Morgunblaðið - 02.07.1994, Side 14
14 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Verðkönnun vikunnar
Hvað kostar símtalið?
I krónum á mínútu:
Til ísiands VISA Símaþjónusta Ferðasímakort ísland "Collect",
frá: símakort EUROCARD Pósts & síma beint símtal greitt af viðtakanda
Þýskalandi 122,50- 89,- 95,50- 88,- dagtaxti 73,50 næturt. virkar ekki
Japan virkarekki 487,- 350,- 231,-dagtaxti 231,-dagtaxti
180,50 næturt. 180,50 næturt.
Bretlandi 112,- 123,- 110,- 98,-dagtaxti 98,-dagtaxti
81,- næturt. 81,- næturt.
Jórdaníu 157,50- virkarekki virkarekki 285,-dagtaxti 285,- dagtaxti
228,50- næturt. 228,50- næturt.
Bandaríkjunum 87,50- 143,- 223,-1.mín., 116,-dagtaxti 116,-dagtaxti
síðan115,- 94,50-næturt. 94,50-næturt.
Ástralíu 122,50- 124,-
Danmörku 157,50- 128,-
(122,50- á hinum
Norðurlöndunum)
... og Við það 70.- leggjast á 547,- lágm.gjald,
bætist' hvert símtal. til Bandaríkjanna.
Taxti lækkarer
lengd símtals
eykst.
237,- 180,-dagtaxti 180,-dagtaxti
142.50- næturt. 142,50- næturt.
100,50- 88,- dagtaxti 88,- dagtaxti
73.50- næturt. 73,50- næturt.
3 mín. lágm.gjald. 3 mfn. lágm.gjald,
230,- leggjast á og 460,- leggjast
símtal ef sett er ofan á hvert
á símareikning símtal.
eða VISA-kort.
KOSTNAÐUR við að hringja heim frá útlöndum er mjög mismunandi og samkeppnin hörð.
Hvernig er ódýrast að hringja heim frá útlöndum?
Mismunandi kostnaður
og hörð samkeppni
Ferðasímakort Pósts og síma eru hagstæð í
-------------------3»-------——-----------
stuttum símtölum til Islands frá Evrópu. Þetta
er m.a. niðurstaða Guðbjargar R. Guð-
mundsdóttur eftir könnun á ýmsu varðandi
kostnað við símtöl frá útlöndum hingað heim.
í KÖNNUN sem gerð var á kostn-
aði við símtöl til íslands kemur í
Ijós að ef símtölin eru frá Evrópu
og taka stuttan tíma er hagstætt
að nota ferðasímakort Pósts og
síma þar sem ekkert lágmarksgjald
er tekið fyrir símtalið. Kreditkorta-
fyrirtækin bjóða símakort eða síma-
þjónustu og taxtinn hjá þeim er í
sumum tilvikum lægri en hjá Pósti
og síma, sérstaklega á það við þeg-
ar um fjarlæga staði er að ræða.
Símtöl í gegnum skiptiborð á ís-
landi fá á sig visst lágmarksgjald
þannig að ef símtalið er mjög stutt
eru valkostimir betri þar sem ekk-
ert startgjald er tekið.
Það er ekki hægt að hringja
„collect" í gegnum Þýskaland og í
þessari könnun kemur best út að
hringja í gegnum símaþjónustu
Eurocard og næstbest að nota
ferðasímakort Pósts og síma.
Það má benda lesendum á að hjá
ýmsum lækkar taxtinn eftir því sem
líður á símtalið, eftir fyrstu mínútur
telja sum fyrirtæki í hálfum mínút-
um, aðrir í heilum eða jafnvel sek-
úndum og það er um að gera fyrir
fólk að kynna sér taxta nákvæm-
lega ef það er á leiðinni til útlanda
og ætlar að nýta þessa þjónustu
eitthvað að ráði.
Þá er einnig mögulegt hjá sumum
þessara aðila að senda myndrit og
hafa samband við talhólf og sím-
svara.
Enn sem komið er virðist ekki
borga sig að nota kortin hér heima
til að hringja til útlanda og hag-
kvæmast að hringja beint úr heima-
síma. Þar er þó kominn annar val-
kostur í dæmið sem er telepassport-
þjónustan sem getið er um hér á
opnunni og vera kann að kredit-
kortafyrirtækin og aðstandendur
Ferðasímakortsins séu með hag-
stæða samninga við önnur lönd en
tilgreind eru í könnuninni.
Visa símakort
Allir Visa korthafar eiga kost á
að fá sérstakt símakort. Visa gerði
samning við US Sprint sem er
bandarískt símafyrirtæki og með
því að hringja í sérstakt númer í
hverju landi þá er komist hjá hótel-
kostnaði við símaþjónustu og hægt
að hringja til viðkomandi lands,
stundum beint og stundum í gegn-
um aðila sem þá aðstoðar. Hægt
er að nota þessa þjónustu í 43 lönd-
um. Kortanúmer þurfa viðkomandi
að gefa upp og sérstakt leyninúmer
og síðan númerið sem hringja á í.
Kortasími Eurocard
Eurocard býður gullkorthöfum
og Atlaskorthöfum aðgang að
kortasíma, svokölluðu Executive
TeleCard. Þessa þjónustu Eurocard
má einnig nota til að senda mynd-
bréf. Hægt er að njóta aðstoðar
túlka á línunni og möguleiki að fá
aðstoð frá skjalaþýðendum. Með
sérstöku lykilnúmeri og kortanúm-
eri er komist í samband við korta-
símann og leiðbeiningar gefnar upp
á íslensku. Símgjöldin eru síðan
færð beint á kortareikninginn.
Hægt er að nota símakortið beint
í um fimmtíu löndum en með aðstoð
skiptiborðs í liðlega 60 löndum.
Ferðasímakort Pósts og síma
Ferðasímakort Pósts og síma
stendur öllum til boða. Korthafar
geta fengið aðgang að símþjónustu
í hátt í 50 löndum en kerfið er það
sama og Eurocard er með, Execu-
tive TeleCard. Með kortið við hönd-
ina er hægt að hringja úr hvaða
tónvalssíma sem er og kostnaðurinn
leggst á eigin símreikning á íslandi
eða dregst af innistæðu korts.
Kortin má nota innanlands og
erlendis. Hægt er að kaupa fyrir-
framgreidd kort á 800 krónur og
2.500 krónur og er fyrsta útgáfa
kortanna myndskreytt í tilefni 50
ára afmælis lýðveldisins. Einnig
geta rétthafar síma fengið reikn-
ingskort og þannig látið skuldfæra
símtöl á heimasíma. Sérstakt leyni-
númer þurfa allir að hafa. Fyrir-
framgreiddu kortin fást á póst- og
símstöðvum og þar liggja líka
frammi umsóknareyðublöð fyrir þá
sem vilja fá reikningskort.
Símtöl sem greiðast
af viðtakanda
Frá sumum löndum er hægt að
hringja þannig að símtalið sé borg-
að hér á landi af viðtakanda eða
„collekt". Ef hringt er þannig t.d.
frá Ðanmörku, Bretlandi og Banda-
ríkjunum er notuð íslensk gjaldskrá
fyrir handvirka þjónustu, dagtaxti
eða næturtaxti. Ofan á það leggst
gjald fyrir þjónustuna sem er 460
krónur á hvert símtal.
Ekki er hægt að hringja á þenn-
an hátt frá t.d. Þýskalandi en þaðan
er hægt að nota þjónustuna Island
beint eins og frá hinum löndunum.
ísland beint
Hringi fólk á þennan hátt heim
til Islands er hringt í ákveðið grænt
númer í viðkomandi landi og þann-
ig fengið beint samband við tal-
símavörð á 09 í Reykjavík.
Talsímavörðurinn gefur samband
við þann sem ná á sambandi við á
Islandi. Hægt er að greiða fyrir
símtalið með því að láta skrá það
á símreikning sinn og þá leggst 230
króna gjald ofan á handvirku þjón-
ustuna. Þá er líka mögulegt að
borga með Visa og 230 krónur
leggjast þá á símtalið aukalega.
Erlend síma-
þjónusta í boði
á Islandi
Til landa innan Evrópu
er gjaldskrá Pósts og
síma mun hagstæðari,
en þurfi einstaklingar
eða fyrirtæki að hafa
mikil símasamskipti til
landa utan Evrópu kann
svokölluð „call-back“-
þjónusta að borga sig.
HÖRÐ samkeppni meðal síma-
fyrirtækja í Bandaríkjunum hefur
leitt til þess að langlínutalsíma-
gjöld þar í landi eru einhver þau
ódýrustu sem um getur. Með til-
komu ljósleiðara hafa framfarir í
fjarskiptum tekið miklum stakka-
skiptum og nú getur
hver sem er, hvar sem
er í heiminum, notið
góðs af lágum talsíma-
gjöldum í Bandaríkj-
unum í gegnum svo-
kallaða „call-back“-
þjónustu. Þijú stærstu
símafyrirtækin í
Bandaríkjunum,
AT&T, MCI og Sprint,
bjóða öll upp á slíka
þjónustu.
Neytendasíðan
hafði spumir af um-
boðsmanni hér á landi
sem fúslega sýndi okk-
ur verðskrá símagjalda
til um 200 landa fyrir
símnotendur á íslandi,
en hann selur þjónustu
sem gengur undir
nafninu „Telepass-
port“. Hann er í
tengslum við breskt
fyrirtæki, sem síðan
kaupir þjónustu af
USF International,
sem aftur kaupir af
AT&T. „Breska fyrir-
tækið er endursöluaðili
í þessu tilfelli, en með stórtækum
samningum á milljónum mínútna
fá slík fyrirtæki það mikinn af-
slátt að þau sjá sér verulegan hag
af þessu,“ segir Elías Guðvarðar-
son, sem tók það þó skýrt fram
að gjaldskrá Pósts og síma væri
mun hagstæðari ef hringt væri frá
íslandi innan Evrópu. Ef hinsvegar
talað væri til fjarlægari landa
mætti spara háar fjárhæðir með
þessu fyrirkomulagi. Sem dæmi
má nefna er 48% ódýrara að
hringja til Jórdaníu og Chile í
gegnum „Telepassport“ en á dag-
taxta Pósts og síma, en til Dan-
merkur er gjaldskrá Pósts og síma
mun hagstæðari, eins og meðfylgj-
andi tafla sýnir.
„Viðskiptavinir skrifa undir
samning og greiða stofngjald sem
nemur 50 pundum. Þeir fá síðan
úthlutað símanúmeri í tölvubúnaði
í New York. Þetta er stafrænt
kerfi, sem^gefur són innan Banda-
ríkjanna. I sérstakri umsókn um
aðgang að kerfinu, gefur umsækj-
andi upp símanúmer það sem hann
ætlar að hringja úr, og þegar kem-
ur að notkun hringir notandinn í
ákveðið símanúmer í New York.
Eftir eina hringingu greinir tölvan
hvaðan hringt er. Tólið er lagt á
og eftir örfáar sekúndur hringir
tölvan til baka og gefur viðkom-
andi són. Þá er hægt að hringja
hvert á land sem er. Jafnframt
má nota símakort og fá má tölvu-
disk með verðskrá til 200 landa,“
segir Elías.
Þegar reikningurinn berst, eru
símtölin öll sundurliðið, hvert
hringt hefur verið og hversu lengi
talað. Lágmarksnotkun nemur 25
dollurum á mánuði og þarf að
greiða þá upphæð þó ekkert sé
hringt í mánuðinum. Annars ef
talað er fyrir 25 dollara eða meira,
er upphæðin hluti af raunveruleg-
um símakostnaði og ekki þarf að
greiða neitt aukalega. Viðskipta-
vinurinn fær úthlutað svokölluðu
„pin“-númeri þannig að hann get-
ur hringt hvar sem er í heiminum,
en símtalið gjaldfærist alltaf á
aðgangsnúmer í tölvubúnaðinum.
Þegar viðskiptavinir hringja úr
öðrum símum en eigin símum
hringja þeir í höfuðnúmer tölvunn-
ar, sem biður þá um að slá inn
heimasíma og „pin“-númer.
Garðaúðun
I óleyfi
NÚ ER sumar og stundum sést j
skrítið fólk sniglast í görðum vopn- t
að úðabrúsum í baráttu við sníkju- |
dýr gróðurs. Ekki eru allir með I
leyfi sem bjóða garðaúðun gegn
borgun. I vor voru gefnar út nýjar
reglur um garðaúðun og leyfisveit-
ingar í meðferð slíkra eiturefna.
Skilyrði til þess að stunda garð-
aúðun í atvinnuskyni er að fara á
viðurkennt eiturefnanámskeið, þar
sem kennt er meðhöndlun eitur-
efna, varúðarreglur og mat á þörf
fyrir úðun, þ.e. menn þurfa að
vita hvaða skordýr eru réttdræp.
Hver sem er getur orðið sér úti
um leyfið með því að fara á nám-
skeiðið. Ef menn fylgja ekki þeim
varúðarráðstöfunum sem áskyldar
eru i reglunum eiga þeir á hættu
að missa leyfið. Leyfi kostar 5000
kr. í fyrsta sinn og svo 1000 kr.
í endurnýjun. Við hveija endurnýj-
un sem fer fram á þriggja ára I
fresti er búnaður yfirfarinn og )
tryggt að allt fari fram skv. regl- |
um.
Hvað kostar 15 mínútna
símtal frá Islandi?
M Telepassport Sama verð allan sólartiringinn (USD= 71.50 kr.) Póstur og sími Dagtaxti Næturtaxti
Ástralía 1429.- 2250.- 1687.50
Chile 1751.- 3375.- 2527.50
Namibía 2147.- 3015.- 2257.50
Filipseyjar 2122.- 3375.- 2527.50
Jórdanía 1738.- 3375.- 2527.50
Kenýa 1945.- 3375.- 2527.50
Bandaríkin 1043.- 1290.- 967.50
Brasilía 1759.- 3375.- 2527.50
Kanada 1320.- 1470.- 1102.50
Danmörk 1565.- 870.- 652.50
Eþíópía 2446.- 3375.- 2527.50
Bahamaeyjar 1853.- 3375.- 2527.50
Egyptaland 1831.- 3375.- 2527.50
Japan 1880.- 3015.- 2257.50
Thailand 2266.- 3015.- 2257.50
Sinqapore 1731.- 3015.- 2257.50