Morgunblaðið - 16.02.1994, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994
MICHAEL KEATON
KEANU REEVES
DENZEL WASHINCTON
KENNETH BRANAGH
ROBERT SEAN LEONARD
EMMA THOMPSON jmtö
■UCH %
acmdabouiI
NOrHINGtó,'
ÍAftKy. AKRSm
HASKOLABIO
SÍMI 22140
Spennumynd með Al Pacino (Scent of a Woman, Scarfece) og Sean
Penn (Indian Runner) í aðalhlutverkum. Pacino afbragð að vanda og
Sean Penn hefur verið orðaður við Óskarinn. Sýran og diskóið nýtur
sín fullkomlega í nýju DTS DIGITAL hljóðkerfi HÁSKÓLABÍÓS.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Háskólabíó
STÆRSTA BIOIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
Undir vopnum
Vanrækt vor I Ys og þys út af engu
irk-kk-k B.T.
kkkkk jE.B.
kkkk NY POST
*k*k EMPIRE
Storkostleg mynd sem hefur hlotiö
mikiö lof gagnrýnenda.
kkkMBL kkkfíás 2 kkkDV
Sýndkl. 5,9.05 og 11.15.
Addams
fjölskyldugildin
Sönn ast I Móttökustjórinn
Grín- og spennumynd með CHRISTOPHER LAMBERT og MARIO VAN
PEEBLES í aðalhlutverkum. Fíkniefnalögreglumaður handtekur glæpa-
mann og í Ijós kemur, að hvor þeirra um sig býr yfir helmingi af leyn-
darmáli sem mun gera þá forríka, ef þeir drepa ekki hvorn annan fyrst.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
ZIA MAHMOOD VANN FLUGLEIÐABIKARINN ENN EINU SINNI
Erum stoltir
af þessum sigrí
Brids
Guðmundur Sv. Hermannsson
ZIA Mahmood vann með sveit
sinni eyin einn sigurinn á Flug-
leiðamóti Bridgehátíðar á
mánudag. I þau 13. skipti sem
Bridgehátið hefur verið haldin
hefur Zia nú unnið Flugleiða-
mótið fimm sinnum. Að þessu
sinni voru sveitarfélagar hans
Bart Bramley, Mark Molson og
Russ Ekeblad. Islenskar sveitir
urðu að þessu sinni i öllum
öðrum verðlaunasætum en 80
sveitir tóku þátt í mótinu.
„Við erum stoltir af þessum
sigri, ekki síst vegna þess að í
2. sæti var sveit með þremur
heimsmeisturum," sagði Zia þeg-
ar hann tók við verðlaununum.
En í 2. sæti varð sveit Lands-
bréfa þar sem spila Guðmundur
Páll Arnarson, Þorlákur Jónsson,
Jón Baldursson, Sævar Þor-
bjömsson og Sverrir Ármanns-
son. í þriðja sæti varð sveit Raf-
magnsveitna Reykjavíkur, en í
henni spiluðu Jakob Kristinsson,
Matthías Þorvaldsson, Páll Valdi-
marsson og Ragnar Magnússon.
Þessar sveitir fengu jafn mörg
stig en sveit Landsbréfa vann
innbyrðisleik þeirra. I 4. sæti urðu
sigurvegarar síðustu Bridgehá-
tíðar í sveit Glitnis, sem skipuð
var Birni Eysteinssyni, Aðalsteini
Jörgensen, Helga Jóhannssyni og
Guðmundi Sv. Hermannssyni og
í 5. sæti varð sveit Brynjólfs
Gestssonar frá Selfossi en auk
hans spiluðu Ríkarður Sverrisson,
Sigfinnur Snorrason, Steinberg
Ríkharðsson^ Þórður Sigurðsson
og Þröstur Árnason.
frarnir byrjuðu best
Fyrirkomulagið á Flugleiða-
mótinu var það sama og undan-
farin ár: 10 umferðir með 10
spila leikjum eftir monradkerfi.
Sveit Heidi Lillis frá írlandi byij-
aði best og hafði fullt hús eftir
tvær umferðir en datt síðan niður
stigatöfluna. Sveit Rafmagn-
sveitnanna tók þá forustu um
tíma. Siglfirsku bræðrunum í
sveit Sparisjóðs Sigluijarðar gekk
einnig vel og þeir mættu Zia í
6. umferð á sýningartöflu. Þeir
virtust byrja vel í leiknum en eft-
ir þrjú spil kom í ljós að sveitim-
ar sátu eins við bæði borð svo
þessi þijú spil voru strikuð út.
Zia vann svo leikinn 19-11 og tók
forustuna og sleppti henni ekki
eftir það.
Fyrir síðustu umferð var Zia
með 176 stig en Brynjólfur var
í 2. sæti með 169 stig eftir að
hafa unnið Zia 18-12 í 9. um-
ferð. Rafmagnsveiturnar voru í
3. sæti með 167 stig og Lands-
bréf í 4. með 163 stig. I síðustu
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Líður vel á Islandi
MÉR líður svo vel á, íslandi að ég kem og spila við sonarsyni
ykkar ef ég má, sagði Zia Mahmood eftir að hafa tekið við sigur-
laununum í Flugleiðamótinu. Á myndinni eru sveitarfélagar Zia,
Bart Bramley, Mark Molson og Russ Ekeblad og Helgi Jóhanns-
son forseti Bridgesambands íslands, sem afhenti verðlaunin.
Komu á óvart
SVEIT Brynjólfs Gestssonar frá Selfossi kom nokkuð á óvart í
Flugleiðamótinu. Hún var ein af fáum sveitum sem vann Zia og
átti mögulcika á sigri fyrir síðustu umferð. Frá vinstri eru Þröst-
ur Árnason, Steinberg Ríkharðsson, Brynjólfur Gestsson, Sigfinn-
ur Snorrason, Þórður Sigurðsson og Ríkharður Sverrisson.
umferðinni spiluðu saman sveitir
Zia og Rafmagnsveitnanna og
Brynjólfs og Landsbréfa og áttu
allar möguleika á sigri á mótinu
með hagstæðum úrslitum. En Zia
og Rafmagnsveiturnar gerðu
jafntefli, 15-15, og Landsbréf
unnu Brynjólf 19-11. Þegar
Glitnismenn unnu sænsku Evr-
ópumeistarana í kvennaflokki
24-6 í síðustu umferðinni komust
þeir upp að hlið Brynjólfs og
fengu 4. sætið þar sem þeir höfðu
spilað við stigahærri andstæð-
inga.
Lokastaðan var þessi:
Zia Mahmood 191
Landsbréf 182
Rafmagnsv. Rvíkur 182
Glitnir 180
Brynjólfur Gestsson 180
Magnús Magnússon 172
Bíóbarinn 172
Noregur II 170
S. Ármann Magnússon 170
Sparisj. Siglufjarðar 169
Björn Theódórsson 169
Total Tricks 169
Athygli vakti að norska lands-
liðið náði sér aldrei á strik í
sveitakeppninni og endaði í
18.-19. sæti. Sænska kvenna-
landsliðið var hins vegar ofarlega
allt mótið þar til það hrapaði í
síðustu umferðinni niður í 23.
sæti.
í verðlaunaafhendingunni eftir
mótið sagði Zia Mahmood að
hann hefði gert sér grein fyrir
að aldurinn væri að færast yfir
sig, þegar hann uppgötvaði að
hann hefði nú spilað við syni
keppinauta sinna á fyrstu Bridge-
hátíðunum sem hann tók þátt í.
Hins vegar liði honum svo vel á
Islandi að hann myndi koma og
spila við sonarsynina ef hann
mætti.
Toyota Landcruiser árg. '86, langur, dies-
el, ek. 200 þ. km., brúnsans, 33“ dekk.
Verö 1550 þús. Einnig Landcruiser árg. ’87,
turbo diesel.
Cherokee LTD árg. ’89f hvítur, 4,0L, ek.
95 þ. km., sjálfsk., leöursæti, álfelgur o.fl.
Verö 1950 þús.
MMC L-300 sendibíll árg. ’92, hvítur, ek.
50 þ. km. Verö 1070 þús.
Subaru Legacy station árg. '91, brúnsáns,
ek. 87 þ. km., 1,8L, sjálfsk. Verð 1380 þús.
Toyota Hi Lux Ex. Cab árg. '91, steingrár,
32“ dekk, krómfelgur, plasthús. Verð 1200
þús.
BÍLASALAN BÍLDSHOFÐA 3, SIMI 670333