Morgunblaðið - 16.02.1994, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994
Landbúnaðarráðherra um búvörufrumvarpið
Breytingar rúmast
imian samkomulags
Fulltrúi Alþýðuflokks segir samkomu-
lagið brotið í þremur atriðum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stórmeistari teflir fjöltefli
IVAN Sokolov stórmeistari hlaut \l'h vinning af 18 mögulegum í fjöltefli sem fram fór á vegum íslands-
bankamótsins á Akureyri í gærkvöldi. Það var Smári Olafsson verslunarmaður sem gerði jafntefli við Ivan
en hann er stigahæsti skákmaður sem teflt hefur á Akureyri til þessa og er hann í fjórtánda sæti að stigum
í heiminum í dag. Jón Árni Steingrímsson, 8 ára, var yngsti þátttakandinn í fjölteflinu við Sokolov.
HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra segir að þau atriði sem
nú er rætt um í Iandbúnaðarnefnd að breyta í búvörufrumvarpi
ríkisstjórnarinnar rúmist innan frumvarpsins og þess samkomulags
sem gert var. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og for-
maður Alþýðuflokksins, vildi í gær ekki tjá sig um þann ágreining
sem uppi er í landbúnaðarnefnd Alþingis um afgreiðslu frumvarps-
ins. Gísli S. Einarsson, fulltrúi Alþýðuflokksins í nefndinni, sagði
í samtali við Morgunblaðið að hann hefði á fundi nefndarinnar í
gær lagt fram um 5 atriði þar sem hann teldi að vikið væri frá
pólitísku samkomulagi sljórnarflokkanna sem gert var í framhaldi
af dómi Hæstaréttar í skinkumálinu. Þar á meðal væru lagatækni-
Ieg atriði sem Alþýðuflokkurinn mundi ekki standa gegn en í þrem-
ur atriðum þar sem vikið væri að 72. grein búvörulaganna væri
gengið lengra efnislega en samkomulagið gerði ráð fyrir.
í dag
„Ég sagði í framsöguræðu
minni,“ sagði landbúnaðarráðherra,
„að það væri nauðsynlegt að land-
búnaðamefnd færi nákvæmlega
yfir texta frumvarpsins. Það liggur
alveg ljóst hver sá pólitíski vilji er
sem er að baki frumvarpsins og ég
sagði að það væri óhjákvæmilegt
að lagatextinn væri ótvíræður og
skýr.“
Frumvarpið fól í sér breytingu á
52. gr. búvörulaga en nú er einnig
rætt í landbúnaðamefnd um að
gera breytingar á 72. gr. sem fjall-
ar um heimild til álagningar verð-
jöfnunargjalda. Um það sagði Hall-
dór: „Það lá alltaf fyrir að það yrði
að endurskoða ákvæði 72. greinar
og það lá alveg skýrt fyrir í ríkis-
stjórninni."
„Ég tel að það sé ófært fyrir
landbúnaðarnefnd að vinna öðru
vísi en taka tillit til þess að það er
búið að gera samkomulag um að
fimm manna nefnd þessara ráðu-
neyta gerði tillögur um innflutn-
ingsmál vegna GATT-samningsins
og hafi umþóttunartíma til ára-
móta,“ sagði Gísli. Hann sagði að
Indriði H. Þorláksson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, hefði
verið boðaður á fund nefndarinnar
á fimmtudag til að skýra afstöðu
ráðuneytisins gagnvart þeim breyt-
ingartillögum sem komið hafa fram
Vísbending
um drengina
LÖGREGLUNNI í Reykjavík
barst skömmu fyrir miðnætti
í gærkvöldi visbending um
að sést hefði til drengjanna
tveggja, sem saknað hefur
verið úr Keflavík, í leik-
tækjasal í Reykjavík.
Lögreglumenn fóru strax á
staðinn en þegar þeir komu að
var búið að loka leiktækjasaln-
um og engan mann þar að
fmna. Gerð var leit um miðbæ-
inn en hún hafði engan árang-
ur borið, þegar Morgunblaðið
leitaði síðast frétta í nótt.
Akureyri
Landsbankinn mun eignast Odda
18
Uppruni Norömanna
við frumvarp ríkisstjórnarinnar sem
geri ráð fyrir skertu forræði ráðu-
neytis yfir álagningu jöfnunar-
gjalda og tolla umfram það sem
gert hafi verið ráð fyrir í lista með
stjómarfrumvarpinu.
Gísli kvaðst telja málið á við-
kvæmu stigi og ráðherrar hlytu að
hittast og taka af skarið um það
hvort þeir ætluðu að standa að
gerðu samkomulagi eða ekki.
11.000 ára mannvistarleifar fundn-
ar 20
Kópavogur
Lóðaúthlutun í Fífuhvamms-
landi 22-23
Leiðari________________________
Hallarekstur RÚV - Björk 22
Úr verinu Myndasögur
► Aukin sala hjá Coldwater - Vinningshafar í NBA-getraun
Togskipin með 5.000 tonn af - Gæludýr vikunnar - talnaspil -
þorski í fyrra - Afrif Loran C þrautir - Iítil fótboltasaga - Ilvað
ekki’ ákveðin - Loðna um allan erum við að meina þegar við segj-
sjó - Meira utan af mjöli og lýsi um svona? - ný lesendagetraun
Rúmlega 9.500 voru atvinnulausir í janúar og hafa ekki áður verið fieiri
Fleiri atvinnulausir í janúar-
lok en að meðaltali í mánuðinum
RÚMLEGA 9.500 manns voru að staðaldri atvinnulausir í janúarmán-
uði og hefur atvinnuleysi hér á landi ekki áður mælst jafnmikið. Þetta
jafngildir því að 7,7% af áætluðum mannafia á vinnumarkaði hafi
verið atvinnulaus í mánuðinum, 1.470 fleiri en voru atvinnulausir að
meðaltali í desember.og 3.220 fleiri en voru atvinnulausir í janúarmán-
uði í fyrra. í lok janúar hafði atvinnuleysið heldur aukist frá meðal-
tali mánaðarins því þá var á skrá 9.671 og hafði aðeins fækkað um
11 miðað við lok desembermánaðar. í frétt vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins segir að búast megi við talsverðri fækkun atvinnu-
leysisdaga í febrúar, þar sem loðnuvertíð sé komin í fullan gang.
Hins vegar bendi breylingar á fjölda atvinnulausra í lok mánaðarins
til að atvinnuleysi gæti átt eftir að aukast í febrúar á höfuðborgarsvæð-
inu, á Vesturlandi og Vestíjörðum, ekki síst með tilliti til samdráttar
í þorskveiðum.
Af þeim 9.515 sem voru atvinnu-
lausir að meðaltali í janúar voru
4.507 karlar eða 6,2% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði og 5.008
konur sem jafngildir 9,7% atvinnu-
leysi meðal kvenna. í frétt vinnu-
málaskrifstofu segir að meginástæð-
ur þessa atvinnuleysis í janúar séu
sveiflur í sjávarútvegi meðal annars
vegna sjómannaverkfallsins fyrri-
hluta mánaðarins, en einnig vegi
þungt aukið atvinnuleysi í verslun
og meðal iðnaðarmanna. Síðustu
tólf mánuði hafa 5.870 að meðaltali
verið atvinnulausir eða um 4,5% af
mannafla á vinnumarkaði. Á árinu
1993 varð atvinnuleysi mest í des-
ember 6,3% en fór annars hæst á
árinu í marsmánuði í 5,4%. Atvinnu-
leysi varð minnst í júlí og ágúst 3,2%.
10,2% atvinnuleysi
á landsbyggðinni
Atvinnuleysi eykst hlutfallslega
mest á Vesturlandi, Norðurlandi
vestra, Vestfjörðum og Austurlandi,
en eykst minnst á Suðurlandi, höfuð-
borgarsvæðinu og Suðurnesjum, en
Suðumés er eini staðurinn á landinu
þar sem atvinnuástand er betra í
janúar í ár en í sama mánuði í fyrra.
Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu
var að meðaltali 5,8% í janúar, 6,7%
hjá konum og 5,2% hjá körlum. Á
landsbyggðinni í heild er atvinnu-
leysi verulega meira og er nú 58%
meira en í janúar í fyrra. Það var
að meðaltali 10,2%, hjá körlum 7,6%
en 14,4% hjá konum. Atvinnuleysi
er alls staðar verulega meira meðal
kvenna en karla. Á Vesturlandi var
atvinnuleysið 9,3%, 13,9% hjá kon-
um og 6,3% körlum, á Vestfjörðum
3,1%, 3,7% hjá konum og 2,8% hjá
körlum, Norðurlandi vestra 13,2%
að meðaltali, 19,1% hjá konum og
9,3% hjá körlum, á Norðurlandi
eystra 12,8% að meðaltali, hjá kon-
um 16,8% og hjá körlum 10,1%, á
Austurlandi 14,6%, hjákonum21,7%
og hjá körlum 10,1%, á Suðurlandi
8,5%, hjá konum 11,3% og hjá körl-
um 6,7% og á Suðurnesjum 8,5%,
hjá konum 13,1% og 5,7% hjá körl-
um.
Sjá kort á bls. 17
Stjórnarliðar hvelja
til aukins þorskkvóta
Ekki stórvægilegar deilur segir Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
NOKKRIR stjórnarþingmenn hvöttu til þess á Alþingi í gærkvöldi að
skoðaðir yrðu möguleikar þess að auka þorskkvóta á yfirstandandi
fiskveiðiári þegar stjórnarfrumvarp um stjórn fiskveiða var til fyrstu
umræðu. Þá kom fram gagnrýni stjórnarþingmanna á einstaka þætti
frumvarpsins. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hafnaði hug-
myndum um aukningu aflaheimilda í fyrirspurnartíma á Alþingi í fyrra-
dag. Þegar hann mælti fyrir frumvarpinu í gær sagði hann dcilur um
það ekki stórvægilegar. Umræður um frumvarpið og síðar frumvarp
um Þróunarsjóð sjávarútvegsins stóðu fram á nótt.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum,
sagðist telja óhjákvæmilegt að auka
aflaheimildir í þorski og væru til
þess ríkar ástæður, bæði líffræðileg-
ar og efnahagslegar. Afiabrögð væru
hvarvetna góð og sagðist hann trúa
því að togararallið í næsta mánuði
sýndi að þorskstofninn væri í örum
vexti. Benti hann á vanda þeirra
staða sem háðir væru þorskveiðum,
meðal annars á Vestfjörðum, og ekki
mætti til þess koma að þar yrði verk-
efnaleysi yfir hábjargræðistímanti.
Sturla Böðvarsson og Guðjón Guð-
mundsson, þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, Vesturlandi, vildu ekki
útiloka það að þorksveiðiheimildir
yrðu auknar, Guðjón sagði að það
gæti komið til greina að loknu togar-
arallinu.
Gísli S. Einarsson og Gunnlaugur
Stefánsson, þingmenn Alþýðuflokks-
ins á Vesturlandi og Áusturlandi,
hvöttu til þess að skoða möguleikana
á auknum þorskkvóta og lagði Gísli
til, að auka kvóta um 20 þúsund
tonn og úthluta helmingnum til
þeirra byggða sem hefðu orðið verst
úti við skerðingu á kvótanum og hinn
helmingurinn yrði settur á kvóta-
kaupamarkað til að styrkja tillögur
nefndar þriggja ráðuneytisstjóra.
Allir þingmennimir lýstu efasemd-
um með ákveðin atriði frumvarpsins
um stjórnun fiskveiða, sérstaklega
varðandi veiðar smábáta. Alþýðu-
flokksmennimir lýstu efasemdum
með kvótakerfið í heild. Sturla og
Guðjón gagnrýndu að gert væri ráð
fyrir óheftu framsali kvóta milli
skipa. Guðjón sagði að kvótinn hefði
í æ ríkara mæli verið notaður til við-
skipta. Sagði hann ósanngjamt að
sameign þjóðarinnar gæti verið til
sölu og vakti athygli á afstöðu sjó-
mannasamtakanna. Tómas Ingi
Olrich, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra,
lýsti öndverðri skoðun. Vakti hann
athygli á að frjálst framsal veiði-
heimilda milli skipa væri grundvöllur
fjárfestinga í sjávarútvegi, þróunar
og markaðstengingar og hann væri
orðinn grundvöllur stórs hluta ís-
lenska hlutafjármarkaðarins. Það
væri ábyrgðarleysi að skerða þetta
frelsi.
Sjá frásögn af umræðunum bls.
38-39: