Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 31 sér að öllum hnöppunum sem hún átti, stundum til að létta á hjarta sínu, heyra sögu eða fá kandís, því amma átti það til að bregða sér í líki galdrakarls sem kunni töfraþui- ur og gat gert ólíklegustu hluti á borð við að galdra fram kandís úr búrhillunni. En það ólíklegasta var þó að þessi baðstofuamma mín var ekki draumsýn heldur af holdi og blóði, sjálfsagður hluti tilverunnar sem barnið þáði umhugsunarlaust og án þess að þakka pent fyrir sig. Eitt var ömmu jafnvel hugleikn- ara en fallegt ljóð og það var land- ið, náttúran íslenska, sérstaklega öræfin. Hún og afi ferðuðust mikið á sumrin um og upp úr sextugsaldr- inum og yfirleitt með Ferðafélagi íslands. Ég var ekki allsendis ókunnug ömmu sem náttúrubarni, þau afi voru ötul að kippa mér með í hálendisferðir þegar ég var þetta sjö til tólf ára gömul. Úti í ís- lenskri náttúru lék amma á als oddi og það duldist held ég engum hvað hún og hálendið áttu vel sam- an. Hún hafði aldrei komið út yfir landsteinana (sagðist að vísu ekkert vera fráhverf því að bera Heidel- berg augum) enda vissi hún sem var að óravíddir Islandsfegurðar- innar myndu endast henni alla ævi. Kristín Elfa Guðnadóttir Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, Hel er f'ortjald hinum megin birtan er. Höndin sem þig hingað leiddi himins til þig aftur ber Drottinn elskar, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Petursson) Okkur langar að minnast elsku- Iegrar fóstursystur og mágkonu. Ásta var fædd á Hafurhesti í Ön- undarfirði, næstelst af ellefu systk- inum. Er hún var um tvítugt missti hún móður sína og fjórum árum síðar föður sinn. Þá var það hlut- skipti Ástu að annast yngri systkini sín, þar á meðal föður okkar, Daní- el. Þau voru alla tíð mjög samrýnd. Minningar tengdar Ástu frænku eru margar en þó helst þær stundir er hún og Ingimundur maður henn- ar dvöldu hjá okkur á Efra-Seli eða í sveitinni hans Danna bróður eins og Ásta sagði svo oft. Þá var tekið til hendinni við heyskapinn, farið í gönguferðir, kýrnár sóttar með okkur krökkunum, sagðar sögur, farið með vísur, alltaf glens og gaman. Ásta kunni nöfn á nánast öllum ljöllum, hæðum og hólum, fuglum, blómum og jurtanöfn. Hún var afskaplega mikil útivistarkona, enda ferðuðust þau hjónin mikið unylandið og höfðu unun af. Ásta og Ingimundur reistu sér hús á Langholtsvegi_96 í Reykjavík. Garðurinn hennar Ástu var sælu- reitur. Þar undi hún sér við að laga og fegra. Mikill gestagangur var á Langholtsveginum, enda vinir og ættingjar margir. Álltaf var frænd- fólkið úr sveitinni svo hjartanlega velkomið og móttökurnar rétt eins og kóngurinn væri í heimsókn. Vinnudagurinn var langur. Aldrei féll lienni verk úr hendi, enda hjón- in mjög atorkusöm og dugleg eins og títt var um fólk af þeirra kynslóð. Ásta var ákaflega hlý og yndisleg kona sem gaf mikið af sjálfri sér og mátti ekkert aumt sjá. Þegar aldurinn færðist yfir og veikindi heijuðu á Ástu og Ingimund önnuð- ust börnin þeirra þau af einstakri hlýju og umhyggju. Ingimundur lést fyrir nokkrum árum, en Ásta hefur dvalið á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli undanfarin ár. Fyrir allt það sem Ásta veitti okkur þökkum við af alhug. Nú eru þau öll látin systkinin frá Hafur- hesti. Eftir lifa yndislegar minning- ar. Guðsblessun fylgi þeim. Börnum Ástu og fjölskyldum þeirra vottum við innlega samúð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ásta mágkona og börn Efra-Seli. Bagnheiður Hannes- dóttír — Minning Fædd 12. ágúst 1932 Dáin 9. febrúar 1994 í byrjun janúar ók ég tengdamóð- ur minni Ragnheiði Hannesdóttur á Borgarspítalann. Það hvarflaði ekki að mér annað en hún ætti aftur- kvæmt. Að komið væri svo skjótt að skilnaðarstund var einfaldlega ekki inni í myndinni. Mín frámsýn var e.t.v. einhver sjúkdómsmeðferð og óvissa varðandi heilsufar hennar. I eigingirni sá ég fyrir mér allnokk- ur ár í viðbót. Áhyggjur mínar sneru fremur að því hvaða breytingar yrðu á einkahögum Ragnheiðar, vinnu hennar og lífi. Vissulega var kvíði fyrir erfiðari tíma fyrir hennar hönd, tíma sem ég og aðrir aðstandendur þurftum ekki að reyna. Kynni mín af Ragnheiði og fjöl- skyldu hennar á Kaplaskjólsveginum byijuðu fyrir u.þ.b. 13 árum. Fljótt var ég velkominn biðill dóttur henn- ar, Rósu Þóru. Kaplaskjólsvegurinn varð heimili mitt í nokkur ár meðan við Rósa vorum í námi. Kynntist ég ágætlega tengdaföður mínum heitn- um og eiginmanni Ragnheiðar, Magnúsi Péturssyni hljómlistar- manni (f. 12. febrúar 1930, d. 28. júlí 1983). Ótímabært fráfall Magnúsar varð Ragnheiði þungbært. Sorg og missir heimilisföður þjappaði lítilli fjöl- skyldu saman og öll samskipti urðu náin og óijúfanleg. Ragnheiður var Reykjavíkurbarn, fædd og uppalin í Þingholtunum. Hún var dóttir Hannesar Jóhannes- sonar kennara (f. 4. nóvember 1893, d. 23. mars 1957) og Þóru Guðlaugs- dóttur (f. 8. júní 1896, d. 19. apríl 1993). Hún átti móðurætt sína að rekja í Fellskot í Biskupstungum og var stolt yfir sveitinni sinni og ætt- fólki þaðan. Ég fékk að vita að fað- ir hennar skipaði sérstakan sess í hjarta hennar. Ég á skemmtilegar og góðar minningar um samveru með Ijórum hressum stúlkum, langömmu, ömmu, mömmu og dóttur. Það gefst ekki öllum. Ég vil minnast Ragnheiðar fyrir vingjarnlegt og glaðlegt viðmót sem ég reikna með að flestir muna sem þekktu hana. Dýpra í Ragnheiði bjó fíngerð lítil og falleg stúlka sem mér þótti afar vænt um. Það gleður mig óneitanlega mikið að ég finn fyrir töfrum þessarar stúlku í eiginkonu minni og vona að svo verði um okk- ar komandi ættliði. Á síðustu árum þótti mér ekki síst aðdáunarvert hve auðveldlega Ragnheiður lék sér við barnabörn sín, litlu stúlkurnar sínar og nálgaðist þær af einlægni barns- ins. Hún veitti börnunum sínum mikla ást og umhyggju og var ávallt reiðubúin að gefa þeim það sem hún gat hveiju sinni. í varkárni sinni hafði Ragnheiður skrifað rétt ófæddu barni mínu og dóttur sinnar bréf sem á stendur: „Litla barnið mitt.“ Skilaboðin segja það sem segja þarf. Élsku Ragnheiður, ég skal varð- veita litlu stúlkuna þína eins vel og ég get. Hvíl þú í friði. Gunnar Hrafn Richardson. Að kvöldi miðvikudagsins 9. febrúar andaðist á Borgarspítalan- um í Reykjavík Ragnheiður Hann- esdóttir, fulltrúi, eftir stutta en erf- iða sjúkralegu. Heilsa hennar og kraftar höfðu farið mjög þverrandi síðustu mánuði og hafði hún gengist undir margar erfiðar og víðtækar rannsóknir. Engu að síður tókst henni að mestu leyti að mæta til starfa sinna hjá Hollustuvernd rík- isins mest allt síðasta ár. Síðustu samverustundir okkar með henni á vinnustað voru um miðjan janúar skömmu áður en hún lagðist á sjúkrahús vegna rannsóknar á lunga. Sú rannsókn leiddi í ljós að um illkynja meinsemd var að ræða sem kallaði á stærri aðgerð. Ragn- heiður komst aldrei til meðvitundar eftir aðgerðina. Skurðaðgerðin og ýmis eftirköst sem henni fylgdu reyndust veikburða líkamskröftum hennar ofviða. Með því fékk Ragn- heiður okkar hvíld frá heilsuleysi, kvíða og einmanaleika, sem ein- kenndi líf hennar í vaxandi mæli síðustu misserin. Ragnheiður Hannesdótíir fæddist þann 12. ágúst 1932 og var hún dóttir hjónanna Hannesar Jóhann- essonar, málarameistara, og Þóru Guðlaugsdóttur. Auk Ragnheiðar áttu þau soninn Guðlaug Hannesson, sem einnig er starfsmaður Hollustu- verndar ríkisins. Guðlaugur, sem er einn virtasti brauðryðjandi á íslandi á sviði gerlafræði og matvælarann- sókna, berst nú fyrir lífi sínu á Land- spítalanum í Reykjavík eftir um- fangsmiklar skurðað-gerðir. Starfs- menn Hollustuverndar biðja honum guðs blessunar í þeirri baráttu með einlægri von um að fá að sjá hann aftur á vinnustað. Ragnheiður ólst upp í Reykjavík og lauk_ prófi frá Verslunarskóla íslands. Árið 1956 gekk hún að eiga Magnús Péturs- son, píanóleikara, tónlistarkennara taka mér svo vel. Þegar ég kom að honum tók hann utan um höfuðið á mér og skríkti. Það var svoleiðis sem hann kelaði við fólk. Þó að Bimmi litli væri oft veikur, þá var ekki langt í þetta fallega bros sem hann gaf þeim sem hann elskaði og þótti vænt um. Mér fannst það algert áfall að heyra að þessi litli vinur minn væri farinn frá okkur; en við getum þó verið ánægð með það að hann þarf ekki að kveljast meir og hann verður alltaf hjá okkur í anda. Elsku Sigurmundur, Inga, Una, Siggi yngri og Steina, ég bið Guð að gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg, en við skulum muna það, að við gefum þá aftur Guði í þeirri trú að við sjáum þá aftur þegar við komum aftur heim til Guðs. Mig langar að ljúka þessu með þessum orðum: Láttu nú Ijósið þitt lýsa við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. og tónskáld. Varð þeim tveggja barna auðið, sem eru Hannes Magn- ússon, gerlafræðingur og deildar- stjóri hjá Rannsóknastofnun fiskiðn- aðarins, kona hans er Elisabeth Cook, lífefnafræðingur og eiga þau eitt barn; og Rósa Þóra Magnúsdótt- ir, BA, maður hennar er Gunnar ^ Hrafn Richardson, forstöðumaður Félagsmiðstöðvar Garðabæjar, og eiga þau eitt barn og annað er í . vændum á næstu dögum. Magnús Pétursson lést árið 1983. Þegar ann- ir Ragnheiðar við hefðbundin heimil- isstörf og barnauppeldi minnkuðu hóf hún störf utan heimilis, fyrst hjá Landsbanka íslands þar sem hún starfaði í um það bil áratug. Árið 1980 hóf Ragnheiður störf sem skrifstofumaður hjá Matvælarann- sóknum ríkisins, sem var undir for- stöðu bróður hennar, Guðlaugs. Þeg- ar Hollustuvernd ríkisins var stofn- sett árið 1982 var starfsemi Mat- vælarannsókna ríkisins felld undir stofnunina og gerðist Ragnheiður þá starfsmaður Hollustuverndar. Hjá Hollustuvernd ríkisins starfaði Ragnheiður síðan óslitið til dauða- dags, fyrst sem skrifstofustjóri rann- sóknastofunar, ritari forstjóra og síðar sl. fjögur ár við almenn skrif- stofustörf á aðalskrifstofu fyrir yfir- stjórn stofnunarinnar. í störfum sín- um fyrir Matvælarannsóknir og Hollustuvernd ríkisins var Ragnheið- ur annáluð fyrir trúmennsku, ná- kvæmni og færni. Ætíð mátti treysta því að bréf og skjöl frá stofn- uninni væru óaðfinnanleg þegar þau komu úr hennar höndum. Við sam- starfsfólk Ragnheiðar sjáum nú á bak tryggum starfsmanni sem unnið hefur við stofnunina frá upphafi. Grimm örlög réðu því að þrek henn- ar og kraftar þrutu langtum fyrr en vænta mætti miðað við aldur. Stjórn og starfsfólk Hollustu- verndar ríkisins þakkar Ragnheiði Hannesdóttur fyrir trúmennsku, góðan félagsskap og vönduð vinnu- brögð á löngum starfsferli hjá stofn- uninni. Börnum hennar og barna- börnum sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ragnheiðar Hannesdóttur. F.h. Hollustuverndar ríkisins, Hermann Sveinbjörnsson. Elsku Sigurmundur minn, ég sakna þín svo mikið. Þín eilífðar vinkona. íris Blandon (yngri). Elsku litli drengurinn okkar, afi og amma kveðja þig með miklum söknuði. Þín allt of stutta ævi veitti okkur og öllum þeim sem þér kynnt- ust svo mikla gleði. Þú kenndir okkur að meta lífið á allt annan hátt en við áður gerðum, skinin milli skúranna í tilveru þinni voru okkur meira virði en allt sem við höfðum áður þekkt. Brosin sem þú gafst okkur, oft og tíðum svo þjáður, geymum við í minningunni allt til þess við hitt- umst öll hjá Guði. Þær stundir sem við fengum að hafa þig heima á daginn þegar þú varst hress eru þær bestu sem við höfum lifað, þessar stundir juku vonina og efldu trú á betri tíma, tíma sem aldrei komu. Að koma í heiminn og eiga aðeins veika von um ein- hveija lífdaga en vera samt svo skýr og vel gerður er sorglegra en orð fá lýst. Við lærðum að meta það hve mikils virði heilbrigðið er. Þú tókst á við sömu annmarka og litla stúlkan sem allur heimurinn fylgdist með á síðasta ári beijast við dauðann eftir mestu líffæraflutninga sem framkvæmdir hafa verið. Þið urðuð bæði undir í baráttunni um lífið, en vonandi varð þessi bar- átta til einhvers, kannski til þess að einhver börn framtíðar sem þjást af því sama, njóti góðs af þeirri þekk- ingu sem hlaust af baráttu ykkar. Elsku litli drengur, nú ert þú kom-. inn til Guðs og laus við þjáningarn- ar, við biðjum hann að vernda þig og blessa um alla eilífð. Við biðjum Guð um að :styrkja foreldra þína og alla þá sem sakna þín nú svo sárt. Þá viljum við þakka öllum þeim sem önnuðust þig, hjúkrunarfólki og öllum öðrum sem studdu þig á stuttri ævi. Jórunn Sigurðardóttir, Sigurður K. Eggertsson. Sigurmundur Sigur- mundsson Fæddur 22. febrúar 1993 Dáinn 8. febrúar 1994 Elsku Simmi minn! Þú varst fyrsta barnið sem ég sá þegar ég var lögð inn á barnadeild Landspítalans í júlí sl. en eftir það vorum við oft saman og áttum marg- ar góðar stundir saman. Eftir að ég fór heim kom ég oft í heimsókn uppá deild 13E. En- nú ert þú farinn, Simmi minn, og við getum ekki leikið okkur saman meir. Ég sem hlakkaði svo til að leika við þig í sumar, en það átti ekki að verða. Þú varst svo duglegur og þín verður sárt saknað en ég gleymi þér aldrei. Okkar tími þó stuttur væri var mér mjög dýrmætur. Guð geymi þig, Simmi minn, og takk fyrir ógleymanlegar stundir. Þín Elísabet. Mig langar að kveðja lítinn en þó dýrmætan vin minn með örfáum orðum. Ég og dóttir mín vorum þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að kynnast Simma litla haustið ’93. Við féllum fyrir honum um leið. Bimmi eins og hann var kallaður af sínum nánustu var yndisiegt barn. Hann var fallegur, blíður, skemmti- legur og einstakur gleðigjafi. Bimmi var oft lasinn og mikið þjáður en alltaf var stutt í brosið sem bræddi hjarta manns. Það var sárt að þurfa að horfa uppá þennan ynd- islega dreng berjast fyrir lífi sínu en það gerði hann svo sannarlega mörgum sinnum. En þær eru líka ófáar skemmtilegu minningarnar frá þeim kvöldum sem við fengum að vera hjá honum á deild 13E á Land- spítalanum. Elsku Bimmi minn, ég gleymi þér aldrei og ég þakka fyrir þau forrétt- indi að hafa fengið að þekkja þig -Mmnmg þennan þó stutta tíma. Það er hugg- un að vita til þess að þessum þján- ingum skuli nú lokið og að þú hvílir nú í örmum Guðs, umvafinn englum hans. Elsku Una, Siggi eldri, Inga og Simmi eldri, Steina og Siggi yngri og allir aðrir ástvinir, megi algóður Guð gefa ykkur styrk og sátt í þéss- ari miklu sorg. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús,' þér ég sendi bæn frá mínu bijósti sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. íris L. Blandon. Mig langar að fá að kveðja lítinn vin minn með nokkrum orðum. Bimmi eins og hann var kallaður af sínum nánustu, fæddist veikur og hefur alltaf þurft að vera á spít- ala. Hann bariðst oft fyrir lífi sínu og það var oft alveg hræðilegt að horfa á þennan litla, fallega dreng kveljast svona. Ég fékk þá Guðs gjöf að fá að kynnast Bimma í október í haust, þá var hann aðeins níu mánaða gam- all. Ég man að það fyrsta sem hann gerði þegar hann sá mig var að skoða mig vel og vandlega eins og hann gerði með alit sem var honum nýtt. En eftir það urðum við góðir vinir. Mér er það minnisstætt að þegar ég og móðir mín fórum upp á spítala til að vera hjá honum var okkur mjög vel tekið af starfsfólki og allt var svo heimilislegt á deild 13 E á Landspítalanum. Sigurmundi hrakaði mjög fyrir um það bil hálfum mánuði, þá byij- aði hann að veijast einu sinni enn. Ég trúði ekki að hann myndi fara, því hann var orðinn svo stór og sterklegur og það var orðið svo gam- an að honum. Hann var farinn að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.