Morgunblaðið - 16.02.1994, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994
VETRAROLYMPIULEIKARNIR I LILLEHAMMER
Diann Roffé stal senunni
BANDARÍSKA skíðakonan
Diann Roffe, heimsmeistari í
stórsvigi 1985, tryggði landi
sínu önnur gullverðlaunin á
Ólympíuleikunum er hún sigr-
aði í risasvigi í gær. Roffe fór
fyrst niður harða brautina og
náði fábærum tfma, 1.22,15
mín. en brautin var 2.035 metra
iöng. Roffe varð önnur í stórs-
viginu f Albertville en var stað-
ráðin í að láta það ekki endur-
taka sig.
Roffe, sem er 31s árs og með
eldri alpagreinakonum Ólym-
píuleikanna, sagði að þessi árangur
kæmi sér ekki sérlega á óvart, „en
ég gæti trúað að margir væru hissa
á að ég skyldi sigra,“ sagði hin
26 ára Roffi eftir sigurinn. „Ég
renndi. mér af hjartans list og
ánægju og það er skýringin. Ég
veit ekki hvers vegna Bandaríkja-
mönnum gengur svona vel þegar
á reynir, en ég skíðaði mjög vel
um miðhluta brautarinnar og eins
neðsta hluta hennar.“
„Það var erfitt að bíða í markinu
, . eftir að allar stúlkurnar höfðu
rennt sér niður. Ég var mjög
taugaóstyrk og þorði ekki að fagna
fyrr en keppninni var lokið,“ sagði
bandaríski Ólympíumeistarinn.
Hún var ekki einu sinni í fyrsta
ráshópi í risasvigi heimsbikarsins
í vetur, enda stórsvigið hennar
sérgrein. Það voru því sem áttu
von á að stæli senunni í Lilleham-
mer.
í öðru sæti varð rússnesk stúlka,
Svetlana Gladisheva, en hún var
„ v með rásnúmer 35 og árangur
hennar því mjög góður. Hún er
fyrsti keppandinn frá fyrrum Sov-
étríkjunum sem vinnur til verð-
launa í alpagreinum. Þriðja varð
heimsmeistari unglinga í risasvigi,
Isolde Kontner frá Italíu, en hún
var önnur í rásröðinni, næst á eft-
ir Roffe. Með því að komast upp
á milli Roffe og Kontner ýtti Gla-
Reuter
Diann Roffe (fyrir miðju) kom mjög á óvart í gær er hún varð
Ólympíumeistari í risasvigi kvenna og færði Bandaríkjunum önnur
gullverðlaunin í alpagreinum á leikunum. Svetlana Gladischeva frá
Rússlandi (t.v.) varð önnur og ítalska stúlkán Isolde Kostner þriðja.
disheva sænsku stúlkuna Pernillu
Wiberg út af yerðlaunapallinum.
Margar snjallar skíðakonur
náðu ekki að ljúka keppni, enda
brautin erfið og hörð. Þar á meðal
voru svissneska stúlkan Heidi
Zúrbriggen Katja Seizinger frá
Þýskalandi og ítalska stúlkan Bib-
iana Perez. Alenka Dovzan frá
Slóveníu, sem sigraði í heimsbikar-
móti í Cortinu á Italíu fyrir
skömmu, gerði heiðarlega tilraun
til að ná betri tíma en Roffe — var
með besta millitímann
en skömmu síðar sleppti
hún porti og þar með var
draumurinn búinn.
Sömu sögu er raunar að
segja af löndu hennar,
Spelu Pretnar, sem var
með rásnúmer 28. Hrað-
inn var of mikill fyrir
hana og það fór fyrir
henni eins og svo mörg-
um keppendum, hún
keyrði út úr brautinni.
ÁSTA S. Halldórsdóttir frá ísafirði
fann sig ekki í risasviginu á Ólympíu-
leikunum í gær eins og svo margar
fleiri stúlkur. Hún keyrði útúr braut-
inni, sem var mjög erfið, eftir einn
þriðja hluta hennar og hætti keppni.
Ásta var svekkt yfir gengi sínu og
ákvað að fara strax eftir keppnina til
Östersund í Svíþjóð þar sem hún ætlar
að undirbúa sig fyrir keppnina í stór-
svigi og svigi, en svigið er hennar sterk-
asta grein og þar gerir hún sér vonir
um að verða á meðal 20 efstu. Hún
ætlar að keppa á móti í Áre á laugar-
daginn og kemur aftur til Lillehammer
eftir helgi.
■ GERHÁRD Rainer bobb-
sleðamaður og lögreglumaður frá
Innsbriick í Austurríki var send-
ur heim frá Lillehammer á
laugardaginn, daginn sem Ólymp-
íuleikarnir voru settir, eftir að hann
hafði fallið á lyfjapró fi sem tekið
var fyrir leikana í Austurríki.
Hann hafði tekið inn steralyf til
að flýta fyrir bata vegna meiðsla.
■ TONYA Harding, bandaríska
skautastúlkan sem svo mjög hefur
verið sviðsljósinu að undanförnu
vegna árásarinnar á Nancy Kerr-
ingan, segist vera með tilboð frá
Playboy-útgáfunni um að sitja
fyrir eftir Ólympíuleikana í Lille-
hammer og fær hún fyrir það um
15 milljónir íslenskra króna. Ólíkt
hafast þær að stöllurnar því Kerr-
ingan hefur fengið tilboð um að
leika í sjónvarpskvikmynd.
■ NORÐMENN, sem hafa unnið
flest verðlaun á Ólympíuleikun-
um það sem af er, gerðu góðlát-
legt grín af frændum sínum og
grönnum, Svíum , í norska Dag-
bladet í gær. í fyrirsögn blaðsins
sagði; „Noregur efst en Svíþjóð
á sama stalli og Fijieyjar “ —
hafa enn ekki unnið verðlaun.
Norðmenn hafa unnið tvenn gull-
verðlaun og þrenn silfurverðlaun.
■ NORSKA veðurstofan er með
útibú í Lillehammer meðan á leik-
unum stendur og þar verða stöðugt
átta veðurfræðingar og fimm að-
stoðarmenn á vakt allan sólar-
hringinn. Nákvæmar veðurmæl-
ingar og spár skipta mótsstjórn,
þjálfara og skíðasmurningsmenn
afar miklu máli og getur ráðið
úrslita áhrifum á árangur í keppn-
inni.
Fjórða gull Egerovu
Kirvesniemi, sem er 38 ára, krækti sér í brons
Di Centa vann önnur verðlaun sín
Lyubov Egorova frá Rússlandi,
sem sigraði í tveimur greinum
í Albertville, var fyrst í mark í 5
km göngu með hefðbundinni aðferð
í Lillehammer í gær. Þetta var fyrsti
sigur hennar í greininni á alþjóða
móti og þar með eru ólympíugullin
orðin fjögur, en hún hefur aldrei
hafnað neðar en í öðru sæti í þeim
sjö greinum, sem hún hefur keppt
í á Ólympíuleikum. Manuela Di
Centa frá Italíu hafði sætaskipti við
Egorovu frá því í 15 km göngunni,
en Maija-Liisa Kirvesniemi frá
Finnlandi, fyrrum ólympíumeistari,
sem er 38 ára, varð í þriðja sæti
og er elsti finnski verðlaunahafinn
á Vetrarólympíuleikum.
Rússneska gull- og silfurstúlkan
var 19,5 sekúndum á undan ítölsku
stöllu sinni í mark og lauk keppni
á 14.08,8 mínútum í 18 stiga frost-
inu. Engin stúlka hefur sigrað í
fleiri norrænum greinum á Olymp-
íuleikum og hún er í fjórða sæti á
lista verðlaunahafa kvenna í sögu
leikanna. Egorova á eftir að keppa
í þremur greinum og haldi hún
uppteknum hætti skýst hún upp að
hlið löndu sinnar Raisu Smetaninu,
sem hefur fengið 10 verðlaun á
Vetrarólympíuleikum.
Kirvesniemi, sem sigraði í öllum
þremur einstaklingsgreinunum í
Sarajevo 1984 (eftirnafn hennar
var þá Hamalainen), vann til ólymp-
íuverðlauna i sjötta sinn,en hún var
7,7 sekúndum á eftir Di Centa.
„Það kom mér að vissu Ieyti á óvart
að fá bronsið, en draumurinn var
að vinna til verðlauna á þessum
leikum," sagði hún.
Maijut Rolig frá Finnlandi, sem
átti titil að veija, varð í 14. sæti
og rússneski heimsmeistarinn Lar-
issa Lazutina hafnaði í sjötta sæti.
Egorova sagði sigurinn ánægju-
legri en gullin í Albertville. „Þá sá
ég aðeins ólympíufánann og heyrði
ólympíusönginn við verðlaunaaf-
hendinguna, sem var ekki nógu
gott, en nú var rússneski fáninn
dreginn að húni og það var mun
betra.“
tVALSMÓTIÐ
í BRIDGE
verður haldið í Valsheimilinu mánudagana
21. og 28. febrúar kl. 20.00.
Skráning hjá húsverði í síma 11134.
Tvímenningur, keppnisgjald kr. 1.000 á
mann fyrir bæði kvöldin.
1. verðlaun kr. 6.000.
2. verðlaun kr. 4.000.
3. verðlaun kr. 2.000.
Allir spilarar velkomnir.
Nefndin.
Dómarar
LISTSKAUTAHLAUP
Listskautahlaup skiptist í
þrjár greinar; einstaklings-
keppni, parakeppni og
ísdans eöa skautadans.
Einstakllngs- og parakeppnl
Keppnin í þessum greinum skiptist í tvo hluta; grunn-
æfingar (stutt atriði) og frjálsar æfingar (langt atriði).
Æfingarnar eru gerðar við tónlist sem keppendur velja
sjálfir.
IsdansMBBBBKBBSBBHHBBHBsti
Skiptist í þrjá hluta;
Skylduæfingar: Keppendur sýna tvo skyldudansa.
Grunnæfingar: Parið velur tónlistina sem verður
að passa við fyrirfram ákveðnar æfingar.
Frjálsar æfingar: Keppendur mega dansa
við hvaða takt sem er, en atriðið má
vera lengra en 4 mfnútur.
Dómgæsfa
Níu alþjóðlegir dómarar
gefa einkunnir i hverri
keppni. Hver dómari
gefur hverjum kepp-
anda eða pari einkunn
(0.00 - 6.00) fyrir tækni
og listræna tjáningu
Torvill og Dean
Breska skautaparið sem
varð Ólympiumeistari
iisdansi 1984 er
varö m.a.
té
Skautar
Skauta-blöðin eru
íhvolf þannig að
aðeins brúnirnar
snerta svellið.
Mest nlu
dómarar
Axel-Paulsen
stökk
Margar ælíngar og stökk
eins og sýnt er hér til hliöar
eru nefnd eftir frægum listhlaupurum.
DAGSKRÁ Feb13 Grunnæfingar * (patak.) Feb 20 Grunnæfinar (isoans)
Feb 15 Frjálsar æfingar PaHIY f5Snmn»finnðí', - Ht, (parak.) Feb 21 Frjálsar æfingar (fsdans)
Feb18 Skylduæfingar (ísdans) Feb 25 Frjálsar æfingar ' ilNyiiUlj; (konur)
Feb 19 Frjálsaræfingar (kariar) Feb26 Sýníng ■HHHÉ