Morgunblaðið - 16.01.1994, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.01.1994, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 eftir Kristínu Marju Baldursdóttur HJÓLBARÐAR eru í stöfl- um í hillum og á fínsópuðu gólfi, ásamt gúmmíslöng- um, felgum og járnum. A veggjum hanga almanök með myndum af fjöllum og fögrum listaverkum, og í gluggakistunni endi- langri er steinasafn úr Viðey. Inn á þetta hjól- barðaverkstæði hefur bíl aldrei verið ekið. Otti Sæ- mundsson hefur selt hjól- barða í hálfa öld, en á gamlársdag fannst honum komið nóg og lokaði þessu þekkta verkstæði í Skip- holti 5, fyrir fullt og allt. Eftir að hurðinni var skellt í lás um ára- mótin hefur Otti verið að stússa á verkstæð- inu, taka til og sort- era. Þegar ég kem til að kíkja inn í þennan karlaheim, leiðir hann mig um verkstæðið og heldur um leið fyrirlestur á kjam- miklu máli um ófáanlega hjólbarða. Hann sparkar vinsamlega í eitt dekkið og segir: „Þetta er undan fjörutíu og sjö módeli, þú færð það hvurgi nokkurs staðar. Og komdu héma ég ætla að sýna þér svolít- ið,“ segir hann og fer með mig út í port þar sem gúmmíslöngum og ónýtum dekkjum er staflað í stóra hrúgu. „Þessu er öllu hent núna, held- urðu að það sé eitthvert vit í þessu? Elskan mín, áður var þetta nýtt í skósóla. Ég sólaði skóna mína með þessu þannig að þeir kostuðu mig ekki meira en sjö krónur." Gömul nælondekk Þótt enginn nýti ónýt dekk leng- ur, nýtir Otti sandinn aftur og aftur sem hann stráir á gangstéttina og bílastæðin fyrir utan hjá sér þegar hálkan er mest. „Svo sópa ég sandinum saman aftur og set hann hér í þennan poka,“ segir hann. „í þau rúm fjöru- tíu og tvö ár sem ég hef verið hér hef ég alltaf sópað fyrir utan. Það er meira en hægt er að segja um suma hér við hliðina, þótt það komi þessu máli ekkert við.“ Og það er engu logið um það, sama snyrtimennskan ríkir fyrir utan og innan. Otti byggði Skip- holt 5, sem er tæplega 800 fer- metra hús upp á þrjár hæðir, árið 1950. Sjálfur hefur hann alltaf búið á efstu hæðinni, umkringdur kven- fólki alla tíð, eiginkonu og fjórum dætrum. Á verkstæðinu er aðeins einn stóll og þar tylli ég mér niður. Otti stormar um verkstæðið meðan við tölum saman, grannur og kvikur, og leikur allt um leið og hann seg- ir mér frá. „Þetta eru 240 fermetrar með götu,“ segir hann, þegar ég spyr hann út í húsnæðismál, og á þá við verkstæðið. „Þegar ég byggði héma Morgunblaðið/Kristinn sögðu menn að ég væri ruglaður að fara út úr bænum. Og þá var allt skammtað, sement, timbur, allt byggingarefni og hjólbarðar. Feng- ust ekki hjólbarðar á landinu." Hann stikar að stóru tréborði, dregur út timbursveðju og segir eilítið dularfullur í framan: „Með þessu þynnti maður út gúmmíið þar til hægt var að nota það í bætur." Þar sem hann stendur þarna með sveðjuna ber maður að dyrum, síð- búinn viðskiptavinur, sem spyr hvort hann eigi gömlu nælondekkin. „Hvaða stærð? þmmar Otti, og fer með hann inn í bakherbergið. „Þú færð ekki þessi dekk á íslandi lengur," heyri ég að hann segir. Eftir orðaskipti koma þeir fram og maðurinn hverfur út. „Þeir halda þessir menn að mað- ur geti legið með dekk í fjörutíu ár án þess að fá vexti,“ segir Otti snúðugt, „halda svo bara að maður láti þá fá eitt ókeypis af því maður er hættur. Þetta er eins og þegar menn vildu að ég gæfi þeim dekk í álfabrennur, sumir voru svo frekir að þeir vildu fá heilan bíl takk fyr- ir. Aðrir vom þakklátir fyrir að fá bara fjögur þótt ég byði þeim tíu.“ - Og nú ertu hættur eftir öll þessi ár, er engin eftirsjá? „Ég er orðinn 75 ára og það er annað hvort að hætta þessu núna 'eða halda áfram þar til maður dett- ur ofan í kassann," segir hann og blikkar mig aðeins. Frægur blaðasali Otti segir að það séu ein 15 eða 18 ár síðan menn fóm að taka bíl- ana inn á verkstæðin. „En hér hef- ur aldrei bíll inn komið. Hér hefur allt verið gert með handafli. Maður hefur legið undir bílunum hér fyrir utan eða á hnjánum fyrir framan þá og skrúfað og tjakkað þetta allt saman með handafli. Nú fara bíl- arnir á lyftur og menn standa með loftbyssur og rífa af dekkin." Hann sýnir mér að sjálfsögðu með látbragði hvemig það er gert. - Hvemig stóð á því að þú fórst að selja hjólbarða? „Það vantaði mann á hjólbarða- verkstæðið í Sænska frystihúsinu, það var árið ’42. Svo flutti ég hing- að uppeftir árið 1950 og flentist í þessu.“ - Þú hlýtur nú að hafa átt ein- hveija aura úr því að þú gast byggt allt þetta hús? Hann ansar ekki þessu með aur- ana. „Ég fékk ekkert að gera í fjögur ár,“ segir hann eins og það hafi verið mér að kenna. „Nú maður reyndi að vera duglegur og vinna vel. Er það kannski ekki merkilegt að hafa aðeins verið veikur í einn dag í fimmtíu ár? Ég fékk reyndar felgjujárn í andlitið og var slæmur í tólf daga. En það er ekki að vera veikur." - Nú varst þú eitt sinn frægur blaðasali, byijaðir þú þá að safna aurum? „Enginn hefur selt eins mörg blöð á Islandi og ég,“ segir hann. „Ég seldi Morgunblaðið á tíu aura og fékk þijá aura fyrir blaðið, en það kemur þessu máli ekkert við. Ég byijaði þrettán ára gamall að Otti Sæmundsson hefur selt hjólbaróa i hólfa öld og hefur aóeins einu sinni tekið sér veikindafri, i einn dag selja blöð, seldi á fullu í sjö ár og maður lagði ýmislegt á sig fyrir þijá aura,“ segir hann og blikkar mig. - Mér er sagt að þú hafir sóst eftir því að að selja blöðin á kirkju- tröppunum, sem var auðvitað bann- að, og svo varstu sektaður? „Nei,“ segir hann snöggt. „Mér var stungið inn.“ - Stungið inn? „Já því ég seldi á messutíma. En það var góður maður sem fékk mig leystan út.“ Vinnuþjarkur Sagt er að það hafi heyrst í Otta um allt holtið þegar hann var að vinna. Ekki mun það þó hafa verið söngur, þótt Otti hafi alltaf haft unun af góðum tenórum, og varla hefur selskapurinn á verkstæðinu vakið þessa kæti, því Otti Sæ- mundsson hefur unnið einn alla sína tíð. Það var víst bara svona gaman að lifa. - Hvers vegna hefurðu alltaf verið einn á verkstæðinu? „Ég hef nú fengið aðstoð þegar mikið hefur legið við. En það er bara oft betra að gera verkin sjálf- ur, þá eru þau unnin. Menn spyija hvernig ég hafi getað unnið svona mikið. Jú ég vann oft átján tíma á sólarhring, allt þar til ég riðaði af þreytu og þurfti að taka um höfuð- ið. Nú maður stoppaði andartak og svo hélt maður bara áfram að vinna, það var annað hvort að duga eða drepast. Hefurðu ekki þræla, spurðu menn. En ég segi bara, ef þú ert duglegur og vinnur af hörku þá hefurðu meira upp úr því.“ - Þú hefur þá líka sparað þér launakostnað? „Þar fyrir utan, en ég tók ekkert sumarfrí. Á 48 árum hef ég í mesta lagi tekið þijá mánuði í frí. En það er önnur saga og kemur þessu máli ekkert við.“ - Mér er sagt að dóttir þín hafi eitt sinn skammað þig af því henni fannst þú svo hvefsinn við einhvern kúnna og að þú hafir sagt að hann hafi verið svo dónalegur fyrir 25 árum? Það er greinilegt að Otti hefur engu gleymt og ætlar ekkert að gefa eftir í þessu máli. „Ég var í sólbaði úti á altani á sunnudegi þegar maður kom með dekk og bað mig um að gera við það í hvelli. Ég gerði við dekkið á sundskýlunni. Maðurinn náði í dekkið eftir þijá mánuði." Hann stikar út að glugga. „Það mundi enginn trúa því hversu dóna- legir menn gátu verið. En það voru bara einn á móti tíu. Það var nú ekki ástæða til að vera með dóna- skap því nú var þjónusta okkar á hjólbarðaverkstæðum miklu ódýrari en rakaranna hérna uppfrá." - Já, hvernig var það, langaði þig ekki til að verða rakari hér áður fyrr? „Ha? Nei, nei,“ segir hann og kemur sér undan því að svara þessu. „Það er svolítið gaman að þessu,“ bætir hann við annars hugar. Svo nær hann sér á strik aftur, stormar um verkstæðið og segir með þjósti: „Ég var nú eitt sinn á konsert í Þjóðleikhúsinu þegar ég var kallað- ur upp til að ná í dekk!“ Hann sér að nú verð ég mállaus af hneykslun. „Og svo kom það ekki ósjaldan fýrir að menn gleymdu veskinu sínu heima þegar kom að því að borga,“ bætir hann við og blikkar mig að- eins. Ég spyr hvort hann hafí skrifað hjá mönnum? „Skrifað?,“ segir hann dræmt. „Nei, þú færð aldrei borgað það sem þú lánar. Það er undantekning. En þó fékk ég lengi lambsskrokk á ári ffá manni sem ég lánaði stórpen- ing. Ég lánaði honum 35 þúsund gamlar í þrjá daga og ég fékk hvern einasta eyri borgaðan til baka. Þetta var fyrir þijátíu árum. Hann verslaði við mig þar til hann dó.“ - Þetta hefur nú verið mikill peningur í þá daga? „Ætli það sé ekki um þijú hundr- uð þúsund í dag. Hann var með ávísun frá Vegagerðinni sem eng- inn vildi skipta. Hann vantaði þenn- an pening fyrir helgi því hann var með átta manns í vinnu. Ég var með þessa peninga í vasanum og lét hann hafa þá. Tók öngva kvitt- un. Strákarnir hans sögðu mér að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.