Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 B 11 ÞJÓÐLÍFSÞANKAR /Hve langt getur vináttan gengid oghver eru takmörk hennar? Um vináttuna Ég fékk tvær merkilegar bækur í jólagjöf. Önnur þeirra heitir Dreggjar dagsins og er eftir Kazuo Ishiguro, hin er Um vinátt- una eftir Marcus Tullius Cicero. í fyrri bókinni eru það hin glöt- uðu tækifæri lífsins sem fjallað er um. Á fágætlega agaðan og fágaðan hátt er fjallað um miklar ástríður og þann óbætanlega harm sem sú uppgötvun veldur mannshjartanu að hafa hangið í ímynduðum skyldum og þannig misst af hinni stóru ást. Ástin hefur sínar eigin leikreglur, sá sem sýnir þeim fyrirlitningu mun þjást, og það því meira, sem hann verður eldri. í bók Ciceros er vináttan skoðuð frá hinum ýmsu hjiðum, hvert sé eðli hennar, hve langt hún geti gengið og hvað hún gefi. Athyglisverð lesning á timum þar sem vinátta og vináttubrögð eru nær daglega í þjóð- málaumræðunni. Hvað er indælla en að eiga einhvern að sem maður þorir að segja hvað sem er, rétt eins og talað sé við sjálfan sig? Hvern- ig getur sá maður fundið til sér- legrar gleði þeg- ar vel gengur sem á engan að er samgleðst honum? Og vissulega er erf- itt að þola mót- læti ef enginn er til sem tekur það nær sér en mað- n eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur ur sjálfur. I stuttu máli, allt ann- að sem menn sækjast eftir er eftirsóknarvert í einu ákveðnu skyni eins og auður til eyðslu, áhrif til frama, metorð til veg- semdar, lífsnautn til gleði og góð heilsa til að vera laus við þjáning- ar og geta notað líkamann til fulls. Vinátta er aftur á móti til margs nýt. Hvert sem við snúum okkur er hún reiðubúin. Ekkert fær hindrað hana, hún íþyngir okkur aldrei og er aldrei ótíma- bær ... vinátta bregður frekari ljóma á velgengni og gerir mót- læti léttvægara með því að taka á sig hluta þess.“ Þannig farast Cicero orð um gildi vináttunar. Hann segir enn- fremur:„Vinátta hefur það fram yfir frændsemi að skyldmenni bera ekki óhjákvæmilega góðvild hvert í annars garð sem vinir aftur á móti gera. Ef góðvild er ekki lengur til að dreifa hlýtur vináttu að ljúka. Skyldleiki helst aftur á móti óbreyttur." Enn seg- ir Cicero: „Ef bönd góðvildar hyrfu úr tilverunni stæði ekkert heimili og engin borg, ... Ef þetta er ekki skýrt hlýtur það þó að vera augljóst hversu sterkt afl vinátta og eindrægni er frá sjón- arhóli fjandskapar og ósamkomu- lags. Hvaða heimili er svo ramm- gert og hvaða borgríki svo traust að því megi ekki kollvarpa með hatri og sundurlyndi? En hvað skyldi Cicero segja um hve langt vinátta geti geng- ið?: „Við förum þess aðeins á leit við vini okkar sem heiðvirt er og gerum það eitt fyrir þá sem heiðv- irt má teljast. Bíðum þess jafnvel ekki að vera beðnir heldur erum ávallt boðnir og búnir og aldrei hikandi. Okkur ber að þora að gefa góð ráð af hreinskilni því í vináttu er mest um vert að báðir aðilar séu hollráðir. Þeim bera að nota áhrif sín til að gefa góð ráð til ábendingar, ekki einungis hreinskilnislega heldur einnig af festu ef nauðsyn krefur. Vinir skulu hlíta ráðum hvers annars." Cicero vitnar í þá skoðun sumra samtíðarmanna sinna að forðast beri of náinn vinskap til að áhyggjur margra lendi ekki á einum manni, eða að leita beri eftir vináttu vegna þeirrar vernd- ar og hjálpar sem vinir veita en ekki sökum góðvildar og kær- leika. Um þetta segir Cicero: Hvílík speki. Að svipta líf manna vináttunni jafngildir því að nema sólina brott úr alheimi. Vináttan er besta og unaðslegasta gjöfin sem hinir ódauðlegu guðir hafa gefið okkur.“ í bók sinni hefur Cicero eftir valdsmanninn Tarquiniusi að hann hafi þá fyrst vitað hveija hann ætti að sönnum vinum þeg- ar hann var farinn í útlegð. „Því er svo farið um marga að of mik- il völd eru tryggri vináttu til traf- ala. Hamingjugyðjan er ekki ein- ungis blind heldur blindar hún iðulega þá sem hún hefur umvaf- ið. Það er þess vegna sem stæri- læti þeirra og gorgeir fer út yfir öll mörk og ekkert í veröldinni er eins óþolandi og heimskulegur hamingjuhrólfur. Þið hljótið að hafa tekið eftir því að þeir sem áður voru viðfelldnir breytast er þeir hafa hlotið frama í her- mennsku og stjórnmálum eða komist í álnir. Þá fara þeir að líta niður á gamla vini en hrífast af nýjum. Hvað er heimskulegra en áð þeir sem hafa auð, völd og tækifæri eignist allt sem falt er fyrir peninga, hesta, þjóna, skart- klæði og dýrindis borðbúnað, í stað þess að afla sér vina sem eru þó, ef svo má að orði kom- ast, fegurstu og bestu kjörgripir lífsins?" Loks skulum við sjá hver eru takmörk vináttunar að mati Ciceros. Hann segist kannast við þrjú sjónarmið í þessu efni: „í fyrsta lagi að við eigum að bera sams konar tilfinningar í garð vina okkar og við berum til okkar sjálfra. í öðru lagi að góðvild okkar í garð vina samsvari að öllu leyti góðvild þeirra í okkar garð. I þriðja lagi að menn eigi að leggja sama mat á vini sína og vinirnir leggja á sjálfa sig. Öllum þessum sjónarmiðum er ég ósammála.“ Um fyrsta sjónarm- iðið segir Cicero: „Hversu margt gerum við ekki fyrir vini okkar sem við gerðum aldrei fyrir okkur sjálfa. Það er oft svo að góðir menn láta hjá líða að notfæra sér gullin tækifæri til þess að vinir þeirra megi njóta þeirra frekar en þeir sjálfir. Annað sjónarmiðið takmarkar vináttuna við gagn- kvæma greiðvikni og tillitsemi. Það er vissulega smásmuguíeg tilætlunarsemi við vináttuna að ætlast til þess að tekjur og gjöld standist á. Mér finnst að í sannri vináttu felist meiri auður og ríki- dæmi en svo að þar þurfi að gaumgæfa hvort meira sé borið úr býtum en látið sé í té.“ Þriðja sjónarmiðið teldur Cicero þó ótækast: „Menn eru oft kjark- lausir eða bölsýnir og þá á vinur- inn vissulega ekki að samsinna því. Þvert á móti á hann að stappa í vin sinn stálinu og reyna eftir megni að blása vonarneista í nið- urbeygða sál hans og auka honum bjartsýni." , Það síðasta sem ég tilfæri hér úr hinni merku orðræðu Ciceros um vináttuna er: „í fyrsta lagi að vera ekki með látalæti eða hræsni því að hreinskilnum manni fer betur að sýna hatur sitt opin- skátt en dylja hug sinn með fölsku viðmóti. í öðru lagi á hann ekki aðeins að vísa á bug sakargiftum annarra heldur á hann ekki einu sinni að ala með sér minnstu grunsemdir né trúa því að vini hans hafi orðið á glappaskot. Enn ber að nefna ljúfmennsku til orðs og æðis sem er alls ekki svo lítið krydd í vináttuna. Sífelld alvara og drungi geta vissulega verið áhrifarík en vináttuþelið ætti að vera óheftara, blíðara og þekki- legra og þar ætti að ríkja alúð og ljúfmennska." Sá munur er á efni þessara bóka tveggja, Dreggjar dagsins og Um vináttuna, að of oft er víst harla lítið hægt að gera til að endurheimta hin glötuðu tæki- færi á sviði ástarinnar, en vinátt- una er hins vegar aldrei of seint að leggja meiri rækt við. Eitt er þó sameiginlegt stef þessara ólíku bóka: Að einlægni og heiðarleiki og góðmennska séu þeir lyklar sem ganga að hjörtum flestra manna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.