Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 Mannleg samskipti í aug um barna o g unglinga MANNLEG samskipti nefnist sýning á verkum norrænna barna og unglinga sem nú stendur yfir í Gerðubergi. Sýn- ingin er samstarfsverkefni, skipuiögð af samtökum nor- rænna’ myndlistarkennara og lýsir því hvernig börn og ungl- ingar líta samfélag sitt, gleði jafnt og sorgir. Sýningunni er ætlað að auka skilning milli þjóða og ólíkra menningar- svæða, sýna hvernig börn og unglingar á Norðurlöndum tjá sig í myndum og leggja áherslu á þýðingu myndmáls sem mikil- vægs tjáningarmiðils. Á sýningunni í Gerðubergi eru verk eftir 45 íslensk börn og voru þau verk valin úr miklum fjölda innsendra verka. Tveir af íslensku þátttakendunum, Katrín Jakobs- dóttir og Gunnar Sverrir Gunnars- son, opnuðu sýningurla fyrir hönd Félags íslenskra myndlistarkenn- ,ra. Ræður þeirra lýstu nauðsyn •ess að eiga góð samskipti við aðrar manneskjur og fjölbreyti- leika mannlegs iífs. Að sögn aðstandenda sýningar- innar eru viðfangsefni hinna ungu myndlistarmanna ást, fjölskylda, hefðir, ieikur, vinátta, dauði, sorg og skemmtun. Börn hafa verið áhugasamir' sýningargestir og spurt margs um myndir og mynd- efni. Samtök norrænna myndlistar- kennara fengu styrk frá Norræna Frá sýningunni, Mannleg samskipti, í Gerðubergi. menningarsjóðnum til að unnt væri að halda sýninguna, en það er í fyrsta skipti sem samtökin gangast fyrir jafn viðamikilli sýn- ingu. Hlutur íslands hefur verið auk- inn á sýningunni í Gerðubergi með því að bæta við sex stórum mynd- verkum úr pappír eftir nemendur í grunnskólum. Sýningunni lýkur 13. febrúar, en þá fer hún til Akureyrar og síðan víðar um Norðurlönd. Morgunverðarfundur miðvikudaginn 19. janúar 1994 kl. 08.00 - 09.30 f Skúlanum, Hótel Sögu MA AVAXTA OG NÝTA BETUR 200 MILUARÐANA í Þýðenda- kvöld í Þjóð- leikhús- kjallarannm ÝMSIR bókmenntaunnendur minnast eflaust þýðendakvöld- anna sem haldin voru sl. vetur á Háalofti Fógetans í Aðal- stræti. Nú er ætlunin að hefj- ast handa á ný og verður fyrsta þýðendakvöld vetrarins í Þjóð- leikhúskjallaranum mánudags- kvöldið 17. janúar kl. 20.30 og síðan þriðja mánudag hvers mánaðar til vors. Þýðendakvöldin í vetur verða hluti af dagskrá nýstofnaðs Lista- klúbbs Þjóðleikhúskjallarans. Dagskrá fyrsta kvöldsins verður eftirfarandi: Fyrst lesa feðgarnir Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson úr þýðingum sínum á Kafka, Ingibjörg Haraldsdóttir les úr þýðingu sinni á Tvífaranum eftir Dostojevskíj, Baldur Óskars- son les þýdd ljóð og loks les Sig- urður A. Magnússon úr eigin þýð- ingu á Söngnum num sjálfan mig eftir Walt Whitman. Myndlist barna og unglinga Myndlist Eiríkur Þorláksson Það er full ástæða til að taka listsköpun barna og unglinga al- varlega, og meta hana að verðleik- um fyrir innsýn, framsetningu og verktækni, eftir því sem við á. Þeir sem hafa kynnt sér barnalist sérstaklega hafa oft nefnt að þar megi á stundum finna dæmi fölskvalausrar innlifunar og sam- sömunar í tjáningu, sem nám og þroski ná oft að slæva hjá eldri listamönnum. Þetta kemur eink- um fram í myndefnum, sem standa börnunum nærri. Nú stendur yfir í menningarmið- stöðinni Gerðubergi í Breiðholti sýning á myndlist bama og ungl- inga, sem hlotið hefur yfirskriftina „Mannleg samskipti". Hér er um að ræða samsýningu sem samtök norrænna myndlistarkennara hafa skipulagt og hlotið hefur styrk frá norræna menningarsjóðnum; þetta er annar viðkomustaður sýningar- innar, en hún á eftir að fara um öll Norðurlöndin. í sýningarskrá segir m.a. um tilurð sýningarinnar: „Aðaltil- gangur sýningarinnar er að sýna hvernig börn og ungiingar á Norð- urlöndunum tjá sig í myndum og leggja áherslu á þýðingu mynd- máls sem mikilvægs tjáningarm- iðils. Myndsköpun eykur skilning mannsins á umhverfi sínu. Í ljósi reynslu sinnar verður hann færari um að takast á við hinar ýmsu hliðar mannlífsins." Viss stýring felst skiljanlega í því að kennarar hafa þannig ákveðið ramma þeirra viðfangs- efna, sem börnin fást við, en slíkt virðist henta vel á þessu sviði; hin mismunandi og flóknu mynstur sem einkenna mannleg samskipti birtast á fjölbreyttan hátt í gegn- um augu barnanna.í verkunum á sýningunni. Myndunum er skipt upp í fjöru- tíu hópa sem hver um sig inniheld- ur nokkur verk sem tengjast svip- uðum viðfangsefnum, t.d. sam- vera, foreldrar og börn, leikir, dans, íþróttir, sorg o.fl. Þó eru ekki allir hóparnir jafn skýrt af- markaðir og vegna uppsetningar- innar þarf á stundum að leita sam- hengisins. Því verður það að sýn- ingargesturinn lítur fyrst og fremst til einstakra mynda og þar er oft að finna hrífandi verk. Það er ef til vill ekki réttmætt gagnvart þeim mikla fjölda Mannleg samskipti ágætra listamanna sem hér koma fram, að nefna eitt öðru fremur, en þegar fjallað er um hópsýning- ar er það samt sú lausn, sem gef- ur heildinni mestan ljóma. Oft eru það hinar einföldu lausnir, sem takast best. Þannig má nefna verk eftir Mira Franti „Aleinn með öðr- um“ (nr. 18-3), sem er áleitin ímynd þeirrar einangrunar eða útskúfunar, sem sumir þurfa að búa við, jafnvel í fjölmenni; í „Óvænt stefnumót" (nr. 11-5) fjallar María Glambek um það sem má nefna „einnar nætur kynni“ og þær blöndnu tilfinningar sem þeim fylgja. Loks má nefna geisl- andi íjör í einfaldri ímynd „Lambada" (nr. 1-3) hjá Katrínu Jakobsdóttur. Nokkur áhrifamikil hópverk eru einnig á sýningunni og hefur vinna þeirra eflaust verið þroskandi ferli fyrir nemendur; hér er rétf að benda á ógnandi tiiveru verksins „Minn staður" (nr. 34-1) sem nemendur í Numedal framhaids- skólanum í Noregi hafa unnið. Sýningin er sett upp á göngum beggja hæða menningarmiðstöð- varinnar og slitnar því nokkuð sundur. Einnig vantar nokkuð á að merkingar einstakra verka inn- an hvers hóps sé nægilega skýr. Þetta eru þó aukaatriði; það sem eftir stendur er ágæt sýning á barnalist, þar sem þroskuð viðhorf og skemmtilegar lausnir sýna glögglega að tæknileg hæfni er ekki það sem helst skiptir máli í myndlist; þessi listaverk eru sköp- uð af heilum hug, og það ræður mestu. Sýningin „Mannleg samskipti" stendur til sunnudagsins 13. febr- úar í Gerðubergi, en síðan mun hún fara til Akureyrar, þar sem hún verður opnuð í hinu nýja Listasafni Akureyrar laugardag- inn 26. febrúar. LÍFEYRISSJÓÐUNUM Nefnd innan Verslunarráðsins hefur fjallað ítarlega um skyldubundinn lífeyrissparnað og dregið saman í skýrslu stöðu núverandi lífeyrissjóðakerfis og aðra kosti til varðveislu og tryggingar lífeyrisins. Er kerfið ónothæft? Því ekki frjálst val um sjóði? Því nýtist þetta stórfé atvinnulifinu ekki betur? Er núverandi kerfi á skjön við EES, Mannréttinda- sáttmála Evrópu og jafnvel sjálfa Stjórnarskrána? Fvmmælendur: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri VI kynnir skýrsluna. Asmundur Stefánsson framkvæmdastjóri lýsir séráliti sínu. Fyrirspurnir, svör, umræÓur. Fundurinn er opinn, en tilkynna verður þáfttöku fyrirfram í síma VÍ, 676666 (kl. 08-16) Fundargjald með inniföldum morgunverði er kr. 1000 fyrir félagsmenn VI, aðra kr. 1.500. Skýrslan verður seld við inngang á kn 1.000. VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS Det Nedvendige Seminarium í Danmörku GETUR TEKIÐ INN ÍSLENSKA NEMENDUR ÞANN 1. SEPT. 1994 4ra ára alþjóðlegt, nútíma kennaranám, sem veitir réttindi til kennslu í mörg- um skólaum og uppeldisstofnunum í Evrópu og þriðja heiminum. Námið er: • 1 ár með alþjóðlegu námsefni, innifalin 4ra mánaða námsferð til Asíu. • 1 ár námsefni innanlands, innifalið er 6 mánaða þátttaka í dönsku atvinnu- lífi. • 2ja ára fagnám, innifalið 2x6 mánaða starfsnám í grunnskóla og öðrum skólum innanlands og utan. Eftir útskrift tekur við eins árs vinna í skóla í Afríku. Allir nemendur búa í skólanum. Kynningarfundur um skólann verður haldinn í Reykjavík í lok febrúar. Ef þú hefur áhuga, hringdu í síma 90 45 65 91 40 45 eða sendu símbréf 90 45 66 11 50 61. Det Nedvendige Seminarium, DK - 6990 Ulfborg. Stuðningsmenn Árna Sigfússonar í 2. sætiú í prófkjöri sjólfstæðismanna hafa opnað kosningaskrif- stofu ó Suðurlandsbraut 4, símar 6841 óó og 6841 54 Opið fró hódegi dag hvern og fram eftir kvöldi. ■ ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN í Brautarholti 4 byijar upp úr miðj- um mánuðinum með ný námskeið fyrir byijendur (5-7 vikur), fram- haldsnámskeið fyrir lengra komna og grunnnámskeið á nokkrum stöðum úti á landi. Á námskeiðun- um fræðast menn um íslenska ættfræði, heimildir, leitaraðferðir og úrvinnslu upplýsinga í ættar- skrám af ýmsu tagi. Auk þjálfunar í vinnubrögðum fá þátttakendur góðan tíma og aðstöðu til að rekja eigin ættir og frændgarð, með notkun kirkjubóka, annarra frum- heimilda, handrita og prentaðra bóka. Leiðbeinaridi er Jón Valur Jensson. Innritun er hafin. ■ FRÆÐSL UFUNDUR verður á vegum Kynfræðifélags ís- lands. Sr. Þorvaldur Karl Helgason kynnir Fjölskylduþjón- ustu kirkjunnar, aðdraganda, hlut- verk og starfsemi. Fundurinn verður haldinn í fræðslusal Heilsuverndarstöðvar Reykja- víkur, þriðjudaginn 18. janúar kl. 12.-12.50 (gengið inn um dyr barnadeildar Barónstígsmegin, fræðslusalur er í kjallara). Frítt er fyrir félagsmenn Kynfræðifé- lagsins, aðrir 300 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.