Morgunblaðið - 02.07.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.07.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 13 VIÐSKIPTI Yfirmaður Reed Elsevier hættir London. Reuter. PETER Davis, annar tveggja stjórn- arformanna ensk-hollenzka útgáfu- félagsins Reed Elsevier, hefur sagt af sér vegna breytinga á stjómun félagsins, sem hefðu dregið úr völd- um hans. Eftirmaður Davis verður Ian Ir- vine, annar frammámaður í félaginu, sem var stofnað í fyrra með samein- ingu Reed Intemational plc í Bret- landi og Elsevier NV í Hollandi. Reed er helzti útgefandi tímarita, sem höfða til neytenda í Bretlandi, og á útgáfuna Cahners Publishing í Bandaríkjunum. Elsevier er aðalút- gefandi vísindarita á ensku í heimin- um. Viðræðum á undanfömum vikum um verkaskiptingu í fimm manna stjóm hins nýsameinaða fyrirtækis lauk með því að Davis ákvað að segja af sér þar sem hann taldi sig ekki fá nógu mikið svigrúm. Irvine, eftir- maður hans, sagði að afsögn Davis stafaði ekki af erfiðleikum í sam- bandi við sameininguna. Irvine upplýsti að í athugun væri að Reed Elsevier byði í tvö útgáfufyr- irtæki, sem eru til sölu í Bandaríkjun- um: Mead Data Central og Ziff Com- munications. ♦ ♦ ♦---- Nýr farsíma- risi íBanda- ríkjunum New York. Reuter. FYRIRTÆKIN Bell Atlantic og NYNEX, risamir í fjarskiptaheimin- um á áusturströnd Bandaríkjanna, hafa ákveðið að sameina farsíma- þjónustu sína með stofnun nýs félags til þess að mæta harðnandi sam- keppni. NYNEX og Bell Atlantic hafa um tíu ára skeið starfrækt aðskilin far- símakerfi á New York-svæðinu, sem er stærsti farsímamarkaður Banda- ríkjanna. Nýja félagið mun þjóna sjö af 20 helztu farsímastöðum Banda- ríkjanna og ná til 55 milljóna manna. Bell Atlantic mun eiga 62,35% í hinu sameiginlega fyrirtæki og NYNEX 37,65%. ♦ ♦ ♦ Handsal tek- urínotkun Bloomberg- upplýsinga- kerfi VERÐBRÉFAFYRIRTÆKIÐ Handsal hf. hefur tekið í notkun Bloomberg-upplýsingakerfið, en það er beinlínutengd upplýsingaþjón- usta, þar sem hægt er að fá upplýs- ingar frá erlendum mörkuðum um skuldabréf, hlutabréf og gjaldeyris- mál. Kerfi þetta hefur um 135 þús- und notendur í 62 löndum. Sarnkvæmt fréttatilkynningu frá Handsali hf. hefur Bloomberg um 250 fréttaritara sem staðsettir eru víða um heim. Hið beinlínutengda kerfi veitir aðgang að upplýsingum frá helstu verðbréfa- og gjaldeyris- mörkuðum heimsins, alþjóðlegum fréttaþjónustum og skýrslum og rannsóknum tengdum yfir 40 þús- und fyrirtækjum. í frétt Handsals segir einnig, að með því að taka Bloomberg-kerfið í notkun hafi fyrirtækið aðgang að nýjustu upplýsingum um markaðs- tækifæri erlendis og möguleika á að meta ýmsa þætti út frá fjárfest- ingarstefnu einstakra fjárfesta. Þá fái fyrirtækið innsýn í erlenda mark- aði í gegnum tæknilega greiningu, sem gagnleg sé við ákvarðanatöku. Vertu með - draumurinn gæti orðið að veruleika! tvölaldur Lrinningur!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.