orðin 63ja ára er hún lést. Hún barð- ist hetjulegri baráttu við illskeyttan sjúkdóm, sem var tiltölulega fljótur að vinna á henni, þrátt fyrir að hún hefði mikla lífslöngun, en hún var mikil gæfumanneskja í einkalífinu. Ung giftist hún Olafi Alexander Ólafssyni málarameistara og þeim varö fimm barna auðið. Þau eignuð- ust Gísla Örvar, Valgerði Björk, Helgu Hrönn, Huldu Sjöfn og Ólaf Örn og saman bjuggu þau fagurlega um sig í Sæviðarsundi 36. Allir voru aufúsugestir á heimili þairra. Þau kunnu að gleðjast á góðum degi og voru höfðingjar heim að sækja. Malla, eins og hún var jafnan kölluð, var eiginkona stóra frænda konunnar minnar og það eru því hartnær 30 ár frá því að ég kynnt- ist henni fyrst. Hún var í senn glæsi- leg, skemmtileg og lífleg kona, sem mikill sjónarsviptir er að. Við Bryn- dís og börn sendum Alla og öllum börnum, tengdabörnum, barnabörn- um, systkinum og mægðafólki Möllu okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg. Blessuð sé minning Maríu Gísla- dóttur. Magnús Finnsson. Malla er horfin sjónum og allt tóm- legra í hugum okkar, sem áttum vináttu hennar — vináttu, sem aldr- ei bar skugga á' var heilsteypt og fölskvalaus. Víst var hún einbeitt og ákveðin, stöðugt hugandi að því umhverfi, sem húii lifði í og þeim sem með henni gengu lífsbrautina, hvort heldur voru börnin og Alli eða hinir gölmörgu vinir. Alli og Malla leiddust hönd í hönd gegnum sætt og súrt — annað þeirra varla nefnt án þess að hugsað yrði til hins. Það varð því mikil sorg, er það vitnaðist að leiðir kynnu að skilja, svo sem nú hefur orðið raunin. Allar samverustundirnar á Kanarí og allir ánægjulegu golfdagarnir að baki, einnig heimboðin og ferðalögin. En verst af öllu: Malla er horfin sjónum. Við þökkum áralanga samferð og biðjum Möllu guðs blessunar. Alla og fjölskyldunni sendum við samúð- arkveðjur. Steingerður og Jón Þorgeir. Hún amma okkar er dáin. Hún kemur ekki í heimsókn til okkar aftur. Amma var blíð og góð. Þegar afi og amma komu til okkar til Svíþjóðar, eða þegar við komum til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.