Morgunblaðið - 02.07.1994, Page 28

Morgunblaðið - 02.07.1994, Page 28
28 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ * * i t : I 1 : INGVELDUR JONSDOTTIR Ingveldur Jónsdóttir fædd- ist á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi í Vestur-Skafta- fellssýslu 3. maí 1904. Hún lést á sjúkrahúsi Vestmannaeyja 23. júní síðastliðinn nýbúin að fylla níunda tuginn. Foreldrar hennar voru Þuríður Odds- dóttir og Jóns Eyjólfsson, bóndi á Syðri-Steinsmýri. Alls átti Ingveldur sjö systkini og er nú einn bróðir hennar á lífi, Runólfur, sá yngsti. Árið 1926, 5. júní, giftist hún Birni Sig- urðssyni frá Pétursborg í Vest- mannaeyjum. Þau hófu sinn búskap í húsinu Valhöll við Strandveg og þar fæddist dótt- ir þeirra Ingibjörg Ágústa sem gift er Jóni Runólfssyni. Seinna bjuggu þau í Hörgs- holti við Skólaveg og þar fædd- ist þeim seinni dóttirin Alda 1928, sem gift er Hilmi Högn- assyni. Ingveldur verður jarð- sungin frá Landakirkju í dag. INGA, eins og hún var ávallt köll- uð, hafði lifað tímana tvenna. Á níutíu ára lífsferli hafði hún orðið vitni að og lifað þijú eldgos í næsta nágrenni. Árið sem Katla gaus, ">1918, bjó fjölskylda hennar að Skálmabæjarhraunum í Álftaveri. Það var mikið örlgaár hjá Ingu. Hún var aðeins fjórtán ára gömul og hafði misst föður sinn um vor- ið. Katla, hinn gamli ógnvaldur Skaftfellinga, rumskaði eftir 58 ára svefn 12. október 1918. Bær- inn þeirra varð umflotinn jökul- straumnum sem flæddi um alla sanda og gerði hveija lækjarsp- rænu að ógnvekjandi stórfljóti. Þau urðu að flýja bæinn í fjárhús, sem ’Tfctóð ögn hærra. Þar urðu þau að bíða marga dimma daga, því ekki sást bjarma fyrir degi vegna ös- kunnar. Ekki var síminn kominn þá né útvarpið og því engar fréttir um afdrif annarra. Eini ljósi punkt- urinn í þessu svartnætti var að til þeirra sluppu nokkrir röskir fjár- rekstrarmenn undan flóðinu. Til að stytta sér stundir tóku menn að kveðast á og segja sögur. Lærði hún mikið af þessum kveðskap og lumaði á, á góðri stund. Jörðin fór í eyði og fjölskyldan tvístraðist. Þegar Inga var sextán eða sautj- án ára var hún komin út í Vest- mannaeyjar í vist hjá bróður sín- um, Oddi. Upp frá því bjó hún í A'estmannaeyjum utan tvö og hálft ár á Norðfirði og gosárin 1973-74. Var hún í vist hjá ýmsu góðu fólki, en mest hélt hún upp á Stein skreð- ara og Kristínu og þeirra böm á Ingólfs- hvoli. Um það leyti sem Ingveldur og Björn byijuðu að búa var kreppan mikla að leggjast á þjóðir heims af fullum þunga. ís- lendingar fengu að finna fyrir henni, ekki síður en aðrar þjóðir. Þetta var erfitt ungum hjónum, sem vom að byija sinn búskap. Nú þurfti að spara og velta hlutunum fyrir sér. Þá sýndi Inga hvað í henni bjó. Til að afla heimilinu tekna tók hún að sér „kostgangara", verkaði sundmaga í eldhúsinu, saumaði á sig og bömin sín og fyrir aðra. Hún hafði listamannshendur, var jafn víg á saumavélina sem hekl- unálina _ og pijónaskap sem út- saum. Á summm vann hún við heyskap og saltfiskþurrkun og allt bjargaðist og seinna stríðið kom með nóga vinnu og meiri tekjur. Árið 1945 keyptu þau húsið á Heiðavegi 30 sem var einn af tíu fyrstu verkamannabústöðunum hér. Þar leið þeim vel og þau bjuggu þar í tuttugu ár eða þar til Bjöm lést 14. nóvember 1964. Inga seldi fljótlega húsið og flutt- ist til okkar á Túngötu 22. Á Heiðavegi 30 var hún er hún lifði sitt annað gos. Surtsey varð til, rétt við bæjardyr okkar Vest- manneyinga og askan helltist yfir okkur öðm hveiju og eyðilagði drykkjarvatnið okkar. Hér á Túngötunni þótti henni gott að vera. Allar konurnar í ná- grenninu urðu vinkonur hennar, þó þær væru þijátíu til fjörutíu árum yngri. Hún undi sér vel með yngra fólki og var mjög hnyttin í samræðum og hrókur alls fagnað- ar, þegar sá gállinn var á henni. Hér á Túngötunni var hún þegar hún upplifði sitt þriðja eldgos og það ekki lengra frá glugganum hennar en fimm til sex hundruð metra. Þá flúði hún undan eldgosi öðra sinni og nú með fiskibát til Þorlákshafnar. „Út vil ég“ sagði Snorri forðum og það sagði Inga líka. Út í Eyjar fór hún með okkur um mánaða- mótin ágúst-september 1974. Var allt hér þá kolsvart og hálf hreins- að. Hún lifði það af að sjá eyjuna okkar rísa úr öskustónni, jafnvel enn tignarlegri en áður. Síðustu sjö árin bjó hún á Hraunbúðum, dvalar- heimili aldraðra. Þar átti hún sitt fallega herbergi með mörgum persónulegum hlutum og allt var þar í röð og reglu, gleraugun í þessari skúffu, nam- miskálin í hinni. Þetta hafði alla tíð verið hennar stíll, allt á sín- um stað. Andleg heilsa hennar til hinstu stundar var al- veg sérstök og minni hennar óbrigðult. Ég vil að lokum þakka þér, Inga mín, samfylgdina og það var gott fyrir bömin mín að eiga þig fyrir ömmu. Guð blessi minn- inguna um þig. Hilmir Högnason. Hún eignaðist tvær dætur, Ágústu og Öldu, sem er móðir okkar. Hún átti lengi bústað á heimili mömmu og pabba, fyrst í íbúð í kjallaranum og seinna í her- bergi í risinu eða alveg þar til hún fluttist á dvalarheimili aldraðra í Hraunbúðum. Mamma og pabbi bjuggu einnig nokkur ár á heimili ömmu og afa á Heiðarvegi 30 hér í bæ. Þaðan munum við fyrst eftir henni. Við munum vel eftir því að hún sá um að klippa okkur systumar og þá þýddi ekkert að malda í móinn eða ætla að fá að ráða klipp- ingunni sjálf. Við vorum allar klipptar nákvæmlega eins og feng- um svo slaufu eða spennu til að halda hárinu frá augunum. Þetta átti einnig við um stelpurnar henn- ar Gústu. Svo gekk hún á milli heimila dætra sinna og rétti hjálparhönd eftir því sem þurfti, greip í sokkakörfuna, eldaði mat- inn sem oftast var kjötsúpa því það þótti afa best að fá. Hrísgijóna- grauturinn var líka mjög góður hjá henni. Fyrir jól og þjóðhátíð lét hún okkur máta föt sem hún og mamma vora að sauma á jafnaldra okkar í sveit. Þegar hátíðin rann upp kom í Ijós að fötin voru handa okkur sjálfum. Ef foreldrar okkar fóru upp á land þá flutti hún heim og sá alveg um okkur. Hún beitti okkur góðum aga og launaði okkur með góð- gæti, bjó til dýrindis ávaxtasalat til að hafa með kaffinu eða bakaði ljúffenga köku, á kvöldin hvatti hún okkur til að skrifa foreldram okkar bréf eða teikna handa þeim myndir og svo vorum við látin þvo LÝÐUR SIGMUNDSSON + Lýður Sig- mundsson var fæddur 17. apríl 1911 á Skriðne- senni í Bitrufirði. Hann lést 19. júní á sjúkrahúsi Akra- i.ness. Foreldrar hans voru Sig- mundur Lýðsson frá Skriðnesenni, f. 8. júlí 1880, d. 6. júní 1960, og Jó- hanna Sigmunds- dóttir, f. 23. ágúst 1886 á Máskeldu í Dalasýslu, d. 13. janúar 1969. Systkini Lúðs eru Signý, f. 30. ágúst 1912, Jón, f. 22. nóvember 1914, og Indr- iði, f. 26. ágúst 1922. Eftirlif- andi kona Lýðs er Vigdís Matt- híasdóttir, f. 5. nóvember 1930 á Hólmavík. Börn þeirra eru Jóhanna, f. 27. júní 1957, Sig- mundur, f. 14. ágúst 1960, Ing- þór, f. 23. mars 1963, og Grét- ar, f. 11. mars 1964, fórst í sjó- slysi 28. apríl 1993. Áður eign- aðist Lýður dótturina Eddu, f. 1940, búsett í Hafnarfírði. Lýð- ur og Vigdís hófu búskap á Hólmavík árið 1956, en fluttust til Akraness árið 1961 og hafa búið þar síðan. Þar vann Lýður við fisk- vinnslu. Utför hans fer fram frá Óspaks- eyrarkirkju í dag. HANN Lýður frændi minn er horfinn frá okkur. Það koma margar góðar minn- ingar upp í hugann og einnig sá söknuður, sem alltaf fylgir þessum vistaskipt- um samferðafólksins. Ég man svo vel eftir honum Lýð frænda þegar ég, lítil telpa, var á sumrin ásamt mömmu heima á Gili hjá afa og ömmu. Þessi stóri og elskulegi móðurbróðir minn smíðaði listavel gerð leikfangaskip í smíðahúsinu hans afa og bjó svo til bréfbáta fyrir litlu frænku sína sem undi þarna dável og reyndi líka að smíða úr spýtukubbum alls kyns duggur og kugga. Eftir að við fluttum var alltaf mikil tilhlökkun ef sast til Lýðs að koma í heimsókn. Ég dýrkaði og dáði þennan frænda minn, sem var vegagerðarmaður, átti rauðan vörubíl og sat í eldhúsinu hennar mömmu og sagði vegavinnusögur. Seinna stofnuðu Lýður og Dísa heimili og börnin fæddust hvert af öðru. Það var alltaf gaman að koma til þeirra. Lýður var sérstaklega söngelskur og það var oft sungið þegar fólkið okkar og vinir komu saman. Gaman var að heyra þá taka lagið saman bræðuma Lýð og Jón á Gili og vin þeirra Kjartan á Sandhólum. Ég þakka þér, góði frændi minn, fyrir alla þína glaðværð og væntumþykju og bið góðan guð að geyma þig og fylgja þér þá leið sem við eigum öll eftir að fara — til annarrar tilveru — þó svo nærri. Ég kveð þig með örfáum línum úr Næturljóði Jóns frá Ljárskógum. Kom vomótt og syng þitt barn í blund hve blítt þittvögguljóð, og hlý þín mund ég þrái þig. Breið þú húmsins mjúku vemdarvængi væra nótt - yfir mig. Ásdís. okkur sérstaklega vel á bak við eyrun áður en við fóram að sofa. Og þá gerðist það eitt kvöld að hún klippti 160 neglur, 20 stykki á 8 krökkum, okkur fannst að það hlyti að vera einhvers konar met. Bismark-bijóstsykurinn hvíti með rauðu röndunum var alla tíð til í veskinu hennar og varabirgðir í skápnum. Það er líklega minning- in sem öll barnabarnabömin myndu minnast fyrst á ef þau væru spurð. Og í öðru sæti kæmu jólagjafirnar. Fyrir hver einustu jól útbjó hún jólagjafir og gætti þess að enginn yrði útundan, seinni árin fékk hún einhvem ættingja til að fara í bæinn fyrir sig og velja eitt- hvað fallegt og hagkvæmt til að gefa. Einhver annar hjálpaði með jólakortin og að pakka inn og merkja. Ánægjan og tilhlökkunin sem hún hafði af þessu veitti henni orku til að halda áfram að starfa. Starf hennar síðustu árin var að hekla. Hún heklaði „dúllur“ á eldavélarhellur. Um páskana gaf hún mér, Hrefnu, sem þetta skrif- ar, eitt dúllusett, en þau voru einn- ig seld í Gallerí heimalist og í Fönd- urstofu Hraunbúða. Hinn 3. maí hélt hún upp á ní- ræðisafmælið sitt með pompi og prakt. Hún naut þess fram í fingur- góma að taka á móti vinum og vandamönnum, það var henni mik- ils virði að fá frændur sína og frænkur víða að í heimsókn til sín. Hún hélt alla tíð sterku sambandi við alla fjölskylduna og lét sig varða ástand og afkomu okkar allra. Gladdist með þeim sem vel hefur gengið en sýndi þeim samúð sem miður hefur gengið. Á þann hátt gaf hún okkur. Hún safnaði ekki veraldlegum auði, flestum hlutum sem hún eignaðist um ævina hafði hún þeg- ar ráðstafað og þá til þeirra sem hún taldi að hefðu mesta ánægju af hlutunum, þannig að þegar til skiptanna kom reyndist það auð- velt verk. Amma var fullkomlega sátt við að kveðja. Ég er þakklát Guði fyr- ir að sjúkdómslega hennar varð ekki lengri en raun varð á. Elsku amma, þakka þér fyrir þessar ljúfu minningar. Fyrir hönd okkar systkinanna, Hrefna. Nú er hún amma mín dáin lið- lega níræð að aldri. Hún hafði oft komist svo að orði að hún vildi ekki verða hundrað ára og varð henni að ósk sinni. Amma flutti til okkar á Túngötuna eftir að afi Björn dó árið 1964. Þá var ég aðeins eins og hálfs árs gömul og man því ekkert eftir afa mínum né heldur föðurömmu minni og afa. Því var það mér mikill fjársjóð- ur að eiga eina ömmu og þessari einu ömmu sem ég man eftir, var ég svo heppin að fá að kynnast og vera í nánum tengslum við allt fram á þennan dag. Það fyrsta sem ég man af samskiptum okkar var að hápunktur tilverannar hjá okk- ur krökkunum var að fara niður til ömmu og fá að hlusta á grammófónplöturnar hennar og þá var vinsælust platan með „Baldri og Konna“. Amma bjó þá í íbúð í kjallaranum og urðum við öll að sitja grafkyrr á gólfinu á meðan við hlustuðum, annað kom ekki til greina. Þá áttu mamma og pabbi ekki plötuspilara svo amma hefur, í okkar augum, verið „tæknilega sinnuð“. Amma vildi alltaf hafa nóg að gera og tók hún því að sér að sinna vissum verkum eins og því að vaska upp, stoppa í sokka, klippa neglur, bæði á fingram og tám og þýddi þá ekkert að beijast um né garga og góla því þetta þurfti að gera hvað sem tautaði og raulaði. Þegar allt var afstaðið fannst okk- ur amma nú vera syolítil hetja að geta klippt svona margar neglur, áttatíu talsins, og þó höfðu þær verið tvöfalt fleiri áður fyrr. Ég man eftir einum jólum, þeg- ar ég hef verið u.þ.b. fjögurra ára gömul, að við íjögur yngstu systkinin voram í heimsókn niðri hjá ömmu ásamt mömmu og pabba og Gústu og Jóni og vildum fá að dansa í kringum jólatré. Okkur fannst ekki jól nema það væri gert en það var svolítið þringt hjá ömmu þegar svona margir gestir komu. Amma dó þó ekki ráðalaus heldur náði hún í gólfvasa, setti grein í hann og svo dönsuðum við fjögur með pabba og Jóni, af mik- illi innlifun kringum „tréð“ frammi í þröngum ganginum. Ömmu þótti eflaust nóg um, þegar við létum sem hæst og sagði okkur þá ævinlega frá honum „Kolskeggi“ sem ætti heima í kompunni hennar. Þá datt yfirleitt á dúnalogn. En seinna þegar við eltumst og þroskuðumst uppgötv- uðum við að um tilbúning hafði verið að ræða allan tímann. Á stóru heimili eins og okkar var oft erilsamt, jafnvel fyrir lítil böm, og því vora þær stundir sem ég átti ein með ömmu mér dýrmæt- ar. Hún átti ekki leikföng að lána mér en ég gat setið tímunum sam- an við að skoða, flokka og raða saman öllum fallegu tölunum hennar sem hún geymdi í krukku. Á meðan sat amma hjá mér og ýmist heklaði, saumði eða lagði kapal. Stundum spiluðum við líka á spil, Ólsen Ólsen eða veiðimann. Þegar við fluttum aftur til Vest- mannaeyja eftir eldgosið var ömmu sem búin var að upplifa þijú eld- gos, af skiljanlegum ástæðum illa við að búa áfram í íbúðinni sinni í kjallaranum hjá okkur. Hún flutti því upp á loft í stórt og gott her- bergi sem var einmitt við hliðna á mínu herbergi. Amma var að vissu leyti unglingur á sama tíma og ég. Eða það sögðum við oft við hana í gríni því henni þótti gott að sofa fram eftir morgni og vaka fram eftir nóttu. Ástæðan fyrir nætur- bröltinu var þó aðeins sú að þá fyrst las hún Morgunblaðið, nokk- uð sem tók hana oft hálfa nóttina. Á þessum árum settist ég oft inn til hennar og hlustaði á útvarps- söguna með henni og spilaði við hana. Ég tók jafnvel upp á því að skoða tölurnar hennar þó ég væri nú orðin ansi stálpuð. Amma var alltaf svo umhyggjusöm þegar við voram lasin og vissi alltaf hvað best væri að gera. Það var viss passi þegar ég var kvefuð og gat ekki sogið fyrir hósta að amma kom til mín með slæðu frá sér sem hún vafði um hálsinn á mér svo mér batnaði og alltaf var hún tilbú- in með „lampaspritt" og joð sem átti að lækna allt. Eftir að ég flaug úr hreiðrinu voru samverustundir okkar ömmu ekki eins tíðar og áður en úr reyndi ég að bæta með því að vera dug- lega að skrifa henni og sendi henni ýmis sniðug kort sem ég vissi að hún hafði húmor fyrir og hefur hún oft talað um það við mig hvað henni þótti gaman að fá kortin. Sumrin ’93 og ’94 hef ég unnið við afleysingar á Hraunbúðum þar sem hún bjó síðustu árin sín og hefur það verið mér ómetanlegur tími því þá urðu samverastundir okkar mun fleiri. Finnst mér ég hafa kynnst henni enn betur og á annan hátt en áður og nú gat ég endurgoldið henni með umhyggju minni þennan stutta tíma sem hún átti eftir ólifað. Sat ég oft eftir vinnu á rúmstokknum hjá henni og skálaði við hana í sherrýinu sem frænkur hennar höfðu gefið henni í fyrra sumar. Þessa flösku tókst okkur ekki að klára þvi amma var fljótlega orðin of lasin til þess í vor. Það var erfitt að sleppa henni frá sér en ég er mikið þakklát fyr- ir að hún fékk að deyja eftir stutta dvöl á sjúkrahúsinu og án þess að kveljast lengi því það var það sem hún sjálf þráði og var sátt við. Elsku amma mín, ég vil með þessu þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér í gegnum árin og mun ég alltaf minnast þess hve dýrmætur sá tími hefur verið mér. Þín dótturdóttir. Inga Jóna Hilmisdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.