Morgunblaðið - 02.07.1994, Side 10
10 LAUGARDAGUR 2. JÚLl 1994
MORGUNBLAÐIÐ
-
ARSALIR hf.
Fasteignasala
Borgartúni 33 - 105 Reykjavík
C 62 43 33
Björgvin Björgvinsson,
lögg. fasteigna- og skipasali
Félag Fasteignasala
Opið virka daga kl. 10-18
Opið laugardaga kl. 11 -16
Ódýr íbúð! Fullb. 4ra herb.
íb. á 1. h. í fjölb. í Kópav. á
aðeins 5,5 millj. Áhv. hagst.
langtímal. 2,2 m.
MíðhÚS. 2ja herb. ný glæsil.
70 fm íb. Allt sér. Verð 6,8 millj.
Óðinsgata. 3ja herb. íb. á
jarðh. ca 75 fm. Verð 6 millj.
Áhv. 2,6 millj.
Ljósvallagata. 2ja herb. íb.
á 1. hæð. Verð 4,9 millj
Vesturbær. Nýstandsett 4ra
herb. íbúð með sérinngangi.
Parket og nýtt eldhús. Bílskúrs-
réttur fylgir. Verð 7,4 millj. Áhv.
1,6 millj.
Stóragerði. Mikið endurn.
3ja herb. íb. í fjölbýli.
Kjarrhólmi. vönduð 4ra
herb. íb. í Fossvogi. Verð 7,4
Skipholt. Mikið endurn. 3ja
herb. 90 fm íb. á jarðh. Verð
6,9 millj. Áhv. 2,4 millj.
Hörðaland. vönduð 4ra
herb. íb. á 3. hæð. Verð 7,4 m.
Bauganes. Mjög falleg 4ra
herb. íbúð í nýju húsi til afh.
strax. Verð 8,9 millj.
Hjallavegur. Mlkið endurnýj-
uð 94 fm sérhæð með óinnrétt-
uðu rísi. Verð aðeins 8,3 millj.
Rekagrandi. Giæsii. 4ra
herb. íb. með bílskýli. Parket
og flísar á gólfum. Fráb. útsýni.
Verð: Tilboð.
Arnartangi. 95 fm raðh. með
30 fm bílsk. Áhv. 4,6 millj. Verð:
Tilboð.
Digranesvegur. Faiieg 112
fm sérh. ásamt 36 fm bílsk.
Áhv. 2,3 millj.
Baughús. Vandað 187 fm
parh. með innb. 35 fm bílsk.
Áhv. 6 millj. Verð: Tilboð.
Vesturbær - Kóp. 190 fm
parh. ásamt innb. bílsk. Skipti
á minni eign koma til greina í
Kópavogi eða Reykjavík.
Tjarnarmýri. Nýtt mjög
vandað 267 fm raðh. með bílsk.
Grænamýri. Nýtt giæsii. 256
fm einb. Fullfrág. utan jafnt sem
innan. Verð: Tilboð óskast.
Kársnesbraut. Mjög vandað
186 fm iðnaðar- og íbúðar hús-
næði. Hentar vel fyrir þá sem
vilja sameina íbúð og vinnu-
aðst. Verð: Tilboð.
Vantar allar stærðir
fasteigna á skrá.
Skoðum og verðmetum
samdægurs. Skoðunar
gjald innif. í söluþ.
Höfum til sölu eða leigu
atvinnuhúsnæði af
ýmsum stærðum og gerðum.
624333
AKUREYRI
Verktakafyrirtækið A. Finnsson gjaldþrota
Talið meðal stærri gjald-
þrotamála á Akureyri
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra
samþykkti í fyrradag kröfu sýslumanns-
embættisins á Akureyri um að byggingar-
verktakafyrirtækið A. Finnson yrði tekið
til gjaldþrotaskipta vegna vangoldinna
opinberra gjalda upp á um 13 milljónir
króna, þ.á m. ógreidd þinggjöld, trygging-
argjöld, virðisaukaskatt og staðgreiðslu
skatta. Embættið lét innsigla verkstæði,
skrifstofu, steypustöð og aðrar eignir fyr-
irtækisins, sem er í eigu Aðalgeirs Finns-
sonar, byggingarmeistara, og eiginkonu
hans, 18. maí sl. og óskaði gjaldþrota-
skipta 20. júní sl. Önnur krafa um gjald-
þrotaskipti kom einnig frá Lífeyrissjóði
verslunarmanna. Gestur Jónsson hrl. hef-
ur verið skipaður bústjóri þrotabúsins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Aðalgeir Finnsson rak áður
samnefnt byggingarfélag sem
sameinaðist byggingarfélagi Gylfa
og Gunnars í árslok 1991, en
stofnaði rúmum mánuði áður fyr-
irtækið A. Finnsson með éina millj-
ón króna í stofnhlutafé. Fyrirtæki
Aðalgeirs hafa um langt skeið
verið meðal stærstu og umsvifa-
mestu verktakafyrirtækja bæjar-
ins.
Aðalgeir Finnsson, eiginkona
hans og A. Finnsson eru skráðir
eigendur að á þriðja tug eigna á
Akureyri, sem allar eru mikið
veðsettar, en nokkrar þeirra hafa
verið seldar til lánardrottna á
uppboðum seinustu daga. Stofnfj-
árhæð veðskulda er í kringum tvö
hundruð milljónir króna, og eru
flest veðin frá þessu ári og þvi
seinasta. Stærsti lánardrottinn
A. Finnssonar er íslandsbanki á
Akureyri. Heimildir Morgun-
blaðsins segja erfitt að meta um-
fang gjaldþrots A. Finnssonar, en
þó sé ljóst að skuldir búsins skipti
að minnsta kosti tugum milljóna
króna, og þótt töluvert sé til af
eignum og lausamunum á móti
skuldum, sé um að ræða eitt
stærsta gjaldþrotamál á Akureyri
seinustu _ár, að frátöldum gjald-
þrotum íslensks skinnaiðnar og
niðursuðuverksmiðju K. Jónsson-
ar.
-----♦ --------
Lista-
sumar ’94
Laugardagur 2. júlí
LISTASAFNIÐ
á Akureyri opn-
ar sýningu á
verkum Kristín-
ar Jónsdóttur
frá Arnarnesi við Eyjafjörð, en Krist-
ín var fyrst norðlenskra kvenna til
að stunda listnám. Einnig opnar í
Listasafninu sýning á verkum Borg-
hildar Óskarsdóttur, sem nam við
MHÍ og í Edinborg, og er þetta 7.
einkasýning hennar. í Listasafninu
opnar enn fremur sýning þriggja
ungra gullsmiða í dag, þeirra Erlings
Jóhannessonar, Þorbergs Halldórs-
sonar og Kristínar Petru Guðmunds-
dóttur. Sýning gullsmiðanna er hluti
samsýningar sem var í Norræna
húsinu á Listahátíð í Reykjavík.
Sunnudagur 3. júlí
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
kl. 17, þar sem fram koma Margrét
Bóasdóttir, sópran, Guðlaugur Vikt-
orsson, tenór, Ragnar Davíðsson,
barítón, og Björn Steinar Sólbergs-
son, orgelleikari. Aðgangur er
ókeypis. Síðasta sýning á verkum
Drafnar Friðfinnsdóttur í Deiglunni.
Gönguferð um Innbæinn undir Ieið-
sögn frá Laxdalshúsi kl. 13.30.
30 millj.
ábyrgð
samþykkt
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
samþykkt að veita Halldóri
Jóhannssyni, landslagsarki-
tekt, bæjarábyrgð að upphæð
30 milljónir króna vegna að-
göngumiðasöiu fyrir heims-
meistarmótið í handknattleik
1995.
Á fundi ráðsins var lagt
fram endanlegt uppkast að
samningi milli Framkvæmdar-
nefnar HM ’95 og Halldórs um
sölu aðgöngumiða á leiki móts-
ins, svo og uppkast að ábyrgð-
aryfirlýsingu bæjarsjóðs Ákur-
eyrar um einfalda bæjar-
ábyrgð að upphæð 30 milljónir
króna. Bæjarráðið lýsti sig
samþykkt þeim ákvæðum sem
Akureyrarbæ varða og sam-
þykkti ábyrgðaryfirlýsinguna.
Ábyrgðargjaldið verður greitt.
14 milljónir til
vinnu ung-
menna
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
samþykkt að stefna að því að
fullnægja eftirspurn eftir
vinnu fyrir ungmenni í bænum
á aldrinum 17-25 ára í 6 vikur
í sumar. Áætlaður launakostn-
aður er tæpar 7 milljónir
króna, auk annars kostnaðar
upp á 1 milljón kr. Á að færa
tæpar 6 milljónir króna frá
fjárveitingu til gatnagerðar í
bænum til almennra átaks-
verkefna.
í unglingavinnu bæjarins
eru skráðir 432 unglingar
fæddir 1979 og 1980, en við
gerð Ijárhagsáætlunar var
gert ráð fyrir 310 unglingum.
Aukinn launakostnaður nemur
rúmlega 3,5 milljónum króna,
en vegna vanáætlaðs fjölda 16
ára skólafólks, nemur aukning
launakostnaðar um 2,7 millj-
ónum króna.
Hagkaup
stækkar
VERSLUNIN Hagkaup á Ak-
ureyri fékk samþykki bæj-
arráðs til að stækka lóð fyrir-
tækisins við Hjalteyrargötu og
malbika þar bílastæði, jafn-
framt öðrum framkvæmdum
við lóð. Fyrirtækinu verður
leigður umræddur lóðarauki á
bráðabirgðaleigu til 1. júní
1995, en það er jafnframt til-
búið til að ræða við Akur-
eyrarbæ um að láta af hendi
lóðarskika á suðvesturhluta
lóðar sinnar.
Tómasarhagi
Mjög góð íbúðarhæð 104
fm efri sérhæð ásamt
bílskúr. Tvær samliggj-
andi stofur, tvö svefn-
herb., tvennar svalir.
Frábær staðsetning og
umhverfi.
Verð 10,4 millj.
Hóll fasteignasala,
Skipholti 50b. Sími 10090.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSSON. framkvæmdastjori
KRISTJAN KRISTJANSSON. ioggiltur fasteignasau
Til sýnis og sölu m.a. eígna:
Úrvalseign - frábært útsýni
Raðhús tvær hæðir 221,2 fm með innb. bílsk. við sjávarsíðuna á Sel-
tjarnarnesi. Frábært útsýni yfir sundin til Esjunnar og Akrafjallsins.
Blóma- og trjágarður. Skipti á minni eign mögul. Nánar á skrifstofunni.
Skammt frá Menntaskólanum
í reisulegu steinh. í Þingholtunum fyrsta hæð í þríbýli 99,4 fm nettó.
Mikið endurn. (vinsælum „gömlum stíl". Vinsæll staður.
Helst í Vogunum eða nágrenni
Þurfum að útvega góða 3ja-4ra herb. íb. f skiptum fyrir gott einb.-
steinhús ein hæð 165 fm í Vogunum.
Fyrir smið eða laghentan
Á úrvalsstað við Safamýri 6 herb. sér efri hæð 144,5 fm. Suðursvalir.
Þarfnast nokkurra endurbóta. Bílskúr 27,6 fm. Tilboö óskast.
Góðar eignir - mjög gott verð
Nokkrar 2ja og 3ja herb. íb. í borginni á mjög góðu verði þ.á m. nokkr-
ar með gamla góða 40 ára húsnæðisláninu.
í Laugarásnum - frábært útsýni
Stór sólrfk 3ja herb. neðri hæð, jarðh. í reisul. tvíbýlish. Bað og eldh.
þarf að endurn. Tilboð óskast.
Á móti suðri og sól
Glæsil. einb. 165 fm auk bílsk. á vinsælum stað í Árbæjarhverfi. Rækt-
uð lóð 735 fm með blóm og trjágróðir. Skipti á minni eign mögul.
Á söluskrá óskast
íbúð í smfðum rúmg. 3ja-4ra herb. á 1. hæð eða jarðh. Til greina
kemur íb. í gömlu húsi sem þarf að endurn. Traustur kaupandi.
• • •
Opiðfdag kl. 10-14
Reyndir sölumenn.
Almenna fasteignasalan var
stofnuð 12. júlí 1944.
AIMENNA
FASTEIGHASAIAM
LAUGAVEGM8SIMAR2ÍÍ53,^Í37Ö
HITA- OG VATNSVEITA AKUREYRAR
UTBOÐ
Hita- og vatnsveita Akureyrar óskar tilboða í uppsetningu
búnaðar í dælustöð á Laugalandi, Þelamörk, dælustöð í
Efnaverksmiðjunni Sjöfn og í kyndistöð í Mjólkursamlagi
KEA við Súluveg. Innifalið í verkinu er einnig lagning ein-
angraðra röra í jörð á Laugalandi og við Súluveg, samtals
u.þ.b. 750 metrar, þar af u.þ.b. 490 metrar af 175 mm
röri og u.þ.b. 260 metrar af 70-100 mm röri. Verktími er
21. júlí til 30. september 1994.
Útboðsgögn eru afhent hjá V.N., Hofsbót 4, Akureyri, frá
og með 5. júlí nk. gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu HVA, Rangárvöllum, Akur-
eyri, fyrir klukkan 11.00, fimmtudaginn 14. júlí 1994. Til-
boð verða opnuð þar klukkan 11.00 þann sama dag, að
viðstöddum þeim þjóðendum er þess óska.