Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 48
MewU£d
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Fengur, skip Þróunarsamvinnustofnunar, í stórræðum á Flórídasundi
Fann kúb-
~ verska
flóttamenn
áfleka
FENGUR RE, skip Þróunarsam-
vinnustofnunar, sigldi nýverið
fram á fleka með sex kúbverska
flóttamenn innanborðs á Flórída-
sundi um 20 sjómílur vestur af
Havana. Að sögn Ingu Fanneyjar
Egilsdóttur, stýrimanns, höfðu
flóttamennirnir sem allir voru
— tiarlmenn verið á reki í fimm
daga. Hún segir að flekinn hafi
verið úr sex bambusprikum og
þremur uppblásnum hjólbarða-
slöngum. Inga segir að sexmenn-
ingarnir hafi verið nokkuð þrek-
aðir án þess þó að vera að niður-
lotum komnir. Áhöfnin á Fengi
færði þeim mat og drykk. „Þeir
voru vatnslausir og urðu mjög
fegnir þegar við gáfum þeim að
borða.“ Hún segir að þeir hafi
verið í skjóllitlum fötum og því
<. „ bæði illa í stakk búnir til að vera
í mikilli sól og miklu vatnsveðri.
Að sögn Ingu sást hvergi til lands
auk þess sem sjólag mun oft vera
mikið á þessum slóðum. „Þetta
er eins og að vera á blöðru á
miðjum Faxaflóa!"
Tóku þá ekki um borð
Fengur er á heimleið frá
Panama eftir að hafa starfað í
þágu þróunarsamvinnu í tvö ár.
Skipið siglir undir íslenskum
fána og átti því erfitt um vik að
taka flóttamennina um borð að
sögn Ingu. Hefði það verið gert
hefði væntanlega þurft að flytja
þá til íslands. „Við ætluðum ekki
""íið taka þá um borð nema í ítrustu
neyð þannig að við létum banda-
rísku strandgæsluna strax vita.
Hún kom eftir átta klukkutíma
þrátt fyrir að hafa sagst ætla að
vera komin eftir tvo.“ Áhöfnin á
Fengi hélt flóttamönnunum við
efnið á meðan. Að sögn Ingu var
spáð slæmu veðri um kvöldið og
Morgunblaðið/Inga Fanney Egilsdóttir
fór það hríðversnandi þegar
þyrla bandaríska sjóhersins kom
loks á vettvang og hífði mennina
um borð. „Við vorum farin að
íhuga hvort við ættum að taka
þá um borð enda var mikið hvass-
viðri komið strax klukkutíma sið-
ar.“
Konur og börn líka
Inga segir að fleiri flekar hafi
verið á reki á sundinu á sama
tíma og þess vegna hafi strand-
gæslan tafist. Hún segir að Feng-
ur hafi verið fyrstur til að til-
kynna um rekald þennan daginn
en skömmu síðar hafi áhöfnin
fengið veður af fleirum. „Manni
þótti það nógu hrikalegt að sjá
karlmenn í þessu ástandi en við
heyrðum í talstöðinni að á öðrum
flekum væru konur og börn.“
Að sögn Ingu fórst fyrir nokkru
á þessum slóðum áþekkur fleki
og komst þá einungis eitt barn
lífs af. Hún heyrði í útvarpinu á
Flórída að bandaríska strand-
gæslan væri búin að hirða upp
sex þúsund kúbverska flótta-
menn á þennan hátt það sem af
er árinu. Þeir munu vera fluttir
í flóttamannabúðir á Flórída.
LÍU hvatt
tilaðkalla
skipúr
Smugimni
ARVEID Veek, framkvæmdastjóri
samtaka norskra útvegsmanna,
sneri sér í gær til framkvæmda-
stjóra LÍÚ til að koma á framfæri
þeirri skoðun að brýnt væri að koma
á samningaviðræðum í deilu íslend-
inga og Norðmanna um fiskveiði-
réttindi í Barenteshafi. Arveid Veek
sagði í samtali við Morgunblaðið
eina skilyrðið sem íslendingar
þyrftu að uppfylla til að samninga-
viðræður geti hafist sé að kalla
skip sín úr Smugunni.
Sveinn Hjörtur Hjartarson, starf-
andi framkvæmdastjóri LÍÚ, sagði
í samtali við Morgunblaðið að LIÚ
fagnaði því að fram væri kominn
vilji af hálfu Norðmanna til að ná
samkomulagi, ekki síst þar sem
frumkvæði kæmi úr röðum norskra
útvegsmanna. Hann vildi hins vegar
ekki tjá sig um líkur á því að ís-
lenskir útvegsmenn kalli skip sín
úr Smugunni en sagði að mál þetta
yrði rætt á stjórnarfundi LÍÚ næst-
komandi miðvikudag.
Ekki í valdi íslenskra
stjórnvalda
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði við Morgunblaðið
að það gæti ekki verið í valdi ís-
lenskra stjórnvalda að kalla skip
heim þar sem þau hefðu ekki yfir
því að segja hvar skip stunduðu
veiðar utan íslenskrar lögsögu.
Arveid Veek sagði að engir skildu
betur vandamál íslenskrar útgerðar
en norskir útgerðarmenn, sem á
árum áður hafi staðið frammi fyrir
aflaleysi og rekstrarerfiðleikum.
■ Fiskveiðideilan/6-7
Samkeppnisráð óskar eftir rannsókn á bensínverðshækkuninni
Verðlagsákvæði á
bensín koma til álita
SAMKEPPNISRÁÐ telur ýmislegt benda til þess að olíufélögin hafi haft
•ólöglegt samráð um tveggja króna hækkun á bensíni sem tók gildi í gær.
I bókun sem samþykkt var á fundi ráðsins í gær segir að til álita komi
að taka verðlagningu bensíns undir verðlagsákvæði á ný. Var Samkeppnis-
stofnun falið að afla gagna til að kanna hvort ástæða sé til íhlutunar.
Forráðamenn olíufélaganna þeirra
segja að hækkunarþörf allra félag-
anna hafi ótvírætt verið fyrir hendi
og þegar eitt félagið hafi látið til
skarar skríða hafi hin fylgt á eftir.
Þannig hafi bensínverð hækkað um
35 dollara tonnið á Rotterdam-
markaði frá því um mánaðamótin
apríl/maí. Verðhækkunin þýðir um
300 milljóna króna útgjaldaaukn-
ingu fyrir bíleigendur á ári.
Georg Ólafsson, forstjóri Sam-
keppnisstofnunar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að það hefði legið
fyrir þegar verðlagning á bensíni
var gefin ftjáls að hér væri um
fákeppnismarkað að ræða. Til
lengri tíma litið gæti því ekki verið
mikill munur á milli fyrirtækjanna
í verðlagningu. „Það hefur hins
vegar gerst nær undantekningar-
laust að verð á bensíni hefur hækk-
að samtímis hjá öllum félögunum.
Það gefur vísbendingu um að um
samráð geti verið að ræða.“
Neyðarúræði
„Við gerum okkur grein fyrir því
að það ríkir mikil samkeppni milli
félaganna um aðra þætti en verðið.
Þau virðast ekki sjá sér hag í því
að keppa í verði vegna fákeppninn-
ar á markaðnum. Samkeppnisstofn-
un mun athuga hvort það sé tilefni
til íhlutunar en það yrði neyðarúr-
ræði ef grípa þyrfti til slíkra ráð-
stafana."
■ Olíufélagið átti... /14
Hekla þenst út
HEKLA er að bólgna út. Þetta var
upplýst, þegar jarðskjálftahrinan
við Hveragerði hófst fyrir nokkrum
vikum. Virkni við Hveragerði hefur
fylgt Heklugosum, eftir gosið 1981
kom skjálftahrina þar og meðan á
gosinu 1991 stóð og eftir það urðu
jarðskjálftar við Hveragerði.
Það er vel þekkt að eldfjöli þenj-
ist út áður en þau gjósa og hafa
menn besta reynslu af því af
Kröflugosum hérlendis. Gerðar
voru mælingar fyrir nokkrum vik-
um á Hektu sem ekki hefur veriý
unnið úr enn og því of snemmt að
segja til um hvort breytingarnar á
fjallinu séu undanfari eldgoss. Þó
er vitað að Hekla þandist út áður
en hún gaus 1981 og 1991.
. Morgunblaðið/Sverrir
V atnabuffall á Álftanesi
STÆÐILEGUR vatnabuffall mót-
aður í steinsteypu hefur vakið at-
hygli íbúa í nágrenni við Austur-
tún á Álftanesi upp á síðkastið.
Heiðurinn af listaverkinu á tæ-
lenskur maður, Som Sawangjait-
ham, sem er staddur hér á landi
til að heimsækja dóttur sína og
tengdason. Að sögn tengdasonar-
ins, Boga Jónssonar, er vatnabuf-
fall tákn styrkleika á Tælandi.
Hann segir að Som sitji sjaldan
auðum höndum og þvi hafi þetta
verið tilvalið verkefni í sumarleyf-
inu. Að steypunni undanskilinni
hafði listamaðurinn einungis net-
grindur og pappahólka sér til
fulltingis við gerð verksins.
Á myndinni eru Som Sawangja-
itham og kona hans frú Thongbai
Sawangjaitham frá Nakhon Pat-
hom í Tælandi. Buffallinn heitir
„Kadingthong", sem þýðir gull-
bjalla. Herra Sawangjaitham ger-
ir gjarnan slík listaverk, þegar
hann kemur í heimsókn til ætt-
ingja sinna, fremur en skrifa í
gestabók.