Morgunblaðið - 16.01.1994, Side 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
Silvía hefur alltaf verið álitin glæsileg, en hún var óvenju
glæsileg á 50 ár afmæli sínu í desember. Myndin til vinstri
var tekin í sumar en sú til hægri í desember.
FEGRUNARAÐGERÐIR
Sífellt unglegri
Danska og norska pressan
hafa vakið athygli á því að
þær myndir sem birtust af Silv-
íu Svíadrottningu í kringum af-
mælið hennar hafí verið einstak-
lega góðar. Drottningin hefði
litið mikið betur út heldur en
undanfama mánuði. Vom
dregnar fram nýjar og gamlar
myndir og þær bomar saman.
Ekki var látið þar staðar numið
heldur leitað til virts dansks
lýtalæknis, Niels-Ole Bohn. Úr-
skurðurinn var sá að Silvía hefði
gefíð sjálfri sér rúmlega hálfrar
milljónar króna afmælisgjöf
með því að láta lagfæra sitt lít-
ið af hveiju í andlitinu. Sagði
Bohn að öllum líkindum hefði
Silvýa fengið andlitslyftingu og
jafnvel látið fítusjúga hökuna,
auk þess sem hálsinn var
strekktur. Þá vom augnlokin
löguð og pokar undir augunum
fjarlægðir. Allir em hins vegar
sammála um að vel hafí tekist
til og að Silvía líti æ unglegar
út með aldrinum.
—
æstu
námskeið
18.-19. og
LETTA 22. - 23. janúar
DANSSVEIFLU f
Á TVEIM
DÖGUMi
•í
ísiensUt
jt.
•Z. r
<r> „„ ,
*>tsv
lé tt-skjáfax
á töhrvna
- /é, fcrlrlr/
Kynningarverð á hugbúnaði
og mótaldi fyrir 1 notanda
kr. 29.900,- og fyrir allt að
5 notendur kr. 59.500,-.
Verð er staðgreiðsluverð
og með Vsk.
Nú geta allir notað tölvurnar sínar
sem faxtæki, bæði til sendinga og
móttöku yfir símalínu.
Við kynnum nýjan islenskan hugbúnað
fyrir Windows: Létt-skjáfax fyrir ein-
menningstölvur (mótald innifalið).
Þú getur sparað þér kaup á sérstökú
faxtæki og sent beint af tölvunni.
Þú getur unnið á tölvuna þó Létt-
skjáfaxið sé að taka á móti sendingu.
Þú getur látið tölvuna um að senda
faxbréf á stóra sem smáa hópa.
Kynntu þér möguleikana nánar!
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665
Hallur Helgason, kvikmyndagerðarmaður, ávarpaði ömmu sína og gat þess m.a. að hún hefði ávallt
allt viljað fyrir aðra gera. í því sambandi nefndi hann að að dótturdóttir hennar hefði fengið hana með
sér á rokktónleika og þá hefði hún verið á áttræðisaldri. Við fremsta borðið eru Kristín, Þórður, syst-
ir hans Sólveig, ekkja Hannibals Valdimarssonar, Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram, en nær
Ijósmyndaranum er Þórunn, dóttir afmælishjónanna, og sonúrinn Helgi til hægri, en Þorgerður Mortens-
en, kona hans, á milli þeirra.
aSSli
Hress og kát á ári
króndemantsbrúðkaups
Kristín Svanhildur Helgadóttir og Þórður Ólafsson á 90 ára afmæli
hennar. Fyrir aftan þau er Sigurður Þ. Guðmundsson, uppeldissonur
þeirra.
Kristín Svanhildur Helgadóttir
frá Skarði í Skötufirði var 90
ára 9. janúar s.l. og við það tæki-
færi var þess minnst að hún og eig-
inmaðurinn, Þórður Ólafsson frá
Strandseljum, höfðu verið í hjóna-
bandi í 65 ár. Þórður, sem verður
92 ára 5. október nk., sagði að ekki
væri gert ráð fyrir að fólk lifði svo
lengi að geta haldið upp á 65 ára
brúðkaupsafmæli og því væri ekkert
nafn til um áfangann. Reyndar var
það lengi vel þannig, en í íslensku
aJfræðiorðabókinni, sem Bókaútgáf-
an Öm og Örlygur gaf út 1990 er
viðburðurinn nefndur króndemants-
brúðkaup.
Hjónin eru hress og kát á þessum
tímamótum og tíræðisaldurinn er
ekki á þeim að sjá. „Mér finnst ég
ekki vera gömul, en ég man ekki
eftir neinum hjónum í fjölskyldunni,
sem hafa lifað 65 ár í hjónabandi,“
sagði Kristín. „Þetta hefur verið
friðsælt og gott líf, en erfiðast var
að missa dætumar uppkomnar á
besta aidri [Guðrúnu og Cecilíu] og
eins var erfitt, þegar húsið í Odda
brann ofan af okkur."
Þórður var útvegsbóndi, en eftir
að þau fluttu suður 1947 vann hann
lengst af í Kexverksmiðjunni Frón
og síðustu starfsárin í Slippnum í
Reykjavík auk þess sem hann bar
út Morgunblaðið um tíma. Kristín
fór í Kvennaskólann og stundaði
síðan kennslu fyrir vestan, en var
heimavinnandi eftir að í hjónaband-
ið var komið. „Fyrsta bamið kom
ári eftir að við giftum okkur og síð-
an var nóg að gera heima,“ sagði
hún, en þau eignuðust fjögur böm
og ólu upp eítt að auki.
Hjónin frá Odda í Ögurvík við
Djúp em nú sest í helgan stein eft-
ir langan og strangan vinnudag, en
þau fluttu á Hrafnistu í Hafnarfírði
sl. vor. Það vom mikil viðbrigði fyr-
ir Þórð að hætta að vinna, enda var
hann ekki lengi aðgerðarlaus. „Það
er alltaf verið að borða á Hrafnistu
og því tók ég uppá því að fara í
leikfími í haust,“ sagði hann.
SJONVARPSSTJARNA
Er sælgætisgrí
Hinum þrettán ára Jeremy Jackson;
sem leikur Hobie í sjónvarpsþáttun-
um „Baywatch" fínnst sælgæti meira
spennandi heldur en öll þau aðdáendabréf, sem
honum berast. Jeremy er orðinn milljónamæringur og þar
sem móðir hans er einstæð hefur hann tekið að sér að
fyrir fjölskyldunni. Hann á eina sjö ára systur.
Mamma Jeremys segir að hann hafi ekki verið
nema tveggja ára þegar hann var farinn að syngja
og dansa. Hann hefur leikið víða frá sjö ára aldri,
til dæmis í sjónvarpsþáttunum „Santa Barbara" og
í myndinni „Shout“.
Jeremy viðurkennir í samtali við tímaritið Se og
hor að það sé skemmtilegt hversu vinsælir sjón-
varpsþættirnir séu. Hann bendir þó á að kvikmynd-
ir séu bara ímyndun. „í raunveruleikanum er ég
bara venjulegur táningur sem streða við að komast
í gegnum skólann, því ég er lesblindur. Auk þess
fínnst mér óskaplga gaman að fara á brimbretti
með félögum.mínum." Með Jeremy á annarri mynd-
inni er meðleikari hans David Hasselhoff.
*