Morgunblaðið - 02.07.1994, Page 38
38 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Nýjasta nýtt frá
Rolling Stones
ÞESSI óvenjulega tækifærismynd var tekin af meðlimum
hljómsveitarinnar Rolling Stones í garði Rons Woods á ír-
landi. Þeir munu segja skilið við sveitasæluna 1. ágúst þeg-
ar þeir halda tónleika á RFK-leikvanginum í Washington sem
tekur 100.000 manns í sæti. Þeir munu síðan leggja af stað
í tónleikaferðalag undir yfirskriftinni „Voodoo Lounge" og
útgáfa á hljómplötu með sama nafni mun fyigja í kjölfarið.
Don Was framleiðandi þeirra segir um plötuna að hún muni
verða eins og „spark í sköflunginn á þér“.
Minogue og
Van Damme
í bardaga-
mynd
Hollywood-
stjarna er
jafnan höfuðstór
►gamanleikar-
ANUM Billy
Crystal verður
sjaldan orða
vant. I ný-
um sjón-
þætti
hann um Holly-
wood og velti því
fyrir y sér hvað
þyrfti I i, til að slá þar
í W gegn: „Ég hef
l>á Á v..'í kenningu að allar
stór- ---" sljörnur í Hollywood
hafi stórt höfuð. Hefurðu tekið eftir
því? Bogart — heljarmikið höfuð. Jim
Cagney — stórt höfuð. Nicholson —
risastórt höfuð. Meryl Streep — stórt
höfuð. Ég gæti haldið áfram í alla
nótt.“
►ÁSTRALSKA leikkonan Kylie
Minogue og belgíski Ieikarinn
Jean-Claude Van Damme stilla
sér upp á tökustað kvikmyndar-
innar „Streetfighter". Þau fara
með aðalhlutverk kvikmyndar-
sem er framleidd
af Warner
Brothers
og kostar
2800
millj-
ónir ísl.
króna.
Til sam-
anburðar
' mágeta
þess að Bíó-
dagar Frið-
riks Þórs Frið-
rikssonar
einnar dýr-
ustu ís-
lensku
kvik-
myndar
sem
gerð
hefur
verið
kostaði ríf-
lega hundrað
milljónir ísl. króna.
Kylie Minogue hefur
lengi stefnt að því að slá
í gegn á leiklistarbrautinni.
Hún kvartaði undan því í ný-
legu viðtali að henni hefði ekki
enn boðist hlutverk í metnaðar-
fullri kvikmynd. Hún er hins-
vegar þeim mun vinsælli söng-
kona í Bandaríkjunum og
sagði í sama viðtali að hún
ætlaði að einbeita sér að
söngferlinum fyrst áður en
hún tæki leiklistina alvar-
lega. Víst er að „Street-
fighter" verður varla til-
nefnd til Óskarsverð-
launa en sem bardaga-
mynd á hún eflaust
eftir að njóta mikiila
vinsælda.
Sharon
Stone lög-
sækir skart-
gripasala
SHARON Stone hefur lögsótt Ron
Winston einn þekktasta skartgripa-
sala New York. Áætlaður máls-
kostnaður leikkonunnar er 700
milljónir ísl. króna, en hún þénar
um 350 milljónir ísl. króna á hverri
kvikmynd. Málsóknin er vegna 28
milljóna ísl. króna demantshálsfest-
ar sem leikkonan fékk lánaða við
hátíðlegt tækifæri. Samkvæmt frá-
sögn Stone sagði Winston að leik-
konan gæti átt hálsfestina ef hún
gengi með hana opinberlega. Hann
sagði að þetta væri fáránlegt:
„Hvaðan hún fékk þá hugmynd að
við værum að gefa henni hálsfestina
er ofar mínum skilningi. Þetta er
það sem maður fær að launum fyr-
ir góðmennsku, spark í andlitið. Það
eru alltof margir lögfræðingar í
þessu landi. Það er hægt að lög-
sækja hvern sem er á hvaða tíma
sem er. Ætli einhver hafi ekki kom-
ið henni til að halda að þetta væri
voðalega sniðugt.“
Gráðug helgi í Háskólabíói!
0 smtl ö3;'
&WyM
i C93'>83783 k
1
i
.........:...
:
VJ
ÍÍÍÚXÍÍSSÍÍ:
Jafnræði,
frelsi og
bræðralag
HVÍTUR er önnur af þremur kvik-
myndum sem leikstjórinn Krzysztof
Kieslowski (Tvöfalt líf Veroniku)
hefur gert eftir frönsku fánalitun-
um. Fyrsta kvikmyndin Blár hefur
þegar verið sýnd hér á landi en
Rauður á eftir að koma fyrir sjónir
almennings. í reynd fjallar Hvít-
ur um jafnræði en Blár snerist
um frelsi og Rauður mun taka
á bræðralagi. Hvitur er svört
kómedía um hárgreiðslumeist-
ara (Zbigniew Zamachowski)
sem er yfirgefinn af Dominique
eiginkonu sinni (Julie Delpy)
vegna þess að honum tekst ekki
að fullnægja henni kynferðis-
lega. Síðan sigar hún lögregl-
unni á hann og Ioks lætur hún
hann hlusta þegar nýjum elsk-
huga hennar tekst að gefa henni
það sem honum sjálfum tókst
aldrei í rúminu. Julie Delpy seg-
Julie Delpy og Zbigniew
Zamachowski leika í nýjustu
kvikmynd Kieslowskis.
ir að Dominique sé ekki alvond. „Ég
skil hugarvíl hennar, því henni
finnst sökin liggja hjá sér. Öll kvik-
myndin fjallar um misskilning. Hún
er um tvær manneskjur sem ná
ekki saman.“