Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 11 Samstarf um kennslu í Norðurlandafræðum Dietfried Bernet. Einar Jóhannesson. Austurrískur stjómandi á Sinfóníutónleikum Verk eftir Web- er og* Schumann AUSTURRÍKISMAÐURINN Dietfried Bernet stjórnar Sinfóníu- hljómsveit íslands á tónleikum í rauðri áskriftarröð í Háskólabíói á morun fimmtudaginn 17. febrúar kl. 20. Einleikari á tónleikun- um er Einar Jóhannesson klarinettuleikari. Á efnisskrá er forleik- ur að óperunni „Der Freischiitz" eftir Carl Maria von Weber, Klarinettukonsert nr. 1 eftir Carl Mária von Weber og Sinfónía nr. 1, „Vorsinfónían“, eftir Robert Schumann. Samkvæmt prentaðri efnisskrá átti bandaríski hljómsveitarstjór- inn Maximiano Valdes að stjórna þessum tónleikum en hann átti ekki heimangengt, þannig að til leiks var fegninn austurríski hljómsveitarstjórinn Dietfried Ber- net. Tæplega þrítugur þurfti Di- etfried Bernet að leggja hljóm- sveitarstjórn á hilluna sökum heislubrests, en þá var hljómsveit- arstjóraferill hans óvenju glæsileg- ur. Hann starfaði þá við bæði óperuhúsin í Vín auk þess að vera tónlistarstjóri í Mainz í Þýska- landi. Eftir að Bernet náði heilsu á ný hefur hver stórviðburðurinn rekið annan á ferli hans. Einleikarinn Einar Jóhannesson 1. klarinettuleikari SÍ er tónleika- gestum að góðu kunnur. Einar hóf klarinettunám hjá Jóni G. Þórar- inssyni í Miðbæjarbarnaskólanum en síðar nam hann í Tónlistarskól- anum í Reykjavík þar sem Gunnar Egilsson var hans lærimeistari. Að loknu einleikaraprófi þar fór Einar til Bretlands þar sem hann dvaldi um árabil við nám og störf. Einar hefur farið í tónleikaferðir víða um heim og oft flutt verk sem sérstaklega hafa verið samin fyrir hann. Einar hefur hlotið margvís- legar viðurkenningar fyrir leik sinn. Hann er stofnfélagi nokkurra kammerhópa þ.á m. Blásarakvint- etts Reykjavíkur, Tríó Borealis og Ýmis. Efnisskrá tónleikanna er hárómantísk. Tónleikarnir hefjast á forleiknum að þekktustu óperu Webers, „Der Freischútz". Klari- nettuskonsert nr. 1 samdi Weber fyrir vin sinn Heinrich Josep Bár- mann sem var hljóðfæraleikari í hirðhljómsveitinni í Múnchen. Haft er eftir Weber að eftir að hann skrifaði þennan konsert hafi hann engan frið fengið fyrir öðrum hljóðfæraleikurum hljómsveitar- innar, allir vildu þeir að hann skrif: aði einleikskonserta fyrir þá. í Vorsinfóníunni sækir Robert Schumann innblástur í kvæði eftir vin sinn Adolph Böttger. Sinfónían er samin snemma árs 1841 sem var óvenju kalt og snjóþungt í Rín- arlöndum, en það var vorið í lífi þeirra Klöru konu hans sem gerði honum kleift að finna unaðssemdir vorsins svo snemma það árið. * eftir Ulfar Bragason Kennsla í einu Norðurlanda- tungumáli eða fleiri fer nú fram við meira en tvö hundruð háskóla utan Norðurlanda. Um eitt þúsund kenn- arar eru þar að störfum við að kenna þessar tungur, þar af eru hátt á annað hundrað sendikennar- ar. Um meira en tíu ára skeið hafa Norðurlönd starfað saman að því að bæta kennslu í tungumálum landanna og fræðslu um menningu þeirra við erlenda háskóla. í upp- hafi var um tilraunaverkefni að ræða en árið 1988 samþykkti Nor- ræna ráðherranefndin að nefnd sem í sæti einn fulltrúi hvers lands skyldi annast þetta samstarf. Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis er samstarfsvettvangur fyrir þær stjórnarstofnanir í ríkjunum á Norð- urlöndum sem fjalla um kennslu í tungumálum, bókmenntum og sam- félagsháttum þjóðanna í öðrum löndum, einkum svokallaða sendi- kennslu. Hér á landi hefur Stofnun Sigurðar Nordals umsjón með ís- lenskukennslu við erlenda háskóla og forstöðumaður hennar situr í samstarfsnefndinni. Tilgangurinn með starfi nefndarinnar er að auka þekkingu og áhuga á menningu Norðurlanda hjá kennurum í dönsku, finnsku, íslensku, norsku og sænsku sem starfa erlendis, efla samstarf kennaranna og styrkja norræna samvinnu. Aðsetur sam- starfsnefndarmnar er á Norrænu málstöðinni í Ósló og er Anna Helga Hannesdóttir sérfræðingur á mál- stöðinni ritari hennar. Nefndin fær árlega fé af föstum fjátveitingum Norrænu ráðherra- nefndarinnar en jafnframt hefur ráðherranefndin veitt henni fé aukalega til að gangast fyrir ráð- stefnum. Á síðasta ári hafði sam- starfsnefndin rúmar fjórar milljónir ísl. kr. til ráðstöfunar. Nefndin veit- ir kennurum í Norðurlandafræðum erlendis margháttaðar upplýsingar um Norðurlönd og norræna sam- vinnu og sendir þeim ýmis rit endur- gjaldslaust. Þá styrkir hún sam- starfsverkefni sem lúta að því að kynna löndin og kennarar í Norður- landafræðum standa fyrir. Það geta t.d. verið skáldavökur, tónlistar- kynningar, kvikmyndasýningar og fyrirlestrar og málþing um menn- Safn Ásgríms Jónssonar Skólasýningar 1 þrjátíu ár ÞRJÁTÍU ár eru nú liðin frá því að sýning ætluð skólanem- endum sérstaklega, var fyrst sett upp í Safni Ásgríins Jóns- sonar við Bergstaðastræti. Skólasýningarnar í Safni Ás- gríms voru nýlunda á sínum tíma og jafnframt fyrsti vísirinn að safnkennslu sem nú er orðin einn mikilvægasti þátturinn I fræðslustarfi safna. Á þeim þrjátíu árum, sem liðin eru frá því að þetta fræðslustarf hófst í Safni Ásgríms, hafa tugir þús- unda barna og unglinga komið þangað. Á sýningum þessum hafa að jafnaði verið myndir úr íslenskum þjóðsögum, enda má tengja efni þeirra námsefni skólanna. Á skólasýningunni, sem nú hef- ur verið opnuð eru annars vegar myndir úr íslenskum þjóðsögum og hins vegar myndir sem Ásgrím- Eitt verka Ásgríms Jónssonar. ur málaði á ferðum erlendis, þ.e. ferðinni til Ítalíu 1908-1909 og til Þýskalands þijátíu árum síðar. í báðum þessum ferðum kynntist Ásgrímur heimslistinni sem hafði djúp áhrif á listsköpun hans. í fyrra skiptið voru það kynni hans af verkum impressjónistanna og í seinna sinnið endurfundirnir við verk hollenska málarans Vincents van Goghs. Sýningin er opin um helgar kl. 1.30 til 16 og stendur fram í maí. Auk þéss er tekið þá móti skóla- hópum og er kennurum bent á að hafa samband við safnkennara Listasafns íslands. (Fréttatilkynning) ingu Norðurlanda. Nefndin styrkir um það bú tíu slík samstarfsverk- efni á ári. Á síðasta ári veitti nefnd- in meðal annars styrki til norrænn- ar bókmenntakynningar í Porto í Portúgal og menningarhátíða í Normandí á Frakklandi og Greifs- wald í Þýskalandi. Samstarfsnefndin heldur einnig ráðstefnur fyrir kennara erlendis um kennslu í Norðurlandamálum, bókmenntum, sögu og samfélags- fræðum. Að jafnaði gengst nefndin fyrir einu slíku þingi árlega. Árið 1992 hélt hún ráðstefnu í Lyon í Frakklandi fyrir kennara í hinum rómönsku löndum Evrópu. í nóvem- ber sl. stóð nefndin fyrir þingi í Prag fyrir kennara í Tékklandi, Slóvakíu, Ungveijalandi, Slóveníu, Króatíu, Rúmeníu og Búlgaríu og dagana 2. til 4. júní nk. mun nefnd- in halda kennaraþing í Bonn fyrir Þýskaland, Austurríki, Sviss, Hol- land og Belgíu. Búist er við að ráð- stefnan í Bonn verði ein sú fjöl- mennasta sem nefndin hefur geng- ist fyrir þar sem Norðurlandafræði eru kennd við fjöluiarga háskóla í þessum löndum og áhugi á að nema Norðurlandamál og kynnast nor- rænni menningu er hvergi meiri. Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað um stöðu Norðurlanda gagnvart öðrum ríkjum í Evrópu, Evrópusambandið og áhrif þess á Norðurlandatungur, þjóðernisstefnu og minnihlutahópa á Norðurlöndum, samtímabók- menntir, þýðingafræði og þýðingar Norðurlandabókmennta á þýsku og flæmsku. Starfsemi samstarfsnefndarinn- ar hefur veitt okkur íslendingum tækifæri til að koma sjónarmiðum okkar, máli og menningu á fram- færi við mun fleiri en þá sem stunda kennslu í íslensku erlendis. Á ráð- stefnunni í Lyon fyrir rúmu ári flutti Guðmundur Magnússon fyrirlestur um efnahagsmál á Norðurlöndum og Edda Erlendsdóttir lék á píanó fyrir gesti, m.a. íslenska tónlist. Þá hélt Guðrún Helgadóttir alþingis- maður erindi um konur og stjórn- mál á þinginu í Prag. Einnig hefur þess verið gætt að aðrir fyrirlesarar fjalli um ísland og íslenska menn- ingu í máli sínu rétt eins og mál og menningu annars staðar á Norð- urlöndum. Samstarfsnefndin hefur líka stutt samstarfsverkefni, sem íslenskir sendikennara hafa staðið að og þeir hafa setið ráðstefnur sem hún hefur haldið. Starf nefndarinn- ar hefur þess vegna orðið til efling- ar kennslu í íslensku erlendis. Efling samstarfsnefndarinnar Á undanförnum árum hefur Samstarfsnefndin um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis ein- beitt sér að þvi að efla kennslu í Norðurlandamálum í Evrópu, bæði með styrkveitingum og ráðstefnum. Enda hefur nefndin viljað stuðla að því að kennsla í Norðurlandamálum og þekking á norrænu samstarfi aukist í kjölfar þeirra stjórnarfars- legu breytinga_ sem hafa átt sér stað í álfunni. Áhugi Norrænu ráð- herranefndarinnar beinist nú að því að efla starf samstarfsnefndarinnar og gera henni kleift með hærri fjár- veitingum að sinna frekar en gert hefur verið kennslu í Norðurlanda- fræðum í Bandaríkjunum og Kanada og jafnvel teygja starfsem- ina til Japan og Kína. Samstarfsnefndin hefur þegar aflað sér gagna um kennslu og rannsóknir í Norðurlandafræðum í Vesturheimi. Stendur kennsla vestra á þessu sviði víða í blóma og merkar rannsóknir á norrænum málum, bókmenntum og samfélags- háttum hafa verið gerðar þar. Nefndin hefur einnig sent fulltrúa sína á kennaraþing í Bandaríkjun- um til að flytja þar fyrirlestra um stöðu norrænna mála og kennslu í Norðurlandamálum fyrir útlend- Úlfar Bragason „íslendingum er mikill akkur í að hlúð sé að Norðurlandafræðum í Yesturheimi.“ Þótt íslenskt nútímamál sé ekki að staðaldri kennt annars staðar í Norður-Ameríku en við Manitoba- háskólann í Winnipeg leggja stúd- entar stund á fornmálið og íslensk- ar miðaldabókmenntir við marga háskóla í Bandaríkjunum og Kanada. Háskólabókasöfnin í Winnipeg og í íþöku, New York ríki, eru máttarstólpar íslenskra fræða vestra. íslendingum er mikili akkur í að hlúð sé að Norðurlanda- fræðum í Vesturheimi. Þess vegna ber að fagna því ef Norræna ráð- herranefndin vill gera samstarfs- nefndinni kleift með fjárframlögum að auka starf sitt vestra til að efla kennslu í Norðurlandafræðum þar í samstarfi við heimamenn og sýna í verki gildi norrænnar samvinnu. íslenska er kennd við Tokaihá- skóla í Japan og íslenskt fornmál, bókmenntir og miðaldasaga eru stunduð við nokkra skóla. Þá er starfandi félag íslenskra fræða þar í landi og vináttufélag íslands og Japan. Er mikill áhugi á að auka menningarsamvinnu landanna. Hins vegar er ekki vitað að íslenska sé kennd í Kínaþótt við íslendingar stöndum í menningar- og vináttu- sambandi við Kínverja. Menning- arsamskipti annarra norrænna ríkja við Japan og Kína munu ekki vera hlutfallslega meiri. Engu síður væri það þarft verkefni fyrir nefndina að kynna Norðurlandafræði í báð- um þessum löndum, ekki síst með fyrirlestrum um menningararf Norðurlanda, samfélagshætti í löndunum og margþætt satnstarf þeirra á sviðum félags- og menning- armála. Samvinna ríkjanna á Norður- löndum er einstök. Enga þarf að undra að hagsmunir þeirra fari ekki alltaf saman. En þrátt fyrir það er samstarf þeirra svo marg- háttað, samhugurinn svo mikill, að aðrar þjóðir líta á friðsamlega sam- búð ríkjanna fnnm sem fyrirmynd og-þykir það jafnvei sæta tíðindum að margar þjóðir byggja þessi lönd. Samstarfsnefndin um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis er að- eins lítill angi af norrænni sam- vinnu. En starfsemi hennar til efl- ingar kennslu í Norðurlandamálum og fræðslu um Norðurlönd er mikil- vægt, ekki síst nú á tímum alþjóð- legrar fjölmiðlunar og þjóðabanda- laga þegar menning fámennra þjóða á í vök að veijast. Höfundur er forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.