Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 29 Til hvers er Lánasjóður íslenskra námsmanna? eftir Heimir Órn Herbertsson Um þessar mundir eru liðin tæp tvö ár síðan ný lög voru sett um Lánasjóð íslenskra námsmanna (LÍN). Með þessum lögum var regl- um sjóðsins um lánveitingar til námsmanna breytt mjög verulega og hafa talsmenn stúdenta í Stúd- entaráði Háskóla fslands og for- svarsmenn LÍN deilt að uridanförnu um afleiðingarnar af þessum breyt- ingum fyrir námsmenn. f þessari umræðu virðist undirrituðum sem nokkur grundvallaratriði sem standa að baki sjóðnum hafi hreinlega gleymst eða að þau skipti ekki leng- ur máli og önnur séu komin í þeirra stað. Það er því ekki úr vegi að spyija nokkurra grund- vallarspuminga um LÍN og hinn raunvemlega til- gang sem hann hlýtur að hafa. Hver hagnast áLÍN? Siðast þegar ég VÍSSÍ lá ákveð- Heimir Örn in undirstöðu- Herbertsson hugsun að baki LÍN og hún var þessi: Annars vegar verður það að viðurkennast að margt hæfileikaríkt fólk, sem gæti náð góðum árangri bæði í bóklegum og verklegum fræðum, hefur ekki að digrum sjóðum að hverfa til að fjár- magna nám sitt. Eini möguleiki Athugasemd frá dag- skrárstjóra Rásar 2 Morgunblaðinu hefur borist eft- irfarandi athugasemd frá Sigurði G. Tómassyni, dagskrárstjóra Rásar 2: Vegna greinar Þórdísar Guðjóns- dóttur í laugardagsblaði 'Morgun- blaðsins og skrifa Víkverja í blaðinu í dag, þriðjudag, vill undirritaður taka eftirfarandi fram: 1. Gagnrýnt er að Agustin Nav- arro Cortes, hafí ekki verið boðið að skýra frá sinni hlið málsins á móður- máii sínu, spænsku. Agustin hefur dvalið hér á landi um árabil og talar íslensku. Eigi að síður umorðaði dag- skrárgerðarmaður spumingar sínar og endurtók þær til þess að viðmæl- andi skildi öragglega hvað um var að ræða. Upptakan fór fram á föstu- degi 7. janúar, en var send út mið- vikudaginn 12. janúar. í millitíðinni gerði dagskrárgerðarmaður ítrekað- ar tilraunir til þess að ná í viðmæl- anda sinn, til að glöggva sig frekar á málinu og fá frekari spurningum svarað. Þá varð Þórdís Guðjónsdóttir fyrir svörum, en dagskrárgerðar- manni tókst ekki að ná tali af Agust- in. 2. Aldrei fór á milli mála að viðtal- ið var tekið fyrir Útvarpið ogtil flutn- ings á Rás 2. 3. Hvað þá gagnrýni varðar, að dagskrárgerðarmaður hafi aðeins kynnt sér aðra hlið málsins, þá er það ekki rétt. Hann kynnti sér báðar 'hliðar þess og vann dagskrárliðinn út frá því. 4. Um óeðlileg tengsl starfsmanns á Rás 2 við annan málsaðilann og áhrif þeirra á dagskrárgerðina, er ekki að ræða, þar sem Lísa Pálsdótt- ir vinnur ekki í dægurmálaútvarpi rásarinnar og tekur því ekki þátt í fundum þess. Hún átti því engan hlut að málinu. Sú ákvörðun að taka málið á dag- skrá, var algjörlega óháð því að einn starfsmanna Ríkisútvarpsins er tengdur málsaðila. I þessu tilfelli var íjallað um deilu- mál. Báðir aðilar komu á framfæri sinni sýn á málið, þar af leiðandi var ekki brotið gegn reglum um óhlut- drægni. Það er misskilningur, að með því að taka málið upp -í dægurmálaút- varpinu hafi starfsmenn þess viljað „ala á andúð og fordómum gagnvart útlendingum almennt“. Þvert á móti kom fram í umfjölluninni, að rétt sé að vara við því að útlendingar, sem nýfluttir eru til landsins, séu órétti beittir. Sigurður G. Tómasson, dagskrárstjóri Rásar 2. þessa fólks til þess að nýta hæfíleika sína er að fá peninga að láni í gegn- um LÍN sem það borgar svo aftur að námi loknu. Þetta er mikilvægt atriði sem má ekki gleymast. Náms- menn borga lánin sín aftur. Á öllum hinum Norðurlöndunum er aðstoð ríkisins til námsmanna i tvennu lagi, þ.e. annars vegar lán og hins vegar styrkur. Þarna er því nokkur munur á. Námsaðstoð er fjárfesting Hins vegar er. það hagnaður þjóð- félagsins. Það er margnotaður frasi að menntun sé framtíðin, það sé menntunin sem geri fólkið og ís- lenska þjóðfélagið samkeppnishæft á þeim risastóra markaði sem við keppum á við aðrar þjóðir. Margnot- aður frasi já, en sannur. Svo einfalt er það. Það fjármagn sem ríkið ákveður að leggja í námsaðstoð í gegnum LÍN er fjárfesting í hug- og verksviti landsmanna. Það er fjár- festing á nákvæmlega sama hátt og það er fjárfesting að kaupa togara til að veiða fisk. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir smáríki eins og Is- land er á alþjóðlegum mælikvarða að búa íslendingum almenna mennt- un og möguleika til sérnáms að því loknu til þess einfaldlega að lifa af. Tvíþættur tilgangur Þannig sýnist tilgangur LÍN vera tvíþættur. Annars vegar það grund- vallaratriði að allir þegnar landsins hafi möguleika til að nýta hæfileika sína og velja sér eigin framtíð og hins vegar sá augljósi hagnaður sem þjóðfélagið hefur af því að mennta þegnana til þess að efla samkeppnis- stöðu sína. Námslánakerfið þarf því að vera þannig uppbyggt að það sinni þess- um tveimur markmiðum. En er það raunin? Eru reglur LÍN með þeim hætti að sjóðurinn stuðli raunveru- lega að jafnrétti til náms? Hvað er að LIN og hveiju þarf að breyta til þess að hann nái markmiðum sínum? Þessar spurningar krefjast svara og í seinni hluta greinarinnar mun ég leitast við að draga þessar spurning- arnar fram í dagsljósið og svörin við þeim. Höfundur er nemandi og skipar 1. sæti á lista Vöku fls. til Stúdentar&ðs. Páskar á Kanarí 3 vikur - 23. mars Njóttu páskanna í frábæru veðri á Kanaríeyjum við góðan aðbúnað á glæsilegum gististöðum Heimsferða. Hér nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra sem bjóða þér spennandi kynnisferðir og skemmtanir á meðan á dvölinni stendur og tryggja þér öruggt og gott frí í sólinni. Verð frá kr. 59.800,- pr. mann m.v. hjón með 2 börn, Las Isas. Verð kr. 75.200,- m.v. 2 í íbúð. Flugvallaskattar kr. 3.660,- f. fullorðna, kr. 2405 f. börn. Brasilía - páskaferð, 3 vikur Salvador de Bahia - Rio de Janeir Aðeins fá sæti laus í þessa heillandi ævintýraferð sem slegið hefur í gegn í vetur. Tryggðu þér sæti meðan enn er laust. Verð frá kr. 99.800. Aukagjald fyrir Rio de Flugvallaskattar kr. 4.860,- f. fullorðna. JaneÍrO kr. 14,900 Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Þorsteinn Árnason færir Páli Pálssyni, framkvæmdastjóra Fiskmark- aðs Vestmannaeyja, blómvönd í tilefni nýja húsnæðisins. V estmannaeyjar Fiskmarkaðurinn flytur 1 nýtt húsnæði Vestmannaeyjum. FISKMARKAÐUR Vestmknnaeyja, sem nú hefur starfað í rúm tvö ár, flutti fyrir skömmu í nýtt og stærra húsnæði með starfsemi sína. Þá hefur markaðurinn tekið í notkun nýtt uppboðskerfi í samvinnu við íslandsmarkað hf. sem opnar fleiri kaupendum aðgang að uppboð- um markaðarins. Páll Pálsson framkvæmdastjóri Fiskmarkaðarins sagði, að nýtt og rúmbetra húsnæði ætti eftir að koma starfsemi markaðarins vel í framtíð- inni. Hann gerði grein fyrir notkun nýja uppboðskerfisins sem hann sagði opna mikla möguleika fyrir fiskaupendiir á mun stærra svæði en áður að kaupa fisk af markaðn- um. Nýja uppboðskerfið tengist upp- boðskerfí íslandsmarkaðar hf. Sagði Páll að þeir fiskkaupendur sem hefðu aðgang að einhveijum þessara mark- aða gætu keypt fisk af hveijum þeim sem tengdur er kerfinu svo lengi sem HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 þeir hefðu gilda bankaábyrgð fyrir kaupunum. Sagði hann að þessi sam- tenging hefði gert það að verkum að á þeim stutta tíma sem kerfið hefði verið í notkun hefðu á annað hundrað nýir kaupendur bæst við viðskiptavini markaðarins í Eyjum. Frá fyrsta uppboði Fiskmarkaðar Vestmannaeyja, sem haldið var 31. janúar 1992, hafa vérið seld 13.459,5 tonn af fiski fyrir rúmlega 914 millj- ónir króna og var aukning í seldu magni milli áranna 1992 og 1993 18,2%. - Grímur t Eiginkona mfn, móðirokkar, tengdamóöir, amma og langamma, HELGA ÞORSTEINSDÓTTIR, Egilsbraut 12, Þorlákshöfn, lést 10. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, laugardaginn 19. febrúar kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Þorlákskirkju, Þorláks- höfn eða Krabbameinsfélag Islands. Guðni Karlsson, Guörún Guðnadóttir, Jón Dagbjartsson, Helga Guðnadóttir, Þorsteinn Guðnason, Lovísa Rúna Sigurðardóttir, Katrín Guðnadóttir, Sigurður Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarðarför sonar míns og bróður okkar, VALGEIRS SIGURÐSSONAR, Þingskálum. Sérstakar þakkir færum við Kvenfélaginu Unni og vinum okkar, Klöru Haraldsdóttur, Sigríði Heiðmundsdóttur, Viðari Steinarssyni og Jóhanni Bjarnasyni fyrir ómælda hjálp og vináttu. Lifiö heil. Júlía Guðjónsdóttir, Ingólfur Sigurðsson, Sólveig Sigurðardóttir. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við and- lát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, tengdasonar, bróð- ur og mágs, JÓHANNS GUÐNASONAR, Vesturási 36. Samstarfsfólki Skandía eru færðar sér- stakar þakkir. Guð blessi ykkur öll. Guðbjörg H. Birgisdóttir, Birgir Daði, Agnes og RebekkaJóhannsbörn, Guöni G. Sigfússon, Birgir G. Albertsson, Evlalía K. Guðmundsdóttir, María S. Guðnadóttir, Ingólfur K. Sigurðsson, Valur Guðnason, Bryndís Richter, Sigfús J. Guðnason, Hulda B. Halldórsdóttir, Borghildur Birgisdóttir, Guðmundur A. Birgisson, Gunnar F. Birgisson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.