Morgunblaðið - 10.04.1994, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1994
B 31
Fyrsti fundur nýrrar bæjar-
stjórnar í Kaupþingssalnum í
Eimskipafélagshúsinu, i febrúar
1954. Efri mynd frá vinstri: Geir
Hallgrímsson, Jóhann Hafstein,
Guðmundur H. Guðmundsson,
Sveinbjörn Hannesson, Einar
Thoroddsen, Sigurður Sigurðs-
son og Auður Auðuns. Neðri
mynd frá vinstri: Gunnar Thor-
oddsen, Ingi R. Helgason, Þórður
Björnsson, Magnús Astmarsson,
Alfreð Gíslason, Gils Guðmunds-
son, Petrína Jakobsson og Guð-
mundur Vigfússon.
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri í ræðustól.
„BALLIÐ hófst kl. hálffimm.
Þá var farið að drekka kaffi og
eta kökur. Eg drakk fimm bolla,
hvern á eftir öðrum, og þóttist
gjöra vel. Hver viðverandi fékk
fimm vindla og átti hann að láta
sér endast þá um nóttina. Vindl-
ar vor dimittenda voru betri en
neðribekkinganna. Auk þeirra
snuðaði ég mér út 3 aðra vindla,
svo að ég hafði 8 vindla upp úr
krafsinu," segir Ólafur Davíðs-
son þjóðsagnasafnari í dagbók
sinni um þann 11. apríl 1882,
en þá var hann í sjötta bekk
Menntaskólans i Reykjavík og
lýsingin að ofan er af þeim há-
punkti skólalífsins þegar skóla-
sveinum leyfðist að bjóða döm-
um með sér á dansleik sem skól-
inn hélt þá árlega í húskynnum
sínum. Engar stúlkur stunduðu
þá nám við skólann. Ólafur
Davíðsson varð seinna merkur
fræðimaður og safnari á sviði
grasafræði og islenskrar þjóð-
fræði. Hann dó ógiftur og barn-
laus árið 1903 á fertugasta og
öðru aldursári. Dagbækur hans
voru gefnar út árið 1955 undir
nafninu: Ég læt allt fjúka.
Það var gaman að sjá borðin í
langaloftinu alskipuð mönn-
um, hlægjandi og brosandi, hlakk-
andi og etandi mönnum. Svo var
farið að sækja dömurnar," heldur
frásögn Ólafs áfram. „Þarna
strunsuðu herrarnir upp eftir með
margra álna víðar dömur, hvítar
og svartar og alla vega litar. Svo
var dansinn hafinn. Gísli Guð-
mundsson (frá Bollastöðum) og
Þóra Pétursson færðu upp. Ég
FRÉTTALJÓS
ÚRFORTÍD
Fegurð
þesser
ófullkomin
sagt almennilega hvernig dansinn
gekk, en ég efa ekki, að hann
hafi farið í lagi. Skálar voru
drukknar milli þess að dansað var.
Ég var svo æstur yfir lygi þeirri
og lofi, sem hrúgað var saman í
konungsminninu, að ég reif það í
sundur. Ég ætla að geyma það
svo. Það var illa mælt yfir skálum
(aðalmálið var kvæði það, sem
sungið var fyrir hverri skál). Gísli
Guðmundsson mælti skást fyrir
skál kvenna. Svo:
Eflist æ kvennanna hagur og heill,
þess af hjarta vér óskum,"
enda hafði ég skotið þessum orðum
að Gísla. Ég ætla ekki að orð-
lengja meir um dansinn. Þeir hafa
náttúrlega verið fjarska hrifnir af
honum, sem voru skotnir í dömum
þeim, sem við voru staddar, og
jafnvel fleiri, að minnsta kosti stóð
ávallt múgur og margmenni í
danssalsdyrunum. Ég hafði ekki
mikla ánægju af dansinum og
kvenfólkinu í þetta skipti. Mér
finnst annars að kvenfólkið missi
mikið af yndisljóma þeim sem á
dapsa gfclfl, pg er ekki vel inn í að hvíla yfir því,, þegar vér lítum
danst'éknik, svo að ég get ek^to4|gð úr
Ólafur Davíðsson
vér að sjá, hve fegurð þess er ófull-
komin, og oss hlýtur að stökkva
hæðnisbros, er vér rifjum upp fyr-
ir oss hinar ljúffengu lostætu lyg-
aklausur, sem skáldin hafa látið
og láta rigna ofan yfir það. Ég
tala einungis í líkamlegu tilliti.
Aftur fer því stórum fram, er vér
lítum á það úr fjarska eða nánd,
er vér skoðum það í huga vorum
eða snertum það. Karlmaðurinn,
sveinninn getur víst ekki bundizt
þess, að hafa einhveija óljósa hlý-
leika tilfinningu fyrir kvenfólkinu
og breiða yfir það engilfagra feg-
urðarblæju í huga sínum, en ef
hann fer svo að skyggnast eftir
blæjunni og færir sig nær kven-
fólkinu, þá verður hún að engu.
Þá sér hann ekki nema tangur og
tötur af henni. Aftur helzt víst til-
finning hans, ef hann færir sig
nógu nærri því, ef hann snertir
»s>I,oI ivd 19 'iufnugiS iragfc
-.Ouivici
TTH*
SIEMENS
STÓRSKEMMTILEG
STÆDA Á MJÖG
GÓÐUVERÐI!
• Geislaspilari
• Tvöfalt segulbandstæki
• Alvöruútvarp
Tónjafnari
• 2 x 30 W
• Gæðahátalarar
• Fullkomin fjarstýring
AHtþetta fyrir aðe/ns kr.:
37.810,-
Bjóðum einnig fleiri gerðir af hágæða
hljómtækjum. Komið og skoðið!
Munið umboðsmenn okkar um land allt.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
Víl/ir þú endingu og gæði
- velur þú SIEMENS
Skrifstofu- og
verslunarhúsnæði
íslandsbanki hefur eftirtaldar húseignir til sölu eða leigu.
Afhending getur farið fram strax.
Átfhelmar
Til sölu eða leigu
Húsnæðið er staðsett í norðurenda norðurálmu
verslunar- og þjónustumiðstöðvarinnar í Glæsibæ.
Húsnæðið er 229 m2 á fyrstu hæð auk 81 m2 í kjallara.
Grensásvegur 13
Til sölu eða leigu
Húsnæðið er 147 m2 á fyrstu hæð auk 147 m2 í kjallara.
Laugavegur 31
Til sölu eða leigu
Glæsilegt verslunarhús við Laugaveginn. Húsið er þrjár
hæðir auk rishæðar og kjallara. Fyrsta hæð er 288 m2,
önnur hæð er 374 m2, þriðja hæð er 288 m2 og rishæð
er tæplega 288 m2 að grunnfleti.
í kjallara, sem er 288 m2, eru góðar geymslur.
Krlnglan 7, Hús Verslunarlnnar
Til leigu
Mjög hentugt skrifstofuhúsnæði á 10. og 11. hæð,
snyrtilega innréttað og tilbúið til notkunar strax.
Á 11. hæð er um að ræða 175 m2 (öll hæðin).
Á 10. hæð er um að ræða 98 m2.
Nánarl upplýsingar eru velttar af Sverrl Jónssynl í
Rekstrardelld íslandsbanka hf.
Slml 91-608560
ÍSLAN DSBANKI