Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994
Sjötíu og sex höfund-
ar skrifa í afmælisrit
DR. JÓNAS Kristjánsson, for-
stöðumaður stofnunar Arna
JVlagnússonar á Islandi, verður
sj'ötugur 10. apríl nk. og ætla
vinir Jónasar að heiðra hann með
veglegu afmælisriti þann dag
sem Hið íslenska bókmenntafé-
lag gefur út. I ritinu sem verður
eitt hið stærsta sinnar tegundar
sem komið hefur út hérlendis eða
um 800-900 síður í tveimur bind-
um, birtast 76 frumsamdar
greinar eftir jafnmarga höfunda,
íslenska sem erlenda.
Þeir sem heiðra vilja dr. Jónas
og gerast áskrifendur að ritinu geta
snúið sér til útgefanda fyrir 20. febr-
úar og fengið nöfn sín skráð í „tab-
ula gratulatoria" sem birt verður
fremst í ritinu. Forseti ísiands hefur
veitt dr. Jónasi lausn frá störfum
frá 30. apríl nk., að hans eigin ósk.
Dr. Jónas hefur seinustu 22 ár
verið forstöðumaður stofnunar Arna
Magnússonar á íslandi og prófessor
við heimspekideild Háskóla íslands.
Hann hefur ritað fjölda bóka og
greina á sviði íslenskra fræða sem
birst hafa bæði hér heima og erlend-
is. Vísindafélög og stofnanir hér og
ytra hafa veitt honum margvíslegar
viðurkenningar fyrir störf sín. Jónas
varði doktorsrit sitt, Um_ Fóst-
bræðrasögu, við Háskóla íslands
árið 1972 og nýlega sendi hann frá
sér tvö yfirlitsrit um forna menningu
Islendinga. Annars vegar er um að
Dr. Jónas Kristjánsson fagnar
70 ára afmæli 10. apríl nk.
ræða fornbókmenntasöguna Eddas
and Sagas og hins vegar bók um
elstu sögu þjóðarinnar og handrita-
arfinn, Handritaspegil, sem í enskri
þýðingu nefnist „Icelandic Manu-
scripts".
Ritnefnd Afmælisrits Jónasar
Kristjánssonar skipa Guðrún Kvar-
an, Gísli Sigurðsson og Sigurgeir
Steingrímsson.
V erkmenntaskólinn
á Akureyri fnimsýn-
ir söngleikinn Jósep
NEMENDUR Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýna á morgun
fimmtudag, söngleikinn Jósep eftir Andrew Lloyd Webber og Tim
Rice. Hann var upphafið að samstarfi félaganna. Að uppfærslu skól-
ans vinna um sjötíu manns og hefur undirbúningur staðið yfir síðan
sl. vor.
Sagan er fengin úr Biblíunni.
Hún er um Jakob og syni hans.
Jakob hefur dálæti á Jósep, sem
ræður drauma sína og annarra og
gefur honum fallegan kyrtil. Bræð-
urnir verða svo afbrýðisamir að
þeir selja Jósep til Englands sem
þræl, þar sem hann lendir í miklum
hremmingum. Söguna segja þrír
sögumenn, Andrea Ásgrímsdóttir,
Vigdís Garðarsdóttir og Kristbjörg
Hermannsdóttir. Með aðalhlutverk
fer Ingólfur Freyr Guðmundsson.
Leikstjóri er Sigurþór Albert
Heimisson og um útsetningu tónlist-
ar sá Michael Jón Clark. Í þessum
söngleik sem öðrum eftir þá kump-
ána Andrew og Tim er allur texti
sunginn og var það Þórarinn Hjart-
arson sem þýddi verkið. Tvö lög
hafa nú verið hljóðrituð og þess að
vænta að þau hljómi á öldum Ijós-
vakans innan skamms. Frumsýning
verður á morgun fimmtudag 17.
febrúar kl. 20.30, önnur sýning
verður 19. febrúar og þriðja sýning
þann 20. febrúar.
011 Rfl 01 07A LÁRUS Þ' VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI
L I IWv'klO/V KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra athyglisverðra eigna:
Á vinsælum stað á Seltjarnarnesi
Nýendurbyggð 4ra herb. neðri hæð tæpir 100 fm í reisui. tvíbhúsi.
Sérinng. Góður bílskúr. Skipti mögul. á stærri eign helst í borginni.
Skammt frá Sundlaugunum í Laugardal
Á úrvalsstað einbhús rúmir 170 fm auk bílsk. Glæsil. trjágarður. Skipti
mögul. á minni eign t.d. í nágr.
Glæsileg einstaklingsíbúð
Nýgerð 2ja herb. íb. 56,1 fm á 1. hæð, jarðhæð, skammt frá Háskólan-
um. Allar innr. og tæki ný. Sérinng., sérþvottaaðstaða.
• • •
Á söluskrá óskast einbhús
í Laugarneshverfi eða
nágrenni með 6-7 herb.
Trausturkaupandi.
AIMENNA
FASIEIGHASAL AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
----------------------
Til sölu einbýlishús í
Setbergshverfi, Hafnarf.
Fallegt einnar hæðar steinhús um 132 fm á góðum
stað við Lyngberg, byggt 1988. Stofa, 3 svefnherb. og
stór skáli. 52 fm vandaður tvöf. bílskúr. Stór og góð lóð.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
----J
Klarínettuleikur
i
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Ljóð úr ýmsum áttum er yfir-
skrift tónleika sem Guðni Franz-
son hélt á Kjarvalsstöðum sl.
sunnudagskvöld. Þar var flutt tón-
list sem nútímalegust má teljast
en á því sviði hefur Guðni haslað
sér völl með frábærum árangri.
Tónleikarnir hófust á tónverki eft-
ir Þórólf Eiríksson og er það gert
fyrir segulband og klarínett og
nefnist Mar. Á segulbandinu eru
sjávar- og hvalahljóð notuð sem
undirleikur við fremur þýðan klarí-
nettuleik. Þessi hljóðnáms-aðferð
er gömul og vafasamt að hægt sé
að kalla slíka upptöku á náttúru-
hljóðum tónsmíð, jafnvel þó stíl-
færð væru. Að þessu frádregnu
var klarínetturöddin fallega sam-
hljómandi en ekki rismikil.
Þegar hlýtt er á ekta nútímatón-
list er mjög nærri huga manna
umræða um listrænt mat og mark-
mið með gerð nútímatónlistar.
Margar spurningar setjast að og
er ýmist að svör við þeim má kalla
að byggð séu á fordómum, skiln-
ingsleysi eða gagnrýnislausri að-
dáun. Margt í nútímatónlist er
samstofna við frumstæða tóniist,
þar sem háttbundið hljóðfall, stef-
ræn samskipan (form) og sam-
hljómum er að miklu leyti hafnað
og því er hugmyndin að slík tón-
list vísi fram á við nokkuð mót-
sagnakennd.
Þá er sú framtíð óljós sem nú-
tímaleg tónlist stefnif að og allt
eins gæti það hent að framtíðin
beri það í sér að horft verði til
fortíðar sem stendur okkur nær
en frumstæð' tónlist. Þá er lítið
vitað með hvaða hætti rafhljóð-
færi kunni að þróast og þá jafnvel
taka við af þeim hljóðfærum sem
nú eru notuð og hafa mótast á
rúmum 250 árum. Flest þau hljóð-
færi sem notuð voru fyrir þann
tíma voru lögð til hliðar, svo. að
líklegt má telja að það sama geti
gerst ef tekst að smíða nothæf
rafhljóðfæri af margvíslegum
gerðum.
' Hvað sem kann að koma upp
verða þeir þættir sem þjappa má
saman í vinnuaðferð og þar í mót
innihald aðal átaksfletir listsköp-
unar, en sá veruleiki sem hin list-
ræna upplifun byggist á, fer eftir
menntun og þjálfun listneytand-
anna og þar gildir ekki nein ákveð-
in regla, hvað svo sem hugsuðir
kunna að staðhæfa.
Það samræmi í stíl sem var
mest áberandi á ýmsum tímabilum
listasögunnar er ekki til staðar nú
til dags. Öllu ægir saman og í list-
rænum efnum er ríkjandi áttleysa
og jafnvel kennd að nokkru ráð-
leysi, svo oft stendur þar hver silki-
húfan upp af annarri. Menn skipt-
ast í hópa, reisa sér fílabeinsturna
og gera hróp hver að öðrum.
Þau verk sem Guðni Franzson
lék að þessu sinni eru flest samin
samkvæmt þeirri akademísku
kenningu að vélvæddur nútíminn
hafi breytt viðhorfum manna til
hljóðheimsins og að hljóðið, sterkt
og veikt, háróma og djúpraddað,
hægferðugt og hratt, sé í raun
nægilegur efniviður til listsköpun-
ar. Þetta einkenndi flest verkin
sem Guðni flutti. Bent Sörensen
nefnir verk sitt „Söngva hinna
rotnandi garða“ og Gabriel Iranyi
byggir tónverk sitt á bænasöng
gyðinga og kallar það „brot af
pergamenti“. „Raðsamfella IXa“
heitir viðburðaríkt verk eftir Luc-
iano Berio og eftir Arne' Mellnás
var flutt skemmtilegt og vel unnið
verk, sem hann nefnir „Endur-
skyn“, samið fyrir segulbandsupp-
töku á hreinum rafhljóðum og
kiarinett.
Fróðlegt var að heyra verk
Grete von Zieritz, en hún er fædd
í Vínarborg 1899 og verður því
95 ára á þessu ári og hefur lifað
Guðni Franzson
það umrót sem gengið hefur yfir
evrópska listsköpun á þessari öld.
Verk hennar, „Ein Mensch erinn-
ert sich“, er ekki sérlega nútíma-
legt en vel samið og falleg ihn-
hverf íhugun. Síðasta verkið á
tónleikum Guðna var „sekkjapípu-
lag“ eftir William Sweeney, sem
á að vera frásögn „af rómuðu alls-
heijarverkfalli sem stóð í níu daga
maímánaðar árið 1926“. Sekkja-
pípulagið er nokkuð erfitt í flutn-
ingi en ekki sérlega skemmtileg
tónsmíð, reyndar heldur leiðinleg
og langdregin og á ekkert skylt
við þau átök sem það á að endur-
segja.
Guðni Franzson er frábær klarí-
nettuleikari og þess njóta verkin
ríkulega, verða lifandi tónleikur í.
höndum hans, hvort sem um er
að ræða staktónaleik, mótun blæ-
brigða af ýmsum tegundum og
styrkleika eða hröð tónferlis-
mynstur. Hin tónræna framvinda
verkanna og formskipan verður
ávallt áhugaverð og túlkun hans
í smáu og stóru sannfærandi.
ITC-DEILDIN Fífa er með fund
í kvöld kl. 20.15 á Digranesvegi
12, Kópavogi. Ræðukeppni verður
á þessum fundi sem er öllum op-
inn. Uppl. gefur Guðlaug Hanssen
í síma 43914.
HVÍTABANDSKONUR eru með
fund í kvöld kl. 20 á Hallveigar-
stöðum.
ITC Björkin heldur fund í kvöld,
16. febrúar, í kaffiteríu ÍSÍ, Laug-
ardal, kl. 20.30. Ræðukeppni.
Fundurinn er öllum opinn. Upp-
lýsingar gefur Hulda í síma
653484.
BÓKSALA Félags kaþólskra
leikmanna er opin að Hávalla-
götu 14 kl. 17-18.
VÍÐISTAÐASÓKN: Opið hús í
dag kl. 14. Spilað bingó.
ÁSKIRKJA: Samverustund fyrir
foreldra ungra barna í dag kl.
10-12. 10-12 ára starf í safnaðar-
heimilinu í dag kl. 17. Föstumessa
kl. 20.30. Kirkjubíllinn ekur. Árni
Bergur Sigurbjömsson.
BÚSTAÐASÓKN: Félagsstarf
aldraðra í dag kl. 13.
DÓMKIRKJAN: Hádegisbænir
kl. 12.10. Leikið á orgelið frá kl.
12. Léttur hádegisverður á kirkju-
loftinu á eftir. Opið hús í safnaðar-
heimilinu í dag kl. 13.30-16.30.
ÁRBÆJARKIRKJA: Mömmu-
morgunn í fyrramálið kl. 10-12.
Opið hús fyrir eldri borgara í dag
kl. 13.30. Fyrirbænaguðsþjónusta
í dag kl. 16. Starf fyrir 10-12 ára
TTT í dag kl. 17.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Kyrrð-
arstund ki. 12 á hádegi í dag.
Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu eftir stundina. Ungl-
ingastarf (Ten-Sing) í kvöld kl.
20.
GRAFARVOGSKIRKJA: Sam-
vera fyrir.eldri borgara í Grafar-
vogssókn á morgun fimmtudag
kl. 15. Sigurbjörg Helgadóttir
organisti og Wilma Young skóla-
stjóri Tónlistarskóla Grafarvogs
leika saman á fiðlu og píanó. Starf
eldri borgara í kirkjunni kynnt.
Kaffiveitingar.
KÁRSNESSÓKN: Mömmumorg-
unn í safnaðarheimilinu Borgum
í dag kl. 9.30-12. Starf 10-12 ára
barna í dag kl. 17.15-19.
FELLA- og Hólakirkja: Helgi-
stund í Gerðubergi kl. 10.30.
Umsjón sr. Hreinn Hjartarson.
HJALLAKIRKJA: Starf fyrir
10-12 ára börn í dag kl. 17-19.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Kyrrðarstund kl. 12 á hádegi og
léttur hádegisverður í safnaðarat-
hvarfinu, Suðurgötu 11, að stund-
inni lokinni.
HRUNAKIRKJA: Á morgun 17.
febrúar kl. 21 verður fræðslu-
fundur í safnaðarheimilinu þar
sem Þorvaldur Kari Helgason
forstm. fjölskylduþjónustu kirkj-
unnar fjallar um efnið: Fjölskyld-
an og hjónabandið.
HJÁLPRÆÐISHERINN. Konu- kvöld verður í kvöld kl. 20.30 í Herkastalanum. Sýnikennsla í gerbakstri. Major Liv Gundersen flytur hugvekju. Söngur, veitingar og happdrætti. Opið öllum konum. HALLGRÍMSKIRKJA: Opið hús fyrir aldraða í dag kl. 14.40. Föstumessa í kvöld kl. 20.30. Opið hús fyrir foreldra ungra barna á morgun fimmtudag kl. 10-12.
NESSÓKN. Kvenfélag Neskirkju hefur opið hús í dag kl. 13-17 í HÁTEIGSKIRKJA: Kvöld- og fyrirbænir í dag kl. 18.
safnaðarheimilinu. Kínversk leik- fimi, fótsnyrting og hárgreiðsla á sama tíma. Kóræfing litla kórsins LANGHOLTSKIRKJA: söngur kl. 18. Aftan-
í dag kl. 16.15.
BÚSTAÐASÓKN. Félagsstarf aldraðra í dag kl. 13.30. iNrJöjvlKKJ A: uænamessa ki. 18.20. Guðmundur Óskar Ólafs- son.
SILFURLÍNAN - sími 616262. SELTJARNARNESKIRKJA:
Síma- og viðvikaþjónusta fyrir Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, alt-
eldri borgara alla virka daga milli arisganga, fyrirbænir. Léttur há-
kl. 16 og 18. degisverður í safnaðarheimili.