Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 3
ÍSLENSK MARKAÐSMtÐLVN HF.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
3
DeiUsche BankAG í Frankfurt
Fjátfestingatfélagið Skandia greiðir götu
þína á alþjóðlegum verðbréfamarkaði
Fjölmargir viðskiptavinir Fjárfestingarfélagsins
Skandia hf. hafa þegar kynnst því hversu einfalt
það er að fjárfesta hluta eigna sinna í erlendum
verðbréfum. Flestir þeirra hafa fengið raun-
ávöxtun sem er verulega umfram það sem gerist
og gengur hér heima. Jafnframt hafa þeir náð
betri og skynsamlegri áhættudreifingu á sparifé
sitt þar sem þeir treysta ekki lengur eingöngu á
verðgildi íslensku krónunnar.
T.d. er það markmið sumra verðbréfasjóða að
fjárfesta einungis í öruggum verðbréfum, svo
sem ríkisbréfum á meðan aðrir leitast við að ná
hárri ávöxtun með Ijárfestingu í efnilegum
fyrirtækjum.
Fjárfestingarfélagið Skandia er umboðsaðili
fyrir ýmis eignaumsýslufélög sem njóta mikils
trausts á heimsmarkaði og bjóða þau öll sjóði
með góðri áhættudreifingu.
Þú þarft ekki endilega að kaupa hlut í Deutsche
Bank eða áþekku fyrirtæki til að fjárfesta áhættu-
lítið erlendis. Þú getur valið á milli margra mis-
munandi verðbréfasjóða, þar sem áhætta er í lágmarki
Ráðgjafar Skandia aðstoða þig fúslega við
að finna rétta verðbréfasjóðinn fyrir þig.
Fjárfestingarfélagið Skandia hf.
Löggilt veröbréfafyrirtæki • Laugavegi 170, Sími 61 97 00
Útibú: Kringlunni, Sími 68 97 00 • Akureyri, Sími 1 22 22
Fjárfestingarfélagið Skandia hf. er alfarið í eigu Skandia-samsteypunnar