Morgunblaðið - 02.07.1994, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.07.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 5 Nafnamálið í Suðurnesjabæ Gekk illa að ná sátt um framkvæmd ELLERT Eiríksson, bæjarstjóri í Keflavík, Njarðvík og Höfnum, segir að meginástæðan fyrir því að mistök voru gerð við fram- kvæmd kosningar um nafn á nýju sveitarfélagi á Suðurnesjum hafi verið að sveitarstjórninar þrjár hafi ekki komið sér saman um hvernig ætti að standa að fram- kvæmdinni fyrr en skömmu fyrir sjálfa kosninguna. Sveitarstjórnar- menn hafi leitast við að ná sam- komulagi án atkvæðagreiðslu og ekki gætt að sér. Félagsmálaráðuneytið dæmdi atkvæðagreiðsluna um nafnið ógilda m.a. á þeirri forsendu að framkvæmd atkvæðagreiðslunnar hefði verið breytt skömmu áður en hún fór fram og eins hefðu regl- ur um kosningarnar verið óljósar. „Ástæðan fyrir því að þetta gekk svona var að þetta voru þijár sveitarstjórnir sem í var 21 bæjar- fulltrúi frá þremur mismunandi bæjarfélögum að reyna að koma sér saman um mál sem var ekki mjög auðvelt að ná samkomulagi um,“ sagði Ellert og bætti við að sveitarstjórnirnar hefðu verið að reyna að fá fram niðurstöðu án þess að grípa til atkvæðagreiðslu. Menn hefðu þrefað um fram- kvæmdina fram og aftur, næstum fram á kjördag. Bann á gömlu nöfnin heimilt Ellert sagði að þó að ýmislegt hefði farið úrskeiðis í sambandi við framkvæmd kosningarinnar væri ekkert athugavert við nöfnin sem slík sem kosið var um. Bæjarstjórn væri t.d. heimilt að banna að láta kjósa um gömlu nöfnin, Keflavík, Njarðvík og Hafnir. Ellert vildi hins vegar engu svara um hvort það yrði gert þegar kosið yrði aft- ur. Það væri nýkjörinnar bæjar- stjórnar að ákveða það. Ellert sagðist gera ráð fyrir að menn mundu vanda sig betur næst þegar kosið yrði. Hann sagði að bæjarstjórn nýja sveitarfélagsins væri ekkert búin að íjalla um þessa nýju stöðu, en tæplega yrði kosið aftur fyrr en í haust. -----♦ ♦------ 40% karla telja rétt- mætt að slá eiginkonur UM 40% íslenskra karla og 27% íslenskra kvenna telja réttlætan- legt að eiginmaður beiji konu sína.. Þetta eru niðurstöður úr skoðana- könnun Gallup á íslandi. Þetta kom fram í Þjóðarpúlsin- um sem Gallup á Islandi gefur út. Úrtakið í könnuninni var 1.200 manns á aldrinum 15-69 ára. í frétt Ríkissjónvarpsins um skoð- anakönnunina kemur fram, að meira en helmingur karla á aldrin- um 15-24 ára taldi réttlætanlegt að karlar beiji konur sínar og 46,2% karla á aldrinum 25-34 ára. Karlar á aldrinum 55 til 69 ára voru þessu andvígastir. Þá telja 37,2% kvenna á aldrinum 15-24 ára að eiginmenn megi slá konur sínar. Fram kemur að sambærileg könnun var gerð af Gallup í Banda- ríkjunum fyrir nokkrum vikum og leiddi hún í ljós að 14% karla þar i landi telja réttlætanlegt að beija eiginkonur en 7% kvenna. FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg Ný höfn undirbúin AÐ UNDANFÖRNU hefur verið unnið að því að fylla upp út frá strandlengjunni við Köllunar- klettsveg í Reykjavlk. Að sögn Hannesar Valdi- marssonar, hafnarstjóra, er með þessari fram- kvæmd verið að undirbúa nýtt hafnarsvæði. Uppfyllingarefnið kemur að stærstum hluta úr gömlu höfninni, en unnið er að því að dýpka hana. Auk þess er greftri úr húsgrunnum, vega- framkvæmdum og öðrum framkvæmdum í borg- inni komið fyrir á þessum stað. Hannes segir að fyrirhugað sé að bjóða upp á byggingarlóðir fyrir atvinnufyrirtæki á þessu svæði í framtíð- inni og líklega verði fyrstu lóðirnar tilbúnar á næsta ári. Hannes segir að það muni ráðast af umsvifum hafnarinnar á næstu árum hvenær liöfn verði tilbúin á þessum stað. Pao er kraftur í Nissan, ekki 1300, heldur 1600 vél og kostar aðeins kr. 1.322.000.- Aðeins örfáir NISSAN SUNNY SLX ES fáanlegir með öllum þessum aukahlutum og kosta aðeins kr. 1.322,000.- Vindskeið m/ hemlaljósi Utvarp m/kasettutæki Nissan Sunny SLX ES ■ 1.6 lítra vél ■ Samlœsing hurða ■ Upphitanleg framsœti ■ Tölvustýrð fjölinnsprautun ■ Útihitamælir ■ Rafmagnsrúðuvindur ■ Frítt pjónustueftirlit í eitt ár i = = . Ingvar sr~=^==, Helgason hf. Sævarhöfða 2 síml 91-674000 í stöðugri sókn Nissan gólfmottur Nissan álfelgur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.