Morgunblaðið - 11.01.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
19
Morgunblaðið/Kristján Þ. Jónsson
Strandstaður
BJÖRGUNARSKIPIÐ Goðinn strandaði 150 metrum utan við Bergvík VE sem hér sést í sandfjörunni
í Vöðlavík. Myndin var tekin úr varðskipinu Tý á dögunum þegar reynt var að draga Bergvík á flot.
Karl Eiríksson formaður flugslysaiiefndar
Afrekið er nær
ofurmannlegt
Landhelgisgæslan veitir þyrlusveit-
inni í Keflavík viðurkenningu
MIÐAÐ við aftakaveður og aðstæður á strandstað finnst mér ástæða til
að tala um björgunaraðgerð þyrlusveitarinnar sem mjög frækilegt af-
rek, sem jaðrar við að vera ofurmannlegt," sagði Karl Eiríksson, formað-
ur flugslysanefndar, í samtali við Morgunblaðið. Þorsteinn Pálsson dóms-
málaráðherra segir að björgunarafrekið staðfesti nauðsyn góðs sam-
starfs milli Landhelgisgæslunnar og þyrlubjörgunarsveitarinnar.
Karl sagði að það væri mikið afrek
að senda menn úr þyrlunum niður í
skipið, hjálpa skipbrotsmönnunum í
björgunarstóla og koma þeim í land
við jafn gífurlega erfiðar aðstæður
og þarna voru. „Það hefur verið stað-
ið að mörgum frækilegum afrekum
hér við land, bæði af hálfu Landhelg-
isgæslunnar og annarra, en þarna
hefðu ýmsir þurft frá að hverfa.
Varnarliðið býr yfir mjög öflugum
þyrlum og þyrlusveitin hefur bjargað
fjölda manns hér við land. Ég vona
að enn nánara samstarf takist við
þyrlusveitina, því við höfum ekki ráð
á að reka tvær jafn dýrar og öflugar
þyrlur og sveitin hefur yfir að ráða,
hvað þá fjórar.“
Þyrlusveitinni veitt
viðurkenning
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra sagði að björgunarstarfið í
Vöðlavík staðfesti nauðsyn góðs
samstarfs milli Landhelgisgæslunnar
og þyrlusveitarinnar, sem enn hefði
verið eflt undanfarin misseri. For-
stjóri Landhelgisgæslunnar hefði
tjáð sér að hann hefði tekið ákvörðun
um að þyrlubjörgunarsveitinni yrðu
afhentar sérstakar viðurkenningar
sem þakklætisvott af hálfu íslend-
inga vegna afreksins.
Dómsmálaráðherra var inntur eft-
ir hvort björgunin sýndi fram á að
Sikorsky-þyrlur varnarliðsins stæðu
sig vel við íslenskar aðstæður og
ástæða væri til að leggja áherslu á
enn nánara samstarf um þyrlurekst-
ur eða að, íslendingar tækju við
rekstri sveitarinnar. Hann svaraði
því til, að menn mættu ekki hrapa
að slíkum ákvörðunum út frá einum
atburði. „Þessi atburður sýnir að
samstarf við þyrlusveitina skilar
árangri á örlagastundu. Við höfum
áður leitað viðbragða' Bandaríkja-
manna við því að við kæmum inn í
rekstur þyrlusveitarinnar eða yfir-
tækjum hann, en þá var þeim hug-
myndum sýnt tómlæti. Nú virðast
Bandaríkjamenn sýna þessu meiri
áhuga, en málið er auðvitað ekki á
ákvörðunarstigi enn.“
Einstaklega
farsæll ferill
BJÖRGUNARSKIPIÐ Goðinn er gott skip og á það, skipstjór-
inn og áhöfn hans einstaklega farsælan feril, að sögn Sigmars
Ármannssonar, framkvæmdastjóra Björgunarfélagsins hf., sem
gerir út skipið. Á þeim 28 árum sem Goðinn hefur verið í
þjónustu íslendinga hefur hann oft komið skipum og fólki til
aðstoðar og telur Sigmar að þau skipti megi telja í hundruðum
ef ekki þúsundum. Kristján Sveinsson hefur verið skipstjóri
frá því skipið kom til landsins og var björgun Bergvíkur í
Vöðlavík eitt af síðustu verkefnum skipsins.
Goðinn er 139 brúttólesta stál-
skip smíðað í Noregi árið 1962.
Björgunarfélagið keypti það árið
1966 sem björgunar- og dráttar-
skip og hefur það oft fylgt fiski-
skipaflotanum. Björgunarfélagið
er hlutafélag í eigu allra íslensku
vátryggingafélaganna sem eru
með sjóvátryggingar. Sigmar Ár-
mannsson, framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra tryggingafé-
laga, er jafnframt framkvæmda-
stjóri Björgunarfélagsins hf.
Eitt síðasta verkefnið
Sigmar sagði að Goðinn hefði
reynst vel. Þetta væri gæðaskip í
mjög góðu standi. Hann sagði að
síðustu árin hefðu aðstæður verið
að breytast og verkefni þess
minnkað af ýmsum ástæðum, með-
al annars vegna samninga trygg-
ingafélaganna um björgunarlaun
við Landhelgisgæsluna og Lands-
samband íslenskra útvegsmanna.
Nú væru fleiri skip tiltæk þegar á
þyrfti að halda og væri leitað til
þeirra sem næst væru þegar leita
þyrfti aðstoðar.
Vegna breyttra aðstæðna stóð
til að hætta rekstri Goðans og var
björgun Bergvíkur úr Vöðlavík eitt
af síðustu verkefnum þess.
Skip og skip-
stjóri
Björgunarskipið Goð-
inn var 139 brúttólesta
stálskip smíðað í Nor-
egi árið 1962 og var í
eigu Björgunarfélags-
ins hf. Á myndinni hér
til vinstri er Kristján
Sveinsson skipsljóri,
sem hefur stýrt skip-
inu frá því að það kom
til landsins, eða í 28 ár.
Skipstjórí Hálfdáns í Búð
Björgun
frá sjó var
útilokuð
TOGARINN Hálfdán í Búð frá
ísafirði hélt inn í Vöðlavík um kl.
13 í gær og dældi olíu í sjóinn í
von um að lægja öldur að ein-
hverju marki í víkinni. Skarphéð-
inn Gislason, skipstjóri á Hálfdáni
í Búð, segir að útilokað hafi verið
að bjarga skipverjum Goðans frá
sjó. Togarinn var staddur í Reyð-
arfirði þegar tilkynning um
strand Goðans barst frá stjórn-
stöð þjálparsveitarinnar í Eski-
firði og sigldi rakleiðis til Vöðla-
víkur. Þangað kom hann um eitt-
léytið.
Tveir aðrir togarar frá Vestfjörð-
um voru á þessum slóðum, Páll Páls-
son ÍS og Heiðrún ÍS, og biðu þeir
átekta fyrir utan víkina.
Skarphéðinn segir að aðstæður í
víkinni hafi verið „afspyrnuslæmar
og útilokað að reyna björgun frá
sjó. Þarna var haugasjór og bylur,
ein átta vindstig, og skyggnið mjög
lítið. Við komumst ekki nær en svo
að við réttum sáum mennina".