Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar,
ELÍNAR GUÐBJARGAR SVEINSDÓTTUR,
Álfheimum 8,
Reykjavfk.
Valgerður Þórarinsdóttir,
Guðlaug Guðný Þórarinsdóttir,
Ólöf Þórarinsdóttir,
Sveinn Þórarinsson
og fjölskyldur.
t
Elskulegur eiginmaður minn,
SIGURÐUR JAKOB ÓLAFSSON,
lést af slysförum laugardaginn 8. janúar.
Kristrún Þórisdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn,
ÓLAFUR JÓN ÞÓRÐARSON,
Smáratúni 20,
Keflavík,
lést í sjúkrahúsi Keflavíkur sunnudaginn 9. janúar.
Helga Albertsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SÖLVI KRISTINN FRIÐRIKSSON
frá Batavíu í Vestmannaeyjum,
lést þann 30. desember sl., og hefur útförin farið fram í kyrrþey.
Inger J. Friðriksson,
Hrefna Sölvadóttir, Hjalti Sölvason,
tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín,
ÁSDÍS HELGADÓTTIR,
Tunguvegi 18,
iést í Landakotsspítala laugardaginn 8. janúar.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Jakob Árnason.
t
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
MAGNÚS JÓSEFSSON,
andaðist 8. janúar síðastliðinn.
Ingibjörg Vilhjálmsdóttir,
Jósef Magnússon, Ruth Magnússon,
Guðríður Magnúsdóttir, Þórir Ragnarsson,
Jakob Magnússon, Valgerður Jóhannsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir,
JÖRGEN SÖLVASON,
lést 25. desember í Kaupmannahöfn.
Jakobína Helgadóttir,
Sölvi Sölvason.
Elskulegi bróðir okkar og frændi,
ÞORGEIR JÓNSSON,
Freyjugötu 5,
lést laugardaginn 8. janúar á hjarta-
deild Landspítalans.
Fyrir hönd aöstandenda,
Sverrir Guðmundsson,
Bjarni Guðmundsson,
Gréta Jónsdóttir.
Sigurlína Högna-
dóttir - Minning
Fædd 3. september 1899
Dáin 29. desember 1994
Sigurlína Högnadóttir sem lést
29. desember sl. var fædd 3. sept-
ember 1899 að Fossi í Mýrdal. For-
eldrar hennar voru Högni Högnason
og Steinunn Jóhannsdóttir og var
hún ein af fjórum systkinum. Að
Sigurlínu stóðu traustar bændaætt-
ir úr Skaftafells- og Rangárvalla-
sýslum. Sigurlína ól aldur sinn að
mestu í Vestur-Skaftafellssýslu þar
til hún fluttist til Reykjavíkur um
1920.
Í Reykjavík stundaði Sigurlína
margskonar störf, m.a. í iðnaði og
einnig við veitingastörf. Hún var
hamhleypa til allra starfa, áreiðan-
leg og traust og því mjög eftirsótt
til starfa af öllum sem henni kynnt-
ust. Eina dóttur eignaðist Sigurlína
með Einari Oddi Kristjánssyni skip-
stjóra, Unni Hafdísi, fædda 22.
febrúar 1930, sem er eiginkona
þess er þessar línur ritar.
Sigurlína var glæsileg kona út-
lits, fjörmikil og skemmtileg. Eins
og margir af hennar kynslóð var
hún hafsjór af vísum, ljóðum og
lögum, sem hún hafði á hraðbergi
þegar svo bar undir. Hún var hrók-
ur alls fagnaðar í góðum félags-
skap. Hjálpsöm var hún með af-
brigðum og mátti ekkert aumt sjá
- var afar örlát og rétti mörgum
hjálparhönd. Heimili hennar var
mjög vistlegt og hjá henni var ávallt
gestkvæmt - til hennar voru allir
velkomnir, enda veitingar allar með
miklum myndarbrag.
Eg á margar góðar minningar
um ánægjulegar samverustundir
með Sigurlínu bæði heima hjá henni
- og einnig þegar hún dvaldi á heim-
ili okkar Unnar í Bandaríkjunum í
nokkur skipti. Hún var fróðleiksfús
og hafði mikið yndi af ferðalögum
- vildi sjá og kynnast öðrum heims-
hlutum og fólki af öðru þjóðerni.
Þá hafði hún einnig mikið yndi af
samverustundum með fjórum
barnabörnum sínum, fylgdist náið
með þeim og og gladdist yfir góðu
gengi þeirra.
Sigurlína var fulltrúi kynslóðar
sem nú er óðum að hverfa - kynslóð-
ar þar sem lífsbaráttan var í fyrir-
rúmi og þar sem fátækt var al-
menn. Möguleikar til menntunar og
frama voru þá ekki fyrir hendi á
sama hátt og nú gerist. Sú kynslóð
bar merki bændaþjóðfélags þess
tíma - börnin hófu störf til aðstoðar
foreldrunum strax og þau gátu veitt
liðsinni.
En þessi kynslóð var á margan
hátt þjóðlegri en sú sem nú vex úr
grasi. Kjarngott mál auðkenndi
þetta fólk - og kunnátta á ljóðum
og söng var almennari en nú. Nú-
verandi kynslóð getur á engan hátt
gert sér grein fyrir þeim miklu
breytingum sem orðið hafa í ís-
lensku þjóðlífi - breytingum sem
ekki eru allar til hins betra. Sigur-
lína var sannur fulltrúi þessarar
þjóðlegu kynslóðar sem nú er óðum
að hverfa.
Þegar Siglurlína nú er kvödd
hinstu kveðju ber að þakka liðnar
samverustundir hér og erlendis.
Starfsfólki Elliheimilisins Grundar
eru færðar sérstakar þakkir fyrir
góða og alúðlega umönnun, en þar
dvaldi Sigurlína síðustu árin í góðu
yfirlæti.
Sigurður Helgason.
Hinn 29. desember sl. lést Sigur-
lína Högnadóttir á Elliheimilinu
Grund á 95. aldursári. Mér er ljúft
að minnast þessarar dugmiklu alda-
mótakonu með nokkrum orðum,
konu sem' lifði tímana tvenna og
sýndi æðruleysi fram á síðasta dag.
Lína, en undir því nafni gekk hún
jafnan, var Skaftfellingur eins og
faðir minn, sem oft áður en ég
kynntist Unni dóttur hennar minnt-
ist ágætra foreldra hennar fyrir
hjálpsemi.
Við Unnur vorum skólasystur úr
Kvennaskólanum og urðum brátt
góðar vinkonur. Það leiddi til þess
að ég kom oft á heimili þeirra í
Kirkjustræti 6 og fóru ekki fram
hjá mér dugmiklir eiginleikar, þrek,
kjarkur og myndarskapur móður
hennar.
Reyndar höguðu forlögin því
þannig að fyrstu hjúskaparárin okk-
ar Ásgeirs urðu í Garðastræti 13a,
en þar var húseigandi Guðmundur
Ólafsson heitinn skókaupmaður.
Eftir bruna í Kirkjustræti 6 gerðist
Lína ráðskona á heimili hans og var
það mikil gæfa fyrir þau öll, því
Guðmundur Ólafsson var öðlingur
mikill, og er hans áyallt minnst með
virðingu og þakklæti.
Margar góðar minningar eigum
við Ásgeir frá þessum árum með
þessu ágætisfólki og ekki síst
Guðný dóttir okkar, en oft þurfti
hún að bregða sér upp til Línu, þar
var svo margt gott á boðstólum.
Unnur dóttir hennar var sólar-
geislinn í lífi hennar og þakkaði hún
hamingju hennar, en Unnur, Sig-
urður og börn þeirra voru henni
dýrmæt.
Skömmu fyrir jól heimsóttum við
þijár vinkonur Unnar Línu á Elli-
heimilið. Hún lék á als oddi, fagn-
aði okkur, söng, fór með kvæði og
gerði leikfimiæfingar. Þannig ætla
ég að muna hana og þakka samver-
una við mig og fjölskyldu mína.
Blessuð sé minning hennar.
Dóra.
t
Bróðir minn, mágur og frændi,
ÓSKAR JÓNSSON
frá Holtsmúla, Landsveit,
Hrafnistu, Reykjavfk,
andaðist í Landspítalanum laugardaginn 8. janúar.
Sigriður Jónsdóttir,
Elias Ingvarsson,
Ingvar Loftsson,
Guðný Margrét Ólafsdóttir.
t
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN ÓLAFUR EYJÓLFSSON
frá Hólmavik,
sem andaðist miðvikudaginn 5. janúar í Sjúkrahúsi Hólmavíkur,
verður jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 15. janúar
kl. 14.00.
Ragnar Kristjánsson,
tengdadætur, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar,
ÞÓRA EINARSDÓTTIR,
andaðist í hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 9. janúar.
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir,
Svava Jakobsdóttir,
Þór EdwardJakobsson,
Jón Einar Jakobsson.
t
Fóstra mín,
JÓHANNA SIGURGEIRSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Reykjavlk,
áður Ásvallagötu 69,
verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn 12.janúarkl. 13.30.
Sveinn Kjartansson.
t
Föðurbróðir minn,
FRIÐJÓN JÓNSSON
frá Hofsósi,
Heiðarvegi 20,
Keflavfk,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 12. janúar
kl. 14.00.
Fyrir hönd systur, mágkonu og annarra vandamanna,
Hrönn Jóhannsdóttir.
EKFIDRVKIUIIR
iim ish
sími 689509