Morgunblaðið - 02.07.1994, Page 34

Morgunblaðið - 02.07.1994, Page 34
34 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Dýraglens þesst míóTBR A V hæluhum'a /Hée.!) Grettir AKE YOU ANP YOUR 006 60ING TO CAMP THI5 SUMMER, CHARLIE SROWN? I DON T KNOLO.. IM NEVER QUITE 5URE HOW HE FEEL5 A50UT IT... W/Utf. l‘p RATHER 60 TO AFRICA.ANP6ET EATEN 5Y AN ELEPHANT.. -&---- Ferð þú og hundurinn þinn I Ég- veit ekki... ég er aldrei alveg sumarfoúðir í sumar, Kalli Bjarna? viss um hvernig honum líst á það... Heldur færi ég til Afríku og léti fíl éta mig... Stórtónleikar á Selljarnarnesi NORRÆNA tónlistarmótinu “Óm- ar fyrir umhverfið", sem Lúðrasveit Seltjarnarness hefur staðið fyrir þessa vikuna, lýkur með tónleikum í íþróttahúsi Seltjarnarness klukkan 14 í dag, laugardag. Þetta tónlistarmót, sem helgað er umhverfismálum, sækja um 120 manns, þar af 108 tónlistarmenn, frá Seltjarnamesi og vinabæjum í Danmörku og Svíþjóð. Mótsgestir hafa gist í Mýrarhúsaskóla, æft í tónlistarskólanum og haldnir vom tónleikar í Seltjarnarneskirkju á fimmtudagskvöldið. Þar léku Lúð- rasveit Seltjarnamess, Kullabandet frá Svíþjóð og Herlev Concert Band frá Danmörku. Á tónleikunum í íþrtóttahúsinu í dag spila tvær lúðrasveitir, sem myndaðar hafa verið á mótinu. Á efnisskránni eru eftirtalin verk: Drottningholmsmusiken í útsetn- ingu Stig Gustafsen, West Side Story eftir Leonard Bernstein, Verdi - syrpa í útsetningu Walter Tuschla, Big Band Favorites í út- setningu Bob Lowden, Symphonic Dance no. 1 eftir S. Rachmaninoff, The Simpsons eftir Danny Elfjman, Þys eftir Pál P. Pálsson, Bohemian Rhapsody eftir Freddie Mercury, Can - Can eftir Offenbach, Gospel John í útsetningu Lars Löfgren, Pipe Dream eftir Clare Grundman og Little Suite for Band eftir Clare Gmndman. Stjómendur em Kári Einarsson, Lars Löfgren og Thorbjörn Kjærga- ard. Breyting á reglum um bifreiðagjald NY REGLUGERÐ tók gildi 1. júlí sl. um bifreiðagjald og kemur í stað reglugerðar nr. 590/1987 um bif- reiðagjald með síðari breytingum. Með reglugerðinni verður sú gmnd- vallarbreyting á innheimtu bifreiða- gjaldsins, að ef skráningarmerki bifreiðar eru lögð inn til geymslu hjá Bifreiðaskoðun íslands hf. í minnst þijá mánuði samfellt, þá verður bifreiðin undanþegin gjald- inu og miðast undanþágan við dag- setningu innlagnar skráningar- merkja. Þessi reglugerðarbreyting kemur í framhaldi af breytingu sem gerð var á lögum um bifreiðagjald um síðustu áramót. Fram að þeim tíma varð lögum samkvæmt að greiða bifreiðagjald af öllum bif- reiðum sem skráðar voru í landinu án tillits til þess hvort þær voru á skráningarmerkjum og í notkun eða ekki, segir í tilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu. Hér eftir geta því þeir bifreiða- eigendur sem af einhveijum ástæð- um hyggjast ekki nota bifreiðir sín- ar allt árið sparað sér bæði trygg- ingar og bifreiðagjald með því að leggja inn skráningarmerkin. Þessi breyting kemur fyrst og fremst til með að nýtast eigendum húsbíla sem nota þá einungis nokkra mán- uði á ári svo og þeim sem eru að gera upp eldri bíla. Sérstök athygli er vakin á því að þessi breyting er ekki afturvirk, þ.e. hún tekur gildi þann 1. júlí fyrir síðara gjaldtíma- bil ársins og mun hún þannig ekki nýtast þeim aðilum aftur í tímann, sem lagt hafa inn skráningarmerki fyrir 1. júlí 1994. Ef skráningarmerki eru tekin út á miðju gjaldtímabili bifreiðagjalds verður viðkomandi að staðgreiða þann tíma sem eftir er af tímabilinu hjá Bifreiðaskoðun íslands. Þann 1. október fer fram breytingará- lagning og er skráningarmerkin liggja enn niðri, þá fellur niður álagning alls tímabilsins þannig að ef eignadi hafði greitt bifreiðagjald- ið, þá myndast hjá honum inneign sem viðkomandi innheimtumaður mun sjá um að endurgreiða. Ef skráningarmerkin eru síðan tekin út aftur, t.d. í nóvember, verður lagt á bifreiðina miðað við þann tíma sem eftir er af gjaldtímabilinu, þ.e. út árið. B.M. Vallá opnar amian áfanga Fomalundar B.M. VALLA hf. opnar í dag, laug- ardaginn 2. júlí, annan áfanga Fomalundar eftir umfangsmiklar framkvæmdir síðustu mánaða. Fornbíladagur á Arbæjarsafni FORNBÍLAKLÚBBUR íslands sýnir glæiskerrur og eðlavagna á Arbæjarsafni sunnudaginn 3. júlí. Sýndir verða ýmsir bílar frá árunum 1930—1960. Kristinn Snæ- land flytur erindi um bíla á íslandi kl. 15 en þar mun hann rekja sögu bílsins á íslandi og Qalla um nokkra merka fornbíla sem verða til sýnis á safninu. Fornilundur er sýningarsvæði Steinaverksmiðju B.M. Vallár sem fellt er inn í gamlan tijálund. Fyrsti áfangi Fornalundar hlaut viður- kenningu umhverfisnefndar Reykjavíkurborgar árið 1991. Heildarflatarmál Fornalundar er u.þ.b. 2000 fm. Fornilundur er hannaður sem lystigarður að evrópskri fyrirmynd með hellulögn, vegghleðslum, bekkjum, blómakerum og ljóskerum sem gera hann að einstökum sælu- reit. Tilefni opnunar II. áfanga er að tíu ár eru nú liðin frá því að B.M. Vallá kynnti í fyrsta sinn fram- leiðslu sína á hellum og steinum. Samhliða vígslunni á morgun verða kynntar margvíslegar nýjar vörur fyrir garða sem B.M. Vallá hefur þróað að undanförnu. Fyrir daga fornalundar stóð á þessum stað bærinn Hvammur og lagði ábúandinn þar, Jón Dungal, grunninn að þessum tijálundi um miðbik aldarinnar. Sérstök sýning verður um helgina og verður opið laugardag frá kl. 10-17 og sunnu- dag kl. 13-17. Nánari upplýsingar um Fornalund er að finna í auglýs- ingablaði B.M. Vallár sem fylgir Morgunblaðinu í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.