Morgunblaðið - 02.07.1994, Síða 29

Morgunblaðið - 02.07.1994, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNIIMGAR LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ1994 29 ANNA RUT HA UKSDÓTTIR + Anna Rut Hauksdóttir var fædd í Stykkishólmi 27. ágúst 1956. Hún lést í Landspít- alanum 26. júni síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Erla Guðmundsdóttir frá Stykkis- hólmi og Haukur Bjarnason frá Húsavík. Anna Rut ólst upp i Stykkishólmi til ellefu ára ald- urs en þá flutti hún með fjöl- skyldu sinni til Keflavíkur. Systkini Önnur Rutar eru Helga, f. 6. april 1952, Bára, f. 9. janúar 1954, Bjarni, f. 21. júní 1960, Haukur, f. 18. april 1963, Dagmar, f. 29. maí 1964, og- Guðmundur, f. 10. mars 1968. Anna Rut giftist 25. októ- ber 1978 Sveinbirni Þórissyni, f. 9. nóvember 1957, frá Lyng- ási í Rangárvallasýslu. Anna Rut og Sveinbjörn eignuðust þijú börn. Þau eru: Þórir, f. 22. desember 1975, Sóley, f. 13. ágúst 1978, og Bjarni Steinar, f. 14. júlí 1987. Anna Rut starf- aði við fiskvinnslu og skrif- stofustörf. Frá 1987 starfaði hún í Hagkaupum í Njarðvík. Útför hennar fer fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju í dag. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) FYRIR u.þ.b. aldarfjórðungi tókst vinátta með þremur unglingsstúlk- um. Vinátta sem að okkar áliti átti engan sinn líka. Við vorum í mörg ár óaðskiljanlegar, ein var ekki nefnd án hinna tveggja. Framtíðin og lífið var okkar og það var bjart framundan. Vinátta okkar var svo einlæg og sterk að jafnvel þegar að unglingsárin voru að baki og við sín í hverri heimsálfunni slitnaði aldrei sá sterki strengur sem batt okkur saman. Þegar við hittumst eftir langan aðskilnað, var það allt- af eins og við hefðum hist síðast í gær. Mörgum skemmtileg- um stundum eyddum við þijár í herberginu hennar Önnu Rutar og spáðum í framtíðina. Eitt vorum við alveg sammála um, við ætl- uðum að verða gamlar saman og njóta lífsins. Ó, hvað við ætluðum að njóta þess. En allt er í heimin- um hverfult og það átti ekki eftir að verða. Einn strengurinn þessu yndislega hljóðfæri vináttu okkar er brostinn. Hún Anna Rut er dáin og eftir sitjum við tvær nið- urbeygðar og reynum að skilja af hveiju Anna Rut þurfti að fara svona snemma. Minningarnar frá samveru okkar streyma fram. Sjaldan hefur verið eins gaman að vinna í físki eins og þessi sumur og einn eða tvo vetur sem við unnum í Sjöstjörnunni. Allt- af fundum við eitthvað skemmtilegt til að gera, eins og þegar reyna átti að setja okkur í bónus að skera úr og við fengum nokkra aura í bónus, því að allur tíminn fór í að grínast og gantast. Okkur fannst það ekki mikið mál þegar vertíðin var í fullum gangi, að vinna til tvö um nóttina og skella okkur í Ungó í vinnugallanum til þess að ná síð- asta klukkutímanumm af ballinu. En alltaf vorum við mættar snemma næsta dag. Þegar við bundum dós- irnar og draslið aftan í bíl forstjór- ans og plötuðum bílstjórann á fyrir- tækisrútunni til að elta hann heim, með allt liðið í rútunni til þess að sjá hvað hann mundi gera, en auð- vitað gerði hann það okkur ekki til geðs að stoppa og losa aftan úr bílnum. Við vorum hálf kvíðnar þegar við hittum forstjórann í vinn- unni daginn eftir, en hann glotti bara til okkar því að hann vissi al- veg hveijir stóðu fyrir hrekknum. Sumarið 1974 fór Anna Rut í sumar- vinnu að Laugum í S- Þingeyjarsýslu. Þegar hún kom heim sagði hún okkur með glampa í augum að hún væri búin að kynnast hinum eina rétta og að hann héti Sveinbjörn. Þau hófu búskap á Faxa- brautinni í Keflavík. Þangað kom stolt móð- ir með frumburðinn sinn í desember 1975. Þá kynntumst við nýrri hlið á Önnu Rut, móð- urhliðinni, ekkert var of gott fyrir börnin hennar, unun var að sjá ást- ina og kærleikann sem hún sýndi bömunum sínum. Það skiptust á skin og skúrir í lífí Önnu Rutar eins og hjá okkur öllum, Anna Rut stóð af sér skúrim- ar með sínum alkunna dugnaði og æðruleysi. Hvernig sem á stóð hjá henni var hún alltaf til staðar og tilbúin að létta undir með fjölskyldu sinni og sínum íjölmörgu vinum. Hún var sú sem leitað var til þegar eitthvað bjátaði á. Hún hafði ein- staklega skemmtilega kímnigáfu og alltaf var hún hress og kát þrátt fyrir erfíð veikindi. Hún laðaði að sér fólk, enda leið öllum vel í ná- vist hennar. Trygg var hún og trú þeim sem henni þótti vænt um og taldi til vina sinna og fómm við ekki varhluta af því. Anna Rut var geysilega dugleg og að reyna að halda í við hana var enginn hægðarleikur. Hún sá alfar- ið um heimilið og börnin þar sem Bjössi þurfti af illri nauðsyn að dveljast mikið að heiman vinnu sinnar vegna. Hún sá um allt bók- hald og allar útréttingar fyrir fyrir- tæki föður síns og vann líka eftir getu utan heimilisins. Heimili þeirra Bjössa bar vott um smekkvísi, fágun og dugnað hennar. Það var yndislegt að sitja í borðkróknum hjá henni við kertaljós og spjalla VALGERÐUR SVEINSDÓTTIR + Valgerður Sveinsdóttir var fædd í Skaft- árdal á Síðu 4. október 1907. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 22. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sveinn Steingríms- son(1874-1964)og Margrét Einars- dóttir (1878-1965). Þau bjuggu í Skaft- árdal (1902-18) og síðan í Langholti í Meðallandi (1918-43) og eignuðust níu börn. Þau eru: Einar, f. 1903 (látinn), Björn, f. 1904 (látinn), Steingrímur, f. 1906, Valgerð- ur, sem hér er minnst, Ingi- bergur, f. 1908 (látinn), Þór- unn, f. 1910, Ólafur, f. 1912, Sigríður, f. 1914, og Guðlaug, f. 1916. Útför Valgerðar fer fram frá Grafarkirkju í Skaft- ártungu í dag og hlýtur hún leg í kirkjugarðinum þar, við hlið foreldra sinna. HÚN Vala frænka mundi tímana tvenna ef ekki þrenna. Hún var borin í þennan heim á haustdögum þegar daginn er tekið að stytta og nóttina að lengja. Hún yfírgaf þessa jarðvist þegar birtan ræður ríkjum. Þannig var Vala frænka, hún veitti birtu og yl í hjörtu sam- ferðamanna sinna. Ég minnist Völu frænku ekki á annan hátt en þann að hún var ávallt tilbúin að létta undir með öðrum. Ég liygg að við öll, systkina- börn hennar, minn- umst hennar sem Völu frænku, frænku sem alltaf var tilbúin að rétta hjálparhönd og gott var að eiga að. I mínu hjarta mun hún ávallt eiga sinn sess. Hún frænka mín lét það ekki aftra sér hér á árum áður þótt sam- gönguleiðin væri ekki alltaf greið. Hún fór þá á tveimur jafnfljót- nm og lét ekki aftra sér þótt leiðin væri löng. Sem barn minnist ég þess að hún kom fótgangandi frá Land- vegamótum að Galtalæk, um 36 km leið, að vori eða hausti, til að létta undir með foreldrum mínum í daglegum önnum. Hún átti engan sinn líka, hún átti tíma fyrir alla. Hún frænka mín var vön að standa á eigin fótum, og ég veit ekki til að hún hafi nokkru sinni brugðist trausti nokkurs manns, hún stóð ávallt fyrir sínu. Hún var afar ósínk á vinnu sína og er verðugur fulltrúi þeirrar kyn- slóðar sem mældi ekki vinnu sína í klukkustundum, heldur dagsverk- um. Dagsverkin voru ekki mæld í klukkustundum, heldur frá rismál- unytil náttmála. Ég ætla ekki að rekja ættir Völu, það munu aðrir gjöra. Hún var af Hlíðarættinni, ætt Sveins Pálssonar landlæknis og Skúla Magnússonar landfógeta, og hún var stolt af því. Hún var sjálf höfð- ingi í lund og höfðingi heim að sækja sem og í framkomu við aðra. Friður sé með þér. Guðrún Ammendrup. Herra, minn Guð, til þín, hærra til þín, enda þótt 511 sé kross upphefðin mín. Hljóma skal harpan mín: Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín. í dag er til moldar borin, móður- systir okkar, Valgerður Sveins- dóttir. Okkur langar til að minnast hennar í fáum orðum þó fátækleg séu. Vala frænka, eins og við köll- uðum hana alltaf, reyndist öllum ætíð vel, ávallt tilbúin til að rétta öðrum hjálparhönd og eru eflaust margir sem1 minnast hennar, þar sem hún leysti öll sín störf af hendi með stakri trúmennsku og hlýhug. Vala eignaðist engin börn, en þau eru samt mörg börnin hennar; öll hennar systkinabörn áttu stað hjá henni og mörg önnur sem hún kynntist á langri ævi. Við minnumst hennar þegar hún var heima hjá foreldrum okkar. Aldrei féll henni verk úr hendi, en alltaf hafði hún tíma fyrir okkur systkinin, sinna rellinu og suðinu, svara spurningum okkar með sinni þýðu rödd og stijúka tár af vöngum með hlýjum og nærfærnum hönd- um. Elsku Vala, við kveðjum þig með söknuð og harm í lrjarta. Sofanda sýndu þá sólstigans braut upp í þitt eilífa alföðurskaut. Hljómi svo harpan mín: Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín. (M. Joch.) Valgerður Siguijónsdóttir og börn, Gréta Sigmjónsdóttir og börn. saman. Þau Bjössi höfðu fest kaup á raðhúsi í Njarðvíkum og var það hennar heitasta ósk að komast í húsið sitt, en því miður gat það ekki orðið. Anna Rut skilur eftir svo margar yndislegar minningar sem við sem eftir sitjum getum yljað okkur við þegar söknuðurinn sækir okkur heim. Elsku Bjössi, Þórir, Sóley, Bjarni Steinar, Erla, Haukur og aðrir ást- vinir, missir ykkar er mikill og biðj- um við algóðan Guð að styrkja ykk- ur og styðja í sorg ykkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guð blessi minningu Önnu Rutar. Hafdís og Þorbjörg. Elsku systir og frænka. Þú barðist við mjög erfiðan sjúk- dóm í eitt ár og var það mjög erf- itt fyrir þig og fjölskyldu þína, en nú ertu farin frá okkur þangað sem þér var ætlað að fara. Það er á svona stundum sem margir hugsa: Hver er tilgangurinn, hvað er það sem veldur því að svo ung kona er hrifsuð frá okkur svo snöggt og fyrirvaralaust? En vegir guðs eru órannsakan- legir og lífsgátan okkur hulin eftir sem áður. Það er sárt til þess að hugsa að við fáum ekki að njóta samvista við þig lengur. Við eigum erfítt með að sætta okkur við það að þú sért ekki lengur á meðal okkar. Það er rétt sjö mánuðir síðan mágur þinn dó. Það er mikið lagt á sumar fjöl- skyldur. En guð gefur okkur styrk í sorginni og leiðir okkur réttan veg. Elsku Bjössi, Þórir, Sóley og Bjarni Steinar, pabbi, mamma, afi, amma, fjölskyldur og aðrir aðstand- endur. Við vottum ykkur okkar inni- legustu samúð. Guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar. Blessuð sé minning ástkærrar systur og frænku. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sipr unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Kveðja. Helga, Heiðar, Aðal- heiður og Inga Valborg. Fyrir sex árum varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast henni Rut. Ég gleymi því aldrei þegar ég sá- hana fyrst í hvítri peysu, háhæl- uðum skóm og með sólgleraugu, eins og við sögðum svo oft, „svo gasalega lekker“. Rut var einstök manneskja, svo lífsglöð og hress, ég sá það strax að það gæti engum leiðst í návist hennar, hún gat alltaf snúið öllu upp í grín, sem sagt manneskja sem ég kolféll fyrir. Við gátum setið tímunum saman og spjallað um heima og geima, sérstaklega um nýja húsið eftir að þau festu kaup á því hún og Bjössi. Það leið varla svo dagur að við hitt- umst ekki. Eitt það síðasta sem hún sagði var að hún ætlaði að vinna bug á veikindum sínum svo hún gæti flutt inn. En vegir Guðs eru órannsakanlegir, við fáum ekki öllu ráðið. Elsku vinkona, ég mun alltaf geyma minningarnar okkar í hjarta mínu. Kæri Bjössi, börn, foreldrar og aðrir ástvinir, þið eigið alla mína samúð. Heiðdis. Mig langar með örfáum orðum að minnast elskulegrar mágkonu minnar, Önnu Rutar Hauksdóttur, sem lést hinn 26. júní eftir hetju- lega baráttu við erfiðan sjúkdóm. Elsku Anna, þú gafst okkur svo margt sem seint mun gleymast. Takk fyrir allt og allt. Megi algóður Guð varðveita þig og veita þér hvíld og frið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Bjössi, Þórir, Sóley og Bjarni. Megi Guð styrkja ykkur og hjálpa í gegnum þessa erfíðu tíma. Ég, Palli og Elva Dögg sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Við eigum minningarnar sem eiga eftir að ylja okkur. Asdís Þórisdóttir. í dag kveðjum við góða vinkonu, Önnu Rut Hauksdóttur. Það að setj- ast niður og skrifa kveðju til henn- ar sem tekin er svo fljótt frá eigin- manni og þremur börnum er sárara en orð fá lýst. Anna mín sem hafði barist á móti veikindum í um það bil ár af hetjulegri baráttu og þraut- seigju. Anna Rut var alltaf kát og glöð og gaf mikið af sér, hún gat gantast og hlegið þrátt fyrir veik- indi sín, sem lýsir henni svo vel, hvað hún var jákvæð. Hún þráði svo heitt að komast í nýja húsið sem þau Bjössi höfðu fest kaup á og vonaðist til að komast inn í það áður en þessari jarðvist væri lokið en við trúum því að hún sé nú ann- arstaðar í ekki síður fallegu húsi og líði nú vel. Við spyijum oft hver sé tilgangurinn með þessu lífí þegar ungt fólk er tekið frá okkur en þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Glaðværð Ónnu Rutar verður ljós í hjörtum okkar um ókomna framtíð. Elsku Bjössi, Þórir, Sóley og Bjarni Steinar, guð gefí ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja í friðarskaut. (V. Briem.) Elsku vinkona. Við þökkum samveruna að sinni. Þetta er skrif- að með söknuð í hjarta. Þínir vinir, Jóhanna og Bjarni. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formá- lanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Sérfræðingar í hlómnskruv lingiim vi<) öil (ækiínM'i Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.