Morgunblaðið - 01.05.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MAI 1994
B 15
Kaldrananeshreppur
Skólar í hreppnum
auka samstarf
Laugarhóli.
í KALDRANANESHREPPI á Ströndum hafa til þessa starfað tveir
grunnskólar, Klúkuskóli og Drangsnesskóli. Þeir hafa nú undanfar-
inn vetur aukið til muna samstarf sitt og nemendur því hist oftar
en áður. Þá hefir hreppsnefndin í Kaldraneshreppi samþykkt á fundi
hinn 5. apríl siðastliðinn, að sameiná skuli báða skólana á Drangs-
nesi og því leggja niður starfsemi Klúkuskóla. Því verður að aka
börnum úr Bjarnafirði framvegis, i skólann á Drangsnesi, en slíkt
getur orðið æði erfitt miðað við veg og færð.
asta hljómplata sem gefin hefur
verið út í Færeyjum. Kári hefur
verið iðinn við tónleikahald hér á
landi undanfarin ár og því mörgum
að góðu kunnur.
Hörður Torfason hefur verið
kallaður nestor íslenskra trúbadúra
og víst er að hann var fyrstur til
að fara um landið sem syngjandi
skáld með gítarinn einan í fartesk-
inu . Hörður hefur gefið út fjölda
hljómplatna í gegnum árin og notið
virðingar ekki síður en hylli fyrir
lagasmíðar sínar og textagerð, en
á næstu vikum er væntanlegur disk-
ur með úrvali helstu laga hans.
Aðalsteinn Asberg og Anna
Pálína hafa í nógu að snúast, því
auk þessa að vera meðal þeirra sem
troða upp hafa þau borið hitann og
þungann af skipulagi hátíðarinnar,
en Anna er framkvæmdastjóri
hennar. Þau hafa starfað saman
undanfarin tíu ár, haldið hundruð
tónleika hér á landi og á hinum
Norðurlöndunum og gefið út plötur,
en Aðalsteinn hefur auk þess sent
frá sér ljóða- og barnabækur, en
hann á á annað hundrað söngtexta
á ýmsum hljómplötum með ýmsum
flytjendum. Anna hefur einnig
fengist við sitthvað annað en tón-
leikahald og meðal annars hefur
hún stýrt útvarpsþáttum. Aðal-
steinn Ásberg og Anna Pálína
sendu frá sér plötuna Á einu máli
fyrir tveimur árum. Þau hafa meðal
annars troðið upp með Jasstríóinu
skipuðu þeim.
Eins og áður sagði verða upp-
hafstónleikar Norrænna vísnadaga
1994 í Norræna húsinu í kvöld kl.
16.00, en einnig verða tónleikar á
Selfossi í kvöld. Á morgun, 2. maí,
verða svo tónleikar í Keflavík og á
Akureyri og 3. maí á Akranesi,
Egilsstöðum og í Norræna húsinu.
Fimmtudaginn 5. maí verða svo
lokatónleikar hátíðarinnar í Hafnar-
borg, menningarmiðstöð Hafnfírð-
inga.
Gott samstarf hefir skapast á
milli grunnskólanna í Kaldrananes-
hreppi undanfarið ár. Auk þéss sem
nemendur hafa komið saman, til
dæmis í bekkjadvöl í Klúkuskóla og
þá jafnvel nemendur úr Hólmavíkur-
skóla verið með, hafa nemendur og
ungt fólk frá Drangsnesi komið allt
upp í þrisvar í viku í vetur til íþrótta-
æfínga í Klúkuskóla. Þar er íþrótta-
hús með boltaleikjavelli í fullri stærð.
Þá er og sundlaug á staðnum í fullri
keppnisstærð. Samstarfi vetrarins
mun svo ljúka með sameiginlegum
námskeiðum og leikfimi og sundi í
Klúkuskóla, dagana annan til fjórða
maí. Þá verður boðið upp á þjálfun
og próf í leikfimi, sundspretti og
útivist, ásamt líffræðinámskeiði,
taflnámskeiði og mörgu fleiru.
Hinsvegar samþykkti núverandi
hreppsnefnd Kaldrananeshrepps á
hreppsnefndarfundi hinn fímmta
apríl síðastliðinn, að leggja niður
skólann á Klúku og flytja öll böm
úr dreifbýlinu í þéttbýlið á Drangs-
nesi til skólahalds þar framvegis.
Hafa því skólamannvirki á Klúku
lokið sínu rétt rúmlega tutttugu ára
starfí frá og með þessu vori. Auk
þess má telja víst að tvær fjölskyld-
ur flytjist úr Bjarnarfirði í sumar.
Þá er aðeins búið þar á þrem bæj-
um. Áætlað er að reka gistihús, en
ekki hótel, á Klúku í sumar. Ekki
munu konur úr Bjamarfírði reka það
lengur. Við rekstrinum tekur Sigrún
Jónsdóttir á Drangsnesi, en hun
hefir jafnframt ákveðið að gefa ekki
kost á sér til hreppsnefndarkjörs í
vor.
Það er mál þeirra er ferðast um
Strandasýslu, að hin stórkostlega
fegurð sýslunnar taki fyrst að auk-
ast að ráði er kemur norður í Bjam-
arfjörð og aukist sífellt eftir því sem
norðar dregur.
Skóli hefir nú verið rekinn á Klúku
í Bjamarfirði í hálfa öld. Fyrst var
hann rekinn í braggaskrifli er nefnt
var Hríðskjálf sökum kuldans þar.
Síðan í húsi því, sem nú er íbúð
skólastjóra og handavinnustofur, svo
loks í hinum nýju skólamannvirkjum
er tekin vom að fullu í notkun 1972.
- SHÞ.
♦ » ♦-------
Vitna leitað
Rannsóknadeild lögreglunnar í
Reykjavík lýsir eftir vitnum að
árekstri sem varð þann 20. apríl
um klukkan 16 á Miklubraut
skammt fyrir austan afrennsli frá
Kringlunni. Þar rákust saman tvær
fólksbifreiðar, grænn Skoda og blár
Chevrolet Mailbu.
MÁLVERKAUPPBOÐ
Á Hótel Sögu í
kvöld kl. 20.30
Verkin sýnd í Gallerí Borg við Austurvöll
frá kl. 12-18 í dag.
v/Austurvöll. Sími 24211
I cSc srs p o Bcí £18 í yíí8 - £;liiniTj • íi t .tid .-nk (tí9'I
Barcelo Cala Vinas er sérstaklega notalegt íbúða-
hótel sem stendur á einkar friðsælum stað við hina
undurfögru Cala Vinas strönd, 2 km vestur af Magaluf.
í seilingarfjarlægð er víðfrægt og funheitt nætur-
lífið í Magaluf fyrir þá sem það kjósa.
Vero fra
*m.v. tvo fullorðna og barn 2ja-11 ára í stúdíóíbúð. Allir skattar innifaldir.
Takmarkað framboð af gistirými!
QA3%A$/Z E3
^ÖRVAL-ÖTSÝN
trygging fyrir gæðum
iMgmúla 4: simi 699 300. i Hafnarfirði: simi 65 23 66,
í Keflavik: simi 11353. við Ráðbúslorg á Akureyri: simi 2 50 00
- og bjá umbo&smönnum um land alll.
■
Mallorca hefur aldrei verið vinsælli en nú í sumar
og sökum mikillar eftirspurnar
kynnum við nýjan sólarstað
á þessari perlu
Miðjarðar-
hafsins.