Morgunblaðið - 02.07.1994, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 02.07.1994, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 31 + Sigurjón Guðni Sigurðsson var fæddur í Eyvindar- i hólum undir Aust- ur-Ejrjafjöllum 27. ■ maí 1924. Hann lést á Borgarspítal- anum 24. júní síð- astliðinn. Foreldr- ar hans voru Dýr- finna Jónsdóttir frá Seljavöllum, f. 1892, og Sigurður Jónsson frá Beija- nesi, f. 1888. Þau hjónin voru bænd- ur í Eyvindarhól- - um. Dýrfinna og Sigurður ™ eignuðust 11 börn. Þau eru: Ragnhildur, f. 1916, gift Ed- vard Pedersen, látinn, Sigríð- ur f. 1918, látin, Ásta, f. 1921, gift Baldvin Sigurðssyni, Mar- grét, f. 1922, Guðrún, f. 1926, Jón, f. 1929, Gunnar, f. 1931, Guðmundur Þórarinn, f. 1932, lést í æsku, Vilborg, f. 1934, y gift Guðjóni Jósepssyni, og 4 Guðríður Þóra, f. 1936, gift ^ Reyni Sæmundssyni. Einnig ólu þau upp dóttur Ragnhild- ar, Dýrfinnu, f. 1947. Sigurjón kvæntist 1. janúar 1965 Krist- björgu Magneu Gunnarsdóttur frá Suður-Fossi í Mýrdal, f. 16. febrúar 1941. Börn þeirra eru Sigríður, f. 1965, bankastarfs- maður, maki Magnús Skúlason Æ og eiga þau tvær dætur, Ásr- únu og Magneu; Sigrún, f. ' 1966, skógfræðinemi, unnusti 4 Öyvind Edvaldsen; Dýrfinna, f. 1971, nemi í KHÍ, unnusti Guðni S. Theodórsson; Auður, f. 1972, leikskólakennari; og Ágúst, f. 1974, húsasmiður. Heimili fjölskyldunnar hefur alla tíð verið á skógum undir Eyjafjöllum. Sigur- jón starfaði lengst af við Skógaskóla, fyrst við byggingu skólans og síðari ár sem umjónarmaður. Út- för hans fer fram frá Eyvindarhólakirkju í dag. FRÁFALL Siguijóns Guðna Sigurðssonar er okkur öllum sem þekktum hann mikill missir. Með honum er genginn sterkur per- sónuleiki, traustur og dyggur samstarfsmaður og ástrík- ur fjölskyldufaðir. Kynni okkar Siguijóns hófust árið 1978 er ég tók við stjórn Skógaskóla. Siguijón varð um- sjónarmaður við skólann árið 1977, en áður hafði hann starfað við skólann nær óslitið frá því að bygg- ing hans hófst árið 1947. Hann var þannig einn af frumheijunum sem þennan stað byggðu og sá starfsmaður sem lengstan starfs- aldur átti við skólann. Starf umsjónarmanns er mikil- vægt þar sem hann hefur umsjón með viðhaldi húsnæðis, tækja og lóðar. Hann þarf að geta gert við nánast allt sem bilað getur. Sigur- jóni fórst þetta starf vel úr hendi og það var greinilegt að þar fór maður sem hafði ánægju af starfi sínu. Hann var einstaklega lag- hentur og verklaginn, vandvirkur og yfirvegaður við störf sín. Segja má að starfið hafi verið honum eins konar köllun, svo samvisku- samur og traustur var hann. Hann bar hagsmuni skólans og staðarins fyrir bijósti í einu og öllu. Siguijón var ráðagóður og at- hugull og því var oft til hans leitað MINNIIMGAR af sveitungum og öðrum er þekktu til hæfileika hans. Hann var greið- vikinn og ávallt tilbúinn að rétta hjálparhönd ef eitthvað bjátaði á, hvort sem í hlut áttu starfsmenn skólans, nemendur eða aðrir. Siguijón var slökkviliðsstjóri sveitarinnar og sat í byggingar- nefnd um árabil. Hann fylgdist vel með þjóðmálum og var fróður um margt. Þá hafði hann brennandi áhuga á öllu er tii framfara mætti horfa fyrir sveitarfélagið og byggðarkjarnann í Skógum. Hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og var ófeiminn við að láta þær í ljós. Gamansemin var aldrei langt und- an og hann gat átt það til að vera dálítið stríðinn. En hann var rétt- sýnn og umfram allt heiðarlegur í samskiptum við fólk. Siguijón var kvæntur Krist- björgu Magneu Gunnarsdóttur og eignuðust þau fimm börn sem nú eru öll uppkomin. Saman stofnuðu þau og byggðu upp fallegt heimili í Skógum. Þau voru samrýnd og samhent við uppeldi barnanna og metnaðarfull fyrir þeirra hönd, enda kappkostuðu þau að koma bömunum til mennta. Trúin, ásamt þeirri samheldni sem ríkir í fjöl- skyldunni mun reynast henni ómetanlegur styrkur á stund sorg- arinnar. Við samstarfsmenn Siguijóns sjáum á bak góðum starfsfélaga og vini. Okkur er efst í huga þakk- læti og virðing fyrir látnum sam- ferðamanni sem gott er að hafa kynnst og starfað með. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, . hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég votta Magneu og börnunum, tengdabömum og barnabömum mína dýpstu samúð og bið Guð almáttugan að veita þeim styrk. Sverrir Magnússon. I --------------- ' SIGURJÓN GUÐNI SIG URÐSSON GARÐAR JENSSON ■4» Garðar Jensson var fæddur * í Reykjavík 21. september 1935. Hann Iést á Landakots- spítala 27. júní siðastliðinn og fór útför hans fram frá Foss- vogskirkju 1. júlí. VIÐ VIUUM með nokkrum orðum minnast mágs okkar og svila Garð- ^ars Jenssonar. í næstum þijátíu ^ Og sjö ár hefur verið meiri og minni samgangur milli heimila okkar, næstum á hveijum degi hin síðari ár. Það er því dálítið erfitt að trúa því að við sjáum Garðar ekki fram- ar, en við eigum margar góðar minningar um þann mæta mann. Ferðalög voru hans mestu ánægjustundir bæði erlendis og ^ekki síður hér innanlands. Hann ;1<keypti sér fjallabíl til að geta farið ’út fyrir hringveginn því öræfin, ^Vestfirðirnir, Strandirnar og það sem menn fara ekki alla jafna var hans viðfangsefni jafnt sumar sem vetur. Hann hafði mjög gaman af að takast þannig á við náttúru íslands. Og oftast fór Anna með honum í þessar ferðir. Erfiðustu ferðunum hafði hann mest gaman af að segja frá. Eftir að Garðar fpyijaði að fara í sumarfrí erlendis ^Jfyrir einum átján árum féll varla okkuð ár úr, nú síðast í febrúar ar farið til Spánar. Annað áhugamál Garðars var Alþýðuflokkurinn, því jafnaðar- stefnan var hans hugsjón. Hann 3at í mörg ár í stjórn Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur og einnig átti hann sæti í mörgum flokks- þingum Alþýðuflokksins. Hann var ^jrkur í Landsmálafélaginu Ró- ..yinni, og félagar hans þar þakka ^nonum mikil og vel unnin störf í ®>águ jafnaðarmannastefnunnar. 3innig var Garðar mjög virkur í -I AA-samtökunum og þótti honum vænt um þann félagsskap. Það er nú rúmt ár síðan Garðar greindist með þann sjúkdóm sem varð hon- um að aldurtila og engin lækning hefur enn fundist við. Hann vissi því vel að hveiju stefndi, en tók því með karlmennsku og hugarró, þó aldrei gæfi hann upp vonina um að tíminn yrði heldur lengri. Ég lifí í Jesú nafni í Jesú nafni ég dey þó heilsa og líf mér hafni hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt í Kristí krafti ég segi kom þú sæll þá þú vilt. (H.P.) Við vottum þér elsku Anna, Sig- urður, Margrét, Hilmar, Sigurlaug, Anna Rós, og Þóra Lind Sigurðar- dætur, okkar dýpstu samúð. Minn- ingin um góðan dreng lifir lengi. Guðlaug og Jóhannes. Vinnufélagi okkar og vinur, Garðar Jensson, var einn af þeim sem starfað hefur í íslandsbanka hf. frá stofnun hans, en hann hafði áður unnið hjá Verslunarbankan- um. Hann starfaði í rekstrardeild bankans og var hinn jákvæði og hógværi starfsmaður. Með fram- komu sinni stuðlaði hann að því að, að skapa umhverfi sem allir sem þar voru höfðu ánægju af að starfa í. í hveiju fyrirtæki sem hefur fjölda starfsmanna er hver staða mikilvæg og því þýðingarmikið að fyrirtækið hafi á að skipa sam- viskusömum og heilsteyptum ein- staklingum. Þannig var Garðar Jensson í störfum sínum við birgðahald íslandsbanka og þeir sem þar höfðu umsjón gátu ævin- lega treyst verkum hans og þeim upplýsingum sem frá honum komu. Þegar Garðar er nú horfinn úr hópi okkar íslandsbankamanna, langt fyrir aldur fram aðeins 58 ára gamall, spyijum við okkur spurninga sem við fáum ekki svar- að og sá einn veit svarið við sem hefur kallað hann til sín. Við viljum að leiðarlokum þakka Garðari samstafið og samfylgdina og biðjum honum Guðs blessunar. Eiginkonu hans, Önnu Klöru Guð- laugsdóttur, og fjölskyldu sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Samstarfsfólk í íslandsbanka hf. Skilafrestur vegna minningar greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf grein- in að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. BJÖRGVIN G UÐMUNDSSON + Björgvin Guð- mundsson var fæddur í Reykjavík 20. nóvember 1923. Hann lést á heimili sínu 21. júní síðast- liðinn. Foreldrar Björgvins voru hjónin Guðmundur Jónsson leigubíl- sljóri, ættaður frá Húsagarði í Land- sveit og Kristín Lýðsdóttir, ættuð frá Hjallanesi í Landsveit. Björg- vin á eina systur, Bryndísi, sem gift er Guðjóni B. Jónssyni. Árið 1945 kvæntist Björgvin Kristínu Jónsdóttur, ættaðri frá Flateyri. Þau eign- uðust tvö börn, Gretu og Jón. Greta er gift Steinari Petersen og eiga þau þijú börn, Birnu, sem er í sambúð með Ólafi Gylfasyni, Gunnar Má og Evu Hrönn. Jón starfar sem kvik- niyndat ökumaður og er búsett- ur í Sviss. Hann á einn son, Daníel. Útför Björgvins fór fram frá Fossvogskapellu 29. júní. FALLINN er frá tengdafaðir minn Björgvin Guðmundsson. Björgvin átti við heilsuleysi að stríða undan- farin ár en þrátt fyrir það kom snöggt andlát hans á óvart eins og ávallt þegar nákominn fellur frá. Björgvin ólst upp í Reykjavík en dvaldi oft í æsku hjá föðurafa sín- um og ömmu í Húsagarði. Björgvin stundaði ekki lang- skólanám þótt hann hefði alla hæfi- leika til þess heldur valdi að byija að vinna strax og hann hafði aldur til. Hans fyrsta starf var í kjötbúð í eigu móðurbróður hans, Hjalta Lýðssonar. Um tvítugt hóf Björg- vin leigubílaakstur sem varð hans ævistarf hans. Fyrst hjá Aðalstöð- inni, síðar Borgarbílastöðinni, en undanfarin 35 ára hjá Hreyfli. Björgvin og Kristín hófu búskap sinn á Njálsgötu 100 en fluttust fljótlega í eigið húsnæði í Drápu- hlíð 5 og hafa búið þar síðan. Störf leigubílsjóra hafa breyst mikið á undanförnum áratugum. Fyrr á árum þegar bílaeign lands- manna var ekki eins almenn og nú er, var algengt að leigubílar væru fengnir í langferðir út á land og ekki hafa þær allar verið auð- veldar. Vegir slæmir, fáar brýr og bílar ekki eins góðir og við þekkj- um þá í dag. Björgvin sagði mér margar skemmtilegar sögur af slíkum ferðum og þrátt fyrir erfiðleika og basl hefur hann vafalaust saknað þeirra þó ekki vildi hann viðurkenna það. Reyndar vissi ég hver Björgvin var áður en ég hitti hann fyrst. Ástæðan var sú að bílnúmerið hans R-326 og Benzarnir voru auðþekktir. Þeir báru af öðrum leigubílum sökum glæsileika og góðrar umhirðu. Allt- af voru þeir tandurhreinir og gljá- andi utan sem innan sama hvernig viðraði því Björgvin var einstakt snyrtimenni. Oft var hann fenginn til að aka með farþega þegar mik- ið lá við, t.d. við brúðkaup og með erlenda gesti. Þrátt fyrir að hafa stundað akst- ur í hartnær 50 ár er mér ekki kunnugt um að Björgvin hafi lent í neinu meiriháttar umferðar- óhappi. Hann var ekki þekktur fyr- ir hraðakstur en bæði bíll og menn gátu treyst því að komast heilir á leiðarenda. Björgvin ferðaðist mikið innan- lands og utan meðan heilsa leyfði pg var vandfundinn sá staður á íslandi sem hann hafði ekki komið til. Björgvin var greiðvikinn og grandvar maður. Þegar móðir hans • - Kristín var lasburða á efri árum var aðdáunarvert hve vel hann hugsaði um hana og sparaði hvorki tíma né fyrirhöfn til að létta henni lífið. Kynni okkar Björgvins stóðu í 27 ár og allan þann tíma bar aldr- ei skugga á okkar vináttu. Hann reyndist mér og fjölskyldu minni afar vel. Hann var ekki með af- skiptasemi en fylgdist vel með vel- ferð fjölskyldunnar úr fjarlægð til- búinn að rétta hjálparhönd ef á þyrfti að halda. Minningin um heiðarlegan og umhyggjusaman tengdaföður mun fylgja mér um ókomin ár. Steinar Petersen. Framleiðum legsteina á hagstæðu verði Blab allra landsmanna! - kjarni málsins! + Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, KRISTJÁN STEFÁNSSON, Smyrilshólum 2, Reykjavfk, lést á heimili okkar þann 29. júní. Rósa Maria Guðnadóttir, Stella Guðný Kristjánsdóttir, Stefanía Kristjánsdóttir. Opið laugardaga kl. 9-13.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.