Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Bjarni Helgason
Haraldur Sigurðsson sem Þorvaldur hreppstjóri og formaður þjóðhátíðarnefndar, Edda Björgvins-
dóttir fjallkona, Sigurður Sigurjónsson tamningamaður og Þórhallur Signrðsson fjallkóngur komin
úr gervum sínum og taka við þakklæti þjóðhátíðargesta við lok skemmtidagskrárinnar á Sögu.
Merki þjóðhátíðarinnar er að sjálfsögðu á sölutjaldinu.
Velheppnuð Þjóð-
hátíð á Sögu
Óvei\julegt er að sjá Ragnar Reykás og Magnús bónda saman en
það gerist á Þjóðhátíð á Sögu. Ragnar var á nýrri gerð af Lödu-
jeppa sínum.
Skemmtanir
Helgi Bjarnason
að er orðinn árviss viðburður
að sett sé upp skemmtidagskrá
í Súlnasal Hótel Sögu. Skemmtunin
felst í kvöldverði, skemmtidagskrá
og dansleik. Samkomur þessar hafa
notið vinsælda, ekki síst hjá smærri
jafnt og stærri hópum. Þannig er
mikið um að starfsmannafélög af
landsbyggðinni mæti í Súlnasalinn
og það hefur aukist að starfsfólk
fyrirtækja fari saman, félagasamtök
og saumaklúbbar. Þessir hópar og
jafnvel fleiri verða ekki sviknir af
nýrri skemmtun sem haldin verður
á laugardagskvöldum á næstunni
undir heitinu Þjóðhátíð á Sögu.
Uppselt var á frumsýningu Þjóð-
hátíðar á Sögu síðastliðið laugar-
dagskvöld. Skemmtidagskráin er
tvískipt, fyrri hlutinn er undir borð-
haldi og aðaldagskráin hefst þegar
menn hafa lokið við matinn. Dag-
skráin er brotin upp í mörg stutt
atriði en þau og dagskráin í heild
eru tengd saman með þjóðhátíðar-
haldi 17. júní í litlu samfélagi úti á
landi.
Umgjörð skemmtunarinnar tekur
mið af þjóðhátíðarhaldinu, barimir
eru orðnir að sölutjöldum fyrir pyls-
ur og blöðrur og íslenski fáninn er
áberandi.
Lambahryggur fjallkóngsins
Á matseðlinum er hægt að velja
um humarfyllta laxavefju hrepp-
stjórans eða kampavínsbætta þjóð-
hátíðarsúpu með kjúklingum og
þistlum. í aðairétt er gi'illsteiktur
lambahryggur framreiddur með
smjörristuðum jurtum fjallkóngsins
eða hunangsgljáður grísahryggur
fjallkonunnar eða grænmetisréttur
Sögufélagsins. í eftirrétt er boðið
upp á hindbeijatertu kvenréttinda-
konunnar eða ístertu djáknans. Und-
irritaður hefur stundum farið á svip-
aðar samkomur og gerir sér grein
fyrir því hvað erfitt er að elda og
bera fram fjöldaframleiddan mat svo
öllum líki en orðið Ijúfmeti lýsir best
lambahryggnum. Þá var þjónustan
einnig til mikillar fyrirmyndar.
Þorvaldur hreppstjóri og formað-
ur þjóðhátíðamefndar setti samkom-
una og undir borðhaldi var harmon-
íkuleikur Jónu Einarsdóttur, dans-
flokkurinn Battú sýndi listir sínar
og Reynir Guðmundsson (nýr Raggi
Bjarna á Sögu?) söng. Þá var fjölda-
söngur, „brekkusöngur á Þjóðhátíð".
Þjóðþekktar persónur
Björn G. Björnsson leikstýrir há-
tíðardagskránni sem er í höndum
fjögurra úr landsliði skemmtikraft-
anna, þeirra Þórhalls og Haralds
Sigurðssona, Sigurður Siguijónsson-
ar og Eddu Björgvinsdóttur. Koma
þau fram í allra kvikinda líki, en
þjóðþekktar persónur eru þó áber-
andi. Meðal persóna og atriða má
nefna Þorvald hreppstjóra, Hrafn
Gunnlaug Oddsson, séra Kristin,
Kristján heiti ég Ólafsson, fjallkon-
una Úrsúlu von Knapen, Bjama
Fel, skátann, björgunarsveitarmann,
nýbúa, þjóðlagatríó, Dengsa, Beru
XL, verði laganna, Ladda í gervi
Bubba, veru að handan, Ragnar
Reykás og Magnús bónda. Skipting-
ar voru hraðar og aldrei dauður
punktur í rúma klukkustund.
Hljómsveitin Saga Klass ásamt
söngvurunum Berglindi Björk Jón-
asdóttur og Reyni Guðmundssyni lék
síðan fyrir dansi.
Töluvert virðist vera lagt í Þjóð-
hátíð á Sögu. Undirritaður skemmti
sér vel. Er það eini mælikvarðinn
sem hann getur notað um skemmtun
sem þessa sem ávallt hlýtur að ráð-
ast af persónuiegum smekk fólks.
Virtist fólk almennt njóta kvöldsins.
Miði á skemmtunina kostar 4.700
krónur. Hótel Saga býður fólki sem
ekki vill nýta sér tjaldstæðin sérkjör
þar sem skemmtunin ásamt gistingu
í eina nótt kostar 7.300 kr.
Það fer ekki á milli mála að verkið er líflegt á sviði,
FJÖLBRAUTASKÓLI BREIÐHOLTS
Flytja Elsku Gæsku
á Hótel Islandi
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hélt
árshátíð sína nýverið og í tilefni
af því var settur upp söngleikurinn
„Elsku Gæska“, eða „Sweet Cha-
rity“ eins og hann er nefndur á frum-
málinu. Hera Björk, nefndur „mark-
aðsstjóri" Breiðhyltinga í tengslum
við sýninguna sagði þetta viðamikla
uppfærslu sem um 120 nemendur
tækju þátt í. Aðalæfing var á mánu-
dagskvöld og frumsýning í gærdag.
Aukasýning verður svo á fímmtu-
dagskvöld klukkan 20, en sýningar-
staðurinn er Hótel ísland. Verkið er
eftir Neil Simon og hefur verið gerð
kvikmynd að því þar sem Shirley
McLaine og Sammy Davis yngri
voru meðal leikenda, en verkinu var
þá leikstýrt af Bob Fosse.
Sagan er um vændiskonuna Elsku
Gæsku, sem vill fyrir alla muni losna
úr viðjum síns lífernis, en tekst það
svona upp og ofan. Hlutverk hennar
er í höndum Þórdísar Evu Þorleiks-
dóttur, en önnur aðalhlutverk eru í
höndum Eiríks Kristinssonar sem
leikur Óskar, Bóasar Valdórssonar,
sem fer með hlutverk „Pabba P“,
og þeirra Stellu Guðnýjar Kristjáns-
dóttur og Guðrúnar ðlu Jónsdóttur
sem leika vændiskonumar Stellu og
Gógó. Katrín Ólafsdóttir dansari er
leikstjóri, en Hera Björk markaðs-
stjóri sagði það þó ekki vísbendingu
um einsleitt eðli sýningarinnar, held-
ur væri verkið jöfnum höndum dans,
leikur og söngur.
Tólf manna hljómsveit flytur tón-
list Harðar Bragasonar og Hera vildi
auk þessa alls þakka Páli Óskari
Hjálmtýssyni fyrir aðstoð hans við
þýðingu á söngtextum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þórdís Eva Þorleiksdóttir í hlut-
verki Elsku Gæsku ásamt með-
leikara sínum..
Hera Björk svaraði því til aðspurð
að ekki væri fyrirhugað að ferðast
með sýninguna að hætti Verslunar-
skólanema, „Verslingarnir lögðu
mikla vinnu í sitt verkefni og það
er stórt í sniðum. Það er glæsilega
gert hjá þeim, en við kusum að hafa
okkar smærra í sniðum, hafa það
meira bara fyrir skólann," svaraði
markaðsstjórinn.
KOSNING
Reuter
Rómantískasti maður Bretlands
Knattspyrnumaðurinn Anthony Argyle var nýverið kjörinn rómantísk-
asti maður Bretlands árið 1994 en hann lét birta bónorð til unnustu sinnar
á Ijósaskilti á leik liðs hans, Plymouth. Unnustan játaðist Argyle í hálf-
leik og giftust þau í síðasta mánuði. Auk titilsins hlýtur Argyle ferð til
Hong Kong, 75.000 krónur og ársbirgðir af súkkulaði, en ekki fylgdi
sögunni hversu mikið magn það er. Á myndinni heldur Argyle á leikkon-
unni Britt Ekland, sem afhenti honum verðlaunin.