Morgunblaðið - 02.07.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.07.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 15 Uppskriftin ARNHEIÐUR ásamt börnum sínum, þeim Bryiyólfi og Þórunni. Ef til eru bláber í frosti... „ÉG LEYFI mér svolítið bruðl fyr- ir hátíðar. Að öðru leyti myndi ég segja að ég væri frekar sparsöm," segir Arnheiður Sigurðardóttir, húsmóðir í Kópavogi. „Ég hef til dæmis eytt nákvæmlega sömu upphæðinni í matarinnkaup und- anfarin sex ár þó fjölskyldan hafi stækkað á tímabilinu," segir hún, en á heimilinu býr fjögurra manna íjölskylda, hjón og tvö böm, fjög- urra og sex ára. „Ég fer venjulega með sjö til átta þúsund krónur í mat á viku, í hæsta lagi níu þúsund, og ég versla alltaf í Bónus. Ég kaupi afskaplega lítið kjöt og þegar ég bý t.d. til lasagna nota ég ekki nema um 200 grömm af hakki fyrir okkur fjögur. Uppistaðan er grænmeti," segir hún aðspurð um matarkostnaðinn. Arnheiður bakar allt sitt ger- brauð og sætabrauð sjálf, eða eins og hún orðar það, „þær tegundir, sem eru dýrastar úti í bakaríunum og ég spara heilmikið á því. Hins- vegar kaupi ég matarbrauðið. Við nokkrar vinkonur kaupum allt mjöl reglulega í stórum sekkjum í heild- sölu og skiptum því svo á milli okkar. Það sparar líka.“ Þegar það var fært í mál við Arnheiði að fá lánaða uppskrift af einhverju góðgætinu, hristir hún höfuðið og segir að þær séu svo Borið hefur verið á að menn hafi þóst hafa leyfi og boðist til þess að úða garða gegn borgun, en slíkt er óleyfilegt. Kvartað hef- ur verið við Hollustuvernd um menn sem hafa vaðið inn í garða hjá fólki og úðað án nokkurs sam- ráðs við eigendur. Þeir hafa svo komið með tilbúna reikninga og krafist þess að fólk borgaði. Holl- ustuvernd vill koma á framfæri að ekki sé skylt að borga slíkt, þegar ekki var samið um úðunina áður, og að fólk ætti að spyija eftir leyfisskírteinum þegar boðið er upp á þessa þjónustu. Hættulegt er að vaða í garða Og úða án samráðs við eigendur. Margir hafa ofnæmi fyrir efnunum og ef ekki eru lokaðir gluggar, þá getur fólk búist við heiftarlegu ofnæmiskasti. Góð regla er að ioka gluggum á meðan úðað er og gæta þess að börn séu ekki úti á meðan, og þvottur sé ekki á snúr- um. Matjurtir á ekki að neyta fyrr en 14 dögum eftir úðun. Alltaf skal merkja með viðurkenndum varúðarmiðum þegar eitrað er. Þótt að eitrið sé í lægsta hættu- flokki er varinn góður. Fólk getur úðað sína garða sjálft og hægt er að fá efnið í venjulegum garð- yrkjubúðum. venjulegar að það tæki því ekki. „Ég veit ekki einu sinni hvaða mjöl ég er með núna. Nota bara það sem til er hveiju sinni og skelli þessu svo saman þannig að úr verður brauð. Aftur á móti skal ég gefa þér uppskrift af uppáhalds- desert fjölskyldunnar og vinkvenna minna, en hann kalla ég Kleifa- desert. Við eigum nefnilega sumar- bústað norður á Ströndum á gam- alli eyðijörð sem heitir Kleifar. Þar reynum við að vera í það minnsta sex vikur á hveiju sumri, slöppum af og týnum fullt af beijurn." Kleifq-desert ‘Alítri frosin blóber 1 dl strásykur 2 dl þeyttur rjómi Sósa 4 eggjarauður I dl strásykur 'h dl sérrí 'A tsk. kaffiduft 4 matarlímsblöð Frosin bláber sett í skál og sykri stráð yfir. Egg og sykur þeytt vel saman. Sérrí, matarlím og kaffi- duft hitað saman í potti og þegar það hefur samlagast er blöndunni hellt saman við ijómann. Sósunni að lokum hellt yfir berin og þá er rétturinn tilbúinn. Gott er að stinga honum inn í ísskáp um stund áður en hann er borinn fram. ■ 4* með frönskuni og sósu =995.- TAKIDMEÐ itiii TAKIÐMEÐ -tilboð! VWty -tilboð! Jarlinn NEYTEIMDUR Flytja inn vörur með hálftómum saltfiskskipum frá Portúgal Úr físki í búðar- rekstur BANGSAR, barnastólar, snuð, rugguhestar, barnarúm og kerr- ur, eina sem vantar er bamahjal- ið, sem heyrist áreiðanlega oft í þessari búð. Það em ung hjón sem reka verslunina Allir Krakk- ar á Rauðarárstígnum. Hún heit- ir Isobel Hreinsson og er frá Birmingham á Englandi, hann heitir Erlingur Logi Hreinsson og er frá Reykjavík. Vömverði er haldið niðri með um 30-40% minni flutnings- kostnaði en gengur og gerist. Þau flytja vömn- ar inn frá Portúgal, með saltfiskflutningaskipum, sem koma hálftóm til baka frá Portúgal. Þau kynntust á Höfn í Hornafirði fyrir um átta ámm, fluttust til Bolungarvíkur á Isafirði og síðan til Reykjavíkur. Isobel kom hingað árið 1986 í atvinnuleit frá Englandi og fór að vinna í fiski. í síldinni á Höfn kynntist hún Loga manninum sínum og í dag era þau gift og eiga fjögurra ára dóttur, Bríet EUu, sem er að byija í leikskóla. Þau hófu búskap á Bolungar- vík fyrir nokkmm ámm, þar var Logi á sjónum. Þar varð hann fyrir slysi, og gat ekki lengur unnið á sjónum. Þá fluttust þau ERLINGUR Logi og Isobel Morgunblaðið/Kristinn búðinni Allir Krakkar VAGNAR seljast mikið á sumrin til Reykjavíkur, og sköpuðu sér atvinnu sjálf. Allir Krakkar vom opnaðir í nóvember 1992. Isobel segir að henni hafi blöskrað verðlag héraa og sérstaklega á barnavörum. Logi vann þá sem sölumaður hjá Netasölunni og Isobel fannst hún þurfa að hafa eitthvað að gera. Þau segja að fyrst þegar þau byrjuðu, þá hafi margir tortryggt lágt vömverðið og haldið að aðeins drasl gæti verið svo ódýrt. En það hafi margt breyst eftir það. Vömverð hafi stórlækkað að undanförnu. Þau flytja vömr inn aðalega frá Bébécar fyrirtækinu í Port- úgal, en þeir framleiða allt efni í vömr sínar sjálfir. Þau halda flutningskostnaði niðri með því að flytja inn vörunar með Nes- skipi hf, sem flytur út saltfisk til Portúgal, og koma með hálftóm skip til baka. Isobel segir að með þessu geti þau haft vömnar jafn- dýrar og gerist á Englandi. Mesta salan er á þessum árs- tíma, á sumrin kaupir fólk vagna og kerrur, og annað til þess að vera úti með bömin. Logi segir að þau leggji áherslu á gæði, gott verð og þjónustu, og það sé besta kynningin fyrir búðina. ■ ÞHY r, Trfáplöntu Allar qarðplöntur, sumarblóm, tré oq runnar 20-50% IFSLÁmJll Allar garðrósir tneð 30% afslœtti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.