Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 1

Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 1
56 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 186. TBL. 82. ARG. FÖSTUDAGUR 19. AGUST 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Norðmenn deila um stöðu Svalbarða i aðildarsamningi við ESB Norska stjórnin sökuð um að villa um fyrir þjóðinni NORGES Fiskarlag, landssamtök norska sjávarútvegsins, hefur gagnrýnt norsk stjórnvöld harðlega fyrir hvernig staðið hefur verið að kynningu á Svalbarðakafla aðildarsamningsins við Evrópusam- bandið (ESB). Telur Norges Fiskarlag að norska stjórnin hafi reynt að villa um fyrir Stórþinginu og þjóðinni. Norges Fiskarlag segir að sam- kvæmt aðildarsamningnum muni Evrópusambandið, að afloknum aðlögunartíma, taka við stjórnun fiskveiða á fiskverndarsvæðinu við Svalbarða. í upplýsingabæklingi til almennings frá norsku stjórn- inni segir hins vegar að Svalbarða- svæðið sé undanskilið í samningn- um. Ónákvæmar lýsingar til útskýringar v Erling Holsmet, deildarstjóri hjá Norges Fiskarlag, segir í samtali við norsku fréttastofuna NTB að Fiskarlaget hafi ávallt haldið þess- ari túlkun á aðildarsamningnum fram og bent á að hlutirnir hafi verið öðruvísi orðaðir þegar samn- ingurinn var kynntur í Stórþing- inu. Hins vegar hafi menn ekki áttað sig á því fyrr en nú hvernig greint er frá þessu í bæklingnum. „í stað þess að vitna í samninginn eru notaðar ónákvæmar lýsingar til að útskýra málið,“ segir Hols- met. ■ Fiskveiðideilan/6/7 Smygl á geislavirkum efnum til smíði kjarnavopna Rússar lofa að herða eftirlit með plútoni Reuter London, Brussel, Pétursborg. Reuter, The Daily Telegraph. SÉRFRÆÐINGAR við kjarnorkustofnun í Karlsruhe í Þýskalandi segja að sterkar vísbendingar séu um að plúton, sem tekið hefur verið af smyglurum í Þýskalandi, hafi upprunalega komið frá Sovét- hernum fyrrverandi. Moskvustjórnin hefur lengi vísað harðlega á bug sem vestrænum áróðri fullyrðingum þýskra stjórnvalda þess efnis að plútonið sé frá Rússlandi. Rússar sögðust þó í gær ætla að herða öryggiseftirlit sitt og lögreglan sagðist hafa klófest þijá menn sem reynt hafi að selja geislavirk efni í Kalíníngrad. 50 ára bið eftir síma Búdapest. Reutcr. UNGVERSK kona sótti um síma fyrir rúmum 50 árum og hefur ekki enn fengið hann, að sögn dagblaðs í Búdapest. Starfsmenn símafyrirtækis- ins komu loksins á heimili kon- unnar á dögunum en gátu ekki lokið við að leggja Ieiðsl- urnar þar sem þeir urðu uppi- skroppa með varahluti. Konan er áttræð og sótti um símalínu fyrir árið 1944. Hún gafst upp á baráttunni við kerfið árið 1985 og fól syni sínum að halda henni áfram fyrir sig. Símafyrirtæk- ið lofaði árið 1991 að konan fengi síma innan árs og sonur- inn greiddi fyrirfram jafnvirði 39.000 króna. Fulltrúi þýskra stjórnvalda full- yrðir að Borís Jeltsín Rússlands- forseti hafi heitið fullri samvinnu um aðgerðir gegn smyglinu. Talið er Iíklegast að plútonið hafi verið framleitt í einni af svo- nefndum „leyniborgum" sem Sov- étstjórnin gamla lét reisa, oft í grennd við stórborgir. Bandaríska dagblaðið The New York Times hefur eftir heimildarmönnum sín- um að efni til smíði kjarnavopna sé víða í reiðileysi í Rússlandi, varðveitt í lítt vörðum rannsókna- stofnunum og vopnaverksmiðjum, kjarnorkuverum, geymslustöðum fyrir kjarnorkuúrgang, eldsneytis- birgðastöðvum flotans og víðar. Nefndar eru leyniborgirnar Tsj- eljabínsk-65, Tomsk-7 og Krasnoj- arsk-26 en mest athygli beinist nú að Arzamas-16, skammt frá Nízní Novgorod. The New York Times hefur eftir embættismönn- um og sérfræðingum í Rússlandi að stjórnvöld geti með engu móti vitað hvort eitthvað af efnum til gerðar kjarnavopna hafi týnst eða verið stolið. Áhyggjur hjá NATO Um 300 tonn munu vera til af plútoni í Evrópu. Sérfræðingar öiyggiseftirlits kjarnorkustofn- unarinnar Euratoms taka undir með Þjóðveijum en benda á að ekki sé víst' að efni smyglaranna hafi komið milliliðalaust frá áður- nefndum borgum í Rússlandi. Þýsk yfirvöld tóku m.a. fáein grömm af plútoni af smyglurum í maí sl. og hefur það síðan verið rannsak- að. „Við erum nokkuð vissir um að þetta kom frá [sovéska] hern- um,“ sagði Georges Herbillion, aðstoðarforstjóri eftirlits Eura- toms. Gert er ráð fyrir að utanríkis- og varnarmálaráðherrar Atlants- hafsbandalagsins, NATO, muni í dag ræða hættuna sem stafar af smygli geislavirkra efna er glæpa- menn og einræðisríki gætu notað til vopnagerðar. Einnig munu inn- anríkisráðherrar Evrópusam- bandsins og a-evrópskir starfs- bræður þeirra ræða sömu mál í byijun september. ■ Kaupendur í þriðja heiminum?/17 Samveldis- leikamir settir ELÍSABET Bretadrottning setti Samveldisleikana við hátíðlega athöfn í Viktoríu í Bresku Kól- umbíu í gær. Suður-Afríkumenn taka nú þátt í leikunum í fyrsta sinn í 36 ár og athygli hefur vak- ið að af 112 íþróttamönnum, sem keppa fyrir hönd landsins, eru aðeins sjö blökkumenn. „Við get- um ekki afsakað þennan mun á þessari stundu. Við skellum skuld- inni á fortíðina. Allir leggja mikla áherslu á að jafna þennan mun,“ sagði Steve Tshweta, íþróttamála- ráðherra Suður-Afríku, á blaða- mannafundi. Á myndinni tilkynnir índíánahöfðingi komu sína á leik- ana við setningarathöfnina. Ætla að steypa húsá tunglinu London. The Daily Telegraph. FYRSTU skrefin í átt til steypu- framkvæmda á tunglinu verða stigin í næstu ferð bandarísku geimferjunnar Endeavour út í himinhvolfið. Geimskoti var frestað í gær á síðustu sekúndu er tölvur geimfeijunnar fundu bilun í eldsneytisdælu og slökktu á hreyflum. Um borð í Endeavour verður sérsmíðuð steypustöð þar sem hrært verður saman sementi, sandi og vatni til þess að kanna hvernig steypa blandast og sest í svo gott sem þyngdarleysi. Þyngdarkrafturinn þykir ráða úrslitum um hvernig steypa harðnar og sest. Þegar maðurinn snýr aftur til tunglsins verður hann að notast við það byggingarefni sem þar er að finna, þar sem flutningskostnaður frá jörðu yrði annars sem næmi 3,2 millj- örðum króna á tonnið. Banda- ríska geimferðastofnunin (NASA) áformar að reisa rann- sóknarstöð á tunglinu. Ráðgert er að byggja þriggja hæða hús og verða veggirnir að veija væntanlega dvalargesti fyrir hættulegum geimgeislum. Áhugi NASA á að nota jarð- efni á tunglinu til byggingar- framkvæmda þar vaknaði eftir tilraunir með jarðvegssýni sem Apollo-geimförin sóttu til tunglsins á sínum tíma. Var þeim blandað við vatn og sem- ent á jörðu niðri og fékkst úr því óvenju viðnámsþolin og end- ingargóð steypa. Vatn til steypuframkvæmda er ekki að finna á tunglinu en lausn hefur verið fundin á þeim vanda. Hún er í því fólgin að blanda saman 595 kílóum af títanjárni, málmstein sem er að finna á tunglinu, og 8 kílóum af vetnisgasi, sem flutt er frá jörðu. Við það verða til 60 lítrar af vatni. Lýst yfir neyðar- ástandi 1 Flórída Key West, Washington. Reuter. LAWTON Chiles, ríkisstjóri í Flórída, lýsti í gær yfir neyðarástandi í ríki sínu og bað Bill Clinton Bandaríkjaforseta að grípa til neyðaraðgerða vegna gífurlegs fjölda flóttamanna sem streyma frá Kúbu til Flórída. Chiles sagðist myndu kalla til þjóðvarðlið ríkisins ef nauðsyn krefði. Það sem af er ágúst hefur banda- ríska strandgæslan bjargað 3.000 Kúbveijum úr varasömum fleytum, mörgum gerðum úr hjólbarðaslöng- um, á leið til Bandaríkjanna. Flótta- mannastraumurinn er nú orðinn meiri en nokkru sinni frá árinu 1980, þegar 125 þúsund Kúbveijar flýðu til Flórída á nokkrum mánuð- um. Það sem af er árinu hafa rúm- lega 6.000 Kúbveijar haldið til Bandaríkjanna, tvöfalt fleiri en á öllu síðasta ári. „Hundruð manna, ef til vill þúsundir, bíða á strönd Kúbu í von um að komast í burtu. Fídel Kastró Kúbuleiðtogi gerir ekkert til að stöðva þá. Reyndar virðist allt gert til að hvetja fólkið til að flýja,“ sagði Chiles. ■ Flórída vill rjkisaðstoð/17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.