Morgunblaðið - 10.04.1994, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.04.1994, Qupperneq 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. APRIL 1994 MEXIKÓ Tulum á Yucatán-skaga. Maya-wmenjar, hvítur sandur Eldhús í fátæku fjallaþorpi í Guerrero. og tær sjór. Sólsetur við Karíbahafið. Fjölbreytni andstæðii óræðni eftir Sigurð Hjartarson VÍÐFÖRULL kunningi minn sagði mér eitt sinn að Mexíkó væri ein- stakt og óviðjafnanlegt. Hvergi væri að finna sambærilega fjölbreytni í náttúru og mannlífi, hvergi væru andstæðurnar jafn skarpar. Ára- löng kynni mín af landi og þjóð hafa stutt þessa staðhæfingu. Því lengri og nánari sem kynnin verða þeim mun áhugaverðara verður viðfangsefnið. Þótt vaxandi kynni veiti mörg svör þá fjölgar aðeins spurningunum. Því má segja að Mexíkó sé eins og draumsýn, eins og óræðar og endalausar hillingar, þar sem eitthvað óvænt bíður manns ávallt á næsta leiti. Land og þjóð verða því sífellt meira spenn- andi. mayanna í Chiapas á þessu ári. Hlutur innfæddra hefur lítt eða ekki skánað í aldanna rás. Það helsta sem hefur breyst er frétta- flutningurinn. Alþýða manna, hvort heldur indíánsk eða mestízk (kyn- blönduð), býr víða í landinu við of- ríki, kúgun og arðrán spilltra hreppakónga og opinberra starfs- manna, sem iðka sömu stjórnar- hætti og þróuðust í landinu á 16. öld. Þar sem Vr, hlutar allrar þjóðar- innar eru kynblendingar eru það ekki einungis indíánasamfélögin sem búa við misrétti og áþján. Þetta á við um alþýðu manna, einkum í dreifbýlinu. Hin fámenna hvíta yfir- stétt hefur enn afar sterk ítök í samfélaginu þótt ekki sé það jafná- berandi og fyrr, þar sem stórir hóp- ar mestíza hafa auðgast verulega og komist til áhrifa í þjóðlífinu. Fordómar og kúgun í samfélaginu stafa því miklu fremur af efnaleg- um mismun en kynþáttalegum. Lýðræðisþróun, eins og við þekkjum hana í Evrópu síðustu 100 árin eða svo, hefur lítt fest rætur í Mexíkó. í okkar heimshluta hefur réttur minnihlutahópa og þeirra sem höllum fæti standa verið tryggður eða bættur verulega. Þetta hefur ekki gerst í sama mæli í Mexíkó og má skýra það á marg- an hátt. Ein hindrunin á vegi þess- arar þróunar er hið öfluga eins flokks kerfi sem haldist hefur í land- inu í rúma sex áratugi. I skjóli PRI-flokksins hefur þróast spilling og valdníðsla sem öðru fremur hef- exíkó er 19 sinnum stærra en ísland. Það er 13. stærsta ríki heims og það 11. fjöl- mennasta með um 90 milljónir íbúa. í landinu blasa við hrikalegar fjall- akeðjur með snævikrýndum tind- um, víðáttumiklir hitabeltisregn- skógar, eyðimerkur og þurrar gresj- ur, fijósamar sléttur og endalausar, hvítar sandstrendur. Landið býr yfir feykilegum náttúruauði. Frá 16. öld hefur Mexíkó verið stærsti silfurframleiðandi heims og nú er það í hópi mestu olíuframleiðenda veraldar. Með öruggum aðgangi að vatni má þarna rækta allar heims- ins jurtir. Fjölbreytni í náttúrunni er því óendanleg í augum gestsins. Þó að landið sé síbreytilegt og heillandi er þjóðin ennþá marg- breytilegri. í Mexíkó búa enn indí- ánaþjóðir og ættbálkar sem tala 56 tungur, sem margar hveijar virðast ekkert skyldar innbyrðis. Þó að spænskan sé hið opinbera mál og töluð af flestum eru enn milljónir manna sem tala „nahuátl", hið forna mál aztekanna, og „maya- mál“. Nokkur indíánamál eru hins vegar að deyja út og hverfa í kraumandi deiglu hins opna nú- tímasamfélags. Menning og saga Saga Mexíkó er saga átaka og spennu. Þegar Spánveijar komu til landsins snemma á 16. öld höfðu innfæddir búið í landinu í tugi þús- unda ára. Þarna risu og hnigu menningarþjóðir og ríki og settu óafmáanlegt mark sitt á landið. Mexíkómenn geta státað sig af 40 Sandur, sjór og sól í Cancún. Frá indíánamarkaðnum í San Cristóbal, Chiapas. Ríkisháskólinn í Mexíkóborg. Myndverk eftir Siqueros. alda samfelldri listasögu, líklega lengri en nokkur þjóð önnur að Kínveijum einum frátölduin. Sagt er að í Mexíkó séu tíu þúsund stað- ir þar sem finna megi fornminjar, sumar ærið tröllvaxnar. Inn í Chol- ula-pýramíðann einan mætti koma öllum fornminjum Egyptalands. Sá sem heimsækir trúarmiðstöðvarnar í Teotihuacán og Teotenango í ná- grenni Mexíkóborgar undrast þau firnalegu mannvirki sem innfæddir reistu fyrir 1500-2500 árum. Ma- ya-menjarnar í suðurhluta landsins eiga ekki sinn líka og vekja aðdáun og lotningu. Menn hafa löngum furðað sig á stærð og fjölda þeirra mannvirkja sem innfæddir hafa skilið eftir sig. Meginskýr- ingin virðist einföld. í land- inu lifðu akuryrkjuþjóðir sem byggðu tilveru sína á þrautræktun maísplönt- unnar, en hún gaf þeim svo ríkulega uppskeru að losa mátti auðveldlega um vinnuafl til að sinna öðru en mataröflun. Hin fijóa listsköpun inn- fæddra lifði af hernám Spánveija á 16. öld og sést afar skýrt í yfirskreyttum barokkkirkjum nýlendu- tímans og enn í dag í ein- stæðri byggingarlist sam- tímans, t.d. í mósaíklögð- um byggingum hins opin- bera. Það eru ekki aðeins hin- ar trúarlegu og veraldlegu byggingar, fornar og nýjar, sem heilla gestinn, það gerir ekki síður hin ótrúlega fjölbreytta alþýðulist innfæddra um gjörvallt landið. Með komu Cortes til Mexíkó árið 1519 verða þáttaskil í sögu lands- ins. Spánveijarnir gerast herrar og aðalmótendur hins nýja samfélags og innfæddir verða undirstétt í eig- in landi. Saga síðustu fimm alda hefur því verið saga arðráns og kúgunar, saga átaka, ólgu og ótrú- legrar geijunar. í Mexíkó verður til ný þjóð, þjóð 500 ára kyn- og menningarblöndunar. Ef til vill er það einmitt þessi blöndun sem ger- ir Mexíkó samtímans svo órætt og heillandi. Þessi 500 ára sköpunar- saga hefur fætt af sér samfélag sem er engu líkt. Það er ólýsanlega spennandi að virða fyrir sér þá mannlífsdeiglu sem við blasir, þar sem gjörólíkir kynþættir, fram- leiðsluþættir, menning og trúar- brögð hafa blandast saman, oftast með miklum átökum, í eina heild sem við köllum Mexíkó samtímans. Menningarblöndunin birtist alls staðar, í byggingum og öðrum sjón- listum, í hinni furðulegu kaþólsku sem iðkuð er í landinu og kemur okkur Evrópubúum oft afar undar- lega fyrir sjónir, í seiðandi tónlist og dansi landsmanna, í dulúðlegum bókmenntum þeirra og síðast en ekki síst í einstakri og ómótstæði- legri matargerð þeirra. Þjóöin Menningarblönduninni og blóð- ugri átakasögu milli kynþáttanna í landinu er eflaust ekki lokið. Telja má að nú séu 80-85% þjóðarinnar einhvers konar kynblendingar hvítra og innfæddra. Enda þótt kynþáttafordómar eins og við þekkjum þá hér á norðurslóðum finnist varla í Mexíkó, þá eru for- dómar milli kynþátta vissulega til staðar í landinu. Þó indíánsk list og menning sé víða virt og lofuð búa afskekkt indíánasamfélög enn við kúgun og skipulegt arðrán. Samfélög innfæddra hafa víða verið svipt landi sínu og sjálfsbjargar- kostum og eru enn ofurseld duttl- ungum ágjarnra héraðshöfðingja, eins og best sést í uppreisnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.