Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994
7
Stofnun Árna Magnússonar og Listasafn Islands
••
Oryggisráðstafanir yfir-
famar eftir stuld á Opinu
TALSMENN Stofnunar Árna Magnússonar og Listasafns íslands
segjast þess fulívissir að öryggisráðstafanir í þessum stofnunum séu
eins og best verður á kosið, en greint var frá því í Morgunblaðinu
í gær að þjófarnir sem stálu Ópi Edvards Munchs úr Ríkislistasafn-
inu í Ósló á laugardagsmorgun þökkuðu fyrir lélega öryggisgæslu
á korti sem þeir skildu eftir. Stuldurinn í Ösló varð báðum þessum
stofnunum tilefni til að yfirfara öryggisþátt starfsemi sinnar.
Dr. Jónas Kristjánsson, forstöðu-
maður Stofnunar Árna Magnússon-
ar á íslandi, segir að öryggismál
hennar séu í stærstu tilliti í full-
komnu lagi. Þannig sé sólarhrings-
varsla í húsinu og hafí varðmenn
samband við lögreglu með reglulega
miilibili, og komi lögreglumenn
umsvifalaust á vettvang ef mis-
brestur verði á því. Helstu handrit
séu jafnframt geymd í rammgerðum
og eldtraustum hirslum sem ekki
er hægt að komast inn í án sér-
stakra lykla sem eru jafnan aðskild-
ir. Ennfemur séu reyk- og hitaskynj-
arar staðsettir um allt húsið. Tilhög-
un örfárra þátta hafi e.t.v. ekki
verið sem skyldi en af fyrrnefndu
tilefni og einnig vegna brunans sem
nýlega varð í Þjóðminjasafninu hafí
öryggismál verið yfirfarin og hugs-
anlegum smugum lokað. Jónas
kveðst álíta vörslu handritanna til
fyrirmyndar en hann teiji þó að
stjórnvöld mættu leggja meiri rækt
við öryggisþátt þeirra stofnana sem
geyma menningarverðmæti hér-
lendis, því aldrei sé of varlega farið
vegna þeirra ómetanlegu muna sem
á slíkum stofnunum er að finna.
Fullkomið öryggiskerfi
Stefán Halldórsson, umsjónar-
maður i Listasafni íslands, segir vel
að öryggismálum staðið í safninu.
Hann hafi rætt við umsjónarmenn
öryggiskerfisins í gær vegna ránsins
á Ópinu og þeir fullvissað hann um
að útilokað sé að atburðurinn í Ósló
væri ieikinn eftir hér. í húsinu sé
gæsla í öllum sölum á meðan opið
er og þess fyrir utan séu t.d. stöð-
ugt í gangi fullkomið öryggiskerfi
sem byggist á viðurkenndum stöðl-
um og farið sé yfir reglulega, s.s.
hreyfiskynjarar sem greint gætu ef
blað dytti af vegg. I safninu séu
hins vegar ekki myndavélar sem
eigi ekki að koma að sök. Stefán
segir að aldrei hafi verið ástæða til
Úr Listasafni íslands.
að öryggiskerfið færi í gang, utan
örfárra tilvika vegna rafmagnstruf-
lana. „Miðað við það sem menn sem
hafa þetta að ævistarfi segja mér,
tel ég að öryggismálin séu í mjög
traustum höndum," segir Stefán.
Ráðið í tvær
stöður á
vinnumála-
skrifstofu
GUNNAR E. Sigurðsson hag-
fræðingur hefur verið ráðinn
deildarstjóri vinnumálaskrif-
stofu félagsmálaráðuneytisins
frá 14. febrúar að telja. Þá hefur
Frank Friðrik Friðriksson hag-
fræðingur verið ráðinn í stöðu
deildarsérfræðings skrifstofunn-
ar frá sama tíma. Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
skipaði í stöðurnar eftir að Jó-
hanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra vék lögum sam-
kvæmt sæti vegna vanhæfi, en
Gunnar E. Sigurðsson er bróðir
hennar.
París er borgin sem allir falla fyrir. í Parísarborg er að finna perlur lista-
57 umsækjendur voru um þessar
tvær stöður á vinnumálaskrifstof-
unni. Þær voru auglýstar lausar til
umsóknar þann 22. desember. Þann
21. desember birtist auglýsing frá
forsætisráðherra í Lögbirtingablað-
inu, þar sem utanríkisráðherra er
falið að fara með málið vegna van-
hæfi félagsmálaráðherra, með vísan
til stjórnsýslulaga. Þar sem emb-
ættismenn félagsmálaráðuneytisins
starfa í umboði ráðherra voru þeir
einnig taldir vanhæfir í þessu máli.
Utanríkisráðherra fól Benedikt
Jónssyni, skrifstofustjóra almennr-
ar skrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins, sem fer með starfsmannahald,
að vinna úr málinu og gera hlut-
læga tillögu til ráðherra um ráðn-
ingu á grundvelli hæfnismats og
starfsreynslu.
Benedikt Jónsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að þeir Gunnar
E. Sigurðsson og Frank Friðrik
Friðriksson hafi báðir haft sér-
hæfða starfsreynslu og menntun
umfram aðra umsækjendur. Báðir
væru hagfræðingar, menntaðir á
sviði vinnumarkaðsmála. Gunnar
hefði starfað undanfarin ár á vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins og Frank hefði starfað á
atvinnurekstrardeild skattstjóra.
sögunnar á Louvre safninu, lokkandi veitingastaði í Latínuhverfinu,
frægar byggingar, tískuhús, kaffihús og allt sem nöfnum tjáir að nefna.
Eigðu stefnumót við París eina helgi og njóttu þess að láta borgina
koma þér á óvart. Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða Flugleiða
eða ferðaskrifstofuna þína.
Helgarferð til Parísar kostar frá 36.730 kr.
Innifalið í verði: Flug, gisting fyrir einn í 2 nætur í 2ja manna herbergi og flugvallarskattar.
Lágmarksdvöl er aðfararnótt sunnudags, hámarksdvöl 4 nætur.
Verð gildir til 31. mars 1994.
SAS, sími 622211. Flugleiðir, sími 690300.
■
FLUGLEIDIR