Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVINNlILÍF ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994 SJALFSVORN FYRIR KONUR Nútíma kerfi sem virkar á götunni. Innritun stendur yfir í síma 68 36 00. DAGTÍMAR Mörkin 8 v/Suðurlandsbraut, 108 Reykjavík. DÚXINN - námstækninámskeið og námið verður leikur einn! Inniheldur bók og tvasr snældur. Verð aðeins kr. 2.900. Fæst í flestum bókaverslunum. Sendum einnig frítt í póstkröfu. Sími 642100. HRAÐIJiSTRARSKÓLiNN Margir litir margar stærðir. Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. Múlalundur Vinnustofa Sl'BS Símar: 628450 688420 688459 Fax 28819 REGLA EGLA -RÖÐOG Skattbreytingar Minni hækkun verðlags fremur en bein lækkun Kaupmáttur ráðstöfunartekna talinn aukast um 1/2% FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ telur að kaUpmáttur ráðstöfunartekna heimilanna aukist um rúmlega 0,5% á þessu ári vegna skattabreyt- inga og efnahagsaðgerða sfjórnvalda. Ráðuneytið spáir því að vísitala framfærslukostnaðar hækki um 2-2,5% árið 1994 og að hækkunin innan ársins verði 1,5%, sem setur Island í hóp 5-6 aðildarríkjua OECD sem áætlað er að hafi lægsta verðbólgu á þessu ári. Sérfræðingar fjármálaráðuneytisins telja að lækkun virðisaukaskatts af matvælum muni ekki að fullu skila sér í lækk- un vöruverðs fyrr en eftir 2-3 mánuði og telja að lieildaráhrifin af skattbreytingum á árinu skili sér fyrst og fremst í minni hækk- un verðlags fremur en beinni lækkun. Breytingar á virðisaukaskatti og vörugjöldum sem tóku gildi um áramót hafa mismundandi áhrif á verð einstakra vara og gerir fjár- málaráðuneytið ráð fyrir eftirfar- andi verðbreytingum: Brauð og ávextir lækka um 8,4% Verð þeirra vara sem virðisauka- skattur lækkar á og þar sem engin breyting hefur verið gerð á vöru- gjöldum á að lækka um 8,4%. Hér er m.a. um að ræða korn- og brauð- vörur, ávexti, innflutt grænmeti, olíur og feitmeti. Sykruð matvara lækkar um 3-4% Virðisaukaskattur lækkar á nokkrum vörutegundum sem taka á sig 6% vörugjald og á verð þeirra að lækka um 3-4%. Hér er m.a. um að ræða sykur og sykraða matvöru, s.s. grauta, sultur, niður- soðna ávexti og auki þess snak- kvörur, ís, kaffi og te. Gos og safar lækka um 5% I nokkrum tilvikum hafa vörugjöld verið lækkuð úr 25% í 18% á vörum sem bera áfram fullan virðisauka- skatt og á verð þeirra að lækka um 5%. Þar er m.a. um að ræða gosdrykki, ávaxtasafa, sælgæti og sætt kex. Óbreytt verð á mjólk og kjötvörum Lítil eða engin verðlækkun verð- ur á vörum sem nutu endur- greiðslna á virðisaukaskatti eða 'niðurgreiðslna sem svöruðu til þess að virðisaukaskattur af þeim væri 14%. Hér er um að ræða mjólkur- vörur aðrar en smjör, kjötvörur, egg og innlent grænmeti en ráðu- neytið bendir á að unnar kjötvörur eigi afutr á móti að geta lækkað nokkuð. í verðbólguspá ráðuneytisins er bent á að olíuverð á erlendum mörkuðum er afar lágt um þessar mundir og megi því búast við hærra bensinverði á árinu og þar með aukinni verðbólgu en á móti vegi líkleg áhrif lækkunar nafnvaxta. jafnframt er bent á að eftir áramót gangi gjarnan til baka ýmis verðtil- boð sem gilt hafi í desember og loks að verð á innfluttum vörum geti hækkað í takt við verðbreyt- ingar í helstu viðskiptalöndum. „Að öllu samanlögðu má reikna með því að verðbólga, þ.e. hækkun framfærsluvísitölu, verði að minnsta kosti 1/2% rrjinni vegna skattbreytinganna á þessu ári en ella hefði orðið. Þessi áhrif skila sér væntanlega fyrst og fremst í minni hækkun verðlags fremur en beinni lækkun. Þannig spáir Seðla- bankinn óbrejdtu verðlagi fyrstu fjóra mánuði ársins og í spá fjár- málaráðuneytisins er gert ráð fyrir lítils háttar hækkun á sama tíma- bili, eða um 0,3%,“ segir í fréttatil- kynningu fjármálaráðuneytisins. <> . \ Islenskt Lé tt-skjáfcMX ú tölwna - /á, IcmIcIc! Nú geta allir notað tölvurnar-sínar sem faxtæki, bæði til sendinga og móttöku yfir símalínu. Við kynnum nýjan íslenskan hugbúnað fyrir Windows: Létt-skjófax fyrir ein- menningstölvur (mótald innifalið). Þú getur sparað þér kaup ó sérstöku faxtæki og sent beint af tölvunni. Þú getur unnið ó tölvuna þó Létt- skjófaxið sé að taka ó móti sendingu. Þú getur lótið tölvuna um að senda faxbréf ó sfóra sem smóa hópa. Kynntu þér möguleikona nónar! Kynningarverð á hugbúnaði og mótaldi fyrir 1 notanda kr. 29.900,- og fyrir allt að 5 notendur kr. 59.500,-. Verð er staðgreiðsluverð og með Vsk. Tæknival Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 LEIKMANNASKOLI ÞJOÐKIRKJUNNAR Trúfræðsla fyrir almenning Fjögurra kvölda námskeið Leiðsögn við lestur Biblíunnar Nýtrúarhreyfingar Kennari: Sr. Sigurður Pálsson Kennari: Sr. Þórhallur Heimisson Þriðjudagar: 18. jan.-8. feb. Miðvikudagar: 19. jan.-9. feb. Kl. 20.00-22.00 Kl. 20.00-22.00 Kristin íhugun Kennari: Guðrún Edda Gunnarsdóttir Miðvikudagar: 16. feb.-9. mars Kl. 20.00-22.00 * Kennt verður í aðalbyggingu Háskóla íslands, stofu 5. Innritun á Biskupsstofu, Suðurgötu 22,150 Reykjavík. Innritunargjald fyrir hvert námskeið 1.500,00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.