Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 í heimsókn hjó Pétri Tryggva gullsmið í Gentofte platínu. „En á endanum er þetta bara spurning um samræmi í stykkinu. Flestum dettur víst í hug einhver drulluklessa, þegar þeir hugsa um blauta steinsteypu. Eg var hef átt mikið við húsaviðgerð- ir og oft haft steinsteypu í höndun- um. Svo fór ég að hugsa um að steinsteypan væri eitthvert ís- lenskasta efni sem til væri, svo af hveiju ekki að lyfta henni upp? Ég hef alltaf haft trú á því sem ég er að gera, sett mér að gera betur og þróa hugmyndirnar áfram. Það er mikill kostur að hafa handverkskunnáttu til að geta útfært hugmyndirnar. Þegar ég var með sýningu í Gautaborg sagði einn af aðstandendum sýn- ingarinnar við mig hvað það hlyti að fylgja því mikið frelsi að koma hugmyndum sínum áfram í gegn- um handverkið. Og ég get alveg tekið undir það.“ Víravirki bregður fyrir hér og þar í gripum Péturs Tryggva og oft í óvæntu samhengi. Á þennan hátt lýstur því gamla og nýja sam- an í gripum hans. „Heima kenndi pabbi mér að smíða víravirki eins og á að gera. Þetta er mikil ná- kvæmnisvinna, sem hann vildi að ég lærði til hlítar. Nú er víravirkið hins vegar oft steypt. Venjulega er íslenskt víravirki smíðað í silf- ur, sem síðan er gyllt, en ég hef leikið mér að því að yfirfæra vinn- una í bæði gull og platínu." Þegar Pétur Tryggvi sendir hluti sína til Japan fara þeir í gegnum stranga gæðaprófun. Demantarnir eru skoðaðir vandlega og flokkaðir eftir hámákvæmum stöðlum og sama er með gullið og platínuna. En fyrir steinsteypu í skartgripum eru ekki til neinir gæðastaðlar, en gullsmiðnum er ljóst að hún þarf að halda. Og nákvæmin kemur víða til. Þar sem demantarnir liggja að því er virðist á stein- steypufleti liggja þeir í raun í gull- fattningu og á milli steinsins og steypunnar er harfínt bil upp á millimetersbrot. Útfærslan er ekki síður vendilega hugsuð en hug- myndimar. A stundum þarf Pét- ur Tryggvi að koma frá sér hug- myndum, sem ekki rúmast í skart- gripum. Hann hefur átt við skúlpt- úr og meðal annars haldið sýningu í Galleri Scag í Kaupmannahöfn, þar sem allar myndastytturnar seldust og í kjölfar þess hafa fylgt ýmis hönnunarverkefni. Gull- smiðnum í Gentofte er fleira til lista lagt en skartgripasmíðin. Hugmyndaflug á vængjuni' handverksins eftir Sigrúnu Davíðsdóttur HVAÐ dettur lesandanum í hug þegar hann heyrir steinsteypu, ryðgað járn, víravirki og dem- anta nefnda í sömu andrá? Lík- lega rekui1 hann í vörðurnar, en þeim sem þekkja til hand- verks Péturs Tryggva gull- smiðs verður ekki svars vant: Skartgripir eftir Pétur Tryggva. Skíirtgripir hans eru gerðir úr þessum efnum, að ógleymdum hefðbundnu hrá- efni gullsmiða eins og gulli og platínu og ef steinsteypan gefur hugmynd um eitthvað þungt og klossað, þá er það öldungis rangt. Hlutirnir hans eru fín- legir, án þess að virðast veiklu- legir, fullir af hreyfingu og spennu, sem stafar af ljónfjör- ugu hugmyndaflugi, en ekki af ósamræmi og óró. En umgerðin um allt þetta, verkstæðið og búðin, er líka kapítuli út af fyr- ir sig. Það er óhætt að segja að Kaupmannahöfn hafi bæst sérstakur staður þar sem búðin er annars vegar, en hún er hönnuð af Pálmari Kristmunds- syni arkitekt. Búðin er úti í Gentofte, við samnefnda götu, skammt frá jámbrautar- stöðinni og inni af búð- inni er verkstæðið. Þeg- ar gesturinn gengur inn í búðinni, er ekki laust við að hann grípi andann ósjálf- rátt á lofti. Við augum blasir gryfja með möl í botninum. Gólfið er nefnilega gagnsætt. Veggirnir em úr grófum múrsteini og það er hátt til lofts. Innréttingar em úr gleri og jámprófílum, en látum nánari lýsingar eiga sig, því sjón er sögu ríkari. En fyrstu áhrif eru svo mögnuð, að það tekur smá tíma áður en athyglin beinist að innihaldinu, nefnilega skartgrip- um gullsmiðsins. Kaupmannahöfn varð fyrir val- inu af því Pétur Tryggvi þekkti sig hér eftir námið, auk þess sem borgin liggur vel við samgöngum niður til Evrópu og reyndar um allan heim. En Gentofte varð fýrir valinu af tilviljun. Hann og Hlín Hermannsdóttir kona hans vildu vera með dæturnar þijár í hlýlegu umhverfi og í Gentofte keyptu þau sér hús, þar sem Pétur Tryggvi hafði vinnustofu framan af. Þegar gamall gullsmiður var að láta af störfum við aðalgötuna keypti Pétur Tryggvi búðina og verk- stæðið. Húsnæðið var þröngt og troðfullt af dóti, en hann eygði möguleikann á að útbúa nokkurs konar tum. Hann fékk svo Pálmar Kristmundsson arkitekt til að sjá um innréttinguna. Pálmar lærði í Danmörku, en vinnur á íslandi, þar sem hann hefur meðal annars innréttað verslanir ÁTVR. Pálmar gerði innréttingar úr stöðluðu efni og eins og Pétur Tryggvi segir, þá er meira en auðvelt að klúðra Næla úr gulli, steinsteypu og demant. Petur Tryggvi. Tryggvi ánægður. Platínan sem hann notar er svo hörð að ekki er hægt að steypa hana og fleira er þannig að það verður aðeins gert í höndunum. Það hentar hon- um að hafa allt eins einfalt og hugsast getur. „Einfaldara getur það varla verið. Ég sit bara með blýant og blað, smíða og geri til- raunir. Ef maður vill gera hlutina vel, þá gerir maður þá sjálfur, ekki satt ... Og þá er heldur ekki við neinn annan að sakast og svona ætla ég að halda þessu. Svo er líka að skartgripaverslun í Evr- ópu er í kreppu, markaðurinn þar er í rúst. I Þýskalandi em til dæm- is mörg fyrirtæki á hausnum. Ég reyni því að spenna bogann sem minnst hér, en byggja upp Japans- viðskiptin. Svona einmenningsfyr- irtæki eins og mitt eru sveigjan- leg.“ En hann gleymir þó ekki að geta þess að Hlín hjálpi sér með pappírsvinnuna, sem er töluverð. Spurning um samræmi Efnisvalið er Pétur Tryggvi ekki fjölyrtur um. Hann notar jám, steinsteypu og tré, auk gulls og slíku, auk þess sem það hefði ver- ið hægur vandi að fá miklu dýrari en um leið miklu venjulegri niður- stöðu. í búðinni er það því ekki aðeins gullsmiðurinn, sem hefur sýnt hugvit. Það er ekki ýkja langt síðan að Pétur Tryggvi rak gullsmíðaversl- un á Skólavörðustíg. Hann lærði heima, var meðal annars í læri hjá föður sínum, Hjálmari Torfasyni, auk þess sem hann stundaði nám við Gullsmíðaskólann í Kaup- mannahöfn. Verslunin gekk vel og hann hlaut góðar undirtektir heima fyrir. Einhveijir hefðu kannski verið ánægðir með það og haldið sínu striki, en það hent- aði ekki Pétri Tryggva. „Mig lang- aði til að prófa hvemig ég stæði í samanburði við það sem aðrir eru að gera og reyna mig við harð- ari samkeppni en heima. Ég hafði farið á sýningar í Þýskalandi og selt þar og þau sambönd hafa undið upp á sig. Ég hef einnig farið til Japan á sýningar og eins og er vinn ég meira fyrir Japanina en Þjóðveijana.“ Á réttum stað á réttum tíma í Japan tók Pétur Tryggvi þátt í danskri hönnunarsýningu 1987 og vakti þá eins og annars staðar athygli fyrir frumlegar hugmyndir og gott handverk. Gullsmiðurinn vill ekki gera mikið úr því hvemig standi á brautargenginu, en segir að árangurinn byggist á heppni. Það gildi að vera á réttum stað á réttum tíma. Við þetta mætti bæta að það sakaði ekki að vera með réttu hlutina. Og það að hleypa heimdraganum hangir kannski líka saman við að Pétur Tryggvi stendur óhikað við það sem hann gerir. í Þýskalandi selur Pétur Tryggvi beint í verslanir, aðallega í Wiesbaden, Niirnberg og Ham- borg, en einnig í Liibeck. I Japan gengur salan í gegnum umboðs- mann. I Japan er allt fjöldafram- leitt sem hægt er. En umboðsmað- urinn japanski hefur gert sér grein fyrir að ekki er hægt að fjölda- framleiða hluti Péturs Tryggva og meðan hann vill selja handverk í hæsta gæðaflokki, er Pétur Búðin og verkstæðið í Gentofte, hönnuð af Pálma Kristmundssyni arkitekt. Armband með jámi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.