Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994 500 manns bíða eftir endurhæfingu á Reykjalundi Sjúklingar á biðlista í dýrum sjúkrahúsplássum UM 500 manns eru að staðaldri á biðlista eftir endurhæfingarplássi á Reykjalundi. Þó nokkrir úr þeim hópi liggja á sjúkrahúsum og nemur kostnaður við hvern legudag allt að fjórum sinnum hærri upphæð en við vistun á endurhæfingarstofnun, svo sem Reykjalund, eftir því sem fram kom í máli Björns Astmundssonar forstjóra Reykja- lundar. Hann lagði áherslu á mikilvægi eflingar og framþróunar í endurhæfingarmálum í landinu. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Vistmenn á Reykjalundi, sem eru um 170 um þessar mundir, eru flestir í heilsdagsþjálfun. Inni í henni er m.a. heilsuþjálfun, þ.e. notk- un hvers konar íþrótta í endurhæfingarskyni. Á sérstökum endurhæfingardegi á Reykjalundi á miðvikudag kom fram að þörf fyrir endurhæfingu ykist stöðugt m.a. vegna aukins langlífis og framfara í læknavísindum. Björn Hrönn Birgisdóttir, aðstoðar- maður iðjuþjálfa, og Linda Sig- urðardóttir, 14 ára, voru að útbúa tortellini-rétt í æfingaíbúð í iðjuþjálfun þegar fjölmiðlafólk bar að garði. Linda sagðist þegar hafa lært að gera nokkra rétti og fannst súkkulaðikakan hafa smakkast best. Hún fær afrit að öllum uppskriftunum og ætlar að prófa þær þegar heim kemur. Ástmundsson sagði að til þess að mæta þessari þróun hefði aukin áhersla verið lögð á að nýta tíma í endurhæfingu sem best og benti m.a. á að dvalardögum hefði að Gunnar Jónsson var að störfum í iðnaðardeildinni. Þar eru m.a. framleiddar allar plastvörur fyr- ir málningarframleiðslu og mjólkurvöruframleiðslu í land- inu. Alls starfa um 30 manns í deildinni, og segir Björn Ást- mundsson ársreikninga iðnaðar- deildar benda til nokkurs rekstr- arafgangs á síðasta ári. Þá nái endar saman í sjúkrahúsrekstri. meðaltali fækkað úr 200 árið 1960 í 53 árið 1992. Engu að síður sagði hann að stöðugt safnaðist á biðlista og á honum væru að jafnaði um 500 manns, þar af nú um 10% undir tví- tugu. Samsvaraði fjöldi sjúklinga á biðlista á bilinu 40-50% af því sem starfsmenn Reykjalundar önnuðu á hveiju ári. Efling, framþróun Björn lagði í þessu sambandi áherslu á mikilvægi eflingar og fram- þróunar í endurhæfingarmálum í landinu og gagnrýndi flatan niður- skurð í heilbrigðisgeiranum. Nær hefði verið að taka tillit til hverrar stofnunar fyrir sig, verkefna og bið- lista. Hann minnti á að dvöl á endur- hæfingarstofnunam, s.s. Reykja- lundi, væri miklum mun ódýrari en á hefðbundnum sjúkrahúsum. „Þess vegna er þjóðhagsleg hörmung að vita til þess að inn á sjúkrahúsum, t.d. Borgarspítala, Landspítala og minni sjúkrahúsum úti á landi, skuli vera vistað fólk sem bíður eftir end- urhæfingu fyrir helmingi, tvisvar sinnum, þrisvar sinnum og jafnvel fjórum sinnum meiri kostnað á hvern legudag en hér eða á hjúkrunarstofn- unum,“ sagði Björn og bætti við að komið gæti fyrir að fólk sem biði eftir bæklunaraðgerð farlamaðist svo að það næði ekki fullri heilsu eins og það gæti hugsanlega gert. Reykjalundur Markvisst endurhæfingarstarf hófst með ráðningu sérfræðings í endurhæfingarlækningum að Rey- kjalundi árið 1962. Starfsemin varð svo smám saman fjölbreyttari, sjúkraþjálfun tók til starfa árið 1963, iðjuþjálfun árið 1974, heilsuþjálfun- ardeild árið 1976 og á árunum upp úr 1980 allt til þessa dags hafa þró- ast ýmis sérsvið endurhæfingar, s.s. fyrir gigtarsjúklinga, heilaskaðaða, geðsjúka, fjölfötluð böm og sjúklinga með langvinna verki. Þar fyrir utan hefur verið komið á fót sérstökum deildum fyrir endurhæfingu hjarta- sjúklinga og annarra lungnasjúkl- inga. Auk hefðbundinna endurhæf- ingarlækninga og hjúkrunar er veitt félagsráðgjöf og talþjálfun á Reykja- lundi. Á Reykjalundi eru nú 170 rúm og innlagnir voru 1.250 á árinu 1993. Við endurhæfingu og umönnun sjúkl- inga starfa 253 starfsmenn sem nemur 174 fullum stöðugildum. Innlagnir á Reykjalund 1982-93 Innlagnir árið 1993 voru 1250. Á Reykjalundi eru nú 170 rúm en voru um 150 árið 1982. Við endurhæfingu og ummönnun sjúklinga starfa nú 253 menn sem nemur um 174 stöðu- gildum. Árið 1982 voru stöðu- gildin um 150. -4- -f— •4- •600 -400 •200 1982 '83 '84 '85 ’86 ’87 ’88 '89 ’90 '91 '92 ’93 VEGNA ALRANGRA UPPLYSINGA LAÐAAUGLYSINGUM HAPPDRÆTTIS HASK0LAHS SKAL UPPLÝST AÐ: Happdrætti SÍBS greiddi viöskiptavinum 60% í vinninga af veltu 1993 en ekki 50% eins og fullyrt.er í auglýsingu HHÍ. Heildarvelta ársins 1993 var 208.6 milljónir og 124.7 milljónir voru greiddar í vinninga til heppinna miðaeigenda en ekki aðeins 100 milljónir eins og stendur í auglýsingu HHÍ. Hæstu vinningar Happdrættis SÍBS falla alltaf í hlut viðskiptavina - og jafnvel margfaldir. _ —a, \-gj\ Verð miða er aðeins 600 kr. Dregið 12. jutlÚCLT. \í>Sm i4m*»«1 Upplýsingar urn næsta umboðsmantt t síma 91-22150 og 23130 ... fyrír lífið sjálft °g 231

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.