Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994 LEIÐTOGAFUNDUR NATO I BRUSSEL „Óttast ekki að áherslum NATO verði breytt“ -segir Davíð Oddsson forsætisráð- herra um áhrif Friðarsamvinnu DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, sem nú situr leiðtoga- fund Atlantshafsbandalagsins (NATO), kveðst ekki óttast að áherslur í samstarfi ríkja NATO breytist með svokall- aðri Friðarsamvinnu og færist fjær Atlantshafssamstarfinu. „Það kemur glöggt fram að áhugi Austur-Evrópuríkja á NATO byggist á þessum þræði yfir Atlantshafið. Það er þessi regnhlífarvernd Evrópu -og Norður-Ameríku sem ger- ir bandalagið svo eftirsóknarvert fyrir þessi ríki,“ sagði Davíð. Við upphaf fundarins hitti hann Bill Clinton, Banda- ríkjaforseta, að máli. Lýstu báðir ánægju með nýgert sam- komulag um framtíðarvarnarsamstarf ríkjanna auk þess sem Clinton minnist þess er hann millilenti á Islandi á námsá- rum sínum. „Umræðurnar á leiðtoga- fundi NATO í dag hafa verið athyglisverðar. Að meginstefnu til hefur verið fjallað um þennan nýja þátt í starfsemi bandalags- ins sem menn hafa nefnt Frið- arsamvinnu og er skref sem menn stíga til að koma til móts við þau ríki Mið- og Austur-Evr- ópu, sem hafa sótt um eða sækj- ast eftir aðild að bandalaginu," sagði Davíð. „Menn hafa talið að þegar grannt sé skoðað, sé þetta meiri opnun en áður hafi verið talað um, þó sumir hafi sagt að þarna væri lítið skref stigið til móts við sjónarmið þessara ríkja. í rauninni sé ver- ið að stíga fyrsta skref í þá átt að þessi ríki verði aðilar að bandalaginu, án þess að það sé gert í einu vetfangi. Gallinn við slíkt væri aftur sá að þar með væri dregin ný öryggislína í álf- unni og ákveðið hvaða ríki væru innan hennar og hver utan. Menn telja það ekki skynsam- legt á þessu augnabliki enda má deila um hvaða ríki séu þess megnug að gangast undir gagn- kvæma skilmála bandalagsins af hemaðarlegum og efnahags- legum ástæðum á þessu stigi máls. Ég held að við getum fellt okkur við það að Rússland hafi ekki neitt neitunarvald gagn- vart þátttöku þessara þjóða, á hinn bóginn finnst okkur skyn- samlegt að gera þetta með þess- um hætti. Það var mjög bærileg sátt um það á fundinum í dag.“ -Hver er afstaða íslands til framtíðaraðildar Rússa og ann- arra fyrrverandi lýðvelda Sovét- ríkjanna? „Við teljum að með Friðar- samvinnunni sé verið að auð- velda að að ríki Austur-Evrópu, að Rússlandi frátöldu, geti orðið aðilar að bandalaginu. Ég held að það sé tómt mál að tala um að Rússland verði aðili að NATO. Ef að það gerðist, væri bandalagið mjög breytt. Hins vegar gæti Rússland gert sátt- mála við NATO.“ ísland sammála stefnunni í málefnum Bosníu -í fréttum Reuters í gær sagði að öll aðildarríkin, að Kanadamönnum undanskildum, væru reiðubúin að samþykkja að gerðar verði loftárásir á Bosníu komi fram slík ósk af hálfu Sameinuðu þjóðanna, og að ákvörðunin yrði gerð opinber á þriðjudag? „Það hefur engin slík ákvörð- un verið tekin en það er ljóst að menn eru að tala um mjög áþekkar ákvarðanir og áður hafa verið teknar. ísland hefur Davíð ræddi við Clinton Davíð Oddsson forsætisráð- herra hitti Bill Clinton, Banda- ríkjaforseta, að máli í gær og lýstu báðir ánægju með nýgert samkomulag um framtíðar- varnarsamstarf ríkjanna. ekki skorið sig úr leik í þessum efnum og er í sátt við þá stefnu sem tekin var þegar þessi sam- þykkt var gerð á sínum tíma og mun standa að henni áfram.“ Sagði Davíð að gert væri ráð fyrir að málefni Bosníu yrðu rædd frekar á lokuðum fundi leiðtoganna með framkvæmda- stjóra bandalagsins sem haldinn var í gærkvöldi. Ánægja með varnarsamning Við upphaf leiðtogafundarins hitti Davíð Bill Clinton Banda- ríkjaforseta að máli og ræddu þeir saman stutta stund. „Við ræddum samninginn sem gerð- ur var á milli Bandaríkjanna og íslands í tengslum við varnar- samninginn og létum báðir í ljós ánægju með þá niðurstöðu sem þar varð, sem væri báðum þjóð- unum mjög að skapi og álitleg. Hann vildi þakka það sérstak- lega að þetta hefði gengið eftir í tæka tíð. Þá nefndi hann sér- staklega að hann þekkti til ís- lands að því leyti til að hann hefði flogið með Loftleiðum á námsárum sínum og ræddi um landið út frá þeim þáttum. Að því leyti stæði landið örlítið nær honum, þótt hann hafi aðeins séð það út um gluggann á Loft- leiðavélum." Reuter Clinton á kaffihúsi ÞEGAR Bill Clinton Bandaríkjaforseti hafði lokið ræðu sinni í ráðhúsi Brusselborgar brá hann sér inn á kaffihús við Gamla torgið, Grand Place, og tók fólk tali. Var honum vel tekið og eins og sjá má lögðu viðstaddir hlustirnar við því, sem hann hafði að segja. Clinton vill afstýra nýju köldu stríði Brussel. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti flutti ræðu á fundi með unguni Belg- íumönnum og bandarískum borgurum í ráðhúsi Brusselborgar á sunnudag. Hann varaði íbúa fyrrverandi kommúnistaríkja við þeim varasömu stjórnmálamönnum sem vildu setjast í „hið myrka hásæti harðstjórnarinnar" og þótti ljóst að hann ætti m.a. við helsta leið- toga öfgafullra þjóðernissinna í Rússlandi, Vladímír Zhírínovskij. Clinton bauð þjóðum Mið-Evrópu að þær fengju einhvern tíma aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATO, en sagði a'ð það myndi ekki verða alveg á næstunni; koma yrði í veg fyrir nýjar deilur milli austurs og vesturs í Evrópu. Rússar hafa lýst harðri andstöðu við að banda- lagið stækki til austurs. „Ég segi við alla þá Evrópu- og Bandaríkjamenn sem vilja að við drögum einfaldlega nýja markalínu austar í Evrópu að við ættum ekki að slá því föstu að björtustu vonir um framtíð álfunnar geti ekki ræst“, sagði forsetinn. Clinton er í sinni fyrstu opinberu Evrópuferð eftir að hann tók við forsetaembætti og lagði hann áherslu á að draga úr ótta þeirra Evrópumanna sem telja að Banda- ríkjamenn hafi nú meiri hug á sam- starfi við aðrar Ameríkuþjóðir og Asíumenn en Evrópu. „Bandaríkja- menn munu sem fyrr vinna ótrauð- ir að því að treysta öryggi og frið í Evrópu", sagði hann. Varað við lýðskrumi Clinton sagði að þjóðimar í fyrr- verandi kommúnistaríkjum horfðu nú fram á „baráttu milli endurnýj- unar og örvæntingar" í viðleitni sinni til að koma á markaðsbúskap í stað miðstýringar. Hann varaði við herskáum þjóðernissinnum og lýðskrumurum sem ælu á alda- gamalli tortryggni og notfærðu sér sá rsaukann sem fylgdi breytingunum með það að markmiði að koma í veg fyrir umbætur. Það myndi koma í ljós í næstu framtíð hvort rússneska þjóðin hygðist áfram feta braut friðsamlegs lýðræðis og markaðsbúskapar eða velja í örvæntingu sinni leiðtoga sem fylgdu stefnu alræðis og útþenslu- stefnu. Bandaríski forsetinn nafngreindi ekki Zhírínovskíj sérstaklega en rússneski þjóðernissinninn hefur lagt til að Rússar leggi á ný undir sig öll þau lönd sem einhvern tíma hafa heyrt undir þá, þ. á m. Pólland og Finnland. Clinton sagði að tillagan um Frið- arsamvinnu, aukið varnarsamstarf NATO og þeirra fyrrverandi komm- únistaríkja sem það kjósa, væri lyk- illinn að nýju skeiði samstarfs. „Þessi samvinna mun stuðla að þró- un í átt til formlegrar stækkunar NATO. Með henni er verið að huga að þeim degi er NATO tekur við nýjum aðildarríkjum". Reuler Kampakátir leiðtogar BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, og John Major, forsætisráðherra Bretlands, veifa brosandi til fréttamanna þegar ljósmyndurum var gfefinn kostur á að taka myndir af leiðtogum NATO-ríkjanna í Brussel í gær. Aðrir á myndinni, talið frá vinstri, eru Manfred Wörner, framkvæmdastjóri NATO, Azeglio Ciampi, forsætisráðherra Ítalíu, Jaques Santer, forsætisráðherra Lúxemborgar, og Ruud Lubbers, forsætisráðherra Hollands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.