Morgunblaðið - 10.04.1994, Blaðsíða 11
i~
MORGUNBLAÐIÐ MENNIiUGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1994 B 11
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Hringferd Bubbi á Tveimur vinum fyrir skemmstu.
Bubbi á
faraldsfæti
BUBBI Morthens leggur nú síðustu hönd á breiðskífu
sem hann hyggst taka upp með vorinu, en áður fer
hann um landið í mikla tónleikaferð. Sú ferð hefst á
miðvikudag og stendur til 21. mars, en á þeim tíma
heldur hann 33 tónleika.
Bubbi hefur verið að
kynna væntanlega
plötu á tónleikum undan-
farið og meðal annars leik-
ið á höfuðborgarsvæðinu
og á Vesturlandi.
Tónleikaför Bubba hefst
á Selfossi á miðvikudag,
14. apríl, en síðan leikur
hann 15. á Hvolsvelli, 16.
Kirkjubæjarklaustri, 17. í
Vík, 19. á Hornafirði, 20.
Djúpavogi, 21. Neskaup-
stað, 22. Seyðisfirði, 23.
Eskifirði, 24. Egilsstöðum,
25. Fáskrúðsfirði, 26.
Borgarfirði eystri, 27. og
28. Vopnafirði, 29. Raufar-
höfn, 30. Húsavík, 3. mars
á Ólafsfirði, 4. Dalvík, 5.
Akureyri, 6. Siglufirði, 7.
Skagaströnd, 8. Hvamms-
tanga, 10. Hólmavík, 11.
Súðavík, 12. Suðureyri, 13.
Bolungarvík, 14. Flateyri,
15. Þingeyri, 17. Bíldudal,
18. Tálknafirði, 19. Pat-
reksfirði, 20. Króksfjarðar-
nesi og 21. á Grundarfirði.
Nýfæddur fugl
ÞAÐ má segja að í ljósi sögunnar sé það hið besta mál
að Todmobile hafi lagt upp laupana, því niðurstaðan er
tvær ferskar hljómsveitir og nýstárleghar, Bong og Twe-
ety, þó Bong eigi sér reyndar lengri sögu; hafi orðið tii
áður en Todmobile hætti að verða til. Eyþór Arnalds og
Móeiður Júníusdóttir eru liðsmenn Bong, en Tweety, sem
kveður sér hljóðs á safnplötunni Ringulreif, skipa Þor-
valdur Bjarni Þorvaldsson og Andrea Gylfadóttir.
Tweety á lag á væntan-
legri safnplötu Spors,
Ringulreif, en Þorvaldur segir
nafn sveitarinnar komið frá
litlum fugli, það sé allt breytt
í þeirra lífí „og nýfæddur
fugl átti bara vel við“.
„Þegar Todmobile stoppaði
losnuðum við undan vissum
væntingum um að vera alltaf
að gera eitthvað „þungt“.
Núna erum við að fást við
popptónlist og langar til að
taka mið af því sem hefur
verið að gerast undanfarið
sem er þá kannski helst dans-
tónlist; þar er nýjabrumið."
Þorvaldur og Andrea segj-
ast vera
búin að
semja
grúa laga
og eru
þegar
byijuð að
taka upp
plötu sem
koma á
út í haust.
Þá plötu
hyggjast
þau fara
með í far-
teskinu
út í sept-
ember,
hvort sem
Morgunblaðið/Kristinn
Fuglavinir Þorvaldur og Andrea Twe-
ety.
farið verður til Lundúna eða
Amsterdam. Þar á að leita
til tónblendla til að end-
urvinna einhver laganna og
um leið kanna áhuga á út-
gáfu ytra.
Þau Þorvaldur og Andrea
leggja áherslu á að þau ætli
ekki að einangrast í hljóðveri
og treysta á segulbönd þegar
troða á upp. „Við viljum spila
þessa tónlist með lifandi
hljóðfæraleikurum og okkur
þyrstir reyndar í að spila
þessi lög á tónleikum," segir
Þorvaldur og bætir við að þau
hyggist byija á slíku innan
fárra vikna. „Ég hef beina
þörf fyrir
að spila á
tónleikum
þá tónlist
sem ég er
að fást
við,“ segir
Andrea,
„og það
verður
gaman að
byija að
spila,
hvemig
svo sem
það þróast
þjá okk-
ur.“
.,1
Mogunblaðið/Þorkell
Utúrdúr Jóhann og Guðmundur Reptilicusar.
Hljóðabanki
MEÐ sérstökustu hljóm-
sveitum landsins er
tölvudúóið Reptilicus, sem
vakið hefur athygli fyrir
sérstaka tónlist og útgáfu.
Fyrir skemmstu sendi
dúóið frá sér diskinn De-
signer Time í samvinnu
við Hafler tríóið.
Reptilicus skipa þeir
Guðmundur Markús-
son og Jóhann Eiríksson,
en Andrew McKenzie leiðir
Hafler tríóið svonefnda.
Guðmundur segir grunniiin
að plötunni hafa verið lagð-
an þegar þeir fóru í frysti-
klefa í gamla SS húsinu í
byijun árs 1992 og tóku upp
tæpan klukkutíma af hljóð-
um. Það haust bútuðu þeir
hljóðin í tölvutækan hljóða-
banka sem þeir svo unnu
DÆGURTONLIST
Erframtíb rokksinsfortíd þess?
Fmmtil
fortíðar
EIN af bestu plötum ársins 1991 var Screamad-
elica með bresku rokksveitinni Primal Scream.
Þar steyptu sveitarmenn, undir stjórn Bobbys
Gillespies söngvara og lagasmiðs, saman gamal-
dags vaggi og veltu við dansmúsík og úr varð
tónlist sem fjölmargir féllu fyrir á ólíkum forsend-
um. Eftir þetta heyrðist ekkert frá sveitinni þar
til fyrir stuttu að hún sendi frá sér breiðskifuna
Give Out But Don’t Give Up. í kjölfarið hefur
hver um annan þveran lýst því að í þeirri plötu
felist framtíð breska rokksins þó platan hljómi
eins og hún hafi komið út 1974.
Primal Scream stofnaði
Bobby Gillespie eftir
að hafa leikið á trommur
með The Jesus and the
Mary Chain um miðbik
_______________ níunda
áratug-
arins.
Bobby
heillaðist
af ann-
ars kon-
ar tónlist
en
hljóm-
sveitar-
félagar hans; hann vildi
verða rokkstjarna. Fyrstu
smáskífur Primal Scream
sýndu og glöggt hvert
stefndi, því þó tónlistin
eftir Árna
Motthíasson
hafi verið mjög í anda
dansrokks þeirra tíma fór
ekki á milli mála að liðs-
menn sóttu styrk I rokk
og ról sjöunda og áttunda
áratugarins. Breiðskífan
Screamadelica vakti svo á
sveitinni gríðarlega at-
hygli á árinu 1991, enda
varð hún snemma eftir-
læti dansóðra ekki síður
en rokkþyrstra, sem sóttu
í upprunalegt og kraft-
mikið vagg og veltu sveit-
arinnar. Sérstaklega dáðu
þeir síðarnefndu lög eins
og Moving on Up og Dam-
aged, enda sat þar við
upptökutakkana Jimmy
Miller, sem stjórnaði upp-
tökum á Rolling Stones-
Fram og aftur Primal Scream
breiðskífunum Let it Ble-.
ed og Sticky Fingers
Bobby Gillespie segir
að velgengni Screamad-
elica hafí verið sveitinni
erfið, því eftir að sveitin
hætti að fylgja þeirri plötu
eftir hafði hann fátt fyrir
stafni en reika stefnulaust
um stórhýsi sitt og hugsa.
Eftir þunglyndi og trega
drifu liðsmenn Primal
Scream sig til Bandaríkj-
anna og settu saman
breiðskífuna í hótelher-
bergjum og hljóðverum í
Memphis og Los Angeles.
Obbinn af plötunni var
hljóðritaður í Muscle Sho-
als hljóðverinu í Memphis
undir stjóm Toms Dowds,
sem meðal annars var við
takkana hjá Arethu
Franklin í árdaga, en
einnig komu við sögu Jim
Dickinson, sem vann mik-
ið með Rolling Stones,
Memphis-hornaflokkur-
inn goðsagnakenndi og
Muscle Shoals-hrynsveit-
in. í Los Angeles kom svo
til guðfaðir fönksins, Ge-
orge Clinton, sem leggur
til fönkfrasa og meira að
segja rödd í einu lagi.
Eins og áður segir hafa
margir viljað meina að
framtíð breska rokksins
felist í þessari plötu Pri-
mal Scream, sem hefði
eins getað komið út fyrir
tuttugu árum eða svo
(sumir hafa sagt plötuna
bestu Rolling Stones-
plötu síðan Exile on Main
Street), og má til sanns
vegar færa að Gillespie
og félagar hafi náð að
festa á plast gamanið og
hættuna sem var hreyfiafl
rokksins á sjöunda og átt-
unda áratugnum, en hvarf
svo I hljóðfærafimleika,
rokksirkus og dópvímu.
Um leið eru transdans-
sprettir á plötunni sem
hefðu ekki getað orðið til
nema í upphafi tíunda
áratugarins, sem gera að
verkum að þó horft sé um
öxl er framtíðarsýnin ekki
síður sterk, ef vel er að
gáð.
uppúr, en rödd á plötunni
leggur klámlistakonan Alice
Sprinkle til.
„Við vissum ekkert hver
niðurstaðan yrði,“ segir
Guðmundur, „þegar við fór-
um af stað að búa til hljóða-
bankann. Þegar allt var svo
komið inn á tölvur völdum
við okkur hljóð og unnum
verkin út frá þeim. Það unn-
um við á tímabilinu septem-
ber til desember og síðan
tókum við okkur nokkra
klukkutíma í hljóðveri í
mars fyrir ári og lukum við
verkið."
Guðmundur segir að
þetta samstarf þeirra Rept-
ilicusliða og McKenzies sé
einskonar útúrdúr í starfi
Reptilicusar, því þeir Jó-
hann séu að hljóðrita næstu
breiðskífu sveitarinnar með
liðsinni McKenzies.
Ekki segir Jóhann sér-
stakt tónleikahald fyrirhug-
að til að kynna plötuna, en
Reptlicus má sjá á tónleik-
um God is My Co-Pilot
næstkomandi fimmtudag í
Tveimur vinum.
MROKKDEILD FÍH held-
ur rnikla hátíð í Súlnasal
Hótels Sögu annað kvöld,
en þá verða aflient í fyrsta
sinn Islensku tónlist-arverð-
launin. Verðlaunaðir verða:
besti nýliði, besti lagasmiður,
besti textahöfundur, besta
plata, besti söngvari, besta
söngkona, besti gítarleikari,
besti bassaleikari, besti
trommuleikari, besti hljcm-
borðsleikari, besti hljóðfæra-
leikari á önnur hljóðfæri,
besta lag, besta endurgerð
og besti flytjandi á tónleik-
um.
■ FÉLAGSSKAPURINN
knái FIRE hefur staðið fyrir
ýmsum uppákomum, þar á
meðal heimsóknum erlendra
tónlistannanna og næstkom-
andi fímmtudag leikur hér á
landi bandaríska rokksveitin
God is My Co-Pilot. Sú þyk-
ir merkileg um margt og er
jafnan talin með merkari
neðanjarðarsveitum Banda-
ríkjanna, þannig að lieim-
sókn sveitarinnar hingað til
lands er kærkomin í meira
lagi.