Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 B 21 BILAR Það þarf ekki að henda gömlum bílum Morgunblaðið/Ámi Sæberg Púltið fyrir þessi jól var pallurinn á gömlum bíl. Það er Þorbjörn Magnússon sem les úr bók sinni um ferðir Kríunnar. Strákamir á bílaverkstæðinu Svissinum við Tangarhöfða eru allir með bíladellu, enda lítur verkstæðið ekki út eins og flestir slíkir vinnustaðir. Á veggjum má sjá ýmsa hluti tengda bílum, eins og gömul grill, hjólkoppa af ýms- um gerðum, leikfangabíl sem er við upphafsreit hraðbrautar auk módels af Willy’s Overland árgerð ’51. Við útidyrnar stendur gler- borð þar sem gamalt reiðhjól gegnir hlutverki borðfóta og stól- arnir tveir sem standa við borðið eru sæti af gömlum dráttarvélum. Þarna ræður ríkjum Aðalsteinn Ásgeirsson sem segir að þar sem þeir strákarnir séu mestan hluta sólahringsins á verkstæðinu vilji þeir hafa umhverfið skemmtilegt. „Seint á kvöldin þegar við erum hættir að vinna sitjum við gjarnan og spjöllum um áhugamálið, sem er bílarnir," sagði hann brosandi þegar Morgunblaðið leit inn til þeirra á verkstæðinu. Sjálfur á hann Overland ’52 árgerð og Chevrolet ’53 árgerð. „Mér finnst þessir gömlu bílar miklu fallegri heldur en nýju árgerðirnar, sem allar eru eins, enda hannaðar í tölvum.“ Upplestur fyrir jól Annað sem sker Svissinn úr frá öðrum verkstæðum er að undan- farin þrjú ár hafa hinir ýmsu rit- höfundar mætt í hádeginu einn desemberdag og lesið upp gestum og gangandi til ánægju. Þetta eru Einar Már, Einar Kárason, Þórarinn Eldjárn, Sig- mundur Ernir, Thor Vilhjálmsson, Þorbjöm á Kríunni og Þorsteinn Vilhjálmsson. Auk þess sem Meg- as, Bubbi og Keltarnir hafa spilað og sungið. Skapast að vonum sérkennileg og mikil stemmning bæði hjá áheyrendum og flytjend- um. Gjaldeyrissparandi menn! Aðalsteinn hefur rekið verkstæðið í fimm ár og allan þann tíma hefur hann haft sömu menn í vinnu. „Við höfum þekkst mikið lengur, því við höfum allir áhuga á að gera upp gamla bíla. Við þykjumst vera gjaldeyris- sparandi menn sem viljum nýta gömlu bílana. Það þarf ekki alltaf að henda því gamla,“ segir hann og bætir við að stefnan sé ekki Eitt af því skemmtileg- asta sem Aðal- steinn Ásgeirs- son gerir er að keyra full- hannaðan bíl út úr verk- stæðinu. Hér er hann að leggja alla alúð sína í við- gerðir. endilega að fá bílana í upprunalegt form. „Aðalatriðið er að við gerum þá vel keyrandi, smíðum þess vegna nýja vél, kassa og slíkt. Til dæmis er einn okkar nú að smíða nýjan bíl með Suzuki-grind, Volvo-vél og boddí úr Golf.“ Aðspurður segir hann að þrír bílar hafi farið um þeirra hendur sem smíðaðir hafi verið frá upphafi, m.a. einn fyrir Tolla. Það var einmitt Tolli sem hrinti hugmynd Aðalsteins um upp- lestur rithöfunda í framkvæmd. Að sögn þeirra sem til þekkja fer ótrúleg tiltekt fram á ári hvetju fyrir hátíðina eins og starfsmennirnir nefna upplestrar- daginn. Það er ekki einungis að þeir gefi vinnu sína í tiltektinni heldur mæta vinir og vandamenn einnig í sjálfboðavinnu. Aðalsteinn segir að upplestur- inn sé ágætis tilefni til að flokka allt það kynstur af dóti sem þeim berst allt árið. „Það eru nefnilega alveg ótrúlega margir bílaáhug- amenn hér á landi. Þeir tíma ekki að henda alls kyns munum úr bílunum og koma með þá til okkar. Fyrir jól förum við í gegnum allar geymslur og það sem við viljum ekki geyma látum við í hendur Pornbílaklúbbsins. Hitt flokkum við í kassa og geymum í stórri rútu sem er á vöktuðu svæði. En það er alveg ljóst að þessi upplestur hefur unnið sér fastan sess. Sumir rithöfundanna sem hafa lesið öll árin spytja meira að segja hvort ekki sé öruggt að uppákoman verði endurtekin að ári. Að sjálfsögðu erum við alveg harð- ákveðnir í því,“ sagði Aðalsteinn þegar blaðamaður kvaddi. Morgunblaðið/Kristinn Útsalan hefstídag sunnudagkl. 12 á Laugaveginum Dæmi um verð: Laugavegi, sími 17440/29290, Kringlunni, sími 689017. Dömudeild Peysur frá 2.200 Bolirfrá 1.500 Kjólar frá 2.500 Blússurfrá 1.900 Herradeild Skyrturfrá 1.900 Peysurfrá 1.900 Jakkafötfrá 14.900 Silkibindi frá 1.200 Skór frá 2.900 Nýtt kortatímabil Opið kl. 12-18. 30-60% afsláttur auk ýmissa tilboða. Útsalan verður í báðum verslunum frá kl. 10 á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.