Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Hallarekstur RÚV Ríkisútvarpið var rekið með rúmlega 70 milljóna króna halla á síðasta ári skv. upplýsing- um, sem fram komu í Morgunblað- inu í gær og hafðar voru eftir Herði Vilhjálmssyni, Fjármála- stjóra stofnunarinnar. Þar kom v einnig fram, að þetta rekstrartap * væri í meginatriðum í samræmi við rekstraráætlanir og þann halla, -sem samþykktur hefði verið á fjár- lögum og sem hefði numið afskrift- um. Samkeppnih á fjölmiðlamark- aðnum er mjög hörð, ekki sízt á samdráttartímum, þegar áuglýs- ingamarkaðurinn dregst saman. Sú var tíðin, að Ríkisútvarpið var eini ljósvakamiðillinn en svo er ekki lengur. Nú er rekin hér önnur sjónvarpsstöð og nokkrar útvarps- stöðvar. Þar að auki er RÚV að sjálfsögðu í samkeppni við þau dagblöð, sem hér eru gefin út. v Hallarekstur á RÚV í skjóli þess, ‘að ríkið á og rekur stofnunina, slcápar öðrum fjölmiðlum óviðun- andi samkeppnisstöðu. Þessi halla- rekstur þýðir, að stofnunin hefur t.d. í rekstri tveggja fréttastofa og dagskrárgerð eytt meiri peningum en hún hefur haft-ráð á eða lagt út í önnur útgjöld, sem peningar hafa ekki verið til fyrir. Á sama tíma og fjölmiðlar í einkaeign verða að haga rekstri sínum á þann veg, að endar nái saman, er bersýni- legt, að stjómendur RÚV treysta á það, að þeir geti rekið stofnunina með tapi vegna þess, hver eigand- inn er. Um nokkurt skeið hafa verið uppi kröfur um að jafna rekstrar- skilyrði ríkisfjölmiðils og íjöimiðla í einkaeign. Fyrsta skrefið til þess er að sjálfsögðu að búa svo um hnútana, að RÚV sé ekki rekið með tapi. Það á að vera markmið í rekstri stofnunarinnar á þessu ári. í framhaldi af því er eðlilegt að setja stofnuninni þröngar skorð- ur í rekstri. Það er augljóslega erfitt fyrir stjórnendur ríkisfyrirtækja að temja sér þann hugsunarhátt, sem mótar rekstur vel rekinna einka- fyrirtækja. Og sú var tíðin, að menn. gerðu ekki miklar athuga- semdir við' taprekstur hjá ríkis- stofnun eins og RÚV. En tímarnir eru breyttir og viðhorf manna eru gjörbreytt frá því, sem áður var. Þess vegna verður krafan æ há- værari um, að rekstur RÚV verði lagaður að þeim veraleika, sem við blasir á fjölmiðlamarkaðnum, og að stofnunin fái ekki að leika laus- um hala eftir eigin geðþótta. Ekki skal dregið í efa, að margt er vel gert í rekstri Ríkisútvarpsins og vafalaust hefur mörgu verið breytt til hins betra á undanförnum áram. En það getur aldrei verið „ásættanleg" niðurstaða eins og fjármálastjóri RÚV komst að orði hér í blaðinu í gær, að stofnunin sé rekin með 70 milljóna króna halla. Sá hallarekstur vekur upp ákveðnar kröfur um að þær breyt- ingar verði gerðar á rekstri RÚV, sem tryggi eðlilega afkomu stofn- unarínnar. Björk Björk Guðmundsdóttir hefur' skotizt upp á stjörnuhimin- inn í veröld dægurtónlistar á undanförnum mánuðum og inn- siglaði þann árangur í fyrrakvöld, þegar hún hlaut tvenn helztu verð- laun á Brit-hátíðinni svonefndu í Bretlandi. Það hefur ekki farið fram hjá íslendingum, að þessi unga kona hefur náð ótrúlegum árangri sem söngkona á erJendri grund. Björk Guðmundsdóttir hefur náð þessum árangri nánast ein síns liðs með sérstæðum persónu- leika og tónlistarflutningi, sem sker sig úr. Að baki henni hafa staðið fjölskylda, vinir og sam- starfsmenn en ekki aðrir, hvorki klikur né hagsmunahópar, enda dygði slíkt ekki í jafn fjöimennu umhverfi og brezki markaðurinn er. Þessi árangur Bjarkar er lands- mönnum hennar fagnaðarefni. Brezka blaðið The Sunday Tim- es segir nú um helgina, eða áður en verðlaununum var úthlutað, að í raun og veru séu engin fordæmi fyrir þeim árangri sem Björk hefur náð. Hún hafi ekki eytt miklum peningum í auglýsingar og kynn- ingarherferð. En tónlist hennar sé meðal þess frumlegasta, sem gert hafi verið á þessu sviði á þessum áratug og sýni m.a. að rangt sé þegar því er haldið fram að popp- tónlist sé í dauðateygjunum. Björk heillar áhorfendur með framkomu sinni og einlægni henn- ar er við bragðið. Þegar hún fékk verðlaunin sagði hún að þau myndu engu breyta um hana sem listamann, en aftur á móti hafi þau mikilvægt viðskiptagildi. Þeir sem liggja á peningum viti hvar þeir eigi að fjárfesta. Slík verðlaun geta verið mikil- væg fyrir listamenn af fjárhags- ástæðum. En það er rétt hjá Björk að þau breyta engu um listræna hæfileika eða sköpunarþörf, sem hún nefnir í samtali við Morgun- blaðið í dag, þótt þau séu að sjálf- sögðu góð auglýsing á hörðum samkeppnismarkaði. Listaverð- laun eru annars eðlis en verðlaun í íþróttum eða skák þar sem aug- ljóst er hver ber sigur úr býtum. Björk gerir sér augsýnilega grein fyrir þessum mikla mun og það á eftir að verða henni drjúgt vega- nesti í þeirri samkeppni sem fyrir höndum er. Björk Guðmundsdóttir er góður fulltrúi lands og þjóðar á erlendri grund. Hún er meiri landkynning fyrir ísland en flest það sem gert hefur verið á því sviði. Morgun- blaðið sendir hinni ungu tónlistar- konu hamingjuóskir með þann glæsilega árangur, sem hún hefur náð á listabrautinni. Flutningsjöfnunargjald á olíu og bensín Samkeppnisyfirvöld gera ekki breytingar FORSTJÓRI Samkeppnisstofnunar segir að það sé ekki á valdi sam- keppnisyfirvalda að breyta ákvæðum laga um flutningsjöfnun olíu og bensíns, sem Skeljungur hf. telur samkeppnishamlandi og hefur vakið athygli samkeppnisráðs á. Hins vegar sé samkeppnisráði heimilt að segja álit sitt á slíkum reglum ef það telur að þær stríði gegn markmið- um samkeppnislaganna og torveldi frjálsa samkeppni. Hann segir að samkeppnishamlandi ákvæði sé að finna I fjölda sérlaga og reglna og muni Samkeppnisstofnun og samkeppnisráð fjalla um þau eftir því sem tækifæri gefist. Erindi Skeljungs hf. muni verða lagt fyrir samkeppnis- ráð á næstunni. í erindi Skeljungs hf. er setja for- stjóra Samkeppnistofnunar í stjórn flutningsjöfnunarsjóðs gagnrýnd. Georg Olafsson, forstjóri Samkeppn- isstofnunar, segir að Verðlagsstofn- un hafi lengi annast umsýslu með flutningsjöfnunarsjóðnum og verð- lagsstjóri verið formaður sjóðsins samkvæmt lögum um hann. Við gild- istöku samkeppnislaganna hafi Sam- keppnisstofnun tekið við verkefnum Verðlagsstofnunar og heiti forstöðu- mannsins breyst úr verðlagsstjóra í forstjóra Samkeppnisstofnunar. Hann segir að í samkeppnislögunum komi fram að hann éigi að taka við þessari stöðu. Telur hann það skyldu sína að sitja áfram sem formaður flutningsjöfnunarsjóðs að óbreyttum lögum sjóðsins. Séu einhveijir form- gallar taldir á því verði að fjalla sér- staklega um það. Aðskilin mál Varðandi það hvort formennska hans í flutningsjöfnunarsjóði stang- aðist á við starf hans sem forstjóra Samkeppnisstofnunar í ljósi breyttr- ar áherslu í starfi stofnunarinnar segist Georg líta svo á að það þurfi ekki að vera. Hann vinni að málefn- um flutningsjöfnunarsjóðs sam- kvæmt sérstökum lögum og skoðun hans á samkeppnismálum þurfi ekki að koma því hlutverki við. Þetta séu tvö aðskilin mál og bendir á að það sé ekki á valdi samkeppnisyfirvalda að breyta lögum. Fleiri hús sæki um fast vínveitingaleyfi j f* gvw 00 Arni Sæberg Samstarf um flugsamgongur SAMKOMULAG var undirritað í gær milli flugmálastjóra íslands, Þorgeirs Pálssonar, og Michaels P. McDonn- ell, flugmálastjóra írlands, um flugsamgöngur milli landanna tveggja. Meginefni þess er á þá lund að ríkin tvö eru reiðubúin til þess að veita hvort öðru þau flugréttindi og taka á sig skuldbindingar sem felast í viðbótar- samningi um flugmál (þriðja pakka Efnahagsbandalagsins) þar til hann tekur gildi. Aðilar náðu jafnframt samkomulagi um að ganga til viðræðna um áætlunarflugsréttindi til landa sem eru utan Evrópska efnahags- svæðisins og ekki er flogið til af öðrum hvorum aðilanum sæki flugfélag eða -félög tilnefnd af þeim um slík réttindi auk ákvæða varðandi flugöryggismál og flugslysarannsóknir. Michael P. McDonnell sagði að með því að framfylgja skuldbindingum í fyrrgreindum samningi áður en hann tekur gildi væri verið að búa til grundvöll að samstarfi mijli flugfélaga smærri ríkja á útjaðri Evrópusamfélagsins. Sterk menningarleg tengsl væra milli íslands og írlands sem ekki endilega fælust í verslunarferðum og þótt varla væri grundvöllur fyrir reglu- bundu flugi frá írlandi væri meginmarkmiðið að kanna hvort ekki væri hagkvæmt að koma á einhvers konar samstarfi um flugsamgöngur. Halldór Blöndal sagði við þetta tækifæri að áhugi hefði verið fyrir loftferðasamn- ingi við eyþjóðir við Atlantshaf og þetta samkomulag gæti reynst ísbrjótur fyrir þess konar tengingu milli þjóðanna. Frá vinstri: Þorgeir Pálsson, Halldór Blöndal og Michael P. McDonneli innsigla samkomulagið. NEFND sem skipuð var á vegum dómsmálaráðuneytisins á siðasta ári hefur gert tillögu um breytingu á verkreglum matsnefndar vínveitinga- húsa. Yrðu breytingarnar í þá veru að fleiri hús sem sinna skemmtana- haldi gætu fengið fast vínveitingaleyfi. Að sögn Ara Edwald aðstoðar- manns dómsmálaráðherra er erfiðara að fylgjast með stöðum sem starfa á grundvelli tækifærisleyfa hvað varðar skil á opinberum gjöldum og einnig telji félagsmenn Samtaka veitinga- og gistihúsaeigenda sig búa við skerta samkeppnisstöðu gagnvart þessum húsum. Ari Edwald segir að niðurstaða nefndarinnar hafi verið á þá leið að heppilegt væri að gefa stöðum sem hingað til hafa eingöngu starfað á grundvelli tækifærisvínveitingaleyfa kost á því að sækja um fast leyfi. Helgi Jóhannesson héraðsdómslög- maðúr sem jafnfram var formaður nefndarinnar segir að gerð hafi verið tillaga um breytingu á verkreglum matsnefndar vínveitingahúsa í þá veru að reglur um hvaða skilyrði hús þurfi að uppfylla til að teljast fyrsta fiokks verði rýmkaðar. Með því móti geti fleiri hús sótt um vínveitinga- leyfi til frambúðar. Einkum er um að ræða reglur varðandi loftræstingu og hreinlætisaðbúnað í eldhúsi. Segir Helgi að erfiðara sé að fylgjast með starfsemi staða sem ekki hafi fast vínveitingaleyfi og fylgja eftir greiðslu gjalda til hins opinbera vegna slíkrar starfsemi. Segir hann einnig að félagar í Sambandi veitinga- og gistihúseigenda telji samkeppnisstöðu sína skerta gagnvart þeim sem leigja út húsnæði fyrir árshátíðir og einka- samkvæmi enda borgi þeir ekki full gjöld vegna starfseminnar og geti því leigt út fyrir lægra verð. Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar Nýtt lagasafnskerfi verður tekið í notkun NÝTT lagasafnskerfi verður tekið í notkun hjá Skýrsluvélum ríkis- ins og Reykjavíkurborgar, Skýrr, næstkomandi mánudag, og að sögn Lilju Ólafsdóttur aðstoðarmanns forstjóra Skýrr, eru þegar skráðir tæplega 600 notendur að lagasafninu, en öllum sem hug hafa á er mögulegt að tengjast því. Skýrr hefur verið með eldra lagasafnskerfi frá árinu 1984, en frá síðastliðnu hausti hefur verið unnið að því að taka í notkun nýtt textaleitarkerfi. Jafnframt hafa öll lög til dagsins í dag verið sett inn í kerfið, en í eldra lagasafn- skerfinu voru aðeins lög til ársins 1990. Lóðum í Fífuhvamms- landi í Kópavogi út- hlutað um mánaðamót KÓPAVOGSBÆR er 5-7 árum á undan áætlun í lóðaúthlutun miðað við gildandi aðalskipulag bæjarins, en nú liggur fyrir til- laga um breytingar og endurskoðun á skipulaginu fyrir árin 1992- 2012. Birgir Sigurðsson, skipulagsstjóri bæjarins, segir þær lóðir sem búist var við að dyggðu næstu árin eru uppurnar og segir Birgir að um mánaðarmót sé stefnt að því að úthluta lóðum í Fífuhvammslandi, austan Reykjanesbrautar. Aðalskipulag Kópa- vogs er endurskoðað á fjögurra ára fresti til þess að það liggi fyrir í upphafi hvers kjörtimabils endurskoðað. Á árunum 1991-3 vora helstu segir Birgir að skipulagsyfirvöld ENDURSKOÐAÐ aðalskipulag Kópavogs. Lóðum í Fífuhvammslandi verður úthlutað um mánaðamót. byggingarsvæði bæjarins í Digra- neshlíðum, Kópavogsdal og á Nón- hæð og segir Birgir að búið sé að úthluta öllum lóðum á því svæði. Það tekur um 2-3 ár fyrir bygging- arframkvæmdir að komast á það stig að hægt sé að flytja þangað og því hefur fólksfjölgun enn ekki orðið mikil á svæðinu, segir hann. Um næstu mánaðarmót er stefnt að því að hefja úthlutun lóða í vest- ari hluta Fífuhvammslands en þar er gert ráð fyrir 3.000 manna byggð sem byggist upp fram til ársins 2002. Syðri hluti þess svæðis hefur þegar verið deiliskipulagður í versl- unar-, þjónustu- og íbúðasvæði og bæjarins hafi kannað eftirspurnina eftir lóðum þar og viðbrögðin lofí góðu með framhaldið. „Það bendir allt til þess _að lóðimar renni út,“ segir hann. Áætlað er að bygging- arframkvæmdir geti hafíst i lok árs- ins. Allt í allt hefur Kópavogsbær úthlutað jafnmörgum lóðum á und- anförnum tveimur árum og önnur sveitarfélög á höfðuborgarsvæðinu samanlagt að sögn Birgis. Ásókn í atvinnuhúsnæði hefur dregist saman Þann 1. desember 1992 voru íbú- ar bæjarins 16.840 og gert er ráð fyrir að fram til ársins 1998 fjölgi þeim um 7-800 á ári að meðaltali og verði íbúafjöldinn kominn í 21-22 þúsund árið 1998. í lok skipulags- tímabilsins er gert ráð fyrir að íbú- ar bæjarins verði orðnir 27 þúsund. Miðar aðalskiðulagið við að lóðir vestan Vantsendalands fullnægi lóðaþörf bæjarins fram til 2012. Ásókn í atvinnuhúsnæði hefur dregist saman bæði í Kópavogi og á höfuðborgarsvæðinu í heild og er ekki gert ráð fyrir í skipulaginu að iu*:(jfi (.jý .nbíiii’ioj iurivÍMi i markmið um atvinnuuppbyggingu í Kópavogi náist í bráð. Markmið bæjarins er að atvinnumöguleikar séu í samræmi við mannafla. Birgir segir að í Fífuhvammslandinu sé boðið upp á lóðir fyrir lági'eist at- vinnuhúsnæði úr léttum byggingar- efnum. Kynningarfundur um tillöguna um aðalskipulagið verður haldinn í Félagsheimilinu að Fannborg 2, á fimmtudagskvöld kl. 20.30. Að sögn Lilju Ólafsdóttur var það að frumkvæði Sigurðar Líndal laga- prófessors sem ráðist var í að tölvu- taka lagasafnið sem gefið var út á bók árið 1983, og 1984 hófst sam- starf Skýrr og stjórnar lagasafnsút- gáfu að koma safninu í textaleitar-i kerfí. Árið 1986 var komið í gagnið viðunandi textaleitarkerfi en jafn- framt var unnið að því að uppfæra texta safnsins þannig að hann væri sem nýjastur hveiju sinni. Það tókst árið 1989, en síðan var nýtt laga- safn gefið út á bók árið 1990. Lilja sagði að dómsmálaráðuneytið hefði þá ákveðið að hafa annan hátt á uppfærslu lagatextans, og þá hefði þetta verkefni lagst af, og fram til þessa hefði því ekki verið til upp- færður texti lagasafns lengra heldur en til ársins 1990. „í haust hófumst við hjá Skýrr handa við að gera nýtt textaleitar- kerfi sem er miklu betra og þjálla í allri umgengni heldur en það eldra var, en í því er miklu auðveldara að leita og hægt er að flytja úr því texta. Jafnframt var hafist handa við að setja inn öll lög úr Stjórnartíðindum frá 1990 til dagsins í dag. Við erum því núna með splunkunýtt leitarkerfi og allan texta íslenskra laga til dags- ins í dag,“ sagði Lilja. Meðalkostnaður 3-4.000 krónur Notendur lagasafnsins verða til að byija með tæplega 600 talsins, og er þar um að ræða stofnanir, fyrirtæki, lögmannsstofur og ein- staklinga, en öllum sem hafa mótald á tölvum sínum eða eru fastlínu- tengdir Skýrr er mögulegt að gerast notendur lagasafnsins. Að sögn Ástu er greitt fyrir mælda notkun safns- ins, og sagði hún meðalnotkunina sem verið hefði í gegnum tíðina vera 3.000 til 4.000 krónur. Laganemum við Háskóla íslands mun hins vegar bjóðast ókeypis aðgangur að laga- safninu um skjáver Háskóla íslands. Nýgengi HlV-smits 11,7 á hveija 100 þús. íbúa 83 EINSTAKLINGAR höfðu sam- tals greinst með HlV-smit fram að 31. desember sl. Á árinu 1993 greindust 3 nýir einstaklingar með HlV-smit, sex greindust með al- næmi og átta létust vegna sjúk- dómsins. 31 einstaklingur hefur greinst með alnæmi, lokastig sjúk- dómsins, á íslandi og eru 20 þeirra látnir. Samanlagt nýgengi sjúk- dómsins er því 11,7 á hverja 100 þúsund íbúa. Þetta kemur fram í samantekt Landlæknisembættisins um sjúkdóminn. Kynjahlutfall HlV-smitaðra og al- næmissjúklinga er u.þ.b. ein kona fyrir hveija sex karlmenn. Af 71 karl- manni eru 55 hommar/tvíkynhneigðir sem smitast hafa við kynmök, sjö fíkniefnaneytendur sem hafa spraut- að sig í æð, tveir sem teljast til beggja fyrrgreindra hópa, fimm gagnkyn- hneigðir sem smitast hafa við kynm- ök, enginn blóðþegi, enginn dreyra- sjúklingur og tveir hafa smitast eftir óþekktum leiðum. Af 12 konum eru tvær fíkniefnaneytendur, sex gagn- kynhneigðar sem smitast hafa við kynmök og fjórar blóðþegar. Af 71 karlmanni sem greinst hefur með HlV-smit er einn á aldrinum 10-19 ára, 32 20-29 ára, 23 30-39 ára, 13 40—49 ára og tveir 50—59 ára. Af 12 konum sem greinst hafa með HlV-smit eru sex á aldrinum 20—29 ára, ein 40—49 ára, tvær 50—59 ára og þijár 60 ára eða eldri. Tuttugu látnir Einn karlmaður á aldrinum 10—19 ára hefur fengið alnæmi og er hann látinn, fimm karlmenn og ein kona á aldrinum 20—29 ára hafa fengið al- næmi. Þar af eru fjórir látnir. Tíu karlmenn 30—39 ára hafa fengið al- næmi, þar af eru átta látnir. Níu karlmenn 40—49 ára hafa fengið al- næmi, þar af eru fímm látnir. Tveir karlar og tvær konur 50—59 ára hafa fengið alnæmi, þar af er einn látinn. Ein kona sextug eða eldri hef- ur fengið alnæmi og er hún látin. Tvö með 6 kg af hassi TOLLVERÐIR á Keflavíkurflug- velli fundu á sunnudag 4kg af hassi í tösku konu um þrítugt sem var að koma frá Amsterdam. Konan hefur aldrei áður komið við sögu fíkniefnamála og hefur við yfir- heyrslur sagt, að hún hafi tekið að sér að flytja efniðtil landsins gegn 250 þúsund króna greiðslu. Á sunnudag stöðvuðu tollverðir annan farþega með 2 kg af hassi. Konan hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 28. febrúar og hef- ur fíkniefnalögreglan í Reykjavík tek- ið við rannsókn málsins en aðrir hafa ekki verið handteknir vegna þess. Einnig situr í gæsluvarðhaldi til 23. febrúar maður um fímmtugt sem handtekinn var við komu til landsins frá Hamborg á sunnudag með 2 kíló af hassi. Afurðahæstu bú á landinu 1993 Bú Kg mjólk Gunnar Sigurðsson, Stóru-Ökrum, Akrahreppi 6.340 Félagsbúið, Baldursheimi, Mývatnssveit 6.274 Viðar Þorsteinsson, Brakanda, Skriðuhreppi 6.232 Kristján B. Pétursson, Ytri-Reistará, Arnarneshr. 6.092 Sverrir Magnússon, Efra-Ási, Hólahreppi 6.061 Guðlaugur Jónsson, Voðmúlastöðum, Á.-Landeyjum 5.989 Félagsbúið Holtsseli, Eyjafjarðarsveit 5.965 Óskar Kristinsson, Dísukoti, Djúpárhreppi 5.879 Sigurgeir Pálsson, Sigtúnum, Eyjaíjarðarsveit 5.856 Reynir Gunnarsson, Leirulækjarseli, Álftaneshreppi 5.830 Nythæstu kýrnar 1993 Nafn Bær Mjólkur kg Rauðbrá 141 Efra-Ási, Hjaltadal 9.483 Volga 102 Leirulækjarseli, Álftaneshr. 9.362 Rún 176 Brakanda, Skriðuhreppi 9.035 Rauðka 91 Gautlöndum, Mývatnssveit 8.987 Grana 430 Holtsseli, Eyjafjarðarsveit 8.782 Frekja 285 Hríshóli, Eyjafjarðarsveit 8.691 Frekja 406 Holtsseli, Eyjafjarðarsveit 8.610 Grýla 32 Steinsstöðum, Öxnadal 8.582 Afurðahæstu kúabúin á landinu á síðasta ári Ungur skagfirskur bóndi skýst á toppinn UNGUR skagfirskur bóndi, Gunnar Sigurðsson á Stóru-Ökrum, varð efstur á listanum yfir afurðahæstu kúabúin á síðasta ári samkvæmt skýrsluhaldi nautgriparæktarfélaganna. Kýr hans mjólkuðu að meðal- tali 6.340 kg. Afurðahæsta kýrin var Rauðbrá 141 í Efra-Ási í Hjalta- dal sem mjólkaði 9.483 kg. í yfirliti Jóns Viðars Jónmundsson- ar nautgriparæktarráðunauts Búnað- arfélags íslands um nautgriparækt- ina á siðasta ári kemur fram að þátt- taka bænda í skýrsluhaldi hefur held- ur aukist og nú eru 886 kúabú með 26.609 kýr með í því. Meðalafurðir eftir svokallaða árskú voru 4.168 kg mjólkur sem er 60 kg meira en í fyrra en svipað og árið 1991. Afurðir juk- ust mjög í Árnessýslu, eða um 129 kg milli ára, og einnig í Dalasýslu þar sem nú eru mestu meðalafurðirn- ar í einu héraði, eða 4.311 kg mjólk- ur eftir árskú. Eyfirðingar fylgja fast á eftir Dalamönnum með 4.309 kg eftir hvetja kú en það er 20 kg minni mjólk en á síðasta ári. Er það rakið til óhagfelldrar verðráttu á þessu svæði á síðasta sumri sem leiddi til lakari heygæða en áður. Fimm bú voru með yfir 6.000 kg afurðir eftir hveija kú og er það svip- að og árið áður. Hins vegar hefur breikkað á toppnum því nú eru allm- iklu fleiri bú með yfir 5.000 kg en áður. Jón Viðar vekur einnig athygli á því að allmörg bú eru með afurðir sem ár eftir ár liggja undir 3.000 kg. Telur hann að slíkar tölur bendi til að alvarlegar brotalamir séu í ein- hverjum þáttum rekstrarins og auð- velt væri fyrir þessa bændur að ná umtalsverðum árangri á skömmum tíma með skipulegum umbótum í samvinnu við leiðbeiningaþjónustuna. Rauðbrá nythæst Mestu meðalafurðirnar voru á búi Gunnars Sigurðssonar á Stóru-Ökrum í Skagafirði. Hann var með 16,8 ár- skýr sem að meðaltali skila 6.340 kg mjólkur með kjarnfóðurnotkun sem að meðaltali nemur 870 kg fyrir hverja kú. í yfirliti Jóns Viðars kemur fram að Gunnar er ungur og mjög áhuga-- samur bóndi sem ætíð hefur haft góð- ar afurðir. Hann hefur sótt jafnt og þétt upp afreksmannalistann með hveiju árinu og nær nú þeim árangri að vera með efsta búið. í öðru og þriðja sæti eru bú sem lengi hafa ver- ið í fremstu röð, Félagsbúið í Baldurs- heimi í Mývatnssveit og Viðar Þor- steinsson á Brakanda. Viðar nær þess- um árangri með mjög lítilli kjamfóð- urgjöf, eða 581 kg að meðaltali. Þrátt fyrir auknar afurðir voru engin íslandsmet sett í afurðum hjá einstökum gripum en toppur afurða- hárra gripa breikkar stöðugt. Afurða- hæsta kýrin varð Rauðbrá 141 í Efra- Ási í Hjaltadal en hún mjólkar 9.483 kg. Þetta er fullorðin kýr, dóttir Drangs 78012. Annað sætið skipar Volga 102 í Leirulækjarseli í Mýra- sýslu, dóttir Dreka 81010. Jón Viðar segir að þessi unga kýr hafi skilað einliverjum allra mestu afurðum sem dæmi eru um hjá kú á fyrsta mjólkur- skeiði hér á landi og fylgi hún þeim afurðum eftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.