Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 8

Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Orn Þór Þorbjörnsson skipstjóri á Andey SF 222 Fór friðsamlega og „ÞEIR létu allan tímann um borð eins og skipin hefði verið tekin herskyldi og farið yrði með okku'r til hafnar. Engu að síður fór allt friðsamlega og kurteis- lega fram. Við vorum alveg sannfærðir um að þarna væri aðeins um sjónarspil að ræða og ætluðum ekki að fara að blása neitt upp fyrir þá,“ segir Örn Þór Þorbjömsson, skipstjóri á Andey SF 222 frá Homa- firði, um heimsókn tveggja norskra strandgæslu- manna í skipið í síðustu viku. Tveir norskir strand- gæslumenn, stýrimaður og sjúkraliði, sigu niður í And- ey og Hágang I úr þyrlu um kl. 18 áföstudag. „Þeir bönnuðu okkur að halda áfram fiskvinnslunni, fóru niður í lestar og gerðu allar dagbækur upptækar þang- að til fyrirmæli komu frá Senju um að við mættum halda áfram heim,“ segir Örn Þór og tekur fram að farið hafi verið að fyrir- mælum mannanna. Áður en strandgæslu- mennirnir yfirgáfu skipið afhentu þeir Erni Þór skrif- lega aðvömn. Hún er á ensku og segir í textanum að gefin hafi verið skrifleg Morgunblaðið/Snorri Aðalsteinsson ORN Þór Þorbjörnsson með viðvörunina frá Norðmönnunum. viðvörun vegna ólöglegra veiða á verndarsvæðinu í kringum Svalbarða. Ef skipið sjáist aftur að veið- um innan verndarsvæðisins verði það stöðvað og fært til hafnar. Verðum að semja Örn telur ekki spurningu að láta reyna á lagasetn- ingu Norðmanna. „Svo verður að reyna að semja um þetta. Auðvitað er ekk- ert annað en rugl hjá Norð- mönnum að leyfa okkur að fiska þarna. Við fiskum geysilega mikið. Þó við séu reknir út af Svalbarða- svæðinu fiskum við mikið í Smugunni," sagði Örn. Hann sagði dæmi sanna að Norðmenn myndu að- stoða íslendinga ef slys bæri að höndum. „En margt annað en hrein slys á fólki geta orðið þarna. Þeir færu aldrei að aðstoða okkur við að skera veiðar- færi úr skrúfu þarna. Eins ef um einhveijar minni- háttar vélarbilanir væri að ræða sem væri mjög auð- velt að laga á svæðinu. Því er engin spurning að við erum miklu betur settir með skip í nágrenninu," sagði Örn. Fjölskyldan frá vinstri: Hildur, Ágxista, Arnar Þór Þorbjörnsson og Stefán. Feta í fótspor föðurins Hornafirði - Hér sannast máltæk- ið um eplið og eikina því þijú af fjórum börnum Arnar Þórs Þorbjörnssonar, skipstjóra á Andey SF 222, eru meira og minna á sjó hjá honum en Unnur móðir þeirra heldur enn í þann yngsta, Atla, sem er 5 ára, og fær stundum að heyra það að hún haldi of fast í hann. í síðasta túr Andeyjar var Ágústa, yngsta dóttir þeirra, á sextánda ári, með sem einn áhafnarmeðlimur en Örn sagðist aldrei leyfa þeim öllum að vera um borð í einu, svo Stefán, 17 ára, og Hildur, sem er 21 árs og hefur verið Iengst af þeim systk- inum á sjó eða í 4 ár á Andey, tóku sér sumarfrí þennan fræga túr þegar systir þeirra bjargaði norsk-íslenska þorskastríðinu. Já, þessir túrar í Smuguna eru um margt ólikir öðrum túrum, allt fullt af þorski og varðskip og þyrlur sveimandi yfir íslensku skipunum en eftir heimsókn norsku gæslunnar í Andey á dögunum er gantast með það um borð að Orn þurfi ekkert að hafa áhyggjur af þessu lengur því að hann eigi tengdason í norska sjóhernum. „Ég var að vappa í kringum þá þessa þrjá tíma sem þeir þurftu að bíða eftir Senju og var annar þeirra mjög sætur. Þegar þeir kvöddu okkur spurði einn strákanna um borð hvort hann væri til í að kyssa mig kveðjukoss og hann fékk ég heldur betur. Sagði ég við pabba á eftir að hann þyrfti nú ekkert að óttast lengur þegar hann væri á þessum miðum því hann ætti orðið tengdason í norska, sjóhernum," segir Ágústa Örn gerði sér lítið fyrir og kallaði í herskipið og þakkaði skipherranum kærlega fyrir að sigla 100 sjómílur til að uppfylla ósk dóttur sinnar því að hún hafði beðið lengi eftir að sjá alvöru herskip. En ekki fylgdir sögunni hvernig öllu þessu var tekið um borð í Senju. Næstkomandi laugardagsmorgun mun Andey.halda á Smugumiðin á ný og Örn og Ágústa verða eftir. Ágústa sagðist alveg vera til að fara aftur en skólinn væri að byrja. Hildur og Stefán munu fara um borð og aðspurð sögðust þau ekki kvíða því að fara þarna norðureftir. Eina leiðinlega við þetta væri fimm daga stím á miðin og það væri hundleiðinlegt að sitja aðgerðarlaus þessa daga. Björgunarsveit Ingólfs 50 ára Bj örgnnar sýning- á Miðbakka og kaffi- samsæti í Hafnarhúsi RAGIMAR MAGNÚSSON Björgunarsveit Ing- ólfs í Reykjavík fagnar hálfrar aldar afmæli sínu næst- komandi laugardag og verður mikið um dýrðir við Reykjavíkurhöfn af þessu tilefni. Björgunar- sveitin var stofnuð 28. febrúar 1944 upp úr Slysavarnadeildinni Ing- ólfi. Sveitin hefur frá upphafí rekið björgunar- skip. fyrir Slysavarnafé- lag íslands. Fýrsta skipið fékk Slysavamafélagið að gjöf frá Sandgerði og var það gert upp. í Reykjavík. Það eyðilagð- ist við björgun við Engey árið 1954. Árið 1956 gaf Gísli J. Johnsen kaup- maður Slysavarnafélag- inu björgunarskip sem var í notk- un allt fram til ársins 1989. Núver- andi björgunarskip er Henry Hálf- dánsson. Auk þess á Björgunar- sveitin þijá minni báta. Félagar í Björgunarsveit Ingólfs em á bilinu 1.200 til 1.300 en virkir félagar eru um 80. Björgunarsveit Ingólfs er ein af 90 björgunarsveitum Slysavarnafélags íslands og eina Reykjavíkursveitin sem sinnir bæði sjó- og landútköllum. Á síð- asta ári var sjóflokkurinn kallaður út 23 sinnum og land- og bíla- flokkur 25 sinnum. í tilefni tímamótanna nú verður haldin björgunarsýning með þátttöku tveggja þyrlna og síðar um daginn verður kaffisamsæti í Hafnarhús- inu. Undirbúningur afmælisins hefur verið í höndum ungs manns, 'Ragnars Magnússonar, sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra sveitarinnar í sumar og verið rit- stjóri afmælisrits sem er að koma út, en formaður Björgunarsveitar- innar er Þorsteinn Þorkelsson. Hvnð verður geit í tilefni af stórafmælinu, Ragnarl „Við höldum upp á afmælið á morgun með pomp og prakt og* mikill undirbúningur hefur staðið yfir í sumar. Hátíðarhöld verða á Miðbakka Reykjavíkurhafnar sem hefjast kl. 14. Þar verða fluttar ræður og menn heiðraðir. Þá verð- ur haldin björgunarsýning á Mið- bakka og vonumst við eftir því að tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar taki þátt í sýningunni en þó er það óvíst. Þeg- ar sýningunni lýkur verður boðið upp á kaffi í Hafnarhúsinu.“ Hvenær varst þú ráðinn fram- kvæmdastjóri sveitarinnar og í hverju er starf þitt fólgið? „Eg var ráðinn tímabundið sem starfsmaður í sumar til að sjá um framkvæmdir á afmælinu. Við erum einnig að gefa út veglegt afmælisrit sem kemur væntanlega úr prentun í dag.“ Hvernig rit vcrður þetta? „Félagar úr sveitinni skrifa í blaðið og fleiri samstarfsmenn okkar, t.d. úr Almannavörnum rík- isins og Landhelgisgæslunni. í því verða alls kyns frásagnir af björg- unarstörfum og annað efni. Það verður spennandi að sjá blaðið koma úr prentun því ég hef unnið við það meira eða minna í allt sumar. Blaðinu verður dreift til allra björgunarsveita landsins og allra félaga í Björgunar- og slysa- varnadeild Ingólfs sem eru á bilinu 1.200-1.300. Því verður einnig dreift víðar. Einnig hef ég verið að vinna dálítið í húsnæði okkar hér á Grandagarði, skipta um dúk á gólfi og mála. Það þarf líka ein- ► Ragnar Magnússon er fædd- ur 3. júlí 1970. Hann útskrifað- ist sem stúdent frá Menntaskól- anum við Sund árið 1990 og vann í þrjú ár við verkamanna- vinnu hjá Reykjavíkurborg. Á síðasta ári dvaldist hann í sjö mánuði í Gambíu á vegum Rauða kross Islands. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Björgunarsveitarinnar Ingólfs til tímabundinna starfa síðast- liðið vor. hver að vera til staðar þegar iðnað- armenn eru hér að störfum." Hve margir eru virkir í starfi Björgunarsveitarinnar Ingólfs? „Við erum með um 80 manns á útkallsskrá, bæði til sjós og lands. Við erum eina björgunar- sveitin í Reykjavík sem sinnir björgunarmálum fyrir Reykvík- inga og Faxaflóasvæðið. Við stór útköll eru á bilinu 30-40 manns kallaðir út. Állt er þetta unnið í sjálfboðastarfi." Hvað veldur því að menn bjóðast tii þessara starfa? „Líklega byrja flestir á því að fá áhuga fyrir fjallgöngum og ferðalögum og það er stærsti hlut- inn í starfi björgunarsveitar- manns. Hann ferðast um landið, bæði á æfingum og í útköllum. Auk þess kynnist maður fjölda manns í starfinu og vináttusam- bönd myndast. Sjálfur byijaði ég 18 ára gam- all að ferðast með fé- lögum mínum og fórum við um Fimmvörðuháls- inn og Laugaveginn svokallaða og upp frá því vaknaði áhugi minn fyrir björgunarsveitarstarfi. Nú hef ég verið í fimm ár félagi í sveitinni." Hvaða kostum þarf góður björgunarsveitarmaður að vera búinn? „Ég held að best fari á því að menn séu léttir í lund en þegar komið er í útköllin þurfa þeir fyrst og fremst að hafa hugann við það að slasa ekki sjálfa sig. Fyrsta reglan er að gæta að sjálfum sér því slasaður björgunarsveitarmað- ur kemur engum að gagni.“ Við hvað starfaðir þú áður? „Ég dvaldist í sjö mánuði á vegum Rauða kross íslands í Gambíu. Rauði kross íslands styrkir verkefni þar úti sem felst í uppbyggingu á skrifstofu þar í landi. Við unnum að því að búa þá skrifstofu undir það að verða fjárhagslega sjálfstæða í framtíð- inni. Það var friðsælt þarna mest- an tímann þótt bylting hafi verið gerð þar nýlega. En hlutirnir ganga ekki jafnhratt fyrir sig þar og á Islandi." I stórum út- köllum eru 30-40 manns kallaðir út.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.