Morgunblaðið - 02.07.1994, Page 1

Morgunblaðið - 02.07.1994, Page 1
72 SlÐUR B/C/D/E 147. TBL. 82. ÁRG. LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Arafat segir Jerúsalem vera næsta takmark Morðákæra byggðá „minnis- heimt“ Tugþúsundir Palestínumanna fagna leiðtoga PLO við komu hans til Gaza Gaza. Reuter. YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínu (PLO), kom til sjálfstjórnarsvæðis Palestínu- manna í Gaza, skömmu eftir há- degi í gær. Þar með lauk 27 ára útlegð leiðtogans, og honum var fagnað gífurlega. Hann brosti þeg- ar hann gekk yfir landamærin, með tár í augunum, kraup á kné og kyssti jörðina og baðst fyrir. í ræðu sem hann héít skömmu síðar í Gazaborg, hét hann því að Jerús- alem yrði næsta takmarkið í frels- isbaráttu Palestínumanna. Arafat fór yfír landamærin frá Egyptalandi um fímmtán mínútur yfir tólf að íslenskum tíma, um hálfri klukkustund fyrr en búist hafði verið við. Þúsundir manna biðu hans á Gazasvæðinu, og sekkjapípusveit lék ættjarðarlög. Hann hvarf í mannhafið eitt and- artak þegar öryggisverðir reyndu að greiða honum leið að bíl sem flutti hann til Gazaborgar. Gripu lögreglumenn til þess ráðs að lyfta Arafat upp á axlir sér um stund. „Til Jerúsalem" Arafat hélt hálfrar klukku- stundar, tilfinningaþrungna ræðu þegar hann kom til Gazaborgar, og var fagnað af gífurlegum mannfjölda. Hann sagði að í Gaza skyldu menn minnast píslarvott- anna í al-Ibrahimi-moskunni, og vísaði þá til þess þegar 30 Palest- ínumenn voru myrtir af ísraelskum byssumanni í bænum Hebron í febrúar. Hann sagði að frá Gaza myndi leiðin fljótlega liggja til Jerúsalem. „Jerúsalem, að biðjast þar fyrir.“ Mannfjöldinn tók undir: „Til Jerúsalem, til Jerúsalem." Búist var við hörðum viðbrögð- um ísraelsmanna við þessum um- mælum Arafats, þar eð ísraels- menn líta á austurhluta Jerúsal- emborgar, sem þeir tóku á sitt vald árið 1967, sem óhjákvæmi- legan hluta af höfuðborg ísraels- ríkis. Fréttafulltrúi ísraelsstjórnar hafði áður sagt við Reuters að Arafat mætti segja það sem hon- um sýndist um Jerúsalem. „Við- brögð ísraelsmanna hljóta að verða í verki, með því að gefa borgina ekki eftir, fremur en upp- hrópanir.“ Arafat mun ekki heimsækja Jerúsalem að þessu sinni. Hann mun fara til sjálfsstjórnarsvæðis Palestínumanna í Jeríkó áður en heimsókn hans lýkur og hann held- ur til Parísar á þriðjudag. Fregnir um morðtilræði Palestínsk yfirvöld báru til baka frétt útvarps ísraelska hersins um að maður með byssu falda í myndavél hefði reynt að ráða Ara- fat af dögum í Gazaborg. Útvarp- ið sagði fregnina óstaðfesta. Einn maður lést þegar tré í Gazaborg hrundi undan þunga fjölda manna sem höfðu klifrað upp í það til þess að hlýða á ræðu Arafats. Tíu manns meiddust í óhappinu. ■ Gleðidagur /17 Reuter PALESTÍNSKIR lögreglumenn lyfta Yasser Arafat upp á axlir sér skömmu eftir komu hans til sjálfsstjórnarsvæðis Palestínumanna á Gaza í gær. Nokkrir lögreglumenn veifuðu rifflum. Arafat á hægri hönd er Nasser Yousef, yfirmaður á sjálfsstjórnarsvæðinu. New York. The Daily Telegraph. MAÐUR nokkur hefur verið dreg- inn fyrir dómstóla í Bandaríkjunum, sakaður um morð, og er ákæran byggð á „minnisheimt" vitnis sem segist hafa séð glæpinn framinn fyrir 23 árum. Franklyn Crawford hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt Pearl Altman, sem drukknaði í Allegh- enyá, skammt frá Pittsburgh í Bandaríkjunum, árið 1971. Málið var tekið upp að nýju fyrir ári, þeg- ar John Reed tjáði lögreglu að hann hefði endurheimt minningar um að hafa séð þegar Crawford hrinti Altman út í ána. Reed var þá 16 ára. Hann segist halda að hann hafi bælt minninguna um atvikið vegna ótta við Crawford. Dómari hefur tekið ákvörðun um að réttað skuli í málinu, og hafnað kröfu verjanda um að kærunni verði vísað frá. Lögfræðingur Crawfords hélt því fram, að minningarnar væru óáreiðanlegar, og sem einu mögu- legu sönnunargögnin í málinu væru þær ekki nægjanlegar forsendur fyrir ákæru. Hann mun nota þau rök í málsvörninni. Vann mál gegn sálfræðingi Nýleg dómsmál, þar sem ákært hefur verið fyrir misþyrmingu á börnum, og byggt á bældum minn- ingum, eða „minnisheimt", hafa vakið miklar deilur. Þáttaskil voru mörkuð með máli sem kom upp í Kaliforníu, þegar Gary Ramona höfðaði mál á hendur sálfræðingi sem hvatti dóttur hans til þess að „muna“ að hann hefði nauðgað henni og misnotað kynferðislega. Ramona vann málið og var dæmd hálf milljón dollara í skaðabætur. Reuter Hendur fram úr ermum FULLTRÚAR Norður-Kóreu, t.v., og Suður-Kóreu, t.h., tak- ast í hendur í landamæraþorp- inu Panmunjom í gær. Þarna var ræddur væntanlegur fund- ur leiðtoga norðan- og sunnan- manna, sem verður í Pyongy- ang, höfuðborg Norður-Kóreu, 25. júlí. Þá munu Kim Il-sung og Kim Young-sam hittast í fyrsta skipti eftir að Kóreu var skipt eftir heimsstyrjöldina síðari. Á fundinum í gær var rædd dagskrá fundarins, ör- yggisgæsla og önnur skipu- lagsatriði. Skotið á báta flótta- fólks frá Haiti New Y ork. Reuter. ÞRJÁTÍU manns að minnsta kosti drukknuðu í gær er fjórir lögreglu- menn á hraðbáti skutu á bát sem hlaðinn var fólki sem hugðist flýja Haiti, að sögn blaðamanna vikuritsins TIME, sem urðu vitni að atburð- inum. Gífurleg skelfing greip um sig er lögreglan hóf skothríð á bát um 400 flóttamanna. I ringulreiðinni fóru um 300 manns útbyrðis, þar á meðal konur og börn. Vitað var um a.m.k. 30 sem drukknuðu. Atvikið varð stutt frá Nan L’Et- at á suðurströnd Haiti. Flýðu lög- reglumennirnir af vettvangi án þess að reyna að koma fólkinu, sem svamlaði í sjónum, til hjálpar. Her og lögregla hafa reynt að hindra fólksflótta frá Haiti að und- anförnu. Landsmenn hafa reynt að flýja slæmt ástand þar í þeirri von að komast til Bandaríkjanna en Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að veita flóttamönn- um frá Haiti hæli. Frá mánudegi til fimmtudags tóku skip banda- rísku strandgæslunnar á fjórða þúsund manns um borð sem lagt höfðu út á rúmsjó á óburðugum bátsfleytum. í síðustu viku var rúmlega þúsund flóttamönnum á hafi úti komið til hjálpar. Flýja ofsóknir „Það er ekki hafnbannið og erfiðleikar því tengdir sem við flýj- um, heldur ofsóknir stjórnarinnar. Þær hafa færst í aukana og eru ástæða þess að fólkið flýr,“ sagði kennari í röðum flóttamanna sem bjargað var um borð í bandarískt skip í gær. Hæsta álverð í þrjú ár London. Reutcr. ÁLVERÐ fór í meira en 1500 dollara tonnið á markaði í Lond- on í gær. Hefur verðið ekki orð- ið herra í rúmlega þijú ár. Ástæ- ur hækkunarinnar voru fréttir þess efnis að álbirgðir fari enn minnkandi, þar eð sala hefur aukist til muna að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.